Morgunblaðið - 05.04.1975, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. APRÍL 1975
Eitt verkanna á sýningunni
Islenzk grafík í
Norræna húsinu
Eélagsskapurinn íslenzk graffk
opnar f dag, laugardag, sýningu á
rúmlega 80 grafíkmyndum f
Norræna húsinu. Á sýningunni
eru verk 13 félagsmanna, auk
fjögurra gesta. Þar á meðal er
Rune Grönjord frá Svfþjóð, en
hann er jafnframt sá eini sem
sýnir litograffur.
íslenzk grafík var stofnuð árið
1969 og hefur tekið þátt f fjölda
sýninga, aðallega með Norræna
graffkbandalaginu, sem heldur
sýningar annað hvert ár. Á lista-
hátíð 1972 stóð félagið að sam-
norrænni sýningu bandalagsins í
Norræna húsinu.
Sýningin verður opin frá
5.—14. aprfl frá kl. 14 til 22 dag-
lega.
Sovézk lista-
verk til USA
Moskva 4. apr. Reuter.
FJÖRUTIU af þekktustu mál-
verkum sem varðveitt eru í Len-
ingrad verða send á sýningar víðs
vegar um Bandarikin i júlí-
mánuði og verður það farandsýn-
ing í sex mánuði. Mörg listaverk-
anna hafa aldrei verið látin úr
söfnum áður til sýninga i útlönd-
um. Er þetta samkvæmt sérstök-
um menningarsáttmála Sovétríkj-
anna og Bandaríkjanna, sem var
staðfestur í Moskvu i dag. barna
verða m.a. verk eftir Rembrandt,
Rubens, Cezanne og Picasso.
A móti munu Bandaríkjamenn
gangast fyrir farandsýningu í
Moskvu og Leningrad og í fleiri
sovézkum borgum á 30 vestræn-
um meistaraverkum væntanlega
síðla þessa árs.
Skæruliðar
drepnir
í Argentínu
Buenos Aires 4. april Reuter.
ÞRÍR vinstri sinnaðir skæruliðar
munu hafa beðið bana í dag þegar
bíll þeírra rakst á brú eftir að
þeir höfðu ruðzt framhjá vegar-
tálmunum. Segir lögreglan, að
skotið hafi verið á bílinri, þegar
mennirnir virtu ekki stöðvunar-
skylduna. í bílflakinu fannst
síðan talsvert af vopnum og hand-
sprengjum og ýmislegt fleira, sem
benti til, að þar hefðu skæruliðar
farið. í Lanus, i grennd við Avell-
aneda, var lögregluþjónn skotinn
til bana þegar hann ætlaði að yfir-
heyra fjóra menn, sem honum
þóttu grunsamlegir.
— Yfirlitssýning
Framhald af bls. 32
sýningar komnar á dagskrá í
Kjarvalsstöðum á þessu ári og
fjölgar þeim stöðugt. Nú um
þessar mundir stendur yfir
sýning Steinunnar Marteins-
dóttur leirkerasmiðs, en um 6000
manns hafa séð þá sýningu, sem
lýkur 13. apríl. Kínverska alþýðu-
lýðveidið er með grafiksýningu i
apríl—maí, Sveinn Björnsson list-
málari sýnir í maí, Gunnar I.
Guðjónsson listmálari í júní,
Guðmundur Karl í júní, yfirlits-
sýning á verkum Eyjólfs Eyfells
verður í júní—júli í tilefni 90 ára
afmælis listamannsins. í sept.
verður ljósmyndasýning Ljós,
Pétur Friðrik sýnir i október og
Ragnar Páll einnig. í okt.—nóv.
sýnir Halla Haraldsdóttir frá
Keflavik, félagið Germania
verður með Gutenberg sýningu í|
nóv. og í desember sýnir Örn Ingi
frá Akureyri.
