Morgunblaðið - 19.11.1974, Síða 30

Morgunblaðið - 19.11.1974, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÖVEMBER 1974 Jón Eyjólfsson Minning EINN af elztu starfsmönnum Þjóðleikhússins, Jón Eyjólfsson, iést s.l. mánudag. Við hittumst á tröppum Þjóðleikhússins í býti þennan morgun og hann sagði: „Nú er ég móður.“ Ég býst við að ég hafi svarað eitthvað sem svo: „Jæja Jón minnn, kannski er það veðrið, hann hefur kólnað í nótt.“ Annars var ekki óvenjulegt að Jón kvartaði undan mæði hin sfðari ár, hann var orðinn lifs- móður. Hafi hann verið sæll sem barn á yngri árum, sem ég hygg ekki ósennilegt, var hann oft vansæll hin síðari ár, enda heilsufarið honum erfitt. Hann hugsaði mikið um dauðann og hafði oft orð á því, þegar samferðarmennirnir voru að hverfa. Vafalaust hefur honum verið sinn dauðdagi að skapi, hann var trúr í starfi fram á síð- ustu stund, var nýkominn úr sendiferð, innan um samstarfs- fólk sitt í leikhúsinu þegar kallið kom. Að mörgu leyti var Jón mikill einstæðingur í tilverunni. Þó átti hann gott athvarf þar sem Ellen systir hans var. Og svo var leik- húsið hans annað heimili. Hann byrjaði ungur að starfa fyrir Leikfélag Reykjavíkur og starfs- maður Þjóðleikhússins var hann frá upphafi. Hér var hugur hans allur. Hann tók t.d. þátt í leiksýn- ingum og átti safn af leikskrám og leikritum, sem hann gaf Leik- félaginu. Áhugann á leiklist hefur hann ugglaust sótt í föður- hús en hann var sonur Eyjólfs rakara Jónssonar frá Herru, sem einmitt fékkst við leikritun, og konu hans Rögnu fæddri Hoel. Hann var fæddur 29. marz 1909 og var því 65 ára er hann lést. Þó að JónEyjólfssonværieinn hinna hógværu í landinu, var hann þó einn þeirra manna sem setti svip á bæinn. Hætt er við að ýmsir sakni þess að sjá hann ekki oftar á götuhorni með skjalatösk- una undir hendinni, i úlpunni sinni og með loðhúfuna og sam- vizkusemina og trúmennskuna glampandi I andlitinu. Og honum fylgja í dag hlýjar kveðjur frá samverkafólkinu í leikhúsinu. Sveinn Einarsson. Ég trúði því vart er mér var sagt frá láti vinar míns og samstarfs- manns Jóns Eyjólfssonar. Honum þakka ég hversu góður hann var mér alla tíð og margvís- legar gjafir færði hann mér þann tíma sem kynni okkar stóðu. Á erfiðri stundu vil ég biðja Guð að styrkja ættingja hans. Kristinn Guðbjartur Guðmunds- son, sendisveinn. HANN Nonni okkar er farinn, en svo var Jón jafnan nefndur í hópi vina og samstarfsmanna. Margir þekktu Nonna og hann setti líka sinn sérstæða svip á þessa borg. Margar sendiferðir fór hann fyrir leikhúsin. Oft var taska hans þung, sem hann axlaði, þegar hann gekk eftir strætum borgar- innar, og sinnti skyldustörfum sínum af dyggð og trúmennsku. Skyldurækni hans og heiðarlfeiki var einstök. Jón var ungur að árum þegar t Maðurinn minn EINAR SVEINBJÖRNSSON, bóndi, HeiSarbæ, Þingvallasveit, andaðist 1 4 nóvember Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd barna og tengabarna Unnur Frlmannsdóttir. hann byrjaði að starfa hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur. Faðir hans, Eyjólfur Jónsson, rakari, starfaði þar einnig um langt árabil. Hjá Leikfélagi Reykjavikur vann Jón til ársins 1949, en þá var hann ráðinn fastur sendimaður hjá Þjóðleikhúsinu og þar starfaði hann til dauðadags. Ekki munu laun Jóns hafa verið mikil fyrstu starfsár hans hjá L. R., en um slíka hluti spurði Jón aldrei. Ef til vill skiptir það líka minnstu máli þegar upp er staðið að lokum og þannig held ég, að Jón hafi hugsað. Skyldurækni, trúmennsku og gott hjartalag mat hann umfram veraldlegan auð. Hin síðari ár gekk Jón ekki heiil til skógar og átti við þráláta vanheilsu að stríða. Oft reyndist þá erfitt þreyttum og afllitlum herðum að axla hina þungu sendi- mannstösku Þjóðleikhússins, en samt vann hann þar, að vísu með nokkrum hléum, vegna veikinda, Sesselja Sigmunds- dóttir - Minningarorð Fædd 5/7 1902 Dáin 8/11. 