Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974
27
Laxness á fjölm
asta blaðamani
fundi einstakl-
ings í Þrándhei
0 „Glataður er sá rithöfundur,
sem fær Nóbelsverðlaunin.
Enginn nennir að lesa bækur
hans eftir það. Sjáifur seldi ég
þúsundvfs af bókum til þess
dags, sem ég fékk þessi áhrifa-
lausu verðlaun. Eftir það dró
heldur úr siilunni. Maður hefur
ekkert annað en óþægindi af
þessum verðlaunum, — burtséð
frá peningunum, sem ég man
ekki einu sinni lengur til hvers
ég notaði. Nei f Nóbelsverð-
launin langar engan f dag.“
0 Þessi orð hefur Þrándheims-
blaðið Addressavisen eftir
Halldóri Laxness, en fyrir
frumsýninguna á Kristnihaldi
undir jökli hjá Tröndelag
Teater föstudaginn 18. október
var haldinn blaðamannafundur
með rithöfundinum, sem blaðið
segir, að hafi verið sá fjölsótt-
asti, sem nokkur „velþekkt per-
sóna hefur verið heiðruð með f
Þrándheimi". Mættu þar bæði
blaðamenn staðarblaðanna og
Óslóarblaðanna, svo og frétta-
menn útvarps og sjónvarps, er
þar voru flutt viðtöl við Lax
ness.
Á blaðamannafundinum
„þar sem Laxness keðjureykt
vindla af áberandi stærðar
flokki", segir blaðið að skáldic
hafi orðið meir og meir undr
andi á túlkunum manna ;
skáldsögunni og leikritini
Kristnihald undir jökli. „Ég fei
að halda, að þeir, sem lesa séi
miklu gáfaðri en höfundurinn
sjálfur, því að ég verð stöðugt
forviða vegna allra þessara há-
fleygu túlkana, sem margir
leggja f bækur mfnar.“
Aðspurður um ástæðuna fyrir
því, að aðalkvenpersóna leik-
ritsins endurfæðist í fisklíki,
svaraði Laxness: „Sennilega
vegna þess, að það er svo mikið
af laxi í þeim héruðum sem eru
sögusviðið.“
Um trúmál segir Laxness
m.a.:„Kaþólikki— jú, víst er ég
það. En á 72. aldursári vil ég
ákveðið færast undan að segja
Laxness á blaðamannafundinum f Þrándheimi: „Eg á mér ekkert
lffsviðhorf, bara minn litla skilning svo lengi sem hann varir.“
Myndin birtist f Addressavisen.
nokkuð um lífsviðhorf. Sjálfur
hef ég ekkert. Ég hef aðeins
minn litla skilning, svo lengi
sem hann varir.“
Halldór Laxness kom einnig
fram á svonefndu „Menningar-
kvöldi“ Kennaraháskólans f
Þrándheimi, að því er frá er
sagt í staðarblöðum, en þessi
kvöld eru að verða föst menn-
ingarhefð í borginni. Var þetta
menningarkvöld tileinkað ís-
landi, og kom þar einnig fram
Rut Magnúsdóttir og söng lög
íslenzkra höfunda. Flutt voru
sýnishorn íslenzks skáldskapar
í norskri þýðingu, m.a. las leik-
konan Inger Worren kafla úr
skáldsögum Laxness. Þá flutti
Ivar Eskeland erindi um ísland
sem nefndist „I upphafi var
Island og orðið“.
Norræn
kvöldvaka
NORRÆNA félagið f Kópavogi
efnir til kvöldvöku sunnudaginn
27. þ.m. kl. 20.30 f Þinghól á
Alfhólsvegi 11.
Maj Britt Imnander, forstjóri
Norræna hússins, kynnir þar tvo
landa sína sem nýlega hafa hlotið
Nóbelsverðlaun i bókmenntum,
þá Eyvind Johnson og Harry
Martinson. Kór Menntaskólans
við Hamrahlíð syngur undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og
loks verður sýnd undurfögur ný
kvikmynd Ósvalds Knudsens um
Surtseyjargosið og kviknun nýs
lífs á eyjunni.
I sumar kaus félagið fyrsta
heiðursfélaga sinn — frú Þor-
björgu Halldórs frá Höfnum, sem
átt hafði sæti í stjórninni frá upp-
hafi, oftast sem gjaldkeri. Frú
Þorbjörg varð sjötug á liðnu
sumri. Þá hefur félagið í undir-
búningi ritgerðasamkeppni meðal
skólabarna um kynningu á vina-
bæjum Kópavogs, sem eru nú alls
sex talsins frá öllum Norðurlönd-
um að Færeyjum og Álandseyjum
meðtöldum.
