Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.03.1975, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975 Sinfðníu- hllðmsvelt fslands „Fyrstu hljómleikar hinnar nýstofnuðu Sinfóníuhljómsveitar verða haldnir í Austurbæjarbíói n.k. fimmtudag klukkan 7.15 e.h. Er hjer um mikinn tónlistarviðburð að ræða, þar sem þetta er fyrsta fullskipaða sinfóníuhljómsveitin, sem starfrækt er hjer á landi. Stjórnandi hljómsveit- arinnar á þessum hljómleikum verður Róbert Abraham." Þannig hljóðar upphaf fréttar, sem birtist á baksíðu Morgunblaðsins 8. marz 1950, af blaðamannafundi, sem þáverandi tónlistarráðunautur Ríkisútvarpsins, Jón Þórarinsson tónskáld hélt til þess að skýra frá fyrirhuguðu starfi þessa óskabarns islenzkra tónlistarunnenda. í dag eru nákvæmlega 25 ár liðin frá þessum fyrstu hljómleikum. Fæðing Sinfóniuhljómsveitar fslands var bæði löng og ströng og árum saman hékk lif hennar á bláþræði. f einkaviðræðum og á opinberum vettvangi var deilt um tilverurétt hennar og það var ekki fyrr en eftir rúman áratug, að starfsgrundvöllur hennar var tryggður með þeim hætti, sem nú er við lýði. Á þessum ágreiningi er tæpt i ritstjórnargrein Morgunblaðsins, hljóm- leikadaginn. 9. marz 1950, þar sem segir i niðurlagi: „Ýmsir munu telja. að hjer sje verið að stofna til fjárfreks fyrirtækis, sem vel hefði mátt fresta enn um skeið. Nokkuð hefur sú mótbára til sins máls á þessum erfiðu timum. Hins verðum við fslendingar þó að minnast. að það hlýtur alltaf að kosta töluvert að vera sjálfstæð menningarþjóð. sem hefur fagrar listir í heiðri. Það er þessvegna ástæða til þess að fagna hinni nýju hljómsveit og bera þá ósk fram. að hún megi verða íslenzkri hljómlist og hljómlistar- menningu traust stoð og allri þjóðinni til ánægju og þroska." Því miður hefur hljómsveitin líklega ekki megnað að verða allri þjóðinni til ánægju og þroska, en við þvi var aldrei að búast, það menningarland er vist enn ekki til þar sem allir ibúarnir hafa áhuga á listum. Hins vegar er óhætt að fullyrða, að Sinfóníuhljómsveitin íslenzka á traustari hlustendahóp og stærri en margar slíkar hljómsveitir erlendis. Heita má að Háskólabió sé fullskipað á hverjum reglulegum tónleikum, á tveggja vikna fresti og eru fastagestir þar af á sjöunda hundrað. Hlustendahópurinn hefur breytzt meðárunum — og yngst með vaxandi tónmennt i landinu, en margir eru þar enn, sem minnast með gleði tónleikanna 9. marz og þeirrar stemningar, sem frá segir i baksíðufrétt Morgunblaðsins 10. marz 1950. „Sinfóníuhljómsveitin hjelt fyrstu hljóm- leika sína i Austurbæjarbiói i gærkveldi. Húsið var troðfullt af áheyr- endum, sem fögnuðu hinni nýju hljómsveit ákaflega. Áður en hljómleikarnir hófust ávarpaði dr. Páll fsólfsson viðstadda. Lagði hann m.a. áherzlu á, að hljómsveitinni yrði tryggður öruggur fjárhagsgrundvöllur svo að starfsemi hennar gæti haldið áfram. — Ljek siðan hljómsveitin þjóðsönginn undir stjórn hans. Þá tók Róbert Abraham við stjórn hljómsveitarinnar og hljómleikarnir hófust. Varhrifning tilheyrenda geysileg." Á 25 ára starfsferli hefur Sinfóníuhljómsveit íslands haft þrjá fram- kvæmdastjóra. Fyrstur þeirra var Jón Þórarinsson tónskáld, nú forstöðu- maður lista- og skemmtideildar sjónvarpsins, þvi næst gegndi starfinu Fritz