1974 Sesselja Sigmundsdóttir er dá- in. Með henni er gengin ein af mætustu og merkustu konum hennar kynslóðar. Þegar á unga aldri hafði hún þá hugsjón, að hún vildi hjálpa þeim, sem ættu bágt, og þá helst börn- um, sem væru andlega ekki þess umkomin að heyja sina lifsbar- áttu hjálparlaust. Þessi hugsjón var hún trú meðan kraftar og líf entust. Störf hennar í þágu vangefinna eru svo merk og mikil, og svo ótrúlegt hverju hún gat til vegar komið, þrátt fyrir alla erfiðleika brautryðjandans, að aðdáun og furðu vekur. Fórnfýsi hennar, ósérplægni, dugnaður og kjarkur sameinaðist allt um að gera það kraftaverk, sem barnaheimilið Sólheimar i Grimsnesi er í dag. Félítil, með nokkur börn i tjaldi, i dalnum þar sem barna- heimilið stendur í dag, hóf hún sitt ævistarf. Mun mörgum trú- lega hafa þótt sem þessi glæsilega og gáfaða stúlka gæti valið sér þægilegri lífsstöðu. Af framsýni valdi Sesselja stað þar sem hiti var i jörðu, enda er sundlaugin öilum heimilismönn- um bæði heilsubót og gleðigjafi. Ennfremur hafa gróðurhúsin, sem risið hafa smátt og smátt, átt sinn þátt i því góða heilsufari sem einkennt hefur ibúa Sólheima frá fyrstu tíð, því Sesselja aflaði sér staðgóðra þekkingar í næringar- fræði, og hafði Jónas Kristjáns- son læknir hinar mestu mætur á heimilinu sem boðbera þeirrar stefnu að forðast eftir megni til- búinn áburð við ræktun grænmet- is. Húsdýraáburður var tiltækur þar sem Sesselja stundaði búskap. Var Jónas læknir tíður gestur á heimilinu og taldi sig hvorki utan- lands né innan hafa fengið betri grænmetisrétti. Auk þess mat hann Sesselju mikils fyrir mann- úðarstörf hennar, en glaðværð hennar og græskulaus kimni gerði öllum létt i skapi er á henn- ar fund leituðu. Veganesti Sesselju að heiman til ævistarfs síns var henni líka vissulega samboðið, þar sem for- eldrar hennar voru, hin ágætu hjón Kristín Simonardóttir og Sigmundur Sveinsson. Voru þau hjón samhent í öllu því sem betur mátti fara. Bæði stórvelgefin til munns og handa. Studdu þau dóttur sina á margvíslegan hátt þegar á móti blés, og glöddust yfir sigrum hennar. Sesselja fæddist í Hafnarfirði 5. júlí 1902 og var elst 8 systkina, sem öll lifa nema 1 bróðir, Lúð- vik, sem andaðist á miðjum aldri. Öll eru systkinin þekkt að mann- kostum og dugnaði. Skömmu eftir fæðingu Sesselju fluttust foreldr- ar hennar aó Brúsastöðum í Þing- vallasveit, sem var kirkjujörð, og bjuggu þar i 17 ár. Var Sigmund- ur þá jafnhliða búskapnum hótel- haldari í Valhöll. Hafði hann sem ungur maður ferðast um landið með Matthíasi Einarssyni, siðar lækni, sem fylgdarmaður útlend- inga. Hefur sú reynsla eflaust komið sér vel við móttöku er- lendra gesta i Valhöll. Eftir að fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur, gerðist Sigmundur húsvörður við Mióbæjarbarna- skólann, og gegndi því starfi með prýði eins og hans var von og vísa. Sigmundur lifði konu sína i mörg ár og bjó hér i bænum í skjóii dætra sinna. Var hann með annan fótinn austur i Sólheimum og naut þess í ellinni, sem hann hafði átt góðan þátt i að styója og hlúa að, enda elskuðu börnin hann og virtu. Þess á milli gekk hann milli sjúkra og sorgmæddra hér i Reykjavík og miðlaði þeim + Eigínmaður minn og faðir, KRISTJÁN G. BRYNJÓLFSSON, frá Flateyri lést í Borgarspitalanum aðfaranótt 1 7. nóvember Sigrlður Jóhannesdóttir, Valgerður Kristjánsdóttir, Eirlkur Kristjánsson. Eiginmaður minn + ÁRNI J. GUÐMUNDSSON frá Gnýstöðum lést að Sjúkrahúsi Hvammstanga þann 16/11. Sessálja Gunnlaugsdóttir. