Morgunblaðið - 26.10.1974, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 26.10.1974, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974 I minningu Vignis Guð- mundssonar blaðamanns VIGNIR Guðmundsson var sér- stæður maður og vakti athygli, hvar sem hann fór. Hann var um- hugsunarverður maður. Því olli andi hans og frásögn, persónu- leiki hans, framkoma og atferli. Ég kynntist honum .fyrst, er hann hóf blaðamennsku hjá Morgun- blaðinu, og var hann þá um þrí- tugt. I upphafi blaðamennsku- ferils síns lagði hann sérstaka alúð við landbúnaðarmál, og margar greinar hans um búskap og samtöl hans við bændur og búalið vöktu hvarvetna athygli. Á fáum árum eignaðst hann mjög stóran lesendahóp, því að stíll hans var látlaus og lifandi, hugsun hans og framsetning frjó. Ég held það hafi aldrei komið frá honum „dauður dálkur". Það var frétt, skoðun eða markmið í öllu er hann skrifaði. Blaðamennskan er heillandi starf, en verður að þjökun I lengd, ekki ólíkt skólakennslu; viðstöðu- laus andleg krafa; örðugt aðslaka á. Vignir hélt út í nærfellt tvo áratugi, en að lokum varð hann að láta undan, þótt hann hefði í vöggugjöf hlotið óvenjulega mikinn gjövileik og gáfur. Samstarfsmenn hans og hús- bændur á skrifstofum Morgun- blaðsins sakna drengilegs vinar og skemmtilegs félaga. Hann hvarf nauðugur frá blaðamennsk- unni, bugaður af sjúkleika og óviðráðanlegri ógæfu. Hann gekk ekki heill til skógar í eigin skap- höfn. Þess vegna tapaði hann í glímunni við Bakkus, eins og margir Islendingar, honum líkir, f jölhæfir og glæsilegir gáf umenn. Foreldrar Vignis voru hjónin Arnbjörg Sveinsdóttir og Guð- mundur Jónsson, bóndi á Mýrar- lóni við Akureyri. Móðir hans dó frá honum tvævetrum, og kom þá faðir hans honum í fóstur til Sigurjóns Sumarliðasonar, pósts á Akureyri, og konu hans, Guð- rúnar Jóhannsdóttur. I heimili þeirra var maður að nafni Stefán Sigurðsson. Reyndist Stefán sveininum unga sem bróðir og vinur. Minntist Vignir oft síðar vinar sfns, „Stebba". Bræður á Vignir tvo, Víking, bónda á Grænhóli við Akureyri og Svein, afgreiðslumann Éimskipa- félagsins á Seyðisfirði. Gjövileikur Vignis þroskaðist strax í bernsku. Honum gekk vel í skóla og var athafnasamur á öllum sviðum. Hann var ágætur íþróttamaður, m.a. var hann af- reksmaður f skfðamannaliði Menntaskólans á Akureyri, en auk þess var hann sundmaður góður, hestamaður og sportveiði- maður. Hann tók þátt í margvíslegum félagsmálum, var lengi formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðis- manna á Akureyri, og gaf út af- mælisrit félagsins á 25 ára afmæli þess árið 1954. Einnig var hann formaður Leikfélags Akureyrar um tíma. Hann var virkur félagi í ýmsum félagasamtökum eftir að hann fluttist suður. I æsku var Vignir strax starf- samur og duglegur og vann marg- vísleg störf á stuttu æviskeiði. Hann hætti námi f 5. bekk Menntaskólans og kvæntist þá fyrri konu sinni, Önnu Pálu Sveinsdóttur Bjarman frá Akur- eyri. Þau eignuðust 6 börn, sem hér verða talin: 1. Sigrún, gift Philip Jenkins pianóleikara, sem kenndi um tíma pfanóleik á Akur- eyri. Þau eru nú búsett í London. 