Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975 37 Bankamenn: Úttekt verði gerð á fjár- hagsstöðu almennings STJÓRN Sambands fslenzkra bankamanna samþykkti á fundi sfnum hinn 4. marz eftirfarandi ályktun: I stefnuyfirlýsingu rikisstjórn- arinnar, sem forsætisráðherra flutti á Alþingi 29. ágúst 1974, er m.a. tekió fram, i sambandi við kjaramál. „Haft sé náið samráð við aðila vinnumarkaðarins og komió fastri skipan á samráð ríkisstjórnarinnar vió þá.“ Þegar bráðabirgðalög um „lág- launabætur o.fl.“ voru í undir- búningi sat stjórn sambands ísl. bankamanna, ásamt stjórnum BHM og BSRB, tvo fundi með forsætisráðherra þar sem þau mál voru rædd. Ekki er oss kunnugt um frekari „samráð" við nefnda aðila vinnumarkaðarins. Á undanförnum mánuðum hefur dýrtið aukist hraðar og meira en dæmi eru til um, á sama tíma hafa laun haldist óbreytt og er augljóst orðið að gjaldþol laun- þega er brostið enda öllum fjár- hagsbyrðum verið skellt eingöngu á almenning. Það hlýtur að vera krafa allra launþegasamtaka í landinu að nú sé staldrað við á þeirri braut og gerð ýtarleg úttekt á fjárhagsstöðu almennings. Stjórn Sambands islenskra bankamanna telur það umsáturs- ástand, sem nú ríkir um heimili launþega hljóti að leiða til harðra andsvara og ófarnaðar í þjóðfé- laginu, verði þvi ekki aflétt i verki, hið fyrsta. — Minning Brynjólfur Framhald af bls. 35 var hann ekki ánægður; hann dreymdi um að verða bóndi fyrir austan fjall. Hann var haldinn austurþrá eins og hann orðaði það sjálfur. Vorið 1931 keypti hann Stóra Hof 11 i Gnúpverjahreppi og bjó þar í tuttugu ár, en þá byggði hann nýbýli í landi eyði- jarðar sem fylgdi Hofinu og bjó þar til dauðadags. Eftir að Brynjólfur hóf búskap á Stóra Hofi tók hann við verkstjórn hjá Vegagerðinni i uppsveitum Árnessýslu austan Hvítár. Haustið 1931 kvæntist Brynjólf- ur Önnu Gunnarsdóttur kennara frá Gröf í Skilmannahreppi. Þau ráku alla tíð rausnar heimili, þar sem ungir, sem aldnir áttu skjól. Anna er greind kona og vel að sér í íslenzkum bókmenntum og sögu og hefur alltaf fylgst vel með i þeim efnum. Þau hjón voru barn- laus en ólu upp eina stúlku, Sig- rúnu Daníelsdóttur; er hún frænka Önnu. Þegar Brynjólfur bjó á Búrfelli kom á heimili hans ungur drengur, Steindór Guðmundsson. Þegar Brynjólfur hætti búskap þar fylgdi Steindór Þórunni móður Brynjólfs en þeg- ar hann hóf búskap á Stóra Hofi komu þau til hans, Þórunn og Steindór. Brynjólfur hreyfst af hugsjónum ungmennafélaganna, sem ungur maður og þó árin færðust yfir var hann síungur í anda. Hann var prýðilega ritfær og vel máli far- inn. Birtust oft eftir hann greinar í blöðum og á fyrstu árum út- varpsins voru fluttir þar eftir hann nokkrir frásöguþættir. Nokkuð gerði hann að því að minnast genginna vina og gerði hann það af smekkvísi. Mikið átti hann í fórum sínum af margskon- ar skrifuðu efni bæði í bundnu og óbundnu máli. Hann var lengst af ævinnar með ólíkindum svefnlétt- ur, fór snemma að sofa á kvöldin og reis þá oft úr rekkju kl. 4 