Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975 Háseta vantar á m/b Gissur ÁR 6 frá Þorlákshöfn, sem er að hefja netaveiðar. Upplýsingar í símum 99-3662 og 25741. " Starf vélritara við embætti ríkissaksóknara er laust til umsóknar. Umsóknum sé skilað á skrifstofu ríkissak- sóknara, Hverfisgötu 6, fyrir 18. þ.m. Háseta vantar á netabát. Uppl. í síma 92-8062 og 92-8035, Grindavík. Hraðfrystihús Þórkötlustaða h.f. Tvo háseta vantar á m/b Maríu Júlíu frá Patreksfirði. Veiðar með þorskanet. Uppl. í síma 94-1 305. Sjómenn, háseta vantar á góðan 70 tonna netabát. Góð kjör fyrir vanan mann. Uppl. í síma 99—3775. Byggingarvinna Byggingaverkamenn óskast til að rífe mót. Upplýsingar gefur Magnús K. Jónsson, Hólastekk 6, sími 74980. Hjúkrunarkonur Hjúkrunarkonur óskast til starfa við St. Jósefsspítalann, Landakoti. Um er að ræða fullt starf og einnig hluta úr starfi. Upplýsingar veitir forstöðukona í síma 19600. Trésmiðir Trésmiði vantar í uppslátt á raðhúsi. Upplýsingar í síma 17481 kl. 19 — 20. Atvinna í boði Óskum eftir að ráða sölumann sem fyrst. Upplýsingar ekki veittar í síma, heldur á skrifstofunni Tryggvagötu 10. Sverrir Þóroddsson & Co. Reykjaneskjördæmi Bingó Sjálfstæðisfélag Vatnsleysustrandahrepps heldur bingó i Glað- heimum Vogum sunnudaginn 9. marz kl. 8.30 Spilaðar verða 1 2 umferðir. Góðir vinningar. Skemmtinefnd. AKUREYRI — VÖRÐUR OG SUS Er menntakerfið á villigötum Vörður FUS á Akureyri og Samband ungra Sjálfstæðismanna hafa ákveðið að gangast fyrir starfshópi um menntakerfið. Annar slíkur- starfshópur starfar nú í Reykjavik á vegum SUS og Heimdallar. Hópunum er ætlað að gera tillögur, sem ungir Sjálfstæðís- menn geta byggt menntamálastefnu sina á. Ætlunin er að taka fyrir sem flesta þætti menntunar. Menntaskólanemum og iðnnemum er sérstaklega bennt á að nota sér hópstarf þetta sem vettvang fyrir baráttumál sín á þessu sviði. Hóparnir tveir munu að loknu starfi bera saman bækur sinar og samræma niðurstöður sínar. Anders Hansen gagnfræðaskólakennari á Akureyri mun stjórna Akureyrarhópnum. Fyrsti fundur hópsins verður haldinn að Kaupvangstræti 4 á Akureyri, þriðjudaginn 11. mars n.k. og hefst hann kl. 1 7.30. Málfundafélagið ÓÐINN efnir til almenns félagsfundar um: Horfunar í stjórnmálum Verður fundurinn haldinn fimmtudaginn 13i marz i MIÐBÆ v/Háaleitisbraut 58—60, og hefst kl. 20:30. Gunnar Thoroddsen, iðnaðar- og félags- málaráðherra og Albert Guðmundsson, borgarráðsmaður mæta á fundinn og ræða þau mál, sem efst eru á baugi á vettvangi þjóðmála og borgarmála. Allt Sjálfstæðisfólk velkomið á fundinn. Stjórn Óðins. Hvöt félag sjálfstæðiskvenna heldur fund þriðjudaginn 1 1. marz að Hótel Esju kl. 20.30. Fundarefni: Málefni aldraðra Frummælendur Geirþrúður H. Bernhöft, ellimálafulltrúi og Pétur Sigurðsson, alþingismaður. Allt sjálfstæðisfólk vel- komið. Stjórnin. Starfshópur SUS Kjördæmamálið Stjórn SUS hefur ákveðið að gera úttekt á kjördæmaskipun í íslandi og leiðir til breytinga á henni. Umræðustjóri verður Árni Ólafur Lárusson. Hópnum er ætlað að