Morgunblaðið - 26.10.1974, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974
21
umsjón: TRYGGVI
GUNNARSSON
Ársþing L.H.
haldið um næstu helgi
Helgina 2. og 3. nóvember
n.k. verður haldið á Akureyri
ársþing Landssambands hesta-
mannafélaga. Þingið sækja
rúmlega eitt hundrað fuiltrúar
frá hinum ýmsu hestamanna-
félögum f landinu. Að vanda
verða mörg mál tekin til um-
ræðu og nefndir þingsins munu
starfa að einstökum málaflokk-
um. Á þinginu flytur Þorkell
Bjarnason, hrossaræktarráðu-
nautur, erindi um Stóðhesta-
stöðina, sem nýlega var sett á
stofn á Litla-Hrauni. Þingið fer
fram á Hótel KEA.
Eins og áður sagði koma
mörg mál til umræðu á þinginu
og erfitt er að segja fyrir um
hvaða mál þar ber hæst. Hér á
eftir verður lauslega vikið að
nokkrum málum, sem ofarlega
eru á baugí meðal hestamanna.
Fyrir nokkrum árum var tek-
ið upp ný aðferð við að dæma
gæðinga, svo nefndir spjalda-
dómar. Aðferð þessi hefur
þann kost, að áhorfendum gefst
tækifæri til að fylgjast með þvf,
hvað hestur hlýtur f einkumn
fyrir hvert atriði. En þvf míður
hefur skort mikið á, að störf
dómara væru samræmd. Fyrir
þarf að liggja nákvæm skil-
greining á þvf, hvað hestur þarf
að gera til að fá tiltekna ein-
kunn. Þetta er þó ekki nóg,
heldur verða dómarar að til-
einka sér þennan samræmda
dómstiga. Það er þvf nauðsyn-
legt að auka fræðslu og þjálfun
dómara. Um hvort rétt sé að
halda áfram með að nota
spjaldadómana skal ekki rætt
hér aðsinni.
Stöðugt fækkar starfandi
söðlasmiðum f landinu en það
leiðir af sér skort á reiðtygjum
smfðuðum hér og sem verra er,
að erfitt verður að fá gert við
reiðtygi. Þetta mál hefur marg-
sinnis verið rætt á vettvangi
hestamanna og samþykktar um
aþað ályktanir. En nú er nauð-
synlegt að gera átak f þessum
málum og mættu hestamenn
hafa þar forystu um að þessi
gamla iðngrein okkar legðist
ekki niður.
A sfðustu árum hefur áhugi
hestamanna á aðild að íþrótta-
hreyfingunni farið vaxandi og
var hafinn töluverður undir-
búningur að því á síðast liðnum
vetri en þvf miður virðast for-
ystumenn hestamanna hafa
sofnað á verðinum og á Iþrótta-
þingi nú í haust var samþykkt
að vfsa inntöku hestamanna til
milliþinganefndar. Þessi sam-
þykkt getur haft það í för með
sér, að málið verði ekki afgreitt
fyrr en að tveimur árum liðn-
um. Forystumenn íþróttahreyf-
ingarinnar verða að gera sér
grein fyrir, að ekki er hægt að
taka mið af erlendum hestum
og þeirra keppnisgreinum
nema að litlu leyti. tslensk
hestamennska byggir á öðrum
— rúmlega
100
fulltrúar
sækja
þingið
forsendum. Erlendis hefur
reiðlistin og notkun hestsins
mótast af notkun hans í hernaði
mestmegnis en hér hefur hann
verið þátttakandi í daglegu lífi
fólksins og íslendingar hafa
nýtt kosti hestsins sér til
dægrastyttingar.
I viðtali, sem Mbl. átti nýlega
við þrjá forystumenní íslenskri
hrossarækt, bentu þeir meðal
annars á, að allt skipulag skorti
á fræðslustarfsemi hesta-
manna. Nokkrir reiðskólar hafa
starfað bæði á vegum hesta-
mannafélaga og einstaklinga en
í flestum tilfellum hefur þar
verið um að ræða að gefa börn-
um og unglingum kost á að
komast í tengsl við hesta. Það
hefur viljað gleymast, að hesta-
menn sjálfir þurfa fræðslu. Fá
þarf hæfa menn úr röðum
hestamanna og annarra til að
skrifa leiðbeiningar um ýmis-
legt, er lýtur að hestum og
hestamennsku.
Vaxandi fjöldi sækir nú í
hestamennskuna og eru þar
bæði ungir og aldnir. Þetta fólk
þarf að eiga aðgang að hand-
hægum upplýsingum við sitt
hæfi.
Ekki ósjaldan hafa hesta-
menn rætt um hvort halda skuli
áfram uppbyggingu á lands-
mótsaðstöðu að Skógarhólum I
Þingvallasveit. A sfðari árum
hafa komið upp góð mótssvæði
víðsvegar um landið sem vel
gætu hýst landsmót. Og er
landsmótið f sumar gott dæmi
um slíkt.
Við núverandi aðstæður, þ.e.,
að landsmótin eru haldin á f jög-
urra ára fresti, geta hæglega
liðið átta ár milli þess, að haldið
sé landsmót í Skógarhólum. Því
þarf í hvert skipti að leggja í
mikinn kostnað við undirbún-
ing.
