Morgunblaðið - 08.04.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 08.04.1975, Blaðsíða 19
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1975 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRIL 1975 19 Tony Field Tony Field, sem hefir náð góð- um árangri með Sheffield United, hefir með frammtistöðu sinni sannað þá hugmynd fram- kvæmdastjóra síns, Ken Furpy, — að margir leikmenn úr neðri deildunum geti gert garðin fræg- an í fyrstu deild án þess að breyta stíl sinum mikið. Þessu sama heldur fram- kvæmdastjóri Norwich, John Bond, fram, en þeir félagar segja að framkvæmdastjórarnir hafi ekki tíma til að kynna sér leik menn í neðri deildunum, og því séu möguleikar leikmanna úr neðri deildunum oft minni til að afla sér frama en efni standa til. Tony Field er 28 ára að aldri, fæddur í Halifax. Hann byrjaði sem atvinnumaður með heimalið inu, sem lék þar aðeins 21 leik áður en hann hvarf til Barrow, sem leikur utan deilda. Eftir til tolulega skamma viðdvöl þar fór hann til Southport og lék 133 leiki fyrir það félag. Southport leikur i 4. deild. Næst lá leiðin til 3. deildar liðsins Blackburn Rovers og þar lágu leiðir Ken Furpy og Field saman. Fyrír Blackburn lék Field rúmlega luu leiki og skoraði 46 mörk. Það var þó ekki fyrr en síðari hluta þess tima sem Field lék með Black burn sem hann fór að skora mörkin. Lengi framan af veru sinni þar lék hann sem tengiliður, eða þar til Furpy gerði hann að „striker". Þar náði Field brátt góðum árangri, svo góðum, að þegar Furpy gerðist fram- kvæmdastjóri Sheffild Utd. var það eitt fyrsta verk hans að kaupa Field. Upphæðin var 60 þús. pund og var Furpy ákaft gagnrýndur fyrir að eyða svo hárri upphæð í svo gamlan leik mann. Ganrýnisraddirnar hafa hljóðnað i vetur, því Field hefir sannarlega staðið stykkinu, verið drjúgur uppi við mark andstæð- inganna, en hann var einmitt keyptur til að skora mörkin. Svo sem á íslandi er eðlilega mikill munur á þeirri knattspyrnu sem leikin er í 1. deild og hinum deildunum. Field tókst þó vel að aðlaga sig breyttum aðstæðum. I neðri deildunum ber meira á hörðum „tacklingum" og grófum leik. Þegar komið er aftur á móti upp í 1. deildina ber meira á brögðum sem er ætlað að ergja leikmenn, t.d. höggum og hrind ingu. Af þessum sökum er álagið mikið á leikmönnum, einkum hin- um beztu, sem verða helzt fyrir slíkum bellibrögðum. (Slíkt er þó alls ekki eingöngu bundið við England, heldur er slíks æ meira farið að gæta í knattspyrnu úti um allan heim. Fyrir skömmu birtist hér í Mbl. grein um Johan Cryuff sem fjallaði um aðfarirnar gagnvart honum). Það voru þessi atriði sem komu Tony Field mest á óvart, en honum hefir samt sem áður tekizt að aðlagast knatt- spyrnunni í 1. deild þrátt fyrir hrakspár margra sérfræðinga. Beztu eiginleikar Tony Fields sem knattspyrnumanns eru þeir, að hann er mikill vinnsluhestur, og svo sá eiginleiki hans að geta skorað mörk. Aftur á móti eru margir lagnari með knöttinn held- ur en Field. Tony Field er alla- vega nægjanlega snjall til að vera einn lielzti skelfir markvarðanna í I. deildinni ensku. Æfðum vel í vetur EFTIR að úrslit voru kunn í