— Vegaáætlun
Framhald af bls. 32
fresta varð í fyrra, látnar sitja í
fyrirrúmi. Er þar m.a. fram-
kvæmd við brú yfir Borgarfjörð,
sem er eitt af stærstu fram-
kvæmdaatriðum á dagskrá. Verð-
lag hefur hækkað mikið frá í
fyrra og i raun eru margir óvissu-
þættir i sambandi við verðlag nú,
þar sem nýlega hefur verið samið
um láglaunabætur og leigugjald
vinnuvéla hefur ekki hlotið af-
greiðslu hjá verðlagsstjóra enn,
en sá liður vegur talsvert í
kostnaði við vegagerð á íslandi.
Þvi er í raun óljóst, hvað unnt er
að gera fyrir þennan hálfa fjórða
milljarð og hversu vel hann end-
ist til framkvæmda.
í vegaáætluninni, sem nú hefur
verið lögð fram er gert ráð fyrir
því að frumvarp til laga um breyt-
ingu á vegalögum verði samþykkt
í neðri deild Alþingis, en frum-
varpið hefur þegar verið
samþykkt i efri deild.
A vegaáætlun fyrir 1975 er gert
ráð fyrir að til stjórnunar og
undirbúnings fari 183 milljónir
króna, til viðhalds þjóðvega
rúmur milljarður, til nýrra þjóð-
vega 1,7 milljarðar, til fjallvega
25 milljónir, til brúagerða 141
milljón, til sýsluvega 85 milljónir,
til vega í kaupstöðum og kauptún-
um 285 milljónir, tii véla og
áhaldakaupa 38 milljónir og til
tilrauna í vegagerð 13 milljónir
króna. Samtals eru þetta 3.543
milljónir króna.
Tii samanburðar má geta þess
að á árinu 1974 fóru til vega-
gerðar samtals 3.354,6 milljónir
króna og var halli á vegaáætlun
frá árinu 1973 og 1974 samtals
418,4 milljónir. Á árinu 1976 er
gert ráð fyrir að verja 3.920
milljónum króna og á árinu 1977
4.032 milijónum króna.
— Kúrdar
Framhald af bls. 3
vænta mikiilar aðstoðar ann-
arra ríkisstjórna í þessu máli,
þjóðir heims hefðu ekki sinnt
hjálparkaili Kúrda um stjórn-
málalegan stuðning, meðan enn
var unnt að veita hann. Hins
vegar kvaðst hann gera sér von-
ir um að þjóðirnar íegðu sitt af
mörkum til hjálpar flóttafólk-
inu, sérstaklega að Rauði
krossinn reyndi að beita sér
fyrir söfnun fjár til matvæla-
kaupa. Jafnframt gerðu þeir
sér vonir um að einhverjar
þjóðir tækju við kúrdiskum
flóttamönnum, ef með þyrfti og
opnuðu háskóla sina fyrir kúr-
diskum stúdentum. Nú væru í
Iran um 3000 stúdentar, 'sem
hefðu orðið að hætta námi.
Aðspurður um ieiðtoga
Kúrda, Barzani, sem nú er kom-
inn til Irans, sagðist Jamal
Alemdar gera ráð fyrir að hann
yrði þar um kyrrt. „Ég ætla, að
hann muni ekki yfirgefa fólk
sitt þar,“ sagði hann að lokum.
— Verkfalli
frestað
Framhald af bls. 32
búin, ef verkföll skella á — sagði
Sighvatur Bjarnason í viðtali við
Mbl. i gær. Sagði Sighvatur, að
fólk hefði verið búið að panta sér
farmiða til lands, þar eð óttazt var
að verkfallið skylli á á mánudag.
Þetta fólk hefur nú flest hætt við
brottför á mánudag. Sighvatur
sagðist vona allt hið bezta og að
lausn fengist á málunum áður en
hinn 10. rynni upp.
Verkakvennafélagið Snót i
Vestmannaeyjum hélt i fyrra-
kvöld fjölmennan fund um sam-
komulagið milli ASÍ og vinnuveit-
enda. Að sögn Vilborgar Sig-
urðardóttur, formanns félagsins,
voru rúmlega 90 konur á fundin-
um og samþykktu þær samning-
ana með 46 atkvæðum gegn 37.