til 5 að morgni og settist við skrifborð- ið. Ef hann vann ekki að reikning- um fyrir Vegagerðina þá skrifaði hann gjarnan niður hugsanir sin- ar. Þessum blöðum hélt hann til haga, en ég dreg i efa að hann hafi ætlað þau til birtingar. Brynjólfur fylgdist vel með málum samtíðarinnar og myndaði sér um þau ákveðnar skoðanir og var ófeiminn að láta þær i ljós hvort heldur var í ræðu eða riti Hann var heill og óskiptur i hverju máli. Ekki féliu skoðanir hans alltaf að skoðunum fjöldans. En hann var félagshyggjumaður af lifi og sál og lét sig meiru skipta hag heildarinnar en eigin hag. Frá æskudögum á ég margar góðar minningar, sem bundnar eru heimsókn góðra gesta. Einn af þeim sem oft komu á heimili foreldra minna var Brynjólfur Melsteð. Heimsóknir hans voru ávallt kærkomnar. Brynjólfur hafði alltaf eitthvað að segja bæði um menn og málefni, sem fólk hafði áhuga á. Hann sagði vel og skipujega frá og gat gætt frásögn sína lífi. Þá ræddi hann stundum um efni merkra bóka sem hann var nýbúinn að lesa. Fyrir kom að hann rakti efni bréfa, sem hann hafði fengið fyrir skömmu frá Boga föðurbróður sínum þar sem Bogi ræddi allt milli himins og jarðar — frá norrænni fornfræði til þess sem var að gerast í heims- pólitíkinni eða efnahagsmálum þjóðanna. Þannig var Brynjólfur, hann hafði fyrst og fremst áhuga á mál- um, sem horfðu til mennta og menningar. 1 byrjun hernámsáranna hafði Brynjólfur 23,50 kr. i daglaun hjá Vegagerðinni. Honum voru þá boðin ríflega ferföld daglaun, ef hann vildi taka að sér verkstjórn i setuliðsvinnunni. Hann svaraði þvi til að það sem hann ynni utan síns heimilis ynni hann fyrir land sitt og þjóð, en hjá erlendu setu- liði gæti hann ekki unnið. Hann var alltaf heill og óskiptur. Ég kom oft á heimili Önnu og Brynjólfs og mér fannst ég fara þaðan í hvert skipti ríkari en þeg- ar ég kom. Ég er honum þakklátur fyrir þá vinsemd sem hann sýndi mér og sendi Onnu konu hans kæra kveðju með þakklæti fyrir ánægjuleg kynni. Jón Guðmundsson Fjalli Þakka af alhug sýnda vmáttu með skeytum og heimsóknum á áttræðisafmæli mínu 23. febrúar. Lifið heil. Árni Jón Sigurðsson, Sjúkrahúsinu Seyðisfirði'. 2ja herbergja íbúð í Fossvogi til sölu íbúðin er nýleg mjög vönduð og á góðum stað á jarðhæð í blokk. Uppl. í síma 31 486. Uppþvottavél — Keflavík Af sérstökum ástæðum er til sölu mjög litið notuð Candy uppþvotta- vél. Til greina koma skipti á lítilli frystikistu. Til sýnis i Verzl. Stapafell, simi 92 — 1639. Keflavik — Suðurnes jHið margeftirspurða fataflauel komið. Álnabær, Keflavík. íbúð til leigu 4ra herb. ibúð i næsta nágrenni Landspitalans til leigu. Tilboð merkt „Góður staður 9688" send- ist Mbl. i siðasta lagi miðvikud. 1 2. marz. Til sölu rafall 9'/2 kilówatt í góðu lagi. Guðm. Helgason, Stangarholti, Borgarhreppi. Atvinna óskast 24 ára stúlku vantar vinnu strax. Verzlunar eða skrifstofustörf koma til greina. Upplýsingar i sima 21073. Fermingar og síðir kjólar Fermingarkjólar verð frá 2500,- • Siðir kjólar verð frá 3500 - Dagkjólar verð frá 3800.