ís- landsmóti 4. flokks karla náði Mbl. tali af fyrirliða Islandsmeist- aranna Fram, Sigurði Einarssyni. — Var gangan i úrslitakeppn- ina erfið? — Nei, við töpuðum ekki einu einasta stigi í leikjum okkar. Erfiðustu leikirnir voru tvímæla- laust úrslitaleikurinn við Val og úrslitaleikurinn i riðlinúm okkar gegn ÍR. Þann leik unnum við með 10 mörkum gegn 7. — — Hverju þakkar þú helzt þennan sigur ykkar Framara? — Fyrst og fremst hinni miklu æfingasókn. Við höfum allir strákarnir i liðinu mætt vel á æf- ingar og ég held ég megi segja lagt okkur vel fram. Þá er þáttur þjálfarans, Péturs Jóhannssonar, ekki lítill. — — Og þið ætlið þessir piltar að halda áfram að leika handknatt- leik næstu árin? — Já það máttu böka, við höld- um allir áfram. — Sigb. G. Lið Leiknis — kom sá og sigraði í 3. deildar keppninni I vetur. I liðinu eru lfka margir gamalkunnir kappar, bæði f handknattleik og knattspyrnu, svo sem Hermann Gunnarsson, sem þjálfaði liðið I vetur og heldur þarna á sigurlaununum fyrir sigurinn í 3. deildinni. Hermann skoraði mörg mörk í leikjum Leiknis 1 vetur, og verður fróðlegt að sjá hvað hann og félagar hans gera í bikarleiknum við Fram í Laugardalshöllinni í kvöld. ísienzka unglingalandsliðið sem keppti í Finnlandi, ásamt þjálfara sínum, Þórarni Ragnars- syni, og unglinganefnd Hand- knattleikssambands islands. Piltarnir urðu í fjórða sæti á NM-mótinu Skorti reunslu og yfirvegun ISLENZKU piltarnir sigruðu Finna með 19 mörkum gegn 11 f sfðasta leik sfnum I Norðurlandameistaramótinu í handknattleik sem fram fór I Finn- landi á sunnudaginn, og björguðu sér þar með frá því að lenda f botnsætinu I mótinu. Verður því ekki neitað, að árangur unglingalandsliðsins nú veldur nokkrum vonbrigðum, en að sögn Hilmars Björnssonar, farar- stjóra liðsins, var fslenzka liðið mjög áþekkt öllum hinum liðunum, en skorti fyrst og fremst meira öryggi og rósemi og tapaði þvf leikjum sfnum bæði við Danmörku og Noreg mjög naumt. Svfar urðu Norðurlandameist- arar. Gerðu þeir jafntefli við Dani f sfðasta leik mótsins á sunnudaginn, og hlutu því bæði þessi lið 7 stig, en Svfar voru með hagstæðara marka- hlutfall. Norðmcnn urðu svo í þriðja sæti, tslendingar i fjórða sæti og Finnar ráku lestina, — fengu ekkert stig, enda með lélegasta lið mótsins. Morgunblaóið hefur áöur skýrt frá leikjum íslands við Svíþjóð og Noreg, en hér á eftir verður fjallað um leik- ina við Danmörku og Finnland: ísland — Danmörk 12—13 Þarna var um hnífjafna baráttu að ræða allt frá upphafi til enda. ís- lenzka liðið virtist þó betra í fyrri hálfleiknum, en fór ákaflega illa með tækifæri sín. Þannig voru þrjú víta- köst misnotuð og fjögur dauðafæri af linu. Því verður heldur ekki á móti mælt, að danski markvörðurinn var hetja þessa leiks og varði oft frábær- lega vel. Staðan í hálfleik var 6—5 fyrir Dani, en eftir 5 mínútna leik i seinni hálfleik höfðu Islendingar jafnað á tölunni 7—7. Siðan komust Islendingar yfir i 8—7, og 9—8 en Danir jöfnuðu siðan og komust yfir. Þegar 6 mínútur voru til leiksloka var staðan enn jöfn 11—11 og baráttan í algleymingi. Aft- ur var jafnt á tölunni 12—12, og var þá tíminn að