Sagði Vilborg, að félagið myndi
afboða verkföll um Ieið og stjórn
og trúnaðarmannaráð félagsins
hefði komið saman. Sagði Vilborg
að fundurinn hefði farið mjög
friðsamlega fram.
Af öðrum samningafundum í
gær var það að segja að fundur
með verzlunarmönnum var frem-
ur stuttur og hefur annar verið
boðaður á mánudag klukkan 17.
Hjörtur Hjartarson, formaður
Kjararáðs verzlunarinnar, hefur
getið þess við Mbl., að umbjóð-
endur ráðsins séu um 700 að tölu
og hjá þeim vinnur rúmur þriðj-
ungur af félagsmönnum VR, eða
rúmlega 2 þúsund manns. Þessi
700 fyrirtæki eru ekki innan vé-
banda VSl. Samningafundur með
sjómönnum á bátaflotanum hófst
í gær um klukkan 13.30. Honum
lauk klukkan 17 og hefur nýr
fundur verið boðaður i dag
klukkan 13.30. Þá var i gær
fundur með sjómönnum á stóru
togurunum. Var hann fremur
stuttur, en nýr hefur verið
boðaður á mánudag klukkan 14.
— Ný stjórn
Framhald af bls. 1
brotið á bak aftur árás kommún-
ista við Phan Rang, sem er 270 km
austur af Saigon. Áður höfðu
fréttir hermt að stjórnarherinn
hefði yfirgefið bæinn. Þá hefur
náðst samband á ný við herlið
sem er skammt frá borginni Nha
Trang, sem er norðar, og virðast
þeir veita hermönnum Víet Cong
harða mótspyrnu. Liðsauki hefur
verið sendur á vettvang. Áður
hafði einnig verið sagt að
stjórnarhermenn hefðu gefizt
upp á þessurfl slóðum.
Varnarmálaráðherra Vestur-
Þýzkalands, Georg Leber, sagði i
dag að áróðursherferð sem haldið
hefði verið uppi um allan heim
gegn Bandarikjunum, hefði kom-
ið því til leiðar sem nú væri að
gerast í Indókina. Varla hefði sá
dagur liðið að Bandarikjamenn
hafi ekki verið hrakyrtir fyrir
áðild þeirra að málefnum
Indókina og litið á þá sem
giæpamenn, vegna þess þeir
hefðu viljað forða Suður-Vietnam
frá þvi að falla í hendur kommún-
ista.
Vandamál flóttafólks í Suður-
Víetnam vex enn, en margar
ríkisstjórnir og alþjóðahjálpar-
stofnanir hafa heitið allri þeirra
aðstoð til að lina hörmungarnar.
Aftur á móti hafa Norður-
Vietnamar gagnrýnt harðlega af-
skipti Bandaríkjamanna m.a. af
fólksflutningum frá landinu og
haft um flutningana hin verstu
orð.
— Flugslysið
Framhald af bls. 1
þann streng hafa vitaskuld allir
tekið.
Sjónarvottar að slysinu segja að
aðkoman á slysstað hafi verió
hryllíleg og lík barna dreifð yfir
stórt svæði, mörg óþekkjanleg
með öllu. Hjálparmenn sem voru í
vélinni og komust lífs af, sögðu að
börnin hefðu verið róleg eftir að
ljóst var að bilun hefði orðið. Súr-
efnisgrímur hefðu verið teknar
fram eftir að þrýstingurinn fór af
vélinni og langflest börnin haldið
stillingu sinni, þótt mörg virtust
skynja að eitthvað aivarlegt hefói
komið fyrir. Vmsir hjálparmann-
anna sem björguðust voru ákaf-
lega miður sín andlega eftir slysið
og kváðust ekki vilja ræða það að
sinni þegar fréttamenn báðu um
lýsingar á atburðinum.