Blaðið hefur fengið staðfest,
að á ársþingi L. H. um næstu
helgi komi fram tillaga um að
leggja Skógarhóla niður sem
landsmótsstað en framvegis
verði landsmótin haldin til
skiptis á hinum ýmsu móts-
svæðum hestamannafélaganna
og þannig unnið að vexti og
viðgangi mótssvæða, sem nýst
gætu fyrir landsmót, fjórðungs-
mót, héraðssýningar og kapp-
reiðar. Hugmynd tillöguflytj-
enda er ekki sú, að Landssam-
band hestamannafélaga afsali
sér Skólgarhólum, heldur verði
þar í framtíðinni áningarstaður
fyrir hestamenn á ferð. Mætti
þá breyta núverandi aðstöðu
með því að minnka girðingarn-
ar og spara þannig viðhalds-
kostnað.
Fyrir nokkrum árum var
samþykkt á ársþingi L.H., að
menn skyldu aðeins starfa
innan eins hestamannafélags
sem virkir þátttakendur. Á
liðnu sumri og áður hefur þótt
bera á, að hestamenn skrái
hesta sfna til þátttöku i gæð-
ingakeppnum í fleiru en einu
hestamannafélagi. Ekki verður
því annað séð en setja verði ný
og skýrari ákvæði um þetta.
Mætti þar hafa í huga, að menn
teldust virkir í því hestamanna-
félagi, sem þeir kepptu fyrir
eða innan, en óheimilt væri að
keppa í nafni nema eins hesta-
mannafélags.
Ýmislegt er á döfinni í
hrossakynbótum. I september
sJ. var haldinn í Kiel í V-Þýzka-
landi fundur á vegum Evrópu-
sambands eigenda íslenska
hestsins, þar sem rætt var um
samræmt dómskerfi á ís-
lenskum kynbótahrossum
innan Evrópu. Af Islands hálfu
sótti fundinn Þorkell Bjarna-
son, hrossaræktarráðunautur.
Verður nánar skýrt frá fund-
inum að viku liðinni.
I áðurnefndu viðtali, sem
Mbl. átti við þrjá forsvarsmenn
í íslenskri hrossarækt, var það
skoðun þeirra, að ræktunin ætti
áfram að vera í höndum fjöld-
ans. Einnig bentu þeir á, að
timi væri kominn til að endur-
skoða dómskerfi kynbóta-
hrossa. Það er þvi þörf á, að
hinum fjölmörgu hestamönn-
um, sem innan L.H. eru, gefist
kostur á að koma fram með
sínar hugmyndir og ábend-
ingar. Það bendir því margt til
þess, að kynbótamál verði ofar-
lega á baugi á þessu ársþingi.
Frá upphafi byggðar í land-
inu hafa menn ferðast um
landið á hestum og gera enn, þó
í breyttri mynd sé. Víðsvegar
um landið liggja gamlar hesta-
slóðir en því miður eru þær
sifellt að lokast vegna skurða
og girðanga. Þegar vegaöldin
hóf innreið sína færðust hesta-
menn nær vegunum og með-
fram flestum þjóðvegum
mynduðust reiðgötur. En síðari
ár hafa vegirnir verið breikk-
aðir og vegarstæðið i sumum
tilfellum flutt til. Oft hefur þá
gleymst að hugsa fyrir umferð
ríðandi manna. Samtök hesta-
manna verða því í samvinnu við
sveitarfélög og Vegagerð ríkis-
ins að finna lausn á þessu
vandamáli.
Á s.l. sumri fóru stórir hópar
hestamanna riðandi milli Suð-
ur- og Norðurlands. Sem áning-
arstaðir á f jöllum eru oft notað-
ar girðingar við gangnamanna-
kofana. Þetta hefur eðlilega
vakið spurningar hjá bændum
um afnot hestamanna af þess-
um girðingum. Hestamenn
verða að gera sér grein fyrir, að
eins erfitt og er fyrir þá að vera
á fjöllum I hagleysi, þá er enn
verra fyrir gangnamenn að
koma með hesta sína, oft í
vondum veðrum, í girðingar
þar sem ekki er stingandi strá.
Ýmsir möguleikar virðast vera
fyrir hendi til að leysa þennan
vanda en til þess þarf samvinnu
bænda og hestamanna. Vel
væri hægt að hugsa sér, að
hestamenn kæmu upp litlum
girðingupi við áningarstaðina
eða þeir bæru á áburð innan
girðinga, sem fyrir hendi eru.
Hér hefur eins og tekið var
fram í upphafi aðeins litillega
verið drepið á nokkur þeirra
mála, sem til umræðu eru
meðal hestamanna, en hafa
skal í huga, að þetta er engan
veginn tæmandi.
t-g.
Stóðið f Skagafirði kemur til byggða, Ljósm. Ragnar Tómasson.
Sameiginlegur
framhaldsfundur
útvegsmannafélaga
Suðurnesja, Hafnarfjarðar og Reykjavíkur,
verður haldinn að Skiphóli Hafnarfirði í dag kl.
2 síðdegis.
Stjórnir félaganna.
Félag einstæðra foreldra auglýsir
flóamarkað í dag
að Hallveigarstöðum
Opnað kl. 2. Ótrúlegt úrval af nýjum og notuð-
um vörum: fatnaður, húsgögn, gjafavörur,
búsáhöld, leikföng, jólakort og ótal margt fleira.
Lukkupakkar á kl. 1 50. Allt á gjafverði.
Stjórnin.
_ _ _
SKIPAUTGCRB RIKISINS
m/s Baldur
fer frá Reykjavík þriðjudagirm
29. þ.m. til Breiðafjarðahafna.
Vörumóttaka: mánudag og til
hádegis á þriðjudag.