2. Guðbjörg, gift Kristjáni Ár- mannssyni Dalmannssonar, kaup- félagsstjóra á Kópaskeri. 3. Arn- björg. 4. Guðrún Sigríður, gift Snorra Baldurssyni á Akureyri. 5. Anna og 6. Vignir. Anna og Vignir skildu. Síðar kvæntist Vignir Berthu Snorra- dóttur frá Norðfirði. Þau bjuggu í Reykjavík. Sonur þeirra er Snorri Vignir. Ég eignaðist vináttu þeirra og naut hennar og sam- verustunda með þeim á heimili þeirra. Þau skildu fyrir fáum árum. Vignir var til hamingju borinn og til hamingju vel gefinn, en hann kunni ekki tök á gæfu sinni. Vignir gegndi marvfslegum rit- störfum auk blaðamennskunnar, því að hún vakti á honum athygli og atorka hans og glæsimennska öfluðu honum trausts. Hann var fyrsti ritstjóri tfmaritsins FLUG (1956—57), og við, sem í upphafi stóðum að tímariti hestamanna, „HESTINUM OKKAR,“ töldum hann færastan blaðamann f landinu til, að koma því úr hlaði. Hann annaðist ritstjórn þess fyrstu 3 árin (1960—62) og gaf því þann svip, smekkvísi og fjöl- breytni, sem það hefur enn f dag. Einnig annaðist Vignir útgáfu af- mælisrits Sláturfélags Suður- lands, er það félag var fimmtugt. Og á s.l. ári kom út eftir hann bókin „Hesturinn þinn“. Af þessu, sem hér er sagt, má sjá, að Vignir var óvenjulega at- hafnasamur og lifði margslungnu lífi, og áður en hann hóf blaða- mennsku hafði hann fyrir norðan stundað jöfnum höndum jarð- yrkjustörf og verzlunarstörf, m.a. var hann verzlunarstjóri f útibúi KEA á Akureyri og sfðar var hann þar tollþjónn um fimm ára skeið, en jafnframt var hann þá fréttaritari Morgunblaðsins og skrifaði greinaflokkinn „Akur- eyrarbréf", sem vakti á honum athygli, sem síðar dró hann inn á skrifstofur Morgunblaósins. Þegar „Geysis-slysið“ var á Vatnajökli forðum, var Vignir, þá ungur og vaskur Akureyringur, fenginn með í björgunarleið- angurinn vegna vaskleika síns og skfðaíþróttar. Flugþernan f hópnum, Ingigerður Karlsdóttir, sem þá var flutt slösuð til byggða, minnist Vignis sérstaklega með hlýhug og aðdáun fyrir nærgætni hans og fræknleika í þeim mann- raunum. Að sfðustu vil ég hér minnast þeirra mannkosta vinar míns, Vignis, sem ég fékk á sfnum tíma rfkulega á njóta, en það var drengskapur hans. Margir menn eru góðir drengir í orði og hugsun. Það krefst meira að vera drengskaparmaður f verki, hvernig sem á stendur. Vignir var drengskaparmaður f orði, hugsun og verki. Þetta kom m.a. fram í því, að hann lét engum líðast að segja ósannindi eða órökstuddan óhróður um nokkurn mann. Eitt sinn átti ég í miklum erfiðleikum og stóð höllum fæti í lífsstríðinu. Þá kom þessi góði drengur alger- lega ótilkvaddur • á vettvang, kynnti sér mál mín, tók afstöðu án tillits til nokkurs annars en málavaxta og gekk inn f baráttu mína. Hann tók ekkert tillit til aðvörunarorða manna. Hann hafði eðli Illuga Grettisbróður í rfkum mæli. Því segi ég hér í greinarlok: „Berr er hverr á bakinu nema bróðureigi.