Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1975 MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 5. APRÍL 1975 17 Utgefandi Framkvæmdastióri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson Björn Jóhannsson Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6. sími 10 100. Aðalstræti 6. sími 22 4 80. Akreppuárunum 1967— 1969 gætti hér mjög alvarlegs atvinnuleysis, sem var sérstaklega til- finnanlegt yfir vetrar- mánuðina 1968 og 1969. Við þeim erfiðleikum og því atvinnuleysi var brugðr izt meó ýmsum ráóstöf- unum, tveimur gengis- breytingum á 12 mánuðum og margvislegum öðrum aögeróum, svo sem stofnun atvinnumálanefnda víós vegar um landið, sem höfðu nokkurt fjármagn til umráða til þess aö bæta atvinnuástand. Aðgeróir Víóreisnarstjórnarinnar og forystu hennar á þess- um kreppuárum lögóu grundvöll að því, að efna- hags- og atvinnulíf þjóóar- innar reis úr öldudal og blómgaóist á ný, en auð- vitað skipti verulegu máli í sambandi við þann bata, að verólag hækkaói á ný á út- flutningsaf'urðum okkar. Þessi ár voru mörgum lær- dómsrík og á þessum tíma vaknaói nýr skilningur hjá öllum almenningi á þýð- ingu þess fyrir launþega, að atvinnufyrirtækin byggju við góð rekstrar- skilyrði og að hagur þeirra dafnaði. Menn gerðu sér þess betur grein, þegar vofa atvinnuleysis barði skyndilega að dyrum, að atvinnufyrirtækin eru ekki ir, að þar eru báóir aðilar í einum og sama bát. En menn eru fljótir aó gleyma og hin síðustu miss- eri virðast margir hafa talið sér trú um, að enda- laust væri hægt að heimta kjarabætur úr tómum sjóð- um atvinnuveganna, hvaó sem rekstrarskilyrðum þeirra liði. Á einu ári hefur oróið mjög alvarlegt verð- fall á útflutningsafurðum okkar íslendinga, jafn- framt því sem verðlag á innflutningi hefur marg- faldazt á stuttum tíma. Gífurlegur verðbólguvöxt- ur annars vegar og versn- andi rekstrarskilyrði út á við hins vegar, hafa veikt mjög afkomu langflestra atvinnufyrirtækja í land- inu og þess vegna eru þau vegna verðbólgu og kaup- gjaldshækkana verói sá, aó skera niður umsvif og fækka starfsmönnum, sem aftur mundi hafa í för með sér atvinnuleysi. Það hefur verið megin- markmið núverandi ríkis- stjórnar aö koma í veg fyrir atvinnuleysi og við þaó hafa allar aðgerðir hennar í efnahagsmálum miðazt. Þegar horft er til baka um farinn veg undan- farna mánuði og erfiður og haröur vetur er senn að baki, verður mönnum betur ljóst, aö í raun og veru er það umtalsvert afrek að takast skyldi að afstýra atvinnuleysi á þess- um vetri. En jafnframt veröum við að horfast í augu við þá staðreynd, aó Hagur atvinnufyrirtækja og atvinnuástand mjólkurký-r, sem hægt er aó mjólka endalaust. Því aóeins geta þau greitt starfsmönnum sínum líf- vænleg laun, að afkoma þeirra sjálfra sé góð. Þann- ig varð mönnum á þessum árum ljósara en áður, að hagsmunir atvinnufyrir- tækjanna og starfsmanna þeirra eru svo samtvinnað- þess mjög vanbúin að taka á sig nokkrar kostnaðar- hækkanir. Fari svo, að verðlag á útflutnings- afurðum okkar hækki ekki á ný i fyrirsjáanlegri fram- tíð er sú hætta augljóslega yfirvofandi, að eini val- kostur atvinnufyrirtækj- anna frammi fyrir stöðugt hækkandi útgjöldum enn hefur engin