Morgunblaðið - 09.03.1975, Page 4

Morgunblaðið - 09.03.1975, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975 4 LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL 2T 21190 21188 (c* BÍLALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL 24460 28810 morvGen Útvarp og stereo kasettutæki 22*0*22 RAUÐARÁRSTÍG 31) BILALEIGA Car Rental . # SENDUM 41660—4290 Krlstinn Guðnason hf. Suðurlandsbraut 20 sími 86633 Demparar í flestar gerðir bila. Sr. B0LLI GÚSTAFSSON í Laufási: Biartsýni RISTILEG BJARTSÝNl. Uai na er kirkjan lif'andi komin með blekkingar sínar. Það er þá helzt tími til að boóa bjartsýni núna, þegar kolsvartir skýja- klakkar margþættra efnahags- örðugleika, blikur atvinnu- leysis og yí'irvof'andi verkfalla sigla inn yfir Island og varpa löngum, hrikalegum skuggum á framfaravilja og ákafa þjóðar- innar. Gleðibrosin eru á undan- haldi, sólarþránni veróur ekki svalað á suðrænum ströndum, dýrar veigar eru orðnar of dýr- ar til þess að þeirra verði neytt í þeim mæli sem tiðkazt hefur. Likur benda til að landsmenn verði að neita sér um ýmis af- þreyingarmeðul, sem tizkan hefur talið ómissanleg. I gömlum fundagerðarbókum kvenfélags í blómlegri sveit á Norðurlandi rakst ég á frásögn af umræðum á fundi sem hald- inn var á öðrum áratug 20. ald- ar. Þar segir að konurnar hafi rætt um það, hvað þær gætu helzt gert í sparnaðarskyni. Var bent á ótal úrræði, m.a. að ástæðulaust væri með öllu að nota rjóma í kaffi þótt á tylli- dögum væri og kandísinn mætti spara meira en viða tíðkaðist. í fljótu bragði hljómar þetta nú eins og lítilfjörlegl gaman, en höndin sem fundargerðina ritaði hefur skolfið, óstyrk af þrotlausu erfiði og hugurinn sem henni stýrði var mótaður af alvöru stundarinnar. Víst hefur þessi munaður, sem kon- urnar töldu ástæðu til aó neita sér um, verið ein af fáum gleði- glætum í gráma endalausra hversdagsanna. En allur óþarfi, sem stefndi hag fátækra heimila i voða skyldi af lagður. Við upphaf 18. aldar eða 1701 dóu tuttugu manns af fjórtán bæjum á einum vetri í þessari sömu sveit, því mikill hluti fénaðar var fallinn úr hor og fiskirí brást. Fólkió dó úr hungri og þá hafði fátæk alþýða ekki annað tii að láta upp i skuldir sinar hjá kaupmönnum og landsdrottnum en katla, potta og skrinur og ýmislegt annað, sem hún nauðsynlega þurfti á að halda sjálf. Sumir urðu jafnvel að láta fötin utan af sér upp i skuldir — Konurn- ar sem þinguðu um sparnað 200 árum siðar, þekktu betur þessa sögu, en flestar kynsystur þeirra á okkar dögum. Þær höfðu oft horfzt í augu við skortinn, en töldu þó kjör sín konuneleg og framfaraljómann mikinn þegar frásagnir liðinna alda voru hafðar í huga — Það er kirkjunni líkt að rifja upp gamlar sögur þegar erfiðleikar steðja að. Hún talar eins og frelsarinn við vatnið forðum, þegar þúsundir manna höfðu elt hann um langan veg á óbyggðan stað. Hún segir: Verið bjartsýn! Hann sagði næstum það sama: „Gefið þeim . að eta.“ Þvílík bjartsýni. Og lærisveinarnir horfóu undrandi hver á annan. En hefur kirkjan þá sömu úrræði og frelsarinn? Vinnur hún kraftaverk eins og hann gerði? Unglingurinn, sem átti tvö byggbrauð og tvo smá- fiska, rétti honum nestið sitt og hann blessaði það, braut brauð- iö og allir urðu mettir. Það var annar endir á þessari sögu, segja þeir, sem telja sig horfa raunsæjum augum á kirkju Krists nú. Sögum af skiptum kirkjunn- ar og þúsundahna lýkur á ann- an veg. Hún segir: Verið bjart- sýn og sættið ykkur við hungur og kúgun. Þannig túlka tals- menn kommúnismans stefnu kristinnar kirkju. Þeir hafa náð undraverðum árangri í þeim blekkingaráróðri. Þó vita þeir, að allt fram á þennan dag setj- ast þúsundir niður í grængresið og taka við vistum, mat og lyfj- um er hjálparstofnun kristinn- ar kirkju úthlutar þar sem þörf- in er brýnust. Við vitum öll, að þar er kærleiksmáttur Krists að verki, snertir samvizku þeirra, sem hafa af nógu að miðla og margir eru kallaðir til þessa fórnarstarfs, kailaðir af Heilög- um anda Krists. Á meðan aðrir og ekki sizt fyrrnefndir tals- menn senda einungis vopn og ala á sundrung i vanþróuðum löndum, þá er Kristur að verki