Morgunblaðið - 08.04.1975, Síða 2

Morgunblaðið - 08.04.1975, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1975 Verðmæti útfluttra sjávaraf- urða 1974 26,7 milljarðar Veröfallið nær til 60-70% útflutnings 21% i 17% og skreiðin lækkaði HEILDAR fob. útflutningsverð- mæti sjávarafurða á s.l. ári mun hafa numið um 26,7 milljörðum króna, en á árinu 1973 varð heild- arútflutningsverðmætið um 19.6 milljarðar króna. Þetta kom fram í samtali, sem Mbl. átti við Gamalíel Sveinsson, hjá Þjóð- hagsstofnuninni í gær. Hækkunin milli ára liggur bæði f hærra verði á erlendum mörkuðum og svo gengisfellingunum á síðasta ári. Ciamaliel sagði, að á árinu 1973 hefði hlutur freðfisks í heildarút- flutningnum numið 48%, saltfisk- urinn hefði verið 15% af útflutn- ingsverðmætinu, skreiðin 2.4%, mjöl og lýsi 21 %, landanir erlend- is 8% og aðrar sjávarafurðir 5.4%. Á siðasta ári breyttist þetta hlutfall nokkuð, sérstaklega þó hvað varðar saltfiskútflutning- inn. Verðmæti saltfisksins jókst úr 15% í 25% eða um 10% á milli ára. Hins vegar lækkaði hlutfall freðfisksins i heildarverðmætinu úr 48% í 45%. Mjöl og lýsi lækk- uðu einnig hlutfallslega eða úr Skipin komast ekki að ju vegna togarans “Tggj1 EINS og frá hefur verið skýrt í blaðinu, hefur Akranestogaran- um Ver verið lagt vegna rekstrar- erfiðleika. Togarinn liggur nú við bryggju á Akranesi og tekur svo mikið pláss af viðleguaðstöðunni þar að flutningaskip hafa orðið að snúa frá vegna þrengsla i höfn- inni. Klutningaskipið Askja kom til Akraness á sunnudaginn og átti að Iesta þar mjöl til útflutnings. Vegna þess að Ver Iá við bryggju á Akranesi og verið var að skipa út i Irafoss komst Askja ekki að bryggju og varð skipið aó hverfa frá vió svo búið. Bjarni Guðmundsson, hafnar- vörður á Akranesi, sagði i samtali við Morgunblaðió i gær, að síðan nýja Akraborgin kom væri ekki hægt að hai'a nema tvö skip við bryggju íeinufyrirutan bátaflot ann. Eftir að Ver hefði verið lagt hefði myndast vandræðaástand. Von væri á Freyfaxa til að ná i sement, en skipið myndi að likindum ekki komast að bryggju fyrr en búið væri að skipa út i Irafoss, en skipið átti í gær eftir að vera i tvo daga á Akranesi. niður í 1.5%. Landanir erlendis lækkuðu úr 8% í 7% og verðmæti annarra sjávarafurða var svipað og árið áður eða 5.5 %. Þá sagði Gamaliel að verðlag i erlendum gjaldeyri hefði breytzt töluvert á þessum tveimur árum, og það sem af væri þessu ári. Ef miðað væri við vísitöluna 100 árið 1973 kæmi í ljós, að freðfiskur hefði hækkað um nokkurt skeið eða um 18% en siðan farið lækk- andi i verði og í byrjun marz hefði aðeins fengist 5% hærra verð fyr- ir freiðfiskinn að meðaltali en 1973. Saltfiskurinn hefur hins vegar hækkað verulega i verði og meðalverð í erlendri mynt varð 53.8% hærra i byrjun marz s.l. en 1973. Skreiðin hefur hækkað enn meir i verði eða um 71.9%, en öðru máli gegnir um fiskmjöl og lýsi. Þær afurðir hafa að meðal- tali lækkað á erlendum mörkuð- um um 33.2%. Ef litió er á meðaltalsverð sjáv- arafurða frá 1973 fram til feb. marz s.l. þá kemur í ljös, aó verðið var hæst á s.l. ári eða um 22.2% hærra en 1973. Hins vegar hefur meðalverð lækkað vefulega er- lendis það sem af er þessu ári og er nú aðeins 9.4 % hærra en 1973. A BRUNASTAÐ — Unnið að slökkvistarfi að Þverholti. Ljósm. Sv. Þorm. Tugmilljóna tjón Mosfellssveit r 1 Verkstœði og veitingaskáli eyðitögðust í bruna TUGMILLJÓNA tjón varð f gær- morgun er bílaverkstæði og veit- ingaskáli að Þverholti f Mosfells- sveit eyðilögðust f