grund- vallarbreyting orðið á rekstrarskilyrðum at- vinnuvega okkar, verðlag á útflutningsafurðum hefur ekki hækkað, en stöðugt hækkandi innflutnings- verölag og gengisbreyt- ingar hafa valdið verulegri útgjaldaaukningu í rekstri atvinnufyrirtækja almennt og gildir þá einu um hvaða atvinnugrein er aó ræða. Þess vegna hefurl raun og veru ekki skapazt neinn grundvöllur til almennra kjarabóta í landinu. Ráð- stafanir ríkisstjórnarinnar hafa komið í veg fyrir stöðvun atvinnureksturs- ins og lagt grundvöll að nýju blómaskeiði hans með batnandi skilyröum út á við. Hættan nú er bersýni- lega sú, að með margvísleg- um útgjaldahækkunum þ.á m. kauphækkunum, sem ekki verður staðið undir, sé þrengt svo mjög að atvinnurekstrinum, að hann eigi engan annan kost en þann að fækka starfsmönnum og er þá skammt í atvinnuleysi. Fram til þessa hafa flest atvinnufyrirtæki vafalaust lagt áherzlu á að minnka útgjöld sín með því aö draga úr yfirvinnu, en þegar lengra verður ekki komizt á þeirri braut getur blasaö við annað hvort stöðvun eða fækkun starfs- manna. Okkur íslend- ingum er hollt að rifja upp reynslu áranna 1968 og 1969. Það er betra, að allir landsmenn hafi fulla at- vinnu en að ofbjóóa greiðsluþoli atvinnufyrir- tækjanna svo mjög, að at- vinnuleysi sé á næsta leiti. Við skulum gera okkur þess grein, að þótt þessi vetur sé að baki án atvinnuleysis hefur þeirri hættu ekki verið bægt endanlega frá dyrum. Draumurinn um paradís á jörðu Bókmenntlr eftir GUÐMUND G. HAGALÍN Ási í Bæ: Korriró'.'Q Iðunn, Reykjavfk 1974'Q Sérstæð skáldsaga og athyglisvert heim- ildarit um trúarleg og þjóð- félagsleg viðhorf. „Stærsta axarskaft okkar vinstrisósialista fólSt i trúgirni. Það er i flestum tiifellum meiri glæpur að vera auðtrúa en vera lygari." Halldór Laxness i Skáldatima MÖRGUM mun þykja þetta furðuleg, kannski fáránleg skáldsaga, en þó hygg ég, að allir sæmilega greindir menn, sem byrja lestur hennar, geti ekki stillt sig um að lesa hana til enda og sumir alls ekki geta varizt því að kíma annað veifið. í henni eru engin tízkuloftköst í stíl — og heldur ekki sýndar- djúpköfun í meðferð efnis eða persóna. Umfjöllun höfundar um kynferðismál er nokkuð tíð, en hann gengur ávallt beint að öllu í þeim efnum, hvergi til að dreifa tilhneigingu til ónáttúru frá hans hendi, og ekki leggur hann sig eftir nákvæmum lýs- ingum á samförum karls og konu, hvað þá að hann telji kennslu í þeim efnum hlutverk sitt. Hann er orðhvatur um trú- mál og þjóðfélagsmál, en þó eru viðhorf hans ekki alls kostar einhæf og ofstækisfull nema í síðasta kaflanum og hreinskilni Húnaþing HUNAÞING (fyrra bindi) er mikiö rit í öllum skilningi, brotið stórt, lengd hátt í sex hundruð síður og myndir fleiri en tölu verði á komið. Þó má ráða af efnisskrá og formála þessa bindis að ærinn hluti — meirihlutinn kannski — bíði síðara bíndis því þar eiga að verða „frásagnir og myndir af öllum býlum (héraðs- ins) og ábúendum þeirra. Einnig félagsmálasaga búnaðarsamtak- anna í héraðinu." En það eru einmitt búnaðar- samtök sýslnanna ásamt kaup- félögunum og Sögufélaginu Hún- vetningi sem standa að útgáfu þessari. Umsjónarmenn útgáfunnar eru Sigurður J. Lindal á Lækjamóti og Stefán