Stjórn félagsins skipa nú:
Hjálmar Ólafsson formaður,
Gunnar Guðmundsson varafor-
maður, Ragnheiður Tryggvadóttir
gjaldkeri, Þórður Magnússon rit-
ari, Solveig Runólfsdóttir með-
stjórnandi.
Guðmundur Sigurjónsson
teflir fjöltefli í Kópavogi
GUÐMUNDUR Sigurjónsson
skákmeistari teflir fjöltefli n.k.
þriðjudagskvöld kl. 20 f Félags-
heimili Kópavogs, efri sal. Tóm-
stundaráð Kópavogs stendur fvrir
fjöltefli þessu. Er ekki að efa að
marga fýsi að etja kapp við skák-
meistarann eftir hina frábæru
frammistöðu hans á skákmótinu á
Costa Brava nú eigi alls fyrir
löngu.
Skákáhugi hefur verið mikill í
Kópavogi undanfarin ár. Tóm-
stundaráð hefur haldið námskeið
Skagfirðingar
minnast séra
Hallgríms
Mælifelli —
23. október.
NÆSTKOMANDI sunnudag verð-
ur 3ja alda ártfðar sr. Hallgrfms
Péturssonar minnst við guðsþjón-
ustugerðir f Glaumbæ og á Mæli-
felli, Rfp f Hegranesi og Hofi á
Höfðaströnd. Hefjast messurnar
klukkan tvö nema á Mælifelli kl.
4.
Séra Hallgrímur var sem þjóð
veit Skagfirðingur að ætt óg upp-
runa, fæddur I Gröf á Höfða-
strönd 1614, alin upp þar og á
Hólum, en þangað fluttust for-
eldrar hans, er hann var f
bernsku. Að sjálfsögðu má gera
ráð fyrir mikilli kirkjusókn f
minningu hans í héraðinu.
—Sr. Ágúst.
440 lestir fyrir
14,2 millj. kr.
SJÖ sfldveiðiskip seldu samtals
440 lestir af sfld f Danmörku í
gær fyrir 14.2 millj. kr. Meðal-
verð gærdagsins var kr. 33.
Skipin, sem seldu, voru þessi:
Skírnir AK fyrir 1.9 millj. kr., Jón
Garðar GK fyrir 2.7 millj. kr., Jón
Finnsson GK fyrir 1.5 millj. kr.,
Grímseyingur GK fyrir 1.8 millj.
kr., Arsæll GK fyrir 1.1 millj. kr.,
Keflvíkingur KE fyrir 2.3 millj.
kr. og Þorsteinn RE fyrir 2.9
millj. kr.
bæði i barna- og gagnfræðaskól-
um bæjarins á hverjum vetri.
Ennfremur hefur farið fram
skákkeppni milli barnaskólanna
og önnur milli gagnfræðaskól-
anna þar sem keppt er um farand-
bikara.
Nú er í þann veginn að hefjast 6
vikna skáknámskeið í barnaskól-
unum. Leiðbeinendur á því nám-
skeiði verða skákmennirnir Bragi
Kristjánsson, Gunnar Gunnarsson
og Jón Pálsson.
Taflfélag Kópavogs tekur þátt í
deildarkeppni skáksambandsins
og hefur þar forustu eftir 1. um-
ferð eftir sigur yfir Hreyfli 17V4
— 2'A. I sveit taflfélagsins er
harðsnúið lið kunnra skákmanna
og má þar nefna Jónas Þorvalds-
son, Jón Pálsson, Júlíus Friðjóns-
son, Björn Halldórsson, Áskel
örn Kárason og Guðlaugu Þor-
steinsdóttur.
Teflt er heima og heiman og fer
keppnin í Kópavogi fram i hús-
næði félagsmálastofnunarinnar,
Álfhólsvegi 32, Þar fara æfingar
félagsins einnig fram á fimmtu-
dagskvöldum.
Lausn
skipstjórans
Hentugasti ayptarmælirinn fyrir
10—40 tonna báta, 8 skalar
niður á 720 m dýpi, skiptanleg
botnlina, er greinir fisk frá botni.
Dýpislína og venjuleg botnlína,
kasetta með 6" þurrpappír, sem
má tvínota.
SIMRAD
Bræðraborgarstíg 1,
s. 14135 — 14340.
kominn
tími til
að ,,hinn þögli meirihluti" láti ekki
fámenna klíku traðka á sér lengur.
Nú höfum við tækifæri til að mótmæla
lélegu sjónvarpsefni og lokun
Keflavíkursjónvarpsins
með undirskrift okkar
Hvað
verður okkur
bannað
nœst?
Við skorum á alla frjálsthugsandi
íslendinga, að skrifa undir lista frjálsrar
menningar strax í dag.
Vanti yður lista
“ eða viljið þér styrkja söfnunina,
þá hafið samband við Frjálsa menningu,
Skipholti 37, sími 85670
OPIÐALLADAGA
Frjáls' menning