“ Ég bið öllum börnum, ætt- ingjum og vinum Vignis Drottins blessunar. Gunnar Bjarnason. ÉG kom fyrir fáum dögum heim frá útlöndum, eftir hálfs- mánaðardvöl. Þegar ég leit í eitt- dagblaðið, var það fyrsta, sem ég sá, að Vignir Guðmundsson blaða- maður var látinn. Mér brá, því ég hafði séð hann svo glaðan og hressan norður á Vindheima- melum í sumar. Hann var þar með föður sínum og höfðu þeir keyrt frá Akureyri til að vera á Lands- mótinu. Ég kynntist Vigni á dálítið sér- stakan hátt. Hann var einn f hópi þeirra Akureyringa, sem björguðu mér úr slysi, sem ég lenti í fyrir 24 árum sfðan. Mér er minnisstætt hvað hann bar af þegar hann kom þarna upp á Bárðarbungu eftir 35 km og 10 klst. göngu, frískur og stæltur skíðamaður. Skömmu eftir komu Akureyr- inganna upp á jökulinn, var búist til heimferðar. Það féll í hlut Vignis, Ölafs Jónssonar, Jóns Sigurgeirssonar og Þorsteins Svanlaugssonar að hjálpa mér á margvíslegan hátt niður af jökl- inum. Nærgætni Vignis, dugnaður, ósérhlífni og vilji til að aðstoða mig eru mér ógleymanleg. Það gekk á ýmsu á leiðinni niður jökulinn og eftir að byggt hafði verið snjóhús, sem síðan var hætt við að gista í, tók það Vigni og Þorstein eina 5 tfma að drasla mér upp á Kistufell og niður bratt fjallið hinumegin. Látlaust töldu þeir í mig kjarkinn að duga og gefast ekki upp, og að lokum náðum við að bækistöð leiðangus- mannanna. Löng var sú ganga og þeim vinum mínum, sem mig studdu, erfið og seinfarin. Sfðan þessi kynni áttu sér stað, hefur Vignir verið vinur okkar hjóna. Til okkar kom hann oft og áttum við með honum margar ánægjulegar stundir. Oft ræddu þeir Hjalti og hann um hesta og ferðalög á hestum, en það var þeirra sameiginlega áhugamál. Vignir hafði ágætan frásagnar- hæfileika og var laginn að koma orðum að því, sem vakti kátfnu, án þess þó að særa nokkurn. Vignir var vinur vina sinna, traustur og einlægur. En ekki var hann gallalaus, frekar en við hin, og voru erfiðleikar hans honum þungir síðustu árin, enda bættu þar ekki úr veikindi og dvöl á sjúkrahúsum. Mér finnst Vignir alltaf hafa verið sérstakur persónuleiki, sem eftir var tekið hvar sem hann fór. Ef til vill var Vignir ekki alltaf rétt skilinn, en er það ekki svo með okkur öll — að okkur dreymir drauma, sem aldrei geta ræst? Þegar við vorum norður á Vind- heimamelum í sumar, kom Vignir f tjaldið til okkar og spjallaði við okkur góða stund. Við sögðum honum frá fyrirhugaðri ferð okkar á hestum suður Kjöl. Það lifnaði yfir honum og hann fór að segja okkur frá ferð, sem hann hafði farið fyrir nokkrum árum með vinum sínum frá Akureyri, svipaða leið og við hugðumst fara. Hann sagði okkur frá Galtará, ströngukvísl og Hvítanesi og kryddaði frásögn sfna með kvæði Jónasar, lýsingu á mislyndi og sandbleytu Ströngukvíslar og svo hinum góða vætd, sem hefðist við í Hvftanesi. Frásögn hans var lifandi og hann jók á tilhlökkun okkar, við að fara -enn einu sinni þessa fallegu leið. Auðheyrt var af frá- sögn Vignis, að hann naut þess að lifa aftur í endurminningum þess- arar dásamlegu ferðar suður Kjöl. Og er ekki lífið eitt ferðalag, við höfum mismunandi langa áfanga, og sumir leggja upp fyrr en aðrir. Ég trúi því, að síðasta ferð Vignis verði greiðfærari og léttari en þegar hann og Þorsteinn voru að hjálpa mér upp og niður