Á. Jónsson á Kagaðar- hóli. Þeir segja meðal annars í formála: „1 ritinu skyldu vera frásagnir af helstu félagasamtökum í sýslunum þ.e. búnaðarfélagsskap, samvinnufélagsskap, ungmenna- félagsskap, kvenfélögum og Sögu- félaginu Húnvetningur, einnig Húnvetningafélaganna utan héraðs. Ennfremur kirkjum, skól- um og helstu atvinnugreinum i landbúnaði og sjávarútvegi, frásagnir af kauptúnum í hérað- inu og myndir af húsráðendum i þeim. Einnig myndir af öllum býl- um í sýslunum og ábúendum á þeim." Þetta er mikið ætlunarverk og mikið til að hyggja en hálfnað er verk þá hafið er. Fremst í þessu bindi er skipað þætti eftir Halldór Jónsson á Leysingjastöðum og nefnist Húnavatnsþing. Er það land- lýsing, ekki of nákvæm en prýði- lega stíluð og greinagóð. Landa- fræði sína endar Halldór á þess- um orðum: „Til að fá raunsanna mynd af héraðinu þarf að koma víðar og skyggnast dýpra, þvi að héraðið allt með fjöllum sínum og fljót- um, engjum og öræfum, unaðs- HÚNAÞING I. 564 bls. reitum og ófegurri stöðum, ásamt fólkinu, sem það hefir mót- að og þegið mótun af, svipir þess og sagnir, ljóð þess, leikir, lifsvið- horf og störf, er sú samofna heild um aldanna rás, sem er Húna- vatnssýsla dagsins i dag.“ Næst eru tveir þættir eftir síra Þorstein B. Gíslason, Skólar í Húnaþingi og Kirkjur I Húna- þingi, báðir skrifaðir af þekking og nærfærni heimamannsins og þó svo að ókunnugum má að gagni koma. Þættir eru eftir Skúla Guðmundsson er nefnast Viðskiptasamvinna Vestur- Húnvetninga á tuttugustu öld og eru þeir teknir upp úr bók Skúla sem heitir raunar Viðskiptasam- vinna Vestur-Húnvetninga á nftjándu og tuttugustu öld. Mun sú bók hvergi á byggðu bóli fáan- leg nema i kaupfélaginu á Hvammstanga og á fárra vitorði utan héraðs að hún er til. Var því vel til fundið að endurprenta hluta hennar í þessari bók. Fyrstu spor Húnvetninga til sjálfstæðis í verslunarmálum voru landssögu- lega merkileg ekki síður en t.d. stofnun Kaupfélags Þingeyinga sem meir hefur verið á loft hald- ið. Á ég þá við félagsverslunina sem stofnuð var um 1870. Miður tel ég aó sá hlutinn af bók Skúla, sem um hana fjallar, hefur ekki verið tekinn upp í þetta rit. Þá eru þarna þættir um sam- vinnufélögin á Blönduósi og BóKmenntir eftir ERLEND JÓNSSON Stefán Á. Jónsson Skagaströnd, tveir þættir um sjó- sókn við Húnaflóa, tveir um hún- vetnsku kvenfélögin og aðrir tveir um ungmennasamböndin í sýslunum. Sagt er frá stofnun og starfsemi Sögufélagsins Hún- vetningur og rakin saga Hún- vetningafélagsins í Reykjavík. Að lokum eru svo þrír þættir hver um sitt þorp sýslunnar, Hvamms- tanga, Blönduós og Skagaströnd auk alllangrar ritgerðar eftir Sig- fús Hauk Andrésson, Þegar Höfðakaupstaður var eini verzlunarstaður Húnavatnssýslu. Þetta er drjúgt efni ef hliðsjón er höfð af að íbúar beggja sýsln- anna eru aðeins tæp 'fjögur þúsund. Ásannast þarna svo ekki verður um villst að í fámenningu vegur hver einstakur þyngra á metunum, enda er persónusaga talsvert áberandi í riti þessu. Húnaþing er að mörgu leyti sér- stætt byggðarlag. Að landslagi svipar þvf lítt til nágrannahéraðs- ins, Skagafjarðar, svo dæmi sé tekið. Kjarni byggðar i Skagafirði er ein heild, eitt víðáttumikið