Morgunblaðið - 09.03.1975, Page 23

Morgunblaðið - 09.03.1975, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MARZ 1975 23 IJUilSVIRRJUH ORKUÖFLUN 1975-1985 þeim efnum. Telja má, að henni verði lokið á allra næstu árum, þótt enn sé ekki endanlega ákveðið, hve hratt sé hagkvæmt að vinna að því verki. Jafn- framt er nú unnið að undirbúningi Kröfluvirkjunar og tengingar hennar við Akureyri, og munu þvi ekki mörg ár líða, þangað til meginorkuver sunn- anlands og norðan eru orðin samtengd. Með þessari samtengingu orkuveitu- svæða skapast ný viðhorf og tækifæri til orkuflutninga og samkeyrslu orku- vera. Er um leið orðið tímabært að marka stefnu í virkjunamálum fyrir landið í heild og vinna að áætlunar- gerð um byggingu orkuvera og sam- tengingu orkuveitusvæða i samræmi við það. Nú geta þvi hvorki Lands- virkjun né aðrir virkjunaraðilar í land- inu gert áætlanir um byggingu orku- vera án tillits til þess, sem aðrir hafa á prjónunum i hinu samtengda kerfi. Mér hefur þvi þótt tímabært að reyna í þessu erindi að gera grein fyrir nokkr- um heildarhugmyndum, sem ég hef unnið að, um æskilega þróun orkumála á íslandi næstu 10 árin, og um það hlutverk, sem Landsvirkjun gæti gegnt i þeirri framvindu. Hef ég í þessu notið mikilvægrar aðstoðar Jóhanns Más Mariussonar verkfræðings, sem manna mest hefur unnið að áætlunum um heildarþróun orkukerfis Landsvirkjun- ar á undanfornum árum. Stefnumörkun Áður en settar eru fram hugmyndir um þróun raforkukerfisins á næsta tiu ára timabili, en við það mun ég halda mér i erindi þessu, er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir þeim markmiðum, sem æskilegt er að stefna að og raun- hæft að ná á þessu timabili. Eins og ég hef þegar bent á, leiðir stefna, sem mörkuð er í virkjunarmálum í dag, ekki til framkvæmda fyrr en að mörg- um árum liðnum. Það sem hægt er að gera i raforkumálum næstu fjögur til , fimm árin er að langmestu leyti þegar bundið af ákvörðunum um undirbún- ing mannvirkja, sem teknar hafa verið á undanförnum árum. Hins vegar er ennþá verulegt svigrúm til áhrifa á val virkjana á næsta fimm til sex ára timabilinu þar á eftir. Með þetta i huga hefur mér virzt hæfilegt að miða stefnumörkun við þarfir og möguleika næstu tiu ára. Mun ég nú rekja þau markmið i raforkumálum landsins í heild, sem ég tel æskilegt og fram- kvæmanlegt að ná á næsta áratug, þ.e.a.s. á árunum 1975 til 1984. Þessi markmið eru: 1) Að sjá fyrir innlendri orku til þess að fullnægja væntanlegri aukn- ingu í almennri raforkueftirspurn alls staðar á landinu. 2) Að sjá fyrir innlendri orku til þess að leysa af hólmi innfiutta orku- gjafa, hvar sem það er hagkvæmt. Hér er fyrst og fremst um það að ræða að fullnægja eftirspurn eftir raforku til húshitunar, þar sem hagkvæmar hitaveitur koma ekki til greina. Einnig er æskilegt að auka notkun raforku á öðrum svið- um, t.d. til gufuframleiðslu í iðnaði og til heyþurrkunar i sveitum. 3) Vinna þarf að því að auka stórlega öryggi landsmanna að þvi er varðar raforkuafhendingu með þvi að draga úr viðkvæmni kerfisins fyrir trufiunum. Mikilvægt er í þessu skyni að tryggja öllum lands- mönnum rafmagn frá samtengdu kerfi, sem hefur eðlilega um- framgetu i afii og háspennulinum, en tryggir jafnframt með sam- keyrslu sem bezta nýtingu orku- framleiðslugetunnar. 4) Tryggja þarf næga orkufram- leiðslu til þess, að hægt verði að halda áfram þróun orkufreks iðn- aðar með hæfilegum hraða, svo að hægt verði að nýta orkulindir landsins til gjaldeyrisöfiunar. Með þessu móti yrði bæði stefnt að betra jafnvægi i orkubúskap lands- ins i heild og aukið á fjölbreytni og stöðugleika i útflutningstekjum landsmanna. Uppbygging orku- kerfisins verði við það miðuð, að skilyrði verði fyrir hendi til þess, að næsti nýi áfanginn í orku- frekum iðnaði geti verið utan Suðvesturlandsins, og þá væntan- lega á Norðurlandi. 