Kistu- fellið forðum. Eg þakka honum fyrir sína aðstoð og kveð hann með góðum óskum. Megi ástvinir, sem nú kveðja hann,öðlast styrk í sorg sinni. Ingigerður Karlsdóttir. Vignir Guðmundsson blaðamað- ur verður jarðsettur frá Akureyr- arkirkju f dag. Hann var fæddur á Seyðisfirði 6. okt. 1926, sonur hjónanna Arn- bjargar Sveinsdóttur lengi bónda í Húsavík í Borgarfirði eystra Bjarnasonar, alsystur Jóns Sveinssonar bæjarstjóra á Akur- eyri, og Guðmundar Jónssonar lengi bónda S Mýrarlóni við Akur- eyri. Faðir Guðmundar, Jón Hnefill, síðast bóndi á Fossvöllum í Jökuldal, var þriðji maður frá Magnúsi Ölafssyni presti á Bjarnarnesi, en kona Jóns Hnefils og móðir Guðmundar var Guðrún Björnsdóttir bónda á Ekkjufelli í Fellum. Vignir Guðmundsson missti móður sfna ársgamall og ólst síð- an upp hjá hjónunum Guðrúnu Jóhannsdóttur frá Asláksstöðum og Sigurjóni Sumarliðasyni bónda þar og síðar pósti á Akureyri. Hann stundaði nám við Mennta- skólann á Akureyri, en vann síð- an við skrifstofu- og verzlunar- störf, unz hann gerðist tollvörður, en því starfi gegndi hann um fimm ára skeið. A þeim árum hófst blaðamannsferill Vignis Guðmundssonar með því að hann gerðist fréttaritari Morgunblaðs- ins 1951 og skrifaði auk þess mikið í Islending. Árið 1955 var hann sfðan ráðinn blaðamaður við Morgunblaðið og gegndi því starfi f hartnær tvo áratugi, á meðan heilsa hansleyfði. Vignir Guðmundsson hafði marga kosti, er góðan blaðamann mega prýða. Hann var gagnkunn- ugur högum Iands og þjóðar, ljós- myndari ágætur og fljótur að átta sig á mönnum og málefnum. Hann hafði sinn stfl; viðtöl hans voru einlæg og lifandi og bezt, þegar yrkisefnið var moldin og hesturinn. Það hefur sagt mér einn af ritstjórum Morgunblaðs- ins, að hann hafði oft saknað Vignis, eftir að hann hætti þar störfum; það var eitthvað í hans blaðamennsku umfram það venjulega. Vigni Guðmundssyni voru land- búnaðarmál einkar hugleikin og fjallaði hann um þau tæpitungu- laust, ef honum bauð svo við að horfa. Einkum átti hestamennsk- an hug hans allan, enda runnin honum í merg og bein. Á bernsku- heimili hans var annað umræðu- efni ekki Ijúfara en hestar og hestamennska; um eða fyrir fermingaraldur fékkst Vignir við tamningu hesta, og átti síðan hesta lengst af, eftir að hann komst til manns, eins og hann hefur sjálfur orðað það. Það kom því ekki á óvart, að hann skyldi verða fyrsti ritstjóri „Hestsins okkar", blaðs Landssambands hestamannafélaga. Og bók hans, Hesturinn þinn, er kom út á sl. ári, hefur að geyma marga snjalla frásöguþætti af ferðalögum Vign- is og kynnum hans af hestum og hestamönnum. Vignir Guðmundsson var karl- menni á velli og í lund, meðan hann hélt heilsu, enda vaskur íþróttamaður á unga aldri; var m.a. Islandsmeistari í svigi og stökkmaður ágætur. Vignir Guðmundsson var um skeið ritstjóri tímaritsins Flug og og sá oft um útgáfu ýmissa sér- rita. Hann lét félagsmál til sín taka, var m.a. formaður Varðar, FUS á Akureyri, og Leikfélags Akureyrar, eftirminnileg er t.d. ágæt túlkun hans á hlutverki Lenna í Mýs og menn. Auk þess kom hann oft fram í umræðuþátt- um