Morgunblaðið - 05.04.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1975
listasprang
Eftír
Arna Johnsen
og hug-
eiga svolítið við það sem ég er
að gera í dag. Eitthvað sem
ég hef verið með í huga og
sýnir ef til vill aðdragnadann
að þessu sem nú liggur
fyrir eða hvað maður á að
kalla það. Stór hiuti af verkunum
eru frá síðasta ári og það sem af er
þessu, en einnig er töluvert frá
'71, '72, '73, eða síðan ég fluttist
hingað. Megnið er þvi unnið hér i
Hulduhólum''
Á sýningu Steinunnar eru vasar,
veggskildir, myndir, veggskildir
fyrir kertalog, blómapottar, smá-
vegis af hlutum til heimilisnota,
en flest er þó beinlínis listgripir.
Steinunn vinnur verk sin i leir
út frá náttúrufyrirbærum og einn-
ig út frá eigin hugmyndum, sumt
er leikur að efni og oft spinnast
inn í bein áhrif frá náttúrufyrir-
brigðum. í vösum hennar, sem eru
margir með þvi stærsta sem unnt
er að gera með hinni árþúsunda
gömlu leirkeratækni, eru form
fjalla og annars landslags á íslandi
og ósjaldan eru t.d. Esjan og Snæ-
fellsjökull yrkisefni hennar. í mál-
verkum, höggmyndum og jafnvel
húsagerð á íslandi eru ósjaldan
áhrif frá íslenzkum fjöllum, og
með listmunum sínum ryður
Steinunn braut nýrri stefnu í ís-
lenzkri list með sérstæðri leir-
vinnu sinni. Á sýningunni eru m.a.
9 stef um Snæfellsjökul, vasi sem
varð til eftir göngu að fossinum
Glym í botni Hvalfjarðar, en í vas-
anum hríslast fossar í veggjum.
Gipsportrett sýnir Steinunn,
marga hluti með fígúratívum fyrir-
myndum, bæði í vösum og öðrum
hlutum, oft skrýtin andlit, blóm,
þang eða form sem minna á leik
vinds og vatns að föstu efni.
„Tæknin, sem þessi leirvinnsla
byggist á," sagði Steinunn, ,,á sér
hefð alla leið aftur i steinöld, bæði
hvað snertir pottformið og tækn-
ina. Þessi verk á sýningunni eru
þó unnin á margan hátt, rennd,
handhlaðin og gerð með blandaðri
tækni. Stærstu hlutirnir eru þó
byggðir upp án rennibekks."
Sýning Steinunnar er opin i
Kjarvalsstöðum til 13. apríl, en hún
er opin daglega nema mánudag frá
kl 16 — 22 og á laugardögum og
sunnudögum frá 14—22.
Stór leirvasi
með formum,
sem listamaðurinn
sækir i gömlu
góðu Esjuna.
Náttúru:
mynda-
flug
í leir-
munum
Steinunn Marteinsdóttir leirkera-
smiður sýnir í Kjarvalsstöðum
STEINUNN Marteinsdóttir leirkera-
smiður, sem nú heldur yfirgrips-
mikla sýningu á verkum sínum í
Kjarvalsstöðum er fædd í Reykjavík
1936, dóttir Kristínar Bjarnadóttur
bókavarðar og Marteins Guðmunds-
sonar myndhöggvara Hún braut-
skráðist úr MR 1955, nam við
Handíða- og myndlistarskóla íslands
1 956— 1 957, síðan við Hochshule
fur Bildende Kunst í Vestur Berlin
frá '57 — '60 með leirkerasmíði sem
aðalfag Hjá Glit vann hún í ár eftir
að hún kom heim, en síðan setti hún
upp eigið leirkeraverkstæði, sem
hún rak í 5 ár og á þeim árum tók
hún þátt í samsýnmgum innan lands
og utan A árunum '67 — '73 rak
Steinunn fjölmenn námskeið í leir-
kerasmíði fyrir almenning, en siðan
hefur hún unnið að mestu að þessari
sýningu.
„Þetta eru keramikhlutir allt frá
1960, rétt eftir að ég kom heim
frá námi," sagði Steinunn
Marteinsdóttir þegar við röbbuð-
um við hana heima í Hulduhólum
um sýningu hennar í Kjarvalsstöð-
um þar sem hún sýnir á 5. hundr-
að verka, flest frá þremur síðustu
árum.
„Mér fannst ég þurfa að taka
nokkur sýnishorn með frá þvi ég
rak keramikverkstæði og seldi,"
hélt Steinunn áfram," rétt til þess
að sýna þróunina, sýna hvað mað-
ur er orðinn hundgamall i faginu,
að maður stekkur ekki út í heim-
inn i einu skoti. Ég hætti keramik
framleiðslu fyrir markað 1967 og
byrjaði þá að lialda námskeið, en
síðan hef ég ekki selt hluti og ekki
látið neitt frá mér. Á námskeið
unum var ég þó alltaf með puttana
i þessu meira og minna, en síðan í
ársbyrjun 1974 hef ég eingöngu
unnið að þessari sýningu og á
henni eru um 440 verk með þeim
19 teikningum sem eru á sýning-
unni. Felstar teikninganna eru
unnar með tilliti til leirverkanna.
