Morgunblaðið - 05.04.1975, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRlL 1975
15
Fred Cramer. einn af varaforsetum bandaríska skáksambandsins.
Dr. Euwe hefði get-
að beðið til 1. júní nk.
— með að lýsa Karpov heimsmeistara
„NU VERÐUR ekki aftur
snúið,“ sagði Fred Cramer,
einn af varaforsetum banda-
rfska skáksambandsins, þegar
Morgunblaðið hafði samband
við hann í gær og spurði hann
álits á þvf, hvernig farið hefði
um heimsmeistarakeppnina í
skák. „Dr. Euwe, forseti skák-
sambandsins, hefur blásið f
dómaraflautuna og við þvf er
ekkert að gera úr þessu. Hann
átti um það að velja, þegar til-
skilinn frestur til 1. aprfl var
útrunninn, að lýsa Karpov
heimsmeistara strax eða bíða
með það allt til 1. júní nk. og
hann beið sannarlega ekki boð-
anna.“
Cramer sagóist sjálfur hafa
átt þátt í samningi reglugerðar,
þar sem sagði, að forseti FIDE
gæti frestað því til 1. júní að
fella úrskurð um heims-
meistaratitilinn, ef annar hvor
keppenda í einvíginu um titil-
inn væri ekki búinn að tilkynna
þátttöku fyrir 1. april. „Dr.
Euwe sagðist í janúar sl. ætla
að heimsækja Bobby Fischer og
tala við hann en gerði þaó
aldrei, það hefði hann getað
gert nú til að bjarga einvíginu.
Það vekur furðu mína, hve
fljótt hann kvað upp úrskurð
sinn, sérstaklega þegar þess er
gætt, hve lítill ágreiningurinn
milli FIDE og Fischers var í
raun og veru. FIDE gaf eftir
um 95% og hefði vel getaó
gengið svolitið lengra. Sam-
bandið lét undan með að fjöldi
skáka yrði ótakmarkaður og að
jafntefli skyldu ekki gilda, eins
og Fischer vildi. Það sem FIDE
nú hefur farið fram á er, að
hann verji heimsmeistaratitil-
inn án nokkurrar forréttinda-
aðstöðu, sem alltaf hefur
einhver verið, jafnvel i Reykja-
vik, ef ieikar þar hefóu farið 12
v gegn 12 v hefði Spassky
haldið heimsmeistaratitlinum.
Nú áttu Fischer og Karpov að
tefla á fullkomnum jafnréttis-
grundvelli rétt eins og Fischer
væri alls ekki heimsmeistari.
Allt frá því fyrsta heims-
meistarakeppnin var haldin
árið 1886,“ hélt Cramer áfram,
,,og fram til ársins 1948, er
FIDE tók við skipulagningu
hennar, var gert ráð fyrir for-
réttindaaðstöðu héims-
meistarans og oftast i því formi,
að áskorandinn þyrfti 10 vinn-
inga gegn 8 til að vinna keppn-
ina. Og það vildi Fischer að yrði
tekið upp aftur.
I flestum íþróttagreinum er
gert ráð fyrir, að heimsmeistari
hafi einhverja forréttinda-
aðstöðu, i hnefaleikum til dæm-
is eru sýnu hærri fjárupphæðir
greiddar til heimsmeistarans
en áskorandans, en í skákinni
er það svo að sigurvegarinn
hlýtur hærri upphæð."
Þér eruð þá sýnilega óánægð-
ur með hvernig FIDE hefur
haldið á þessu máli?