Weishappel, sem lézt árið 1964. Árið 1963 tók við núverandi framkvæmdastjóri, Gunnar Guðmundsson. Við hittum Gunnar að máli F vikunni og fengum hjá honum upplýsingar um aðdraganda að stofnun hljómsveitarinnar og stöðu hennar nú og brugðum okkur síðan i Háskólabió, þar sem hljómsveitin var ásamt Rögnvaldi Sigurjónssyni að æfa pianókonsert nr. 2 eftir Brahms undir stjórn finnska hljómsveitarstjórans Kari Tikka. Við ræddum sem snöggv- ast við nokkra hljómsveitarmenn og Rögnvald og spurðum þá m.a. álits á stöðu hljómsveitarinnar i dag, hvert gildi hún hefði haft fyrir islenzkt tónlistarlíf, hvort þeir teldu ástæðu til að breyta starfsháttum hennar og hvers þeir óskuðu henni til handa á þessum timamótum. Þjóðfélagið hefur viðurkennt hlutverk hljómsveitarinnar „Jafnframt þvi sem Sinfóniu- hljómsveitin á 25 ára afmæli, má i raun og veru halda hátíðlegt hálfrar aldar afmæli hljómsveitarstarfs á ís- landi. sagði Gunnar Guðmundsson, þegar við ræddum við hann i skrif- stofu hljómsveitarinnar að Lauga- vegi 3. „Hljómsveit Reykjavíkur var nefnilega stofnuð árið 1925 og það var merkilegur áfangi i tónlistarlif- inu. Þá höfðu i nokkur ár verið gerð- ar tilraunir til að setja saman hljóm- sveit og stóðu þar fremstir í flokki Þórarinn Guðmundsson fiðluleikari og tónskáldin Sigfús Einarsson og Jón Laxdal. Fyrstu stjórnendur Hljómsveitar Reykjavikur voru þeir Sigfús og dr. Páll ísólfsson. Eftir að tónlistarskól- inn var stofnaður hafði sveitin náin tengsl við hann — og tónlistarfélag- ið, til dæmis var skólastjóri Tónlist- arskólans um árabil aðal hljómsveit- arstjóri sveitarinnar. Dr. Franz Mixa hafði þessi störf með höndum f ára- tug, 1929—39, en þá tók við dr. Victor Urbancic. Á árunum fram til 1 950 voru flutt mörg stór kórverk, m.a. Messias eftir Hándel, Sálu- messa Mozarts og Jóhannesarpassia Bachs undir stjórn Urbancic, Sköp- unin eftir Haydn undir stjórn dr. Páls og Árstiðirnar eftir sama höfund nógu marga hljóðfæraleikara nógu vel menntaða. Tónlistarmenntun hjá okkur er svo tiltölulega ung að árum, að okkur hefur ekki unnizt tími til að ala upp nógu marga menn. Við fáum góðan efnivið út úr tónlistarskólun- um, en þetta unga fólk skortir konsertreynslu og hana er ekki svo auðvelt að fá hér á íslandi. undir stjórn dr. Roberts A. Ottós- sonar. Siðustu árin fyrir stofnun Sin- fóniuhljómsveitarinnar voru mjög erfið. Hljómsveit Reykjavíkur varð að hætta störfum 1949 og tilraunir hljóðfæraleikara til að koma hljóm- sveit á laggirnar báru ekki árangur. Það tókst ekki fyrr en Rikisútvarpið hafði um það forgöngu að ráða til sín hljóðfæraleikara, nógu marga til að hægt væri að halda hljómleika með 40 manna hljómsveit. Það voru merk timamót. Árið eftir fékkst styrkur frá Reykjavikurbæ og ríkis- styrkur ári siðar. Einnig komst á samstarf við Þjóðleikhúsið. Veturinn 1955—56 varð hljóm- sveitin að hætta störfum um hrið, en eftir það var hún endurskipulögð á breiðari grundvelli og gefið nafnið Sinfóniuhljómsveit Islands. Árið 1961 var Ríkisútvarpinu svo falinn rekstur hljómsveitarinnar og hefur hún síðan verið á þess vegum. „Það hefur oft staðið styrr um hljómsveitina," hélt Gunnar áfram, „en nú er Ijóst orðið, að þjóðfélagið hefur viðurkennt hlutverk hennar, samþykkt hana sem nauðsynlegan þátt