6) Vinna þarf á þessu tímabili að rannsóknum á virkjunum, sem koma eiga til framkvæmda á næsta virkjunartímabili, þar á meðal möguleikum til stórvirkjana á Austurlandi. Hugmynd um þróun orkuöflunarkerfis Til þess að unnt sé að vinna mark- visst að þeim markmiðum, sem hér hafa verið sett fram, er nauðsynlegt að menn geri sér grein fyrir ákveðnum atriðum, sem nú skal greina. í fyrsta lagi eru aðeins örfáir virkjun- arstaðir landsins þegar fullkannaðir. Er þvi víðast þörf mjög timafrekra rann- sókna, t.d. að því er varðar jarðfræði, vatnafræði og náttúruverndarmál, áð- ur en hægt er að meta hagkvæmni virkjunarstaða. Þetta veldur þvi, að þeir staðir, sem ekkert eða litið hafa verið rannsakaðir hingað til, koma varla til greina sem virkjunarstaðir á næstu tíu árum. Einungis þetta atriði hefur það i tor með sér, að kostir um virkjunarframkvæmdir hér á landi á næstu tíu árum eru fáir, en þó fieiri en til greina kemur að framkvæma. Ég ætla ekki að rekja hér alla þá kosti, sem fyrir hendi eru, en bendi á, að sjálfsagt er að halda öllum leiðum opnum i lengstu lög, áður en endanleg ákvörð- un um virkjun er tekin. I öðru lagi er mjög æskilegt, að í hvert sinn, sem ákvörðun um nýja virkjun er tekin, séu til nokkrir kostir að velja á milli, þannig að svigrúm gefist til að velja kost, sem hagkvæm- astur er miðað við markaðshorfur á hverjum tíma. Hins vegar verður að hafa í huga, að það er ákaflega dýrt að koma virkjunarundirbúningi á það stig, að um raunhæfan samanburð milli kosta geti verið að ræða. Þvi er nauðsynlegt að takmarka af Qárhags- ástæðum íjölda þeirra kosta, sem vald- ir eru hvert sinn til endanlegs saman- burðar. 1 þriðja lagi verða menn að hafa i huga, að of miklar vangaveltur geta kostað mikla peninga, ef þær leiða til þess, að ekki sé tekin ákvörðun um lokahönnun i tíma. Með þessi atriði i huga vik ég mér þá að þvi að lýsa þvi, hvernig ég tel að ná megi þeim markmiðum, sem sett voru fram hér að framan. Ég hef valið að skipta þessu 10 ára áætlunartímabili í tvo hluta, annars vegar næstu 5 ár, þ.e.a.s. 1975—1979, en hins vegar timabilið 1980—1984 að báðum með- töldum. Á fyrri hluta 10 áia tímabilsins, þ.e.a.s. á árunum 1975—1979, eru þær einar virkjunarframkvæmdir hugsan- legar, sem þégar hafa verið fullákveðn- ar eða fullundirbúnar. Ef ég held mér eingöngu við meiri háttar virkjanir, en sleppi smávirkjunum, sem hvort eð er hafa lítil áhrif á heildarmyndina, er á þessu timabili aðeins um að ræða þrjár virkjanir, Sigölduvirkjun, sem þegar er i byggingu, Kröfluvirkjun, sem fram- kvæmdir munu hefjast við á þessu ári, og Hrauneyjarfossvirkjun, sem bráð- lega er tilbúin til útboðs og gæti orðið fullbúin árið 1979, ef framkvæmdir hefjast ekki síðar en á næsta ári. Til þess að nýta sem bezt hina stóru virkjunaráfanga, sem framundan eru bæði á Norður- og Suðurlandi, virðist ástæða til þess að leggja áherzlu á það, að á þessu næsta fimm ára timabili, að koma á tengingu allra landshluta við meginorkuöflunarkerfið. Hér er um að ræða þrjár höfuðtengilinur. I fyrsta lagi hina svokölluðu byggðalinu milli Norðurlands og Suðurlands og allt til Kröflu. í öðru lagi linu frá Kröflu til Austurlands, en hún ætti mjög að styrkja raforkuöflun þessara tveggja landshluta, enda er gert ráð fyrir henni i lögum um Kröfluvirkjun, og að lok- um tengingu Vestfjarða við byggðalin- una. Ég ætla ekki að reyna að leggja neinn dóm 5 það að þessu sinni, hver sé æskileg limasetning þessara linu- bygginga, hverrar fyrir sig. Ef hægt er að ljúka Kröfluvirkjun innan tveggja ára eða svo, virðist liggja mest á þvi, að sterk ten'’- komist á milli hennar og allra byggða á Norðurlandi. Hins vegar hafa alíar þessar linur miklu hlutverki tð gegna til þess að tryggja öllum landshlutum hagkvæma orku, en þær munu auk þess ásamt því varaafli, sem þegar er búið að setja upp víða um land, auka mjög á öryggi raforkukerfisins alls staðar á landinu. Á síðari hluta timabilsins, þ.e.a.s. á árunum 1980—1984, er að sjálfsögðu um mun fleiri kosti að velja i virkjunar- framkvæmdum. Menn verða hins veg- ar að gera sér grein fyrir þvi, að það er nauðsynlegt að hefja mjög lljótlega verkfræðilegan undirbúning þeirra virkjana, sem til greina eiga að geta komið á því timabili. Vegna hins mikla kostnaðar, sem slikum undirbúningi er samfara, er því mikilvægt að fljótlega verði ákveðið, hvaða virkjunarstaðir þar eigi að verða fyrir valinu. Eins og nú standa sakir er þegar verið að vinna að áætlunum um virkjun við Sultar- tanga á vegum Landsvirkjunar, auk ufuvirkjunar i Hengli. Á Áusturlandi efur verið ákveðið að hetja rannsókn Framhald á bls. 26 MYND 2 ORKUÖFLUNA RKERFI (AOEIMS SÝNDAR STÖOVAR 20 MW OG STÆRRI J ----- KERFI i ARSLOK 1979

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.