Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRlL 1975 LOFTLEIÐIR BILALEIGA f CAR RENTAL T2 21190 21188 LOFTLEIÐIR Ú BÍLALEIGAN^ 51EYSIR CAR RENTAL 24460 28810 PIOrVGGLR Útvarp og stereo, kasettutæki FERÐABILAR h.f. Bílaleiga, sími 81260. Fólksbíkar — stationbílar — sendibílar — hópferðabílar Fa jl níi. i í.hh. x v 'AiAjm Athyglis- verð erindi og fögur tónlist i Aðventkirkjunni, Ingólfsstræti 19, hvern sunnudag kl. 5 Steinþór Sunnudaginn 6. apríl flytur Steinþór Þórðar- son erindi er fjallar um kröftugt líferni og nefnist: BÆNIR SEIVI UPP- FYLLAST. Árni Fjölbreyttur söngur í umsjá Árna Hólm. Allir velkomnir Tveir hópar — tveir flokkar Kommúnistar hér á lslandi hafa f áratugi starfað undir ýmsum nöfnum. Fyrst nefndu þeir flokk sinn Kommúnista- flokk tslands, sfðan um tveggja áratuga skeið Sameiningar- flokk Alþýðu-Sósfalistaflokk og nú á næsta ári eru 20 ár liðin frá þvf þeir tóku sér Alþýðu- bandalagsnafnið. En þrátt fyrir þessi mismunandi nöfn á flokki kommúnista, hafa f raun alltaf staðið að samtökum þeirra tveir hópar, verkalýðsmenn og menntamenn. Menntamennirn- ir hafa alltaf haft rfka tilhneig- ingu til að vilja segja verka- lýðsmönnum fyrir verkum, en vegna þeirrar einföldu stað- reyndar, að áhrif innan verka- lýðssamtakanna hafa verið Iff- æð samtaka kommúnista hér, sem vfða annars staðar, hafa úrslitaáhrifin þó gjarnan verið f höndum forystumanna komm- únista f verkalýðshreyfing- unni. Milli þessara tveggja hópa hefur þrátt fyrir allt verið nokkurt jafnvægi, en hin sfðustu misseri sýnist svo sem þetta jafnvægi hafi raskazt menntamönnum f vil og að svo mikið djúp sé að skapazt milli þeirra, að í raun og veru sé um tvo flokka að ræða, flokk menntamanna annars vegar og verkalýðsmanna hins vegar og að flokkur menntamanna hafi náð þar undirtökum. Einangrun menntamannanna Þessi skoðanamunur milli verkalýðsmanna og mennta- manna hefur magnazt mjög nú í vetur, þegar menntamennirn- ir undir forystu Magnúsar Kjartanssonar hafa bersýni- lega viljað reka allt aðra pólitfk f kjaramálum verkafólks heid- ur en forystumenn Alþýðu- bandalagsins f verkalýðshreyf- ingunni. Hinir sfðarnefndu undir forystu Eðvarðs Sigurðs- sonar hafa greinilega viljað leggja áherzlu á að tryggja svo sem kostur væri kjör láglauna- fólks og þeir hafa viljað horfast f augu við erfiðleikana í efna- hagsmálum okkar og taka visst tillit til þeirra. Menntamenn- irnir f Alþýðubandalaginu hins vegar hafa viljað beita áhrifum kommúnista f verkalýðshreyf- ingunni í pólitfskri baráttu þeirra á landsmálavettvangi og hafa minna viljað hugsa um hagsmuni launþeganna sjálfra. Pólitískir hagsmunir hafa, f hugum menntamannaforystu Alþýðubandalagsins, setið í fyrirrúmi fyrir lffskjörum launþeganna. Þessi stefnumun- ur hefur f raun orðið opinber nú f vetur og bendir það til þess, að um alvarleg átök sé að ræða milli þessara tveggja hópa innan Alþýðubandalags- ins. Þannig hefur málgagni flokksins, Þjóðviljanum, óspart verið beitt til þess að ögra verkalýðsforystunni, til beinna eða óbeinna árása á helztu for- ystumenn Alþýðubandalagsins f verkalýðshreyfingunni og á annan hátt hefur skipulega og markvisst verið unnið að þvf af hálfu menntamannaforystunn- ar að kippa fótunum undan þeirri stefnu sem verkalýðs- mennirnir hafa staðið að f sam- starfi við aðra aðila innan Al- þýðusambandsins. Hér er um slfkan grundvallarágreining að ræða innan Alþýðubandalags- ins, að augljóslega hriktir nú í innviðum kommúnistahreyf- ingarinnar á íslandi. En jafn framt hefur þessi ágreiningur orðið til þess að menntamanna- forysta Alþýðubandalagsins sýnist vera að einangra sig frá rfkjandi skoðunum innan verkalýðssamtakanna. Um leið sker hún á Iffæð kommúnista- hreyfingarinnar hér. Frá bridgefélaginu Ás- arnir í Kópavogi. Barmometertvímenningskeppn- inni er lokið en alls voru spilað- ar 27 umferðir. Urslit urðu þessi: Guðmundur Oddsson — Páll Þórðarson 279 Garðar Þórðarson — JónAndrésson 262 Haukur Hannesson — Valdimar Þórðarson 234 Júlíus Snorrason — Svavar Bjarnason 224 Esther Jakobsdóttir — Þorfinnur Karlsson 200 Helgi F. Magnússon — Ragnar Björnsson 188 Gunnlaugur Öskarsson — Ragnar Öskarsson 147 Jón P. Sigurjónsson — Olafur H. Ölafsson 117 Meðalskor 0. Á mánudaginn kemur hefst hraðsveitakeppni — 3ja kvölda og eru væntanlegir