Morgunblaðið - 26.10.1974, Page 23

Morgunblaðið - 26.10.1974, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974 23 FYRIR UNGU STULKURNAR Alls konar bolir hafa verið í tízku undanfarin ár. Enn virðist þessi tízka halda velli, og það nýjasta er að skreyta bolinn með hnöppum, sem eru saumaðir á þétt í hálsmálið, framan á ermunum, í hliðunum og að neðan. Þetta er ef til vill dálftið seinlegt verk, en í staðinn fáum við gerbreytta og sem nýja flík. Þessi skyrtublússa er frá London. Með breiðum borða getum við breytt skyrtublúss- unni eins og sést á myndinni. Einnig má skreyta blússuna með því að sauma borða á krag- ann, eða framan á ermar. Á sama hátt má lífga upp á sfð- buxurnar með þvf að sauma borða neðan í þær, eins og mjög er í tfzku um þessar mundir. Margar hafa líka skreytt bux- urnar með alls konar útsaumi og er það þá venjulega haft í öllum regnbogans litum. Skólafötin á börnin Hér sjáum við fall- eg og hlýleg skólaföt á börnin. Til vinstri eru köflóttar síð- buxur með breiðu belti, rúllukraga- peysa með. Til hægri eru einlitar buxur, rúllukraga- peysa með. SNYRTINGIN í VETUR Snyrtisérfræðingur nokkur franskur, Pier Augé að nafni, hefur komið fram með nýja snyrtingu fyrir veturinn. Litirnir eru mildir og bjartir, plómu- og aprikósulitur á púðrinu, mandarfnuiitur og rauðleitir litir á augnskuggunum, appelsfnu- gulur og rauður litur á kinnalitnum og varirnar eiga að vera plómulitar. Leikfimi. Mjaðmirnar hafa löngum reynzt mörgum konum áhyggjuefni, og þá einkum þeim, sem af náttúrunnar hendi eru breiðvaxnar. Þetta áhyggjuefni hefur orðið enn meira áberandi hin sfðari ár, þegar næstum hver einasta kona klæðist sfðbuxum, hvernig svo sem hún er f laginu. Leikfimissérfræðingar okkar telja okkur þó trú um, að þetta vandamál megi leysa með réttum leikfimisæfingum. Aðalatriðið er, að vöxturinn samsvari sér, að barmur og mjaðmir séu nokkurn veginn jafnbreið. Hér birtum við myndir af æfingum, sem eiga að bæta vöxtinn. Leggizt á fjóra fætur á gólfið með beina handleggi, lófana f gólfið, bakið beint, horfið fram. Lyftið nú hægri fæti og teygið eins langt aftur og þið getið (Mynd 1). Beygið nú hægri fótinn, setjið hann fram fyrir án þess að hann komi við barminn. Setjizt nú á hælinn á vinstra fæti, beint bak, horfið fram (Mynd 2). Endurtakið þessa æfingu tfu sinnum með hægra fæti, áður en byrjað er með vinstra fæti, sem sfðan er endurtekið tfu sinnum. Sem sagt, góð æfing fyrir mjaðmirnar. Tómstundmtarf að hausti Það er ýmislegt, sem við getum fundið úti f náttúrunni, þó komið sé haust og gróður að nokkru fallinn, sem gæti orðið hin skemmtilegustu viðfangs- efni við föndurgerð. Blómin eru að vfsu fölnuð, en lauf trjánna standa enn vfða eða eru nýfallin og heilleg. Steina má tfna eins lengi og jörð er auð og sama er með söfnun skelja. Auðvitað er skemmtilegra að gera allt slfkt f góðu veðri og þvf sjálfsagt að reyna að velja sér slfkan dag, ef hægt er. Skeljar og kuðungar eru ákaflega skemmtilegt viðfangs- efni og hægt að gera við það fleira en að Ifma á kassa. Má t.d. nefna óróa eða veggskreyt- ingu eða jafnvel litla borð- plötu, sem þyrfti þá að setja gler yfir. Ekki er ólfklegt, að hægt væri að gera það f handa- vinnu f skólanum. Hér eru nokkur sýnishorn, rétt til að gefa hugmynd. Þurrkuð lauf, plöntur og grös notuð til að punta smáöskjur eða slfkt. Plönturnar lfmdar á og sfðan er gott að lakka yfir með glæru lakki. Ódýr glerkrús, sem f er sett þang, steinar, sandur og smá- skeljar til skrauts. Matmiklar súpur Það er alltaf gott aS fá heita súpu I matinn, ekki slzt þegar tekur að kólna i veðri. Hér eru tvær súpuuppskriftir. sem ættu að henta sérlega vel til hádegis- verðar, t.d. þar sem börnin koma heim á misjöfnum trma og þarf að borða í mörgum „hollum". Það er tiltölulega auðvelt að halda súpu heitri í lengri tíma. Grænmetissúpa: 1 kg kartöflur, dálitið selleri 4 gulrætur, 4 púrrur (ef vill lárberjalauf, timian). Grænmetið skorið smátt, og aðeins látið í pott með smjörliki í. Siðan er 1 litra af vatni hellt yfir og látið sjóða þar til grænmetið er meyrt. Síðan er grænmetið stapp- að með stappara eða gegnum sigti, siðan hrært upp með súp- unni og bætt í dálitilli mjólk, salti og pipar eftir smekk (og ef vill persille eða graslauk). Og súpan er tilbúin. Veggmynd. Spónaplata 10 mm þykk, rammalistar 10 mm á breidd og þykkt. Málað með hvftri plastmálningu. Skeljar og kuðungar Ifmt á. Stórkostlega súpan. Smábiti af svinafleski, bacon eða öðru skorið í smáræmur. Tveir stórir laukar skornir í þunnar sneiðar. Þrjár púrrur og fjórar stórar gul- rætur skornar í þunnar sneiðar, dálítið selleri rifið gróft. Smjörliki sett i pott og kjötið og allt grænmetið brúnað i. Bragðbætt með salti, pipar og dálftilli papriku. Siðan er hellt sjóðandi vatni yfir þannig að það hylji vel. Tvær stórar kartöflur (án hýðis) skornar i smábita og bætt út i, látnar sjóða með. þar til allt er meyrt, u.þ.b. 1 klst. Kryddað að smekk. áður en borið er fram.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.