likt og forðum með huggun og vistir, læknislyf og lífsins orð. Hann notar kirkju sina og hún hlýðir kalli hans eins og læri- sveinarnir forðum og allir undrast hve miklu þessi fátæka og ofsótta stofnun fær áorkað. — Við okkur sem byggjum Is- land segir kirkjan: Verið bjart- sýn og sýnið manndóm eins og konurnar, sem forðum spöruðu rjómann og kandíssykurinn. ís- lendingar neyta nú áfengis og tóbaks fyrir andvirði margra fullkominna fiskiskipa á hverju ári. Er engi lygi, þegar því er haldið fram, að þeir hneigist til þess smekks að áiíta fint að vera haldinn alkóhóleitrun. Þeim smekk ættu þeir að breyta nú og jafnframt að taka því með manndómi þótt úr vel- megun kunni að draga um hrið. Þvi má ekki gleyma, að kjör eru misjöfn á Islandi og sú krafa á þá ein rétt á sér nú, að þeir sem minnst bera úr býtum fái leið- réttingu, en hinir verði að una við sitt og draga þá úr rjóma- neyzlunni og hvers konar kandísáti. % Frá Bridegfélagi Akureyrar Firmakeppni félagsins íauk sl. þriðjudag og varð röð efstu firma þessi: Bifreiðaverkstæði Jóhannesar Kristjánssonar 117 Spilari Alfreð Pálssön Kjötiðnaðarstöð KEA 115 Spilari Páll Jónsson Mölogsandur 113 Spilari Hörður Steínbergsson Pedromyndir 111 Spilari Jóhann Gauti Trésmiðafélag Akureyrar 110 Spilari Sveinn Tryggvason Póstbáturinn Drangur 109 Spilari Jón Stefánsson Heildverzlun Valgarðs Stefánssonar 107 Spilari Guðm. Þorsteinsson Búnaðarbankinn 107 Spilari Jóhann Helgason Slippstöðin hf. 107 Spilari Gylfi Pálsson Oliusöludeild KEA 107 Spilari Angantýr Jóhannsson Aðalgeir og Viðar 107 Spilari Páll Pálsson Jafnhliða firmakeppninni var spiluð einmenningskeppni félagsins og sigraði formaður félagsins, Alfreð Pálsson, glæsilega og hlaut titilinn ein- menningsmeistari félagsins. Röð efstu manna varð annars þessi: Alfreð Pálsson 322 Páll Jónsson 307 Adam Ingólfsson 299 Friðrik Steingrímsson 294 Við fórum í keppnisferðalag til Húsavíkur fyrir skömmu með 7 sveitir og tókst sú ferð með ágætum. Leikar fóru svo að liðin skildu jöfn, hlutu hvort um sig 70 stig. Næsta keppni félagsins er fjögurra kvölda hraðsveita- keppni — en þetta keppnis- form hefur verið ákaflega vin- sælt undanfarin ár og þótt skemmtilegt. Eins ,og kunnugt er af frétt- um hefur BSÍ svikió okkur Norðanmenn um hluta af ís- landsmótinu sem okkur hafði verið lofað af fyrrverandi BSÍ- stjórn og erum við ekki búnir að jafna okkur eftir það að fullu og látum kánnski heyra frá okkur fljótlega um þau efni. % Frá Bridgefélagi Hafnarf jarðar Barometertvímennings- keppni B.H. er nú lokið og urðu sigurvegarar Arni Þorvaldsson og Sævar Magnússon. Hlutu þeir 277 stig. Röð efstu para varð annars þessi: þessi: Árni Þorvaldsson — Sævar Magnússon 277 Bjarni Jóhannsson — Björn Eysteinsson 260 Kristján Ölafsson — Ölafur Gislason 217 Óli Kr. Björnsson — Vilhjálmur Einarsson 192 Guðmundur Sveinsson — Þórir Sigursteinsson 171 Sigurður Emilsson — Þorsteinn Þorsteinsson Böðvar Guðmundsson 124 — Kristján Andrésson 115 Næsta keppni félagsins er hin árlega firmakeppni og hefst hún á morgun mánudag kl. 20. Spilað er í Skiphóli og eru spilarar hvattir til að f jölmenna. Stjórnin. Nýlega er hafin Butler- tvfmenningskeppni hjá Bridge- félagi Reykjavíkur og er staða efstu paranna þessi: Jakob Ármannsson — Páll Hjaltason 82 Karl Sigurhjartarson — Jón Ásbjörnsson 82 Jakob R. Möller — Jón Baldursson 75 Björn Eysteinsson — Björn Jóhannsson 72 Gylfi Baldursson — Sveinn Helgason 71 Sigurjón Tryggason — Gunnar Birgisson 67 Ólafur Lárusson — Lárus Hermannsson 65 Alls taka 36 pör þátt í keppninni, en næsta umferð verður spiluð miðvikudaginn 19. mars í Domus Medica kl. 20. Nú er aðeins einni umferð ólokið í sveitakeppninni f ls- landsmótinu og er mikil barátta f efstu sætunum. Röð efstu sveita: Sveit Þóris Sigurðss. 224 Sveit Þórarins Sigþórss. 217 Sveit Helga Sigurðss. 211 Sveit Hjalta Elíassonar 205 Sveit Jóns Hjaltasonar 184 Sveit Braga Jónssonar 126 Sveit Ólafs Lárussonar 126 Sveit Viðars Jónssonar 121 Sfðasta umferðin verður spiluð á þriðjudaginn kemur. Spilað er í Domus Medica. A.G.R.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.