þátttakend- ur beðnir að láta skrá sig til Þorsteins Jónssonar f sfma 40901. X X X X Bridgefélag kvenna: Eftir 10 umferðir f sveita- keppni félagsins eru eftirtald- ar sveitir efstar: stig. Hugborg Hjartardóttir 175 Gunnþórunn Erlingsdóttir 164 Elin Jónsdóttir 133 Guðrún Bergsdóttir 123 11. umferð verður spiluð mánudaginn 7. apríl og 12. um- ferð miðvikudaginn 9. apríl i Domus Medica, og hefjast kl. 8 e.h. stundvíslega. X X X X X Fundur var haldinn f stjórn BSl þriðjudaginn 25. marz sl. Á fundinn komu: Hjalti Elfasson, Alfreð G. Alfreðsson, Jón Hjaltason, Steinunn Snorra- dóttir, Ragnar Björnsson, Björn Eysteinsson, Örn Vigfús- son og Ríkarður Steinbergsson. Mörg mál voru á dagskrá og skal þeirra getið hér: Lagt fram bréf frá Bf. Vest- mannaeyja, dags. 24/2 ’75, þar sem félagið sækir um inngöngu á ný í B.S.Í. Bréfi þeirra fylgdi félagaskrá og árgjald fyrir 20 félaga. Form. félagsins er Gunnar Kristinsson. Inntöku- beiðnin var samþ. samhljóða. Lagt fram bréf frá T.B.K. þar sem sótt er um leyfi til að taka á móti bridgespilurum frá Huddersfield í Englandi dag- ana 6. til 13. júní 1975. Samþ. var samhljóða að veita umbeðið leyfi. Samþ. var að Islandsmót 1975 fari fram sem hér segir: Undan- úrslit í sveitakeppni: 1. umf. föstud. 25/4 kl. 13.00. 2. umf. föstud. 25/4 kl. 20.00 3. umf. laugard. 26/4 kl. 13.00. 4. umf. sunnud. 27/4 kl. 13.00 og 5. umf. sunnud. 27/4 kl. 20.00. Urslit i sveitakeppni: 1. umf. fimmtud. 15/5 kl. 20.00. 2. umf. föstud. 16/5 kl. 20.00. 3. umf. laugard. 17/5 kl. 20.00. 5. umf. sunnud. 18/5 kl. 13.00. 6. umf. sunnud. 18/5 kl. 20.00 og 7. umf. mánudaginn 19/5 kl. 13.00. íslandsmót i tvimenning: 1. umf. laugard. 31/5 kl. 20.00 2. umf. laugard 31/5 kl. 20.00 og 3. umf. sunnud. 1. júní kl. 13.00. Keppnisstaður verður Domus Medica og keppnisstjóri Agnar Jörgensson. Samþ. var að fela Ragnari Björnssyni að halda keppnis- bók um allar keppnir á vegum B.S.Í. Samþ. var að stefna að því að B.S.l. standi fyrir sameiginleg- um innkaupum á bridgebókum, spilum, spilabökkum, sagnabox um og öðru tilheyrandi bridge og gefa félögum innan B.S.l. þannig kost á að kaupa þessa hluti á lágmarksverði. Forseti upplýsti að nýju alþjóðalögin í bridge eru kom- in i hans hendur og eru nú i þýðingu. Forseti lagði fram uppkast að bréfi til allra bridgefélaga á landinu ásamt upplýsinga- greinargerð um allt sem við- kemur rekstri eins bridge- félags, bridgekeppnum og öðru viðvíkjandi bridgeíþróttinni. Hjalti og Björn Eysteinsson undirbjuggu fyrrnefnda greinargerð. Stjórn samþ. bréf- ið og greinargerðina eins og hún liggur fyrir. A.G.R. Afmælishátíð AA-manna MAÐUR er svo vanur að bæði sé fátt og heldur síðla mætt til flestra funda, jafnvel þó tugum þúsunda sé kostað til skemmti- krafta til að draga einhverja að, að það er lífsvekjandi að koma bílnum sínum tæpast á autt stæði á stóru hlaði og vera jafn- vel uggandi um að öll þau 250 sæti, sem í húsinu eru, séu skip- uð þegar inn er komið og það áður en kominn er auglýstur fundartími og engra aðkeyptra skemmtikrafta von. Að þeim trúlega 240 er sætin skipuðu í Langholtskirkju að kvöldi föstudagsins langa voru fjórir ræðumenn, sem ekki drógu dul á æviferil sinn og lífsreynslu, — horfðu ekki i þá fórn að ræða slíkt hispurslaust ef orðið gæti einhverjum gesti til viðvörunar eða leiðbeining- ar. Það var eins og einn ræðu- manna sagði: „Þetta var allt i lagi. Ég var bara ungur maður með eina flösku áfengis. Þetta var allt í lagi eins og áframhald- ið á fleiri samkomum," en kon- unni fannst það ekki í lagi, hún fór, heimilið sundraðist og loks viðurkenndi hann sjálfur að þetta var nú ekki alveg allt i lagi og félagslegur stuðningur var nauðsyn. Bænin er fyrsta boðorð þeirra AA-manna og að engum sé unnt aó hjálpa, nema hann vilji hjálpa sér sjálfur. Svo endaði þessi myndarlegi afmælisfundur að engum gesta var gefinn kostur á að óska afmælisbarninu til hamingju, en eftir þann mikla myndar- skap, er öllum var boðið að hlöðnum borðum glæsiveitinga, er konur félaganna höfðu sjálf- ar komið með og reiddu fram, myndu flestir gesta þó hafa fagnað ef einhver hefði sýnt það framtak að þakka fyrir alla, — þakka fyrir fundinn, fyrir mannbótastarfið og fyrir veit- ingarnar, sem ég geri hér með. Ingþór Sigurbjörnsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.