Morgunblaðið - 08.04.1975, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 08.04.1975, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