renna út. Þá var einum íslendinganna visað af velli, og tókst Dönum að nota sér það að vera einum fleiri og fengu dæmt vítakast, á síð- ustu sekúndum leiksins. Var vítakast- ið tekið eftir að leiktíminn rann út og skoruðu Danir úr því og unnu leikinn 13—12. Mörk íslands í þessum leik skor- uðu: Ingimar 3, Ingi Steinn 3, Hannes 3, Bjarni 1, Þorbergur 1 og Jón Arni 1. Finnland — tsland 11:19 I þessum leik sýndi islenzka liðið loks sæmilegt öryggi og aldrei var vafi á íslenzkum sigri í leiknum. Staðan í hálfleik var 8—4, og Is- lendingarnir sigu síðan jafnt og þétt fram úr í seinni hálfleiknum. Var þetta bezti leikur íslenzka liðsins í ferðinni, ef leikurinn við Dani er undanskilinn. Mörk Islands skoruðu: Jón Árni 5, Hannes 4, Óskar 4, Ingimar 3, Þor- bergur 1, Steindór 1, Ingi Steinn 1. tslenzka liðið: — Það sem íslenzka liðið skorti fyrst og fremst voru betri langskytt- ur, sagði Hilmar Björnsson, farar- stjóri í viðtali við Morgunblaðið á sunnudaginn, — línuspil liðsins var hins vegar gott og skoraði það lang- flest marka sinna þaiinig og úr víta- köstum, eftir að brotið hafði verið á linumönnunum. Annars var Iiðið mjög áþekkt hinum liðunum, nema að því leyti að það lék ekki eins yfirveg- að, og hélt knettinum hvorki eins vel né lengi og þeir gerðu. Kom þetta mest að sök I leiknum við Svía, þar sem liðið glopraði leiknum niður, fyrst og fremst fyrir þá sök aö það gerði ekki eins og fyrir það var lagt i upphafi. — Að mínu mati komu þeir Krist- ján Sigmundsson, markvörður, Jón Árni, Ingimar og Óskar bezt frá þessu móti, sagði Hilmar, en allir þessir piltar léku vel mótið út. Urslit leikja í Norðurlandamóti pilta urðu þessi: Sviþjóð — Island 18—12 Noregur — Finnland 14—11 Noregur — Island 14—13 Danmörk — Finnland 21—11 Svíþjóð — Noregur 24—9 Isiand — Danmörk 12—13 Svíþjóð — Finnland 22—10 Noregur — Danmörk 11—16 Finnland — Island 11—19 Sviþjóð — Danmörk 12—12 Lokastaðan: Sviþjóð 4 3 10 76—43 Danmörk 4 3 10 62—46 Noregur 4 2 0 2 48—64 ísland 4 10 3 56—56 Finnland 4 0 0 4 43—86 Beztur KA-piltanna var Gunnar Gíslason, ásamt markveróinum, Aðalsteini Jóhannssyni. Gunnar skoraði 5 mörk. Fram — Valur Þá var komið aö úrslitaleiknum. Fyrri leikinn voru bæði liðin tap- laus og því um hreinan úrslitaleik að ræða. Þegar leikurinn hófst kom í ljós að einn bezta mann Vals, Stefni Helgason, vantaði, en hann var fermdur þennan sama dag. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti. Þeir komust í 4 mörk gegn engu áður en Fram tókst aö skora. Síðan komst Valur í 6 mörk gegn einu, en staðan í hálfleik var 6 mörk gegn 3. Það er skemmst frá því að segja að í siðari hálfleik voru Valsarar algerlega heillum horfnir, skor- uðu ekki mark á meðan Framarar skoruðu 4 mörk og sigruðu með 7 mörkum gegn 6, og hlutu tslands- meistaratitilinn. Beztur Framara var Egill Jóhannesson, sem var jafnframt markahæstur með 4 mörk. Kristinn Kristinsson var beztur Valsara ásamt Magnúsi Guðmundssyni. Þeir skoruðu tvö mörk hvor. Ilaukar — KA Síðasti leikurinn var á milli Hauka og KA. Haukarnir náðu þegar forystu og sigruðu örugg- lega með 8 mörkum gegn 4 eftir að staðan i hálfleik hafði