í menningarlífinu. Á sinfóníu- hljómsveit má lita sem hverja aðra menntastofnun, og skóla vilja allir hafa. Enda sýnir aðsóknin að hljóm- leikum að hún er kærkomin. Heita má, að Háskólabió sé þéttsetið á hverjum tónleikum og þar af eru 6—700 áskrifendur. Þar fyrir utan eru haldnir skólatónleikar, fjöl- skyldutónleikar, aukatónleikar, þar sem komið hafa fram ungir og efni- legir sólistar, og loks tónleikar úti á landi, sem yfirleitt eru vel sóttir. Er þá ógetið hljóðritana fyrir útvarpið, sem við vitum auðvitað ekki hve margir hlusta á. — Hvernig er fjárhagsgrundvöllur sveitarinnar nú? — Hann er öruggari en nokkru sinni fyrr. Sveitin er rekin í samein- ingu af rikinu, sem leggur fram 50,6% heildarkostnaðar, Reykjavik- urborg, sem leggur fram 21,4% og Rikisútvarpinu, sem leggur henni til 28%. Tekjur af aðgöngumiðasölu nema 10—15% af heildarkostnaði. Fastráðnir hljóðfæraleikarar eru nú 65 og tilheyra launakerfi opinberra starfsmanna, en auk þeirra taka lausamenn þátt í tónleikum, þegar þess er þörf og fer eftir verkefnavali, hverjir þeir eru hverju sinni. — Hve margir útlendingar eru I sveitinni? — Núna eru erlendir menn 19 talsins. Við vildum að sjálfsögðu helzt hafa hana eingöngu skipaða íslendingum. en það vandamál er tvíþætt. Annars vegar gildir hið sama um hljóðfæraleikara og aðrar stéttir, til dæmis lækna. verkfræð- inga og fleira, að þeir fara gjarnan til starfa erlendis, ef þeim bjóðast góð tækifæri. íslendingar eiga nokkra mjög góða hljóðfæraleikara við störf erlendis — menn, sem væri æskilegt að fá heim, en við getum ekki boðið þeim sambærileg kjör við það sem þeir hafa. Hins vegar er sú hlið vandamálsins, að við útskrifum ekki Ungt fólk fer i vaxandi mæli til framhaldsnáms erlendis og starfa, þar gefast fleiri tækifæri til að öðlast reynslu í hvers konar tónlistarflutn- ingi, en þá er hættan á. að það ilengist. — Hvernig er háttað verkefnavali hljómsveitarinnar? Fylgir hún ein- hverri ákveðinni stefnu i þeim efnum, og eru verkefni ákveðin til langs tima i senn? — Ég get ekki sagt. að hún fylgi sérstakri heildarstefnu fyrir utan að flytja sem fjölbreyttasta sigilda tón- list gamla og nýja. erlend verk og innlend. Og verkefnaval er aðeins til árs i senn. Hljómsveitarstjórarnir — og þá sérstaklega aðalhljómsveitar- stjóri, þegar hann er — ráða miklu um verkefnavalið, en auk þess starf- ar innan sveitarinnar verkefna- og ráðgjafarnefnd, sem hefur hönd í bagga með þessu. Okkur er að sjálfsögðu i mun að styðja íslenzka músiksköpun og flytj- um reglulega islenzk tónverk frum- samin, hvort sem okkur likar þau betur eða verr. Við höfum lika pant- að verk eftir Fslenzka höfunda. t.d. verk Jóns Nordals, sem var flutt á afmælishljómleikunum. Tónskáldunum ungu finnst við ekki flytja nægilega mikið af verkum þeirra — okkur finnst það hins Gunnar Guðmundsson, frkv.stj. vegar nóg. Þeirra afstaða er skiljan leg, en það þarf að finna einhvern meðalveg til að hægt sé að sinna sem flestu. Á s.l. ári, þ.e.a.s. 1973—74, frumflutti hljómsveitin sjö ný islenzk tónverk. — Hvernig hefur samstarfið gengið innan hljómsveitarinnar og hvernig er að stjórna þessu fyrir- tæki? — Ég tel innbyrðis samstarf gott. Það byggist auðvitað alltaf talsvert á hljómsveitarstjóranum hverju sinni, hvort hin