„Já, ég er það — og ég tel
okkur heldur ekki hafa unnið
nægilega vel að þessu máli sér-
staklega af því aó atkvæða-
greiðslan á FIDE-fundinum
stóð svo tæpt, það munaði svo
litlu að við fengjum aðra
keppni, annan heimsviðburð
eins og keppnin í Reykjavík
varð. Ég tel Fischer hafa verið
skáklistinni mikill fengur og
einvígið á íslandi var henni
ómetanleg lyftistöng. Það var á
forsíðum heimsblaðanna vikum
saman og allra augu beindust
að því, sem var að gerast í
Reykjavík, skákin fékk þar
meiri auglýsingu en nokkru
sinni hefði verið hægt að kaupa
henni fyrir peninga. Það hrygg-
ir mig því, hvernig komið er.“
Cramer kvaðst ekki hafa haft
samband við Fischer eftir að
dr. Euwe kvað upp úrskurð
sinn og ekki vita hvað hann
mundi nú gera. Hann gæti að
sjálfsögðu tekið þátt í næstu
heimsmeistarakeppni og gengið
beint inn i áskorendaeinvígin.
Aðspurður, hvort hann teldi að
Fischer hefði e.t.v. ekki ýkja
mikinn áhuga á þvi að tefla
framar opinberlega, kvaðst
Cramer sannfærður um að sá
áhugi væri enn fyrir hendi. „Þó
svo hann tefli ekki opinberlega,
heldur hann áfram að hrærast i
skákinni, hann teflir mikið við
vini sína og hefur unnið ósleiti-
lega að skákathugunum á sl.
ári,“ sagði Cramer að lokum.
Erfðaskrá
Onassis
opnuð
með leynd
Aþenu 4. apríl. AP.
ERFÐASKRÁ milljónamærings-
ins Onassis hefur verið opnuð og
efni hennar kynnt allra nánustu
erfingjum að því er gríska blaðið
Ta Nea sagði f dag. Heimildir
blaðsins höfðu fyrir satt, að erfða-
skráin hefði verið opnuð með
hinni mestu leynd og með öllu
væri óvfst, að erfingjar Onassis
myndu gefa yfirlýsingu um ná-
kvæma skiptingu hinna miklu
auðæfa.
Christina Onassis er nú að sögn
á Bahamaeyjum sem gestur Goul-
andirs-f jölskyldunnar, en talið er
að hún muni giftast Petros
Goulandaris áður en langir tímar
Ifða.
Danir lækka
forvexti
Kaupmannahöfn
4. apríl. Reuter.
DANMÖRK lækkaði i dag for-
vexti úr 9% í 8%, aó því er til-
kynnt var i dag og gengur vaxta-
lækkunin i gildi frá og með mánu-
degí. 9% vextir hafa verið í gildi i
Danmörku síðan í janúar, en
höfðu áður verið 10%.
Edmond Edmondson. forseti bandaríska skáksambandsins:
Hugsa að sumir FIDE-full-
trúar nagi sig í handarbökin
— en nú horfum við fram, ekki aftur —
EDMOND Edmondson, forseti
bandaríska skáksambandsins,
sagðist vera önnum kafinn við
að leita að nýju heimsmeistara-
efni, þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann f gær. Við
verðum hvarvetna að leggja
áherzlu á að kenna unga fólk-
inu að tefia skák og rækta góða
hæfileika. Það er aldrei að vita
hvenær né hvar nýjar stjörnur
taka að skfna. Aðspurður, hvort
hann gerði sér þá ekki vonir
um að næsta heimsmeistara-
efni yrði viðráðanlegra en fyrr-
verandi heimsmeistari» sagði
Edmondson: „Það er nú það —
verði hann viðráðanlegri, verð-
ur snilligáfan kannski ekki
nógu mikil — En gamanlaust,
ég er sannfærður um að ein-
hversstaðar er einhver tólf ára
snáði að sigra alla gömlu skák-
mennina f félaginu sfnu. Innan
fárra ára verður hann orðinn
áskorandi f heimsmeistara-
kcppni. Um þetta eigum við að
hugsa núna, horfa fram en ekki
aftur.“
1
Aðspurður hvort hann væri
vonsvikinn yfir þvi hvernig mál
þetta hefði farið innan FIDE
ságði Edmondson: „Að vissu
leyti er ég vonsvikinn, já, þvi að
ég tel, að margir fulltrúarnir á
FIDE-fundinum hafi verið
þeirrar skoðunar, að Fischer
væri ekki full alvara; þeir
trúðu mér ekki, þegar ég sagði
þeim, að hanp mundi alls ekki
tefla nema reglunum væri
breytt. Ég hugsa að færi fram
atkvæðagreiðsla innan FIDE i
dág, yrðu úrslitin öóru visi og
að þá ýrði gengið að kröfum
Fischers. Þvf að nú vita menn
að honum var alvara. Ég hugsa,
að þó nokkrir fulltrúanna nagi
sig i handarbökin."