bruna. A verk- stæðinu voru m.a. jarðýta, ámoksturskófla og traktorsgrafa og eyðilögðust öfl þessi stórvirku tæki. Eldsupptök voru þau, að neisti frá rafsuðutæki komst f tveir unnu Flest félögin hafa nú þegar sam- þykkt bráðabirgðasamkomulagið SAMTÖKUM vinnuveitenda ber- ast nú daglega orðsendingar frá stéttarfélögum vfðs vegar um land, þar sem verkföl! eru afboð- uð og frá þvf er skýrt að félögin hafi samþykkt samkomulagið, sem undirritað var á skfrdag. I nokkrum tilfellum fylgja þessum orðsendingum fyrirvarar um samþykki vinnuveitendafélaga og má sem dæmi nefna að járn- iðnaðarmenn settu fyrirvara um samþykki málm- og skipasmiða. Aðeins tvö félög hafa hafnað sam- komulaginu, verkalýðsfélögin á Vupnafirði og f Vestmannaeyjum og félag’ð á Sauðárkróki aflétti boðaðri innustöðvun að öðru leyti v f að farmskip eru ekki afgreidu þar og vilja starfsmenn fá sömu kjör og verkamenn fá á Akureyri við fermingu skipa. Samningafundir m*- ‘ '-imönn- um hófust i gær i • *'um Vinnuveitendasambands Isi«...s i Garðastræti. Ardegis í gær voru íundir með hásetum og með yfir- mönnum eftir hádegi. Deilunni hefur ekki verið vísað til sátta- semjara og er hluti hennar i Hækkunin nægir rétt til að mæta gengisfellingunni Jónas Haralz tal- aráfundi Hvatar í kvöld talar Jónas Haralz bankastjóri um „Island í alþjóð- legu efnahagslegu samhengi næstu árin“ á fundi Hvatar, félags Sjálfstæðiskvenna. Fund- urinn verður haldinn að Hótel Borg og hefst kl. 20.30. VERÐLAGSRAÐ heimilaði Strætisvögnum Reykjavfkur og Kópavogs á fundi fyrir helgina að hækka fargjöld á öllum leiðum um 25%. Einstakt fargjald, sem kostaði 30 kr. kostar þvf nú 36 krónur. Vegna þessara hækkana hafði Morgunblaðið samband við Eirfk Asgeirsson, forstjóra S.V.R., f gær og spurði hann hvort þessi hækkun nægði til þess að endar næðu saman hjá fyrirtæk- inu. Eiríkur sagói það vera af og frá. Farið hefði verið fram á 40% hækkun á fargjöldum um s.l. ára- mót en engin hækkun fengist þá. Sú 25% hækkun, sem nú hefði fengist, myndi rétt nægja til að mæta þeim hækkunum, sem orðið hefðu vegna gengisbreytingarinn- ar og enn vantaði 40% sem beðið var um í vetur. Hann sagði, að gengislækkunin hefði þýtt 60 milljónir í aukinn reksturskostnað á ársgrundvelli. Því gæti hver maður séð, að þessi hækkun nægði strætisvögnunum engan veginn. Fimm nýir strætis- vagnar af Volvo-gerð munu brátt bætast við flota SVR, og ætlunin er aó taka 15 nýja vagna í notkun á þessu ári. Nýju vagnarnir eiga Framhald á bls. 22 gerðardómi, þ.e. atriði er varðar launakjör i sambandi við gengis- breytinguna. Næsti fundur er boðaður eftir helgi. Verkfall verkalýðsfélagsins i Vestmannaeyjum á að koma til framkvæmda 10. april, ef ekki semst fyrir þann tima. Samkvæmt upplýsingum Haralds Gíslasonar, formanns vinnuveitendafélagsins í Eyjum stóð í gær allt við hið sama i Eyjum, en Barði Friðriks- son, skrifstofustjóri VSl, kom til Eyja á sunnudag og var þar þang- að til i gærkveldi. Haraldur sagði að vertiðarfólk sæti samt enn sem fastast, þótt borið hefði á þvi fyrir nokkrum dögum, að það væri að hugsa sér til hreyfings. Var þá verkfalli frestað í 3 daga og hætti þá fólk við að fara til lands. Góður afli kemur nú á land í Eyjum, þegar gefur. Veróur deilan likleg- ast lögð fyrir sáttasemjara. 