rétta samstilling fæst þannig, að hver maður skili því, sem hann hefur hæfileika og getu til. Hljómsveit er viðkvæmur hópur, samfélag einstaklinga. Listamenn eru tiðum mjög tilfinninganæmir og hljóðfæraleikur i eðli sinu afar ein- staklingsbundinn. Samleikur með öðrum, i sveit, veldur bvi oft innri spennu og menn verða að temja sér tillitssemi og umburðarlyndi hver gagnvart öðrum. Sama gildir um starf framkvæmdastjórans; ég tel, að honum beri umfram allt að forðast hlutdrægni og reyna að leysa hvert vandamál, sem upp kemur hverju sinni. eftir þvi sem hann telur bezt. Viljum meira fjöl- breytni í starfsemi sveitarinnar Þeir Gunnar Egilsson klarinettu- leikari og Einar Waage bassaleikari sátu á rökstólum í kaffihléinu á æf- ingu i Háskólabiói, þegar blaða- maður Morgunblaðsins kom þangað til að hitta að máli nokkra af starfs- mönnum hljómsveitarinnar. Við innt- um þá eftir skoðunum þeirra á starfi sveitarinnar. „Við Einar" erum vist sammála um að vilja meiri fjölbreytni i starf- seminni, sagði Gunnar — og þá til dæmis. því formi að auka flutning léttklassiskrar tónlistar, ekki þó á fimmtudagstónleikunum, heldur mætti hugsa sér, að hljómsveitin hefði tvo hljómleikaflokka. annan með verkefnavali eins og verið hefur en hinn með léttari tónlist. Slikir tónleikar gætu verið til dæmis sið- degis á sunnudögum. — Ég held, við myndum ná til víðari áheyrendahóps með þeim hætti. tók Einar undir. — Eru fjölskyldutónleikarnir ekki hugsaðir i þessu augnamiði? — Að nokkru leyti. en ekki þó fyllilega. Við getum tekið sem dæmi tónleikana, sem Boskowsky stjórn- aði; þeir tókust mjög vel og áttu sjónvarpsþættirnir frá Vinarborg vafalaust sinn þátt i þvi, að þangað komu margir, sem ekki koma á fimmtudagstónleikana. Fólkið vissi hvers konar tónlist hann myndi flytja. Við gætum líka gert meira af því að fá hljómsveitarstjóra á borð við Carmen Dragon — ekki svo að skilja, að við þurfum endilega að leita út fyrir landsteinana eftir hljóm- sveitarstjóra; Páll P. Pálsson er full- fær um að stjórna hljómsveitinni en þá mætti i staðinn fá einleikara og einsöngvara, alla vega vanda til þessa hljómleikahalds. Þeir Gunnar og Einar hafa báðir leikið með hljómsveitinni frá upphafi svo að þeim eru minnisstæðar deil- urnar um tilverurétt hennar hér áður fyrr. ’ —Við vorum svo lánsamir að eiga þá eitilharða forystumenn; þar mætti nefna marga, en skeleggastir voru vafalaust þeir Ragnar i Smára og Páll ísólfsson. Margir stjórnmála- menn lögðu okkur dyggilega lið og börðust fyrir málstað okkar bæði i bæjarstjórn og á þingi, Ýmsar sögur lifa frá þessum árum, til dæmis frá einni atkvæðagreiðslunni um málið á þingi, sem fram fór með nafnakalli. Einn þingmanna landsbyggðarinnar sagði, er hann rétti upp höndina til stuðnings hljómsveitinni, að hann gerði það einungis fyrir fortölur og með þvi skilyrði, að hún kæmi aldrei i sitt kjördæmi. Við skulum sleppa nöfnum, — þetta er liðin saga. í borgarstjórn átti sveitin framan af gallharðan andstæðing, vörubil- stjóra hér i bæ. Til þess að kynna sér málið betur fór hann á hljómleika hjá Sinfóniuhljómsveitinni og varð svo hrifinn að hann snarsnerist og varð eftir það eindreginn stuðningsmaður hennar. Áreiðanlega er hann ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.