verið 3 mörk gegn 2 fyrir Hauka. Beztir Haukanna í þessum leik Bárður Gislason og Rúnar Hall- dórsson. Rúnar skoraði 2 mörk og það gerði Sigurður Sigurðsson einnig. Gunnar Gíslason var beztur KA- piltanna. Hann skoraði 3 mörk. Sigb. G. Orslit 4. fl. karl. Fram 3 3 0 0 20:16 6 Valur 3 2 0 1 22:19 4 llaukar 3 1 0 2 17:17 2 KA 3 0 0 3 17:24 0 Markaha'stir: Gunnar Gíslason KA 13 Esill Jóhannesson Fram 8 Kristinn Kristinsson Val 8 Sigurriur Sigurðsson llaukum 8 Valur — Haukar Framan af leik höfðu Haukar * frumkvæðið, en í leikhléi hafði Valur náð forystunni, 5 mörk gegn 3. 1 síðari hálfleik juku Vals- menn enn forystuna og sigruðu örugglega með 8 mörkum gegn 5. Beztur Valsara í leiknum var Stefnir Helgason. Hann var jafn- framt markahæstur Valsmanna með 4 mörk. Beztur Haukanna var Bárður Gislason, en Sigurður Sigurðsson var markahæstur með 3 mörk. Fram — KA Leikur þessara liða var mjög jafn i fyrri hálfleik, þó svo að Fram væri oftast á undan að skora. I hálfleik var staóan 4 gegn 4. I upphafi síðari hálfleiks tóku Framarar mikinn fjörkipp og komust i 8 mörk gegn 4. En KA skoraði tvö síðustu mörk leiksins, sem lyktaði þvi með sigri Fram, 8 mörkum gegn 6. Egill Jóhannesson var beztur Framara að þessu sinni og jafn- framt markahæstur með 3 mörk. Beztur KA-piltanna var Gunnar Gíslason. Hann skoraði 5 mörk. Valur —KA Leikur Vals og KA var mjög jafn allan timann. I hálfleik hafði Valur einu marki betur, 5 gegn 4. Sama baráttan var uppi á ten- ingnum í siðari hálfleik, en Valur marði sigurinn með einu marki, 8 gegn 7. Beztu menn Vals voru Kristinn Kristinsson og Stefnir Helgason. Kristinn skoraöi 4 mörk, en Stefn- ir 3. URSLITAKEPPNIN i Islands- móti 4. flokks karla í handknatt- leik fóru fram í Asgarði um helg- ina. Lióin sem þar mættust voru, Fram, Valur, Haukar og KA. Fram — Haukar Fyrsti leikurinn var á milli Fram og Hauka. Leikurinn var mjög jafn allan timann, en svo fór þó að Fram bar sigur úr býtum, skoruðu siðasta markið 2 sekúnd- um fyrir leikslok, og var þar Steinþór Kristjánsson að verki. Úrslit: 5 mörk gegn 4 fyrir Fram. Bezti leikmaður Fram var markvörðurinn, Konráð Arnason. Beztur Haukanna var Sigurður Sigurósson. Hann skoraði þrjú marka Haukanna. Lið Fram — sigurvegarar f 4. fiokki f tslandsmólinu, ásamt þjátfara sfnum Pétri Jðhannessyni, Ólafi Jónssyni formanni Fram og Jóni Magnússyni, varaformanni HSl. FRAM MEKTARI í 4 FLOKKI Leiknir í 2. deild Úrslitakeppnin í 3. deild karla var háð um helgina i Ásgarði. Það voru þrjú lið sem léku til úrslita, Leiknir, Reykjavík, Huginn, Seyðisfirði, og Leiftur úr Ólafsfirði. Leiknir — Huginn Fyrsti leikurinn í úrslitakeppninni var á milli Leiknis og Hugins. Það kom fljótt í Ijós að yfirburðir Leiknis voru miklir. Leikmenn Hugins kunna flestir hverjir ákaflega lítið fyrir sér í hand- knattleik, enda aðstaða þeirra til íþróttaiðkana innanhúss nánast engin Leiknir náði þegar í upphafi öruggri forystu Þegar fyrri hálfleikur var um það bil hálfnaður var staðan 10 mörk gegn 2 fyrir Leikni. í hálfleik hafði leiknir skorað 20 mörk, en Huginn 6 Það var það sama uppi á teningnum í síðari hálfleik, Leiknir skoraði og