Galaxy-flugvélar eru hinar
stærstu i heimi og ætlaðar aðal-
lega til hergagnaflutninga. Þetta
er í fyrsta skipti sem manntjón
verður, þegar slík vél ferst, en sex
ár eru síðan þær voru teknar í
notkun.
Ford Bandaríkjaforseti sagði
einnig er hann lýsti harmi sínum
og bandarísku þjóðarinnar að þó
svo þessi voðalegi atburður hefði
gerzt myndi óhikað verða haldið
áfram að reyna að bjarga
munaðarlausum börnum og búa
þeim ný heimili. Hann sagði að
kapp yrði lagt á loftflutninga með
börn til Bandaríkjanna næstu
daga og PAN AM tilkynnti í kvöld
að Jumbo vel frá því fæil til Suð-
ur-Vietnam á morgum að sækja
400 munaðarlaus börn.
i dag fóru 200 munaðarleys-
ingjar frá S-Vietnam áleiðis til
nýrra heimkynna í Astralíu með
tveimur flugvélum og munu
nokkur hundruð börn til viðbótar
verða flutt til Ástralíu.
— Storkurinn
Framhald af bls. 2
Eins og er, sagði Finnur, hef
ég nokkrar áhyggjur af þvi að
fuglinn verði fyrir ónæði forvit-
inna. Hann fái ekki að vera 1
friði. Fái hann það aftur á móti
og verði ekki hretviðri eða önn-
ur áföll nú i vor er hugsanlegt
að hann lifi af sumarið hér. En
að hann verpi, sé þetta kven-
fugl, — taldi dr. Finnur nær
óhugsandi.
Fái hann frið til þess að tina
allan daginn ætti hann ekki að
þurfa að líða beinlínis hungur
hér hjá okkur, en fuglinn er
mjög styggur. Æti hans hér er
mjög frábrugðið því sem hann á
að venjast. Fái hann ekki frið
til að tína i sig ailan daginn,
eins og ég sagði áðan, gæti það
haft 1 för með sér að fuglinn
hreinlega dæi úr hungri. — En
við skulum vona að fólk sýni
storkinum þá gestrisni að lofa
honum að vera í friði þá mun
hann er kemur fram á sumarið
verða gripinn sinni farhvöt og
yfirgefa Dyrhólahverfið og von-
andi ná lifandi Afríkuströnd-
um.
En ófeðrað barn hefur ekki
komið fram á þessum slóðum
sögðu heimamenn eystra, sagði
dr. Finnur að lokum.
Hjálmar Bárðarson siglinga-
málastjóri hafði þetta í stuttu
máli að segja um ferðina austur
til að ná ljósmynd áf storkin-
um. — Hann var mjög erfiður
og sannast sagna hef ég ekki
hugmynd um hvort mér tókst
að ná af honum sómasamlegri
mynd, jafnvel þó að ég hafi
verið vel búinn hverskonar
tækjum til ljósmyndunar.
Storkurinn var svo styggur að
hann var kominn af stað um
leið og ég opnaði hurðina á
jeppanum til að reyna að skriða
i hæfilegt færi eftir skurði, —
sem ekki tókst. —r og myndina.
varð ég að lokum að taka úr
bílnum — á mjög löngu færi,
sagði Hjálmar.
— Minning
Framhald af bls. 23
mörgu góðu eiginleikum. Og
þakklát er ég þeirri tryggð sem
hann sýndi mér og heimili
foreldra minna, sem var lengi
sem hans annað heimili.
Boðskapur páskanna er okkuf,
sem á hann trúum, nokkur hugg-
un, en söknuðurinn er sár.
Ég bið góðan Guð að veita
móður hans og systkinum styrk og
huggun.
Frænka.
— Hugsa
að sumir
Framhald af bls. 15
— En hefði Karpov þá ekki
neitað að tefla?