torg. Þar sér hver til annars og má af þvi vera sprottið rómað félagslíf og glaðværð í héraói. Húnaþing er hins vegar i mörgum aðskildum dölum, fjörðum og skögum. Fjöldi jarða teygist í átt til grösugra afréttarlanda þar sem landslag er viða jafnfagurt og land er kostarikt. Þangað hafa menn sótt til afþreyingar og lífs- bjargar í senn, aldirnar i gegnum, og unað sér á eintali við náttúr- una. Landslag í Húnaþingi kann þannig að hafa valdið einhverju um að einstaklingshyggja er talin meiri þar en annars staðar. Klaustrið á Þingeyrum var stað- ur mennta og fræðaiðkana. Sumir álíta að þaðan sé sprottinn fræða- áhugj húnvetninga sem svo vel hefur enst að margir okkar bestu afrekSmanna á íslensk fræði eru upprunnir í Húnaþingi; nefni Björn M. Ölsen, Sigurð Guðmundsson skólameistara, Siguró Nordal og Jón Jóhannes- son. Jafnoka þessara manna tel ég Magnús Björnsson frá Syðra-Hóli þó hvorki yrði doktor né prófess- or. I sömu andrá nefndi ég líka Björn Eysteinsson sem sinnti ekki skriftum fyrr en á elliárum en setti þá saman eina gagnorð- ustu ævisögu sem samin hefur verió á landi hér. Ekki veit ég hvort húnvetning- ar eru eftirbátar annarra i skáld- skap en tækju þeir að metast við önnur héruð um fjölda þjóð- skálda hygg ég útkoman yrði þeim ekki jafnhagstæð og á fræðasvióinu. Sú var tíðin að fleiri læknar komu úr Húnavatnssýslum en nokkru héraði öóru. Virtist þá blátt áfram tíska að ungir bænda- synir þaðan næmu læknisfræði og er nærtækast að minnast Guð- mundanna þriggja sem voru allir þjóðkunnir menn framan af öld- inni. Ritið Húnaþing er ekkert af- reksmannatal og þvi siður skrá um athafnir húnvetninga utan héraðs, enda óþarft, heldur er það héraðssaga í beinum skilningi: greinir frá lifi og athöfnum ibú- anna heima, en fyrrnefndir menn störfuðu að sjálfsögðu allir utan héraðs (nema Magnús og Björn) og eiga sinn sess i sögu þjóðarinn- ar. Ekki er þetta fyrsta rit sinnar tegundar. Fyrir réttum aldar- fjórðungi sendi Páll V. G. Kolka frá sér ritið Föðurtún, læsilega bók sem varðveitir meðal annars fjölda gamalla mannamynda. Hafði Kolka dregið saman mikinn fróðleik um héraðsbúa á nítjándu og tuttugustu öld. En hann var ekki alls staðar þaulkunnugur í héraðinu og er rit hans því ekki jafneinhlítt til uppsláttar og það er vel skrifað. Öðru máli á að gegna um rit það sem nú er að fara af stað og samið er af mörgum mönnum víðs vegar úr héraðinu. Vel fer það af stað en annars er víst best að segja ekki mikið um það fyrr en lokið er. Eitt ættu útgefendur Húna- þings að íhuga vegna þeirra mörgu mynda sem þeir eiga von- andi eftir að birta: hvort ekki væri hyggilegra að kosta upp á ritið vandaðri pappír. Myndirnar í þessu bindi koma ekki allar nógu vel út. Því fremur er ástæða til að huga að þessari hlið mál- anna að hér er á ferðinni rit sem lengi mun standa. Erlendur Jónsson hans er ekki aðeins forvitnileg með tiliti til hans sjálfs, heldur og margra fleiri, sem hafa vænzt þess af mestu óþoli, að hann rættist hinn dásamlegi draumur flestra mestu og beztu manna hins villuráfandi mann- kyns um paradís á jörðu... Og hvað sem öllu öðru liður, þori ég að fullyrða, að höfundur þessarar skáldsögu er ekki ein- ungis stórorður, berorður