Framhald á bls. 18
tss*t Flokkarnir sam-
þykktu úrslitakostina
Lissabon 4. apr. AP.
HELZTU stjórnmálaflokkarnir f
Portúgal samþykktu f dag að sam-
in yrði stjórnarskrá fyrir landið,
þar sem hernum yrði veitt vald til
að fara með öll mál í landinu
næstu 3—5 árin. Hafði herinn
gefið flokkunum frest til að tjá
sig um málið 48 klukkustundum
áður. Stjórnmálaflokkarnir
fallast á að enda þótt þeir fái að
starfa áfram, verði það nánast til
málamynda og þær kosningar
sem fram eiga að fara muni engu
breyta og verða fremur skoðana-
könnun en kosningar, þar sem
herinn hefur óbundnar hendur af
niðurstöðum þeirra kosninga.
Þrjár vikur eru nú til kosning-
anna í landinu, sem áttu að verða
fyrstu frjálsar kosningar þar um
árabil. Ákveóið hafði verió að
kosningar yrðu haldnar, þó svo að
stjórnmálaflokkarnir hefðu ekki
samþykkt úrslitakosti yfirmanna
hersins i Portúgal. Byltingarráð-
ið, sem er eins og annað undir
yfirstjórn hersins, mun kjósa sér-
stakt 240 manna ráð og mun það í
samvinnu við væntanlegt þing —
sem verður þó áhrifalaust i öllum
meginatriðum — kjósa forseta
landsins. Ekki er tekió fram aó
hann eigi að vera úr röðum her-
foringja, en talið nær öruggt að
svo verði.
Makaskipti
Einbýlishús eða raðhús í smiðum óskast í skiptum fyrir góða 4ra herb.
íbúð í Árbæjarhverfi. Sameign fullfrágengin. Geymsla og þvottahús á
hæðinni með íbúðinni. Tilboð merkt: „Makaskipti — 7209 leggist
inn á afgr. Mbi. fyrir þriðjudagskvöldið 8. apríl.
9. Háskólatónleikar
verða haldnir í dag kl. 3 í Félagsstofnun
stúdenta. Manuela Wiesler flautuleikari og
Halldór Haraldsson píanóleikari leika.
Tónleikanefnd Háskólans.
Nauðungaruppboð
2. og síðasta sem auglýst var í 53, 56 og 57 tbl. Lögbirtingablaðsins
1974 á m/b Fram GK 328 þinglesin eign Haralds Hjálmarssonar fer
fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 8. ápril 1975 kl. 14.00 eftir kröfu
Björgvrns Sigurðssonar hrl., TryggingarstofnUnar ríkisins ofl.
Bæjarfógetinn i Grindavík.
■Málaskóli 2 - 69 - 08-
Lestrardeildir
undir landspróf
★ íslenzka, danska, enska, stærðfræði og eðlisfræði.
jr í nýju umhverfi næst oft ótrúlega góður árangur
undir handleiðslu reyndra kennara.
Kennslan hefst 1 0. april.
Kennslutilhögun er í samræmi við próftöfluna.
Skólinn er til húsa í Miðstræti 7.
Miðstræti er miðsvæðis.
L2 - 69 - 08__HalldórsJ