Eins gerði ég það að gamni minu
að taka nokkrar teikningar, sem
Einn af vösum
Steinunnar
Fyrirmyndin
er sótt
í Snæfellsjökul
Veggmyndir
úr leir.
(Ljósmyndir Mbl. Friðþjófur)
Gólfvasi
Bíll til sölu! Hillman árg. '69 mjög góður bill. Uppl. í síma 81 503. Mótatimbur óskast til kaups. Má verða óhreins- að. Upplýsingar I sima 2 5193.
Vauxhall Viva de Lux árgerð 1974 (mai), ekin 15.000 km. Mjög hagstætt verð. Simi 85358. Mulningsvél Vil kaupa litla mulningsvél með keflabrjót. Upplýsingar i síma 37903 kl. 12 — 13 og 19 — 21.
Bátavél 20—30 ha. bátavél með skrúfu- búnaði óskast. Upplýsingar I sima (91)-66294 milli 1 8 og 20 næstu daga. 18 ára norskur piltur óskar eftir atvinnu á íslandi, helzt i Fteykjavik. Talar ensku og norsku. Reynsla i eldhússtörfum, land- búnaðarstörfum o.fl. ODDBJÖRN LADE, 6220 STRAUMGJERDE, NORGE.
Raðhús til leigu Nýtt raðhús á Seltjarnarnesi til leigu í 2 til 3 ár frá 1. júlí n.k. Húsið er 1 40 fm 4- 60 fm bílskúr, 3 svefnherb. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Raðhús 7368 ". Sjómenn Matsvein og háseta vantar á neta- bát, sem rær frá Þorlákshöfn. Símar 34349 og 30505.
Garður Til sölu nýtt einbýlishús 1 34 ferm. skipti á íbúð í Hafnarfirði mögu- leg. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Kefla- vík simar 1 263 og 2890. 2ja—3ja herb. ibúð óskast til leigu fyrir 1. september. Upplýsingar i síma 17912 milli kl. 1 9 — 20 í kvöld og næstu kvöld.
Keflavík Til sölu 3ja herb. ibúð við Faxabraut efri hæð. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns Vatnnes- vegi 20 Keflavik, simar 1263 og 2890. Franskar MÁLVERKAEFTIRPREIMT ANIR til útsaums. Hannyrðaverslunin Erla, Snorrabraut 44.
Keflavik Til sölu parhús við Hátún, sam- liggjandi stofur 4 herbergi. Fast- eignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnesvegi 20, Keflavík, sími 1263 og 2890. Til sölu oliuketill m/brennara, dælu o.fl. Upplýsingar i síma 43643 eftir kl. 2 1 á kvöldin.
Sumarbústaðaland Til sölu sumarbústaðaland í Grímsnesi 1 ha að stærð. Upplýs- ingar í síma 40851 eftir kl. 5 á daginn. Landrover diesel árg. '66 til sölu. Uppl. i síma 93-7178.
Traktor65 hestafla 1970 til sölu. Er með ámoksturstækjum. Lítið keyrður. Verð 400.000.00 Simi 42435 eftir kl. 1 8. Hey til sölu Upplýsingar i Belgsholti í Mela- sveit, sími 93-2111.
Ford Trader dísel vörubíll 1966 til sölu. 5 tonna með sturtum á nýjum dekkjum. Lítur mjög vel út. Sími 42435 eftir kl. 1 8. Iðnaðarhúsnæði óskast til leigu. Stærð 100—150 fm. Upplýsingar i síma 38781.
íbúð óskast Óska eftir að taka á leigu 2ja herb. Ibúð, helzt nálægt miðborginni. Uppl. í síma 81573. mnRCFRLDRR mÖCULEIKR VÐRR
Ég þakka öllum ættingjum og vinum er sýndu
mér vináttu og h/ýhug á 70 ára afmæh mínu 1.
apríl s/.
Haraldur Kristjánsson,
Grænuh/íd 22.
Góð bújörð
Jörðin Kirkjuból í Norðfjarðarhreppi, S-Múl. er laus til ábúðar eða sölu
á næstu fardögum. Á jörðinni eru eftirtaldar tyggingar: íbúðarhús ca
80 fm, tvær hæðir. Fjós fyrir 26 gripi, hlaða (súgþurrkun) með
innbyggðum votheysgeymslum og sambyggðu mjólkurhúsi og
geymslu. Nýiegt rörmjaltakerfi. Fjárhús fyrir 210 fjár ásamt hlöðu
(súgþurrkun)
Uppl. hjá Einari Ólafssyni simi 40382.