og stundum grófyrtur, heldur ræð- ur hann yfir óvenjulega fjöl- þættum orðaforða, er mælskur og æði oft kjarnyrtur — og gæddur ríkri frásagnargleði og kimnigáfu, er njóta sín jafnvel þar, sem hann seg- ir frá því, sem honum er sízt að skapi. Viða krydd- ar hann mál sitt kviðling- um og kvæðum, sem hann hefur sjálfur ort- og hon- um þykja við hæfi í hinum ýmsu tilvikum. Er þetta yfir- leitt rétt rímaóur og sönghæfur kveðskapur, en tóninn í hinni allfurðulegu atburðarás gefur skáldið í þessu frekar óhrjálega og órímaða upphafserindi bók- arinnar, svo að ekki verður sagt, að hann svikist að nein- um: „Blandaðu Ajax í vindinn og næsti stormsveipur mun þvo slepjuna af skötubörðum hjarta þíns“(!) 1 stuttri ritfregn er ekki unnt að gera rækilega grein fyrir söguþræðinum, en samt mun ég reyna að gefa n^kkra hugmynd um hann, enda ekki eins vand- gert og ef ég hefði átt að gera almennt skiljanlegan útdrátt úr bókum þeirra íslenzku höf- unda, sem sjá nú i anda fram- rétta hönd Sviakóngs, afhend- andi þeim Nóbelsverólaun af mikilli kurt! Maður er nefndur Guðmund- ur Jórmann Arason. Hann á heima i allstórum útgerðar- og fiskvinnslu kaupstað. Lítilmót- legur þykir hann, því að hann býr með kerlu sinni og dóttur í kofahrói og tekur engan þátt í fjárausturs- og lífsþæginda- kapphlaupinu, heldur sækir annað veifið sjó á trillu sinni meó handfæri og byssuhólk, en þess á milli setur að honum roluköst svo meinleg, að þau víkja ekki fyrir öðru en raf- losti, sem nú er notað líkt og verk- og vindeyðandi dropar hér áður fyrr (þessi athuga- semd frá mér. G.G.H.). Nema dag nokkurn fær Jórmann eitt kastið — og það ærið eftir- minnilegt, því að frá þvl stafar allt, sem bókin fjallar um. Jór- mann boðar til fundar, — allir velkomnir! Húsfyllir, og Jór- mann birtist á „senunni" i hneykslanlega aðskorinni sund- skýlu einni saman. Mættur fógeti sendir sína tvo lögreglu- þjóna til handtöku dónans, en viti menn: Ræfilstetrið Jór- mann réttir fram sinn armlegg, og svo stendur „löggan'* stjörf. Fógetinn skerst einkennisbú- inn í leikinn, mikill maður vexti og virðulegur, en ekki fer hann sigurför. Jórmann lyftir lúkunni gegn árásinni. Stopp! Yfirvaldið gerbreytist, flytur ræðu, fleygir af sér gullin- hnepptum dúða og gerir hvort tveggja í senn, afneita sínum virðulega hversdagsmanni og sínum embættisskyldum sem innheimtumaður rikistekna á staðnum, — gerið svo vel: Þið eruð hér með skattlaus! — Og svo faðmaði fógetinn Jórmann. Frú hans hyggst tamma hann skörulega til, en Jórmann iyftir hendi: Dauðaþögn i salnum, unz: „Nú er það svo þegar stórtið- indi gerast að ekki ber öllum saraan. Sumir segja að Jórmann hafi gert sig líklegan til þess að flytja einhvern mikilvægan boðskap og mælt nokkur orð með þeim afleiðingum, að húsið lék á reiðiskjálfi." Og nú kemur orðrétt lýsing, sem er dæmi- gerð upp á tón sögunnar: „Strákar góluðu, stelpur skræktu. Sértrúarfólk kveinaði sitt frelsandi halelúja. íhalds- menn öskruðu stétt með stétt. Framsóknarmenn stöppuðu i kvað Nýalista hafa náð sam- bandi við mjög háttsettar verur og þá mestu allra, Búrúdí að nafni — og hann hefði tjáð þeim, að hann byggi á stjörnu, sem væri i átta milljón ljósára