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi GUÐMUNDUR BENÓNÝSSON Digranesvegi 48 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 20 nóv. kl 15 00 Dagmar Friðriksdóttir, Kristvin Kristinsson. Þórdls Eirlksdóttir Ingvi Guðmundsson, Ellen Einarsdóttir, Björgvin Guðmundsson. Friðbjöm Guðmundsson, Rakel Guðmundsdóttir, Nlels Einarsson og barnaböm. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vifdu minnast hans er bent á Hjartavernd t Ástkær eiginkona mln, HELGA BJARNASON VALFELLS, lézt á Borgarspltalanum laugardaginn 1 6. nóvember. Sveinn B. Valfells. + Lltför mannsins míns HARALDAR SÆMUNDSSONAR, Kletti I Gufudalssveit, sem lést af slysförum laugardaginn 9 nóvember s.l. verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 2 1. nóvember kl. 1 3.30. Blóm og kransar eru afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans er bent á að látaGufudalskirkju njóta þess. Fyrir mlna hönd og annarra vandamanna. Jóhanna Jóhannesdóttir. + Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu ÞÓRLEIFAR NORLAND fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 20. nóvember kl. 2. Sverrir Norland, Margrét Norland Kristin Norland, Jón Norland, Halla Norland, Agnar Norland, Ásmundur Norland, Jossa Norland, Anna Norland, Helga Norland til síðasta dags. Hann mætti eins og venjulega fyrstur alira að morgni mánudagsins 11. nóvem- ber á skrifstofu Þjóðleikhússins og lauk við sina fyrstu sendiferð þann morgun. Hann kom úr þeirri ferð að venju æðrulaus og hógvær og hné niður á stól á skrifstofunni. Jón hafði verið kallaður í sína síðustu sendiferð. Far þú i friði Nonni minn. Blessuð sé minning þin. Klemenz Jónsson. af sinni björtu Iífstrú, með geisl- andi brosi, bjartsýni og fyrirbæn- um. Ég get þessa hér vegna þess að það sýnir svo vel andlegan skyld- leika Sesselju við foreldra sína, sem hvortugt mátti aumt sjá án þess að vilja úr bæta, — auk þess góða uppeldis er hún og systkini hennar hlutu í foreldrahúsum. Kynni mín og fjölskyldu minn- ar af Sesselju hófust fyrir um 30 árum, er hún baó föður minn að þýða fyrir sig þýskt jólaleikrit á islensku. Nú var Sesselja mjög vel mælandi á þýska tungu, enda hafði hún sem ung stúlka stundað nám i Þýzkalandi og Sviss, en leikritið mun hafa verið að ein- hverju leyti i ljóðum. Var okkur siðan boðið austur um jólaleytið til þess að sjá börnin leika það á sviði, sem þá var nýkomið upp og reyndist seinna vettvangur tón- listariðkana barnanna auk leik- listar. Veitti það börnunum mikla hamingju á geta túlkað tilfinning- ar sínar á þennan hátt undir handleiðslu sérhæfðra kennara. En Sesselja gerði sér alltaf far um að hafa góða og hæfa starfskrafta sér við hlið, auk þess; sem hún fór oft til Sviss og Þýzkalands til þess S. Helgason hf. STEINIDJA llnholll 4 Slmar 76677 og 142S4 + Litli sonur okkar STEINN JÓHANN andaðist I Noregi 28 október. Jarðarförin hefur farið fram Reglna Höskuldsdóttir, Eirlkur J. Ragnarsson. + Útför móðursystur minnar, MAGNEU SIGRfOAR MAGNÚSDÓTTUR. frá Arabæ I Flóa, fer fram frá Fossvogskirkju mið- vikudaginn 20. nóvember kl 13.30 gtMagnús Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.