skoraði, en leikmenn Hugins settu mark við og við. Leiknum lyktaði því með stórsigri Leiknis, 44 mörkum gegn 1 6 Hermann Gunnarsson og Finnbogi Kristjánsson markvörður voru beztu menn Leikms að þessu sinni Af leikmönnum Hugins var það helzt Pétur Böðvarsson, sem eitthvað kunni fyrir sér, en á árum áður lék Pétur einmitt handknattleik með Fram. Markhæstir: Leiknir Hermann 19 mörk, Hafliði Pétursson 7, Guðgeir Leifsson 6 Huginn Einar Emilsson 6, Pétur 4. Huginn — Leiftur Leikur Hugins og Leifturs var fremur slakur, enda búa bæði félögin við ákaf- lega lélega aðstöðu til iðkunar hand- knattleiks En mest er um vert að félögin hafa áhuga á að spreyta sig í þessari íþrótt, sem hefir átt fremur erfitt uppdráttar úti um land, sem stafar fyrst og fremst af aðstöðuleys- inu Vonandi knýr þátttaka félaganna á um úrbætur á þessu sviði, og er þá ekki að efa að úti um land rís sterkar sveitir handknattleiksfólks Leiftur hafði ávallt forystuna í leiknum Þó náði Huginn að jafna tvisvar í upphafi leiksins, 3 gegn 3 og 4 gegn 4, en úr því tók Leiftur örugga forystu. í hálfleik var staðan 1 3 mörk gegn 6 Leiftri í hag Síðari hálfleikurinn var öllu jafnari, en þó tókst Hugni ekki að minnka bilið Leiftur úr Ólafsfirði sigraði því örugg- lega með 25 mörkum gegn 1 7 í liði Leifturs eru nokkrir góðir ein- staklingar Með meiri æfingu gæti lið Leifurs áreiðanlega orðið nokkuð gott. Beztir þeirra í leiknum gegn Hugni voru Sigurður Sigurðsson og markv. Haukur Sigurðsson Pétur Böðvarsson var eini leikmaður Hugins sem eitthvað hvað að Pétur var raunar bezti leikmaður vallarins Markhæstir Leiftur: Sigurður 8, Albert Ágústsson 7 Huginn: Pétur 8 mörk Leiknir — Leiftur Þá var komið að úrslitaleiknum, sem var á milli Leifurs og Leiknis. Það ríkti aldrei nein spenna í leiknum, til þess voru yfirburðir Leiknis allt of miklir. Eftir 5 mínútna leik var jafnt 2 mörk gegn 2, en þá tóku Leiknismenn til sinna ráða í fyrsta lagi lokaði Finnborgi Kristjánsson marki Leiknis, og útileikmennirnir voru iðnir við að skora Því var það að þegar 25 mín. voru af fyrri hálfleik var staðan 18 gegn 2 fyrir Leikni. Þegar blásið var til leikhlés stóð 22 mörk gegn 6 í síðari hálfleik tókst Ólafs- firðingunum öllu betur upp Það er skemmst frá því að segja að síðari hálfleikinn unnu Leiknismenn með aðeins tveggja marka mun, 14 gegn 12 Lyktir leiksins urðu því stórsigur Leiknis, 36 mörk gegn 18, og sigur Leiknis í 3. deild innsiglaður Leiknir er vel að sigri kominn í 3. deild Liðið hefir mörgum ágætum handknattleiksmönnum á að skipa, og mun áreiðanlega velgja mörgum 2. deildar-liðunum undir uggum. Her- mann Gunnarsson hefir sem kunnugt er þjálfað liðið í vetur og verið pottur- inn og pannan í leikjum liðsins Hermann setti markamet í deildunum þremur í vetur með því að skora 128 mörk í 8 leikjum, eða 16 mörk að jafnaði í leik, sem er frábært afrek jafnt þó í 3 deild sé. Auk Hermanns hafa þeir Finnbogi markvörður, Guðgeir Leifsson og Hafliði Pétursson verið sterkustu menn liðsins. Annars er breiddin í liðinu góð. Bezti maður Leifturs í leiknum gegn Leikni var Albert Ágústsson Markhæstir Leiknir Hermann 11, Hafliði 1 