1 gær samþykktu iðnrekendur samko.mulagið einróma, en kjara- ráð verzlunarinnar var á fundum í gær með viðsemjendum sinum i VR og varð ekki samkomulag á fundinum. Fundurinn var fremur stuttur og hefur nýr fundur verið boðaður á miðvikudag klukkan 21, þremur klukkustundum áður Framhald á bls. 22 smurolfu og fengu þeir menn sem á verkstæðinu ekki við neitt ráðið. Verkstæðið og veitingaskálinn voru i eigu fyrirtækis sem nefnist Hengill sf. og er eign tveggja bræðra, en það voru einmitt þeir sem voru að vinna á verkstæðinu þegar eldurinn kom upp skömmu fyrir klukkan 9 í gærmorgun. Annar bræðranna var að rafsjóða skóflutönn á traktorsgröfu. Stóð grafan yfir smurningsgryfju. Neisti hljóp úr rafsuðutækinu niður í gryfjuna og í smurolíu sem þar var. Skipti engum togum að mikili eldúr'gaus upp. Breidd- ist hann fljótt í tréverk sem þarna var við og fengu mennirnir ekki við neitt ráðið. Norðanrok var þegar eldurinn kom upp og þorðu mennirnir ekki að opna verkstæð- isdyrnar og freista þess að bjarga véiunum af ótta við að eldurinn myndi þá magnast um allan helm- ing. Treystu þeir frekar á að eld- urinn myndi breiðast það hægt út Framhald á bls. 22 Hækkun dagblaða ÞANN 27. febrúar 1975 sóttu dagblöðin til verðlagsstjóra um hækkun á áskriftarverði og lausasölu, sem svaraði þeirri hækkun er varð við gengislækkunina á erlendum kostnaðarliðum vió útgáfu hlaðanna. Þessi hækkunar- beiðni hefur nú loksins verið samþykkt. Askriftarverð dag- blaðanna verður frá 1. aprfl kr. 700 á mánuði og lausasöluverð frá 8. aprfl kr. 40 fyrir hvert eintak. Valur Valsson ráðinn aðstoðar bankastjóri Iðnaðarbankans Kaup háseta á skuttogurum KAUP HVERS háseta að skut- togaranum Ingólfi Arnarsyni var kr. 126.581.- á mánuði, en ekki kr. 60 til 70 þúsund eins og fullyrt var f „Þjóðviljanum" s.l. sunnudag., samkvæmt upp- lýsingurn sem Mbl. hefur aflað sér hjá BUR. 1 grein „Þjóðviljans“ um laun sjómanna s.l. sunnudag, vitnar blaðið til ummæla nafngreinds sjómanns, háseta á skuttogar- anum Ingólfi Arnarsyni. Vegna þessara ummæla snerí Morg- urtblaðið sér til Bæjarútgerðar Reykjavikur, sem gaf blaðinu eftirfarandi uppiýsingar: Skuttogarinn Ingólfur Arnar- son hóf sína fyrstu veiðiferð á þessu ári hinn 10. janúar s.l. Fram til 14. marz s.l. fór skipið alls 4 veiðiferðir, sem stóðu í 64 daga. Kaup háseta í þessum 4 veiðiferðum (föst laun og afla- hlutur) nam kr. 270.391.- að meðtöldum frídögum, eða kr. 126.581.- á mánuði (30 dögum), auk fæðiskostnaðar, en hann greiðir útgerðin að fullu í veiði- ferðum, og fæðispeninga þegar skipið er i höfn. Auk þessa greiðir útgerðin i orlofssjóð, sjúkrasjóð, lífeyris- sjóð og iðgjöld af lögboðnum slysa- og atvinnuleysistrygging- um, frjálsum ábyrgðartrygging- um o.fi. Þessar aukagreiðslur nema samt. 12% ofan á kaupjð. Af framansögðu er ljóst, að ummæli fréttamanns „Þjóðvilj- ans“ hljóta að vera á misskiln- ingi byggð, el,la væru þau ómak- lég árás á sjómannastéttina og þá, sem samið hafa fyrir henn- ar hönd á undanförnum árum, sagði talsmaður Bæjarútgerðar- innar. A AÐALFUNDI Iðnaðarbankans, sem haldinn var sl. laugardag, tilkynnti formaður bankaráðsins, Gunnar J. Friðriksson, á fundi sfnum 17. febrúar sl. hefði banka- ráðið ákveðið að ráða Val Valsson sem aðstoðarbankastjðra. Valur er fæddur f Reykjavfk og er 31 árs að aldri. Hann lauk prófi frá Viðskiptadeild háskólans f janúar 1970 og sfðan f maf sama ár hefur hann starfað við Iðnaöarbankann sem forstöðumaður hagdeildar. A aðalfundinum kvaðst Gunnar J. Friðriksson vænta þess að með ráðningu Vals Valssonar sem aðstoðarbankastjóra hefði banka- ráðið stigið heilladrjúgt skref fyr- ir bankann — segir í fréttatil- kynningu frá bankanum. Valur Valsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.