— Nei, auðvitað ekki. Karpov
fer eftir þvi, sem honum er sagt
og sovézka skáksambandið
hefði látið hann tefla, því það
hefði verið eina leiðin fyrir
Rússa að ná heimsmeistara-
titlinum aftur. Hótunin um, að
hann mundi ekki tefla, var
aðeins brella, en hún kann að
hafa haft sín áhrif á atkvæða-
greiðsluna.
Aðspurður um þá skoðun
Freds Cramers (sjá viðtal við
hann) að dr. Euwe hefði getað
beðið til 1. júní með að úr-
skurða, að Karpov væri heims-
meistari, sagðist Edmondson
ekki vera sama sinnis og ekki
gagnrýna framkomu forseta
FIDE: „Þetta er spurning um
túlkun á reglum FIDE,“ sagði
hann, „ég er þeirrar skoðunar,
að dr. Euwe hafi ekki átt ann-
arra kosta völ en taka af skarið
eftir að fresturinn var útrunn-
inn 1. apríl, án þess að Fischer
hafði látið frá sér heyra. Mér
þykir leitt, hvernig þetta hefur
farið, en ég gagnrýni ekki dr.
Euwe, ég held hann hafi gert
það sem hann varð að gera sem
forseti alþjóðaskáksambands-
ins.“
Aðspurður hvað nú tæki við,
sagði Edmondson, að nú væri
hafin ný umferð til undirbún-
ings næstu heimsmeistara-
keppni eftir reglulegum leiðum
og FIDE mundi lifa þetta af.-
„Kannski er næsti heims-
meistari búsettur á Islandi,"
sagði hann og hló
Edmondsson sagðist ekki
hafa haft samband við Fischer
eftir 1. apríl og taldi ólíklegt, að
hann tæki nokkurn þátt í þeirri
keppni, sem nú færi í hönd en
vissi annars ekki hvað hann
hygðist fyrir. „Ég gæti ímyndað
mér, án þess að Fischer hafi
látið nokkuð slíkt í ljós við mig,
að hann lýsti sig reiðubúinn til
þess áður en langt um líður að
taka þátt í mótum atvinnuskák-
manna, en með vissu veit ég
ekkert hvað hann ætlast fyrir,“
sagði Edmondson að lokum.
— í tilefni
kvennaárs
Framhald af bls. 20
konu og varð þá sem enginn
gæti setið rólegur.
Prestur spyr þá: „Er eitthvað
að?“ „Það er kviknað í húsinu,
prestur minn,“ svaraði
kennslukonan. „Ja, hver and-
skotinn. Drottinn blessi yður,
amen."
„Ef hrynja þeirra heljju vé
og hriktir í fúnum stöllum.
auðmjúkir þeir krjúpa á kné
konunum sfnum öllum."
Ræða flutt á móti hún-
vetninga í Reykjavík, 1. mars.
s.l. af
Benny Sigurðardóttur
húsmæðrakennara.
Birt nokkuð stytt hér, sökum
rúmleysis. Visurnar voru ortar
fyrir ræðumann 1 tilefni ræðu-
flutningsins.
— Tap fyrir
Svíum
Framhald af bls. 31
14—7 fyrir Svíana, og úrslitin
ráðin. Leikurinn var svo jafh
undir lokin.
Bezti maður sænska liðsins var
Lennart Ebbing, sem leikur með
A-landsliði Svía um þessar
mundir. Sá er örvhentur og skor-
aði 8 mörk með uppstökkum.
Bezti maður íslenzka liðsins var
Ingimar Haraldsson, en allir leik-
menn liðsins stóðu sig með mikilli
prýði í fyrri hálfieiknum, og svo
alveg gagnstætt 1 seinni hálf-
leiknum.
Mörk islands skoruðu: Jón Árni
3 (2 víti), Hannes 3 (2 v),
Steindór 2, Þorbergur 1, Ingi
Steinn 1, Pétur 1, Ingimar 1.
Verkakvennafélagið
Framsókn
Félagsfundur verður í dag laugardaginn 5. apríl
kl. 1 5 e.h. í Iðnó.
Samningarnir.
Stjórnin.