- Kápur og stuttjakkar allt nýjar vörur F ata ma rkað uri nn Laugaveg 33. Einstaklingsibúð Til sölu litil glæsileg einstaklings- ibúð við Skarphéðinsgötu. Upplýsingar i dag i sima 22780. Ath. Ung hjón óska að taka á leigu 2ja — 3ja herb ibúð í Keflavik eða Njarðvik. Uppl. i sima 2217. Félsgslíl □ Gimli 59753107 — 1 Frl. I.O.O.F. 10 = j^63108'/2 = I.O.O.F. 3= 1563108= FL □ MIMIR 59753107 = 3. Náttúrulækningafélagar Fræðslufundur I matstofunni, Laugavegi 20b, fimmtudag 13. marz kl. 20.30. Erindi: Frá hóprannsókn Hjarta- verndar. Nikulás Sigfússon yfir- læknir flytur. Kvennadeild Breiðfirðingafélagsins heldur framhaldsaðalfund sinn i Safnaðarheimili Langholtssafnaðar þriðjudaginn 1 1. marz kl. 8.30. Stjórnin. Munið Glæsi- Bingóið í Glæsibæ í dag kl. 3.30. Húsið opnað kl. 2.30. 14 umferðir. Verðmæti vinninga 60 þúsund krónur. Enginn aðgangseyrir. Reynið heppni ykkar. Kvenfélag- og Bræðrafélag Langholtskirkju. -idlÍL- [ a Kvenfélag Grensássóknar Fundur verður haldinn mánudag- inn 10. marz kl. 8.30 i Safnaðar- heimilinu. Séra Halldór Gröndal heldur fræðsluerindi um kirkju- búnað. Aðalfundur Sálarrannsóknarfélagsins á Sel- fossi verður haldinn i Tryggva- skála miðvikudaginn 1 2. marz kl. 9. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Erindi Þórarinn Jónsson. Kvenfélag Breiðholts Fundur verður 13. marz kl. 20.30 i Breiðholtsskóla Fundarefni: Smyrnateppi. Mætum allar. Stjórnin Kvenfélag Bústaðasóknar Fundur verður haldinn mánudag- inn 10. marz kl. 8.30 í safnaðar- heimili Bústaðakirkju. Mæður félagskvenna og eldri konur i sókninni eru velkomnar á fundinn. Stjórnin. Systrafélag Keflavikurkirkju Aðalfundur Systrafélags Kefla- vikurkirkju, verður haldinn mánu- daginn 10. marz i Kirkjulundi kl. 8.30. Fundarefni: Aðalfundarstörf. Minnst 10 ára afmælis félagsins. Önnur mál. Tertukaffi. Félagskonur fjölmennið og takið með nýja félaga. Stjórnin. Heimatrúboðið Almenn samkoma að Óðinsgötu 6a i kvöld kl. 20.30. Sunnudagaskóli kl. 14.00. Verið velkomin. Samkoma verður i Færeyska sjómanna- heimilinu í dag kl. 5. Frá Sjálfsbjörg Reykjavík Spilum i Hátuni 12 þriðjudaginn 11. marz kl. 8:30 stundvislega. Fjölmennið. Nefndin. Ljósmæðrafélag íslands. minnir á áður auglýstan fund fimmtudaginn 13. marz kl. 20.30 að Hallveigarstöðum. Mætum vel. Stjórnin Suðurnesjafólk Samkoma kl. 2 Svavar syngur. Vitnisburðir. Allir hjartanlega vel- komnir. Filadelfia Keflavík. Flladelfia Safnaðarguðsþjónusta kl. 14. Almenn guðsþjónusta kl. 20. Ræðumaður Gunnar Bjarnason, ráðunautur og Einar Gislason. Fjölbreyttir söngur. Fíladelfia. K.F.U.M. og K., Hafnar- firði. Almenn samkoma sunnudags- kvöld kl. 8.30 i húsi félaganna að Hverfísgötu 1 5. Ræðumaður séra Karl Sigurbjörnsson. Allir velkomnir. Barnasamkoma kl. 1 1.30 f.h. Mánudagskvöld unglingadeild K.F.U.M. kl. 8.00. Opið hús frá kl. 7.30. Nýkomið Mikið úrval af tréklossum fyrir dömur og herra. Póstsendum VE RZLUNIN GEÍsIPp

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.