fjarlægð. Búrúdí mælti enn- fremur: „Þið verðið að drífa í því að boða heiminum að frá íslandi komi það ljós, sem sogar upp myrkur helstefnunnar. Tíminn er naumur".........I þeim töluðum orðum varð jarð- skjálfti á Reykjanesskaganum og sambandið rofnaði." Nú skildi með þeim Jónsa og Egilsen. Egilsen sálaðist af upp- skurði, en minningarnar lifðu í hugskoti Jóns Jónssonar, og um allt þetta var hann að hugsa á Fyrri hluti Ási f Bæ gólfið og bauluðu. Rauðliðar sungu internasjónalinn og einn aflóga kommi heyrist væla rót front. Þeir fáu, Hanníbalistar, sem viðstaddir voru, migu á sig. Og svo mætti lengi telja." Osköpin ollu svo því, að öll ljós voru slökkt, og síðan upphófst í myrkrinu sitthvað, sem um verður að láta nægja að segja bja, bja og bla, bla, og þá skilja nútiðarmenn á vorri sögufrægu eyju, hver eftir sinni gerð, að á ýmsu hefur gengið í myrkra- stofunni í hinu auðvitað bráð- þarfa Félagsheimili. Svo er að víkja að orsökum þessara undra og óskapa — og fleiri, sem á eftir fara: Múrari nokkur, sem heima átti i kaupstaðnum, Jón Jóns, var trúhneigður sveimhugi, las Vesturlönd Á.H.B., Ganglera, Gunnar Dal og fleira, þar á meðal Draumabókina. Hann haföi glatað sinni barnatrú, en dreymdi svo draum, sem sann- færði hann um tilveru guðs og vakti hjá honum köllun, svo að hann gekk fyrir vini og jafn- aldra og skýrði þeim frá draum- vitrun sinni. Þeir sögðu við hann: „Já, blessaður láttu frels- ast. Farðu i niðurdýfingarskírn og sjáðu dúfur og máva. Talaðu tungum". Við þetta dofnaði trú hans, en svo átti hann það að þakka kviðsliti, að hann lenti á Landspítalann og í sömu stofu og Nýalistinn Egilsen, sem vita- skuld trúði á speki Helga Péturss, líf á öðrum hnöttum og kenninguna um andstæðurnar miklu: líf — og helstefnu. Egilsen tjáði Jónsa múrara, að hann og aðrir helztu Nýalistar hefðu margprófað kenningar Helga, og hljóðlega trúói hann Jónsa fyrir því, að á einum hnetti úti í geimnum væri is- lenzk nýlenda, þar sem byggju sex milljónir íslendinga. Hann leiðinni heim af fundi Jór- manns. Svo fór hann þá á ný draumförum út í himingeim- inn, unz hann mætti sjálfum Búrúdí. „Samkvæmt uppmæl- ingarhætti múrara,“, gizkaði Jón á, að geimkempan væri „ekki minna en 70 álnir á hæð og samsvaraði sér vel". Búrúdí þekkti strax Jónsa Jóns, heils- aði honum kompánlega og gaf honum bláleitt duft í slóna, og „þá er sem trumbur séu barðar og málmgjöll hljómi i höfði hans og stígur upp tónaflóó sem i senn er fuglakliður, þrumu- gnýr, giljaþytur, hvalablástur, brimhljóð — og þenst nú allur ut þartil hann nær þvi aó verða dálítill hnokki við hlið geim- búans." Og geimkempan spaka segir við Jónsa litla meðal annars þetta, sem ek^i má hér vanta: „Þessu er þannig háttað væni minn að þegar lífsþróunin er komin i vissa hæð, verður það ástríða og inntak tilverunnar að hífa það upp, sem neðar stendur. Af þeim sökum höfum við öðruhverju sent ykkur mögnun og má þar nefna pilta eins og Laotse, Búdda, Jesús, Sókrates, Ramun úr Þegbu, Asóka, Plíum, Mesa, Tonka. Frans frá Assisi, Hvíta örn úi Nevödu að ógleymdum minn: spámönnum eins og Jóhannesi Nordal og Einari Gislasyni, — en þið kunnið lag á að koma þeim af ykkur með eitri, krossi og