1, Guðgeir 5 Leiftur: Albert 9, Óli Már Guðmundsson 5 Lokastaðan. Leiknir 2 2 0 0 80:34 4 Leiftur 2 1 0 1 43:53 2 Huginn 2 0 0 2 33:69 0 Sigb. G. Símon Ólafsson Ætíð skjóta upp kollinum ný og ný efni í íþróttum sem og öðrum sviðunv Sumt þetta unga fólk [verður aldrei meira en efnilegt, [annað gefur sér góðan tima til að lkomast i hóp þeirra beztu, og enn jannað skýzt beint i hóp þeirra | beztu. Einn þeirra sem fór þá leiðina sem síðast getur er körfuknatt- leiksmaðurinn úr Ármanni, | Simon Ólafsson. Simon byrjaði að leika körfu- I knattleik 12 ára að aldri og þá þegar með Ármanni. Siðan hefir Simon iðkað körfuknattleik með góðum árangri, svo góðum að nú |er hann í hópi beztu körfuknatt- ] leiksmanna íslands tæpra nítján | ára gamall. íslandsmótið i vetur var annað | íslandsmótið sem Simon tekur þátt i með mfl. Strax i fyrra vakti Simon mikla athygli. Einkum var hann harður í horn að taka | fráköstunum og laginn skorari. Lengi vel átti Ármann mögu leika á að hljóta íslandsmeistara titilinn í fyrra, og ekki var Ijóst hvaða lið hlyti titilinn fyrr en í | siðasta leik mótsins þar sem Ár mann og KR áttust við. Á síðustu sekúndum leiksins fékk Simon tvö vítaköst, og með þvi að hitta úr báðum varð titillinn Ármanns. | En þessi ungi maður þoldi ekki I álagið og mistókst. Nú i vetur Ihefir Símon lagt meiri rækt við Ivitaskotin og árangurinn lét ekki |á sér standa, þvi hann kom út úr [mótinu sem bezta vitaskyttan. Ármann gekk ekki eins vel Imótinu I vetur. Liðið hafnaði i I þriðja sæti á eftir meisturunum ÍR og KR. En Ármenningar gerðu sér litið fyrir og sigruðu i Bikar 1 keppninni KKÍ. í úrslitaleiknum | lögðu þeir KR að velli, sem hefir | til þessa sigrað í öllum bikar keppnum sem háðar hafa verið. í I úrslitaleiknum vó þáttur Simonar lekki hvað minnst, hann skoraði ] mörg stig og hirti mikið af frá 1 köstum. Sannarlega eru Ármenn I ingar vel að sigrinum komnir, þv | félagið hefir aldrei sigrað i tveim 1 ur stærstu körfuknattleiksmótum íslands, íslandsmóti eða Bikar keppni, fyrr en nú. Þegar Símon var að þvi spurðu I hvað hann teldi að gert hefði | framfarir hans i körfuknattleik svo Jörar sem raun ber vitni, svarað hann: — Ég hefi æft ákafleg [ vel, bæði með félaginu og svo 1 upp á eigin spýtur. Það nær eng inn árangri nema hann æfi vel þv körfuknattleikurinn er ákaflega | erfið iþrótt. Símon Ólafsson lýkur stúdents I prófi i vor. Á sumri komanda mun hann fara til Bandarikjanna og leggja þar stund á byggingaverk fræði. Simon sagði að auk þess að þar væri gott að stúdera laðað körfuknattleikurinn einnig, — j þvi það kemst engin þjóð með tærnar þar sem Bandarikjamenn I hafa hælana i körfuknattleik. — Simon Ólafsson hefir leikið | landsleiki og 6 unglingalandsle þann stutta tima sem hann hef leikið körfuknattleik. Telja má vist að hans biðu fleiri landsleiki ef hann dveldist hér heima. En af þvi verður sem sagt ekki, en Ijóst | er að missir Ármanns og islenzks 1 körfuknattleiks verður mikill, og vonandi fá islenzkir körfuknatt leiksunnendur að njóta þess aftu að sjá Simon Ólafsson i fullu fjöri I undir körfunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.