gera úttekt á hinum ýmsu kjördæmaskipunum og gera tillögur um hvað henti okkur Islendingum bezt. Fyrsti fundur hópsins verður að Galtafelli við Laufásveg kl. 1 7.30 mánudaginn 1 0. marz. Starfshópur SUS og Heimdallar Kjördæmamálið Heimdallur og SUS hafa ákveðíð að gera í sameiningu úttekt’ á kjördæmamálinu. Hópnum er ætlað að gera úttekt á hinum ýmsu leiðum til kjördæmaskipunar og skila siðan niðurstöðum stnum til stjórnar Heimdallar og stjórnar SUS. Heimdallur mun nota niðurstöður hópsins sem umræðugrundvöll á ráð- stefnu i april um baráttumál ungs fólks. SUS mun nota niðurstöðurnar sem hluta, af málefnagrundvelli sinum á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins i mai og einnig ef til vill á þingi sínu i haust. Stjórnendur hópsins verða Árni Ólafur Lárusson og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson varaformaður SUS. Fyrsti fundur hópsins verður mánudaginn 10. mars. í Galtafelli við Laufásveg og hefst hann kl. 17.30. Starfshópur SUS og Heimdallar um skólamál og menntakerfið. Er menntakerfið á villigötum? SUS og Heimdallur hafa ákveðið að fela sameiginlegum starfshópi undir stjórn Jóns Magnússonar og Tryggva Gunnarssonar að gera úttekt á menntakerfinu. Hópnum er ætlað að gera tillögur sem ungir sjálfstæðismenn geta byggt menntamálastefnu sina á. Menntaskólanemar, iðnnemar og háskólanemar eru sérstaklega hvattir til þess að nota sér hópinn sem vettvang fyrir baráttumál sin á þessu sviði. Fyrsti fundur hópsins verður i Galtafelli við Laufásveg miðviku- daginn 1 2. mars og hefst hann kl. 1 7.30. Reykjaneskjördæmi: Staða sjávarútvegsins. Matthias Bjarnason, sjávarútvegsráð- herra, ræðir stöðuna i útvegsmálum á opnum stjórnmálafundi i Festi i Grindavík þriðjudaginn 1 1. marz n.k., kl. 20.30. Þingmennirnir Ólafur G. Einarsson, Oddur Ólafsson og Axel Jónsson mæta á fundinum. Stjálfstæðisfél. i Grindavik og Kjördæmasamtök ungra sjálf- stæðismanna i Reykjaneskjördæmi. Starfshópur SUS og Heimdallar Hugmyndafræði sjálfstæðisstefnunnar og stefna Sjálfstæðis- flokksins í framkvæmd. Heimdallur og SUS hafa ákveðið að gera úttekt á hugmynda- fræði Sjálfstæðisstefnunnar og framkvæmd Sjálfstæðisflokks- ins á henni. Niðurstöðurnar verða notaðar á ráðstefnu Heimdallar um baráttumál ungs fólks i april og á landsfundi flokksins í mai. Reiknað er með að hópurinn haldi fáa fundi en verkefnunum sé þess i stað skipt á þátttakendur. Stjórnendur hópsins verða Friðrik Sophusson formaður SUS og Þorsteinn Pálsson blaðamaður. Fyrsti sameiginlegi fundurinn verður í Galtafelli fimmtudaginn 13. mars kl. 17.30. Starfshópur Heimdallar og S.U.S. um Efnahagsmál og niðurskurð Jóhann Tí k Í S Ú t Q j 3 IÖ 3 Heimdallur og SXI.S. hafa ákveðið að efna til starfshóps sem fjalla á um efna- hagsmál og möguleika á lækkun rikisút- gjalda. Stjórnendur hópsins verða þeir Karl Jóhann Ottosson og Þorvaldur Mawby. Fyrsti fundur hópsins verður haldinn i Galtafelli mánudaginn 10. mars n.k. kl. 5.30. Heimdallur og S.U.S. Þorvaldur Mawby

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.