hungurdauða." Búrúdí segir sióan, að þrátt fyrir lítinn útgeislunarmátt jarðarbúa sé ekki talið fráleitt, að þeir geti eitrað frá sér til annarra stjörnubyggða — og nefnir þess dæmi úr viðskipt- um Kana og Rússa, og hafi komið til greina að setja jarðar- búa í sóttkví „og lofa þeim siðan aó róa“. En málið er held- ur ekki svo einfalt, þvi allt líf er eitt og okkur uppálagt, að halda samræminu og koma ykk- ur áfram og ...Nú slettir Búrúdi dönsku, hefur trúlega litið hornauga til Glistrúps og innblásið Hartling .... „Og forresten skitt að gefast upp meðan kínverska tilraunin er í gangi. (Leturbr. mín. G.G.H.). „Þessvegna gaf ég Jórmanni eina sprautu, tilraun sérðu til að sjá viðbrögðin í meinlitlu umhverfi á hjara ykkar kringlu — beri það engan árangur veit ég ekki, hvað æðsta ráðið tekur til bragðs. Svo mikið er víst að eiirun út um allar stjörnu- grundir (sbr. þorpagrundir G.G.H.) verður ekki gúteruð. Og farðu nú heim Jónsi minn og skilaðu kveðju til hans Sveinbjarnar, viðleitni er alltaf vel séð héðra og hver veit nema við sendum honum mögnun ef Æsir bregðast.“ Auðvitað „langaði Jónsa til að spyrja margs, t.d. um kenn- ingar Brynjólfs (Bjarnasonar. G.G.H) og hvort til væru ein- föld ráð við dýrtíð," en þess var enginn kostur. Geimkempan gaf honum á ný í nefió sitt bláa töfraduft — og þar meó skrapp Jón Jóns saman, „breyttist aft- ur í sina eigin stærð.“ Hann þaut siðan af stað í átt til sins heima, en þó að hann færi hratt, varð ekki með öllu tiðindalaust á leið hans. Hann komst að raun um, að Jósef nokkur Ðjúkasvili — það er Stalin sálaði, lengi átrúnaðar- goð ýmissa íslenzkra stórskálda — hafói þrátt fyrir meinvillu sina hlotið hjá geimvöldum starf við sitt hæfi: Hann stóó þarna streittur við að húð- strýkja með gaddasvipum hóp af Belsenfangavörðum, sem voru lifandi brenndir grænum úraníumeldum. „Þeir ösluðu blóðvilsu i mjaðmir og drógu á eftir sér keðjur settar saman úr gulltönnum og augasteinum ungbarna." Svo naut Stalín gamli starfa síns, að hann „glotti i skegg sitt". Hann bjargaði þó Jónsa tetrinu með svipu sinni frá þeim voða, að lenda i armlögum kvensu einnar í fangahópnum. „Heim slapp hann — og við það vakn- aði hann. Þá var enn nótt á glugga"'. — svo ekki hafði hann nú verið lengi að bregða sér nokkurra ljósára spotta út i himingeiminn og rabba þar við hinn volduga Búrúdi. Nú vitum við frá fyrstu hendi um tildrög fundarins. Jórmann, sem var frekar lítill fyrir sér og ósnortinn af fjárgræðgi og þægindafíkn sinnar samtíðar, hafði verió kjörinn til þeirrar kraftbirtingar, er skyldi leiða í ljós hversu opnir jarðarbúar kyiiuu að reynast fvrir hjálp til fráhvarfs þeirri helstefnu, sem ráóamenn þeirra höfóu flestir Óígt - ng nú var háskalegri en nokkru sinni áður sakir þeirrar lækniþekkingar, sem jarðar- búar höfðu öðlazt, og jafnvel var orðin hugsanleg ógnun við geimlíf utan þeirra eigin sól- kerfis. Svo er þá aó hyggja lítið eitt að áhrifum Jórmanns ,,í mein- litlu umhverfi á hjara okkar kringlu" og að þeirri vitneskju, sem þessi skáldsaga veitir okkur um viðhorf höfundarins og annarra, sem mundu fylgja svipuðum hugsanaferli. Guómundur Gfslason Hagalín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.