og hélt erindi í útvarpið og sá einu sinni um fastan þátt þar um þjóðleg efni. Vignir Guðmundsson var tvf- kvæntur, en sleit samvistir við konur sínar báðar. Með fyrri konu sinni, önnu Pálu Sveinsdóttur Bjarman, átti hann sex börn. Sigrún, gift Philip Jenkins píanóleikara; Guðbjörg, gift Kristjáni Ármannssyni kaup- félagsstjóra á Kópaskeri; Arn- björg Guðrún, heitbundin Snorra Baldurssyni frá Ytri Tjörnum; Anna Pála, alin upp hjá móður- bróður sfnum séra Jóni Bjarman; Vignir. Síðari kona Vignis var Berta Snorradóttir, nú kaupkona í Reykjavfk, og áttu þau einn dreng, Snorra Vigni. I einkalífi Vignis Guðmunds- sonar skiptust á skin og skúrir. Síðustu misserin átti hann við mikla vanheilsu að stríða og erfið- leika sem- hann bar ekki gæfu til að sigrast á og kenndi ekki öðrum um. Hann naut þá sem oftar Vfk- ings bróður síns, en með þeim voru óvenju miklir bróðurkær- leikar og trúnaðartraust. Enginn vafi er á því, að sfðasta æviskeiðið varð Vigni léttbærara’ en ella vegna nábýlis þeirra bræðra. Eg kynntist Vigni Guðmunds- syni, er ég réðst blaðamaður að Morgunblaðinu 1961. Síðan höfð- um við margt saman að sælda og reyndi ég Vigni aldrei að öðru en drenglyndi og óvenjulegri hjálpsemi. Við, sem með honum unnum við Morgunblaðið og Is- lending, kveðjum nú góðan vin, sem gott var að starfa með. Ég votta nánustu ættingjum samúð mina og minna við fráfall Vignis Guðmundssonar. Megi hann hvfla í friði. Halldór Blöndal. Kveðja frá blaðamönnum Morgunblaðsins. ÞAÐ snart okkur djúpt gamla samstarfsmenn Vignis Guð- mundssonar á Morgunblaðinu, er við heyrðum Iát hans. Við sökn- uðum hans, er hann hvarf frá blaðinu fyrir rúmum tveimur árum eftir tveggja áratuga sam- starf sem fréttaritari og blaða- maður — og vonuðum að sá tími kæmi að hann slægist í hópinn að nýju. En nú er hann allur, ungur að árum, en hafði þó lifað við- burðaríka ævi. Vignir var hörkublaðamaður, þegar bezt lét. Hann var fljótur að átta sig á hlutunum og gekk að starfi með dugnaði, hvort heldur um var að ræða fréttaöflun eða samtöl við fólk. Þekking hans á landinu og helztu atvinnugrein- unum kom honum þá í góðar þarfir. Og ekki síður hitt, hve auðvelt hann átti með að kynnast fólki. I mörgum samtölum dró hann fram svo skýra mynd af viðmælanda sfnum, að lesandinn sá hann ljóslifandi fyrir sér. 1 kringum Vigni var aldrei nein lognmolla. Hann var alltaf hressi- legur og óragur við að láta skoð- anir sínar í ljós. Tók hann sér gjarnan stöðu í fremstu víglínu, þegar í hlut áttu málefni, sem hann hafði sérstakan áhuga á. En glaðastur var hann, þegar hann komst útúr skarkala borgarinnar og fékk notið töfra óbeizlaðrar náttúru, þar sem hann réð sér sjálfur, óbundinn og frjáls. Það var gaman að vinna með Vigni, þegar hann fékk notið sín. Hæfileikar hans duldust engum. Hann var hjálpsamur og hlýr og góður samstarfsmaður. Þannig viljum við, sem unnum með honum, minnast hans — þannig mun hann lifa í hugskoti okkar. Nú að leiðarlokum sendum við börnum hans og öðrum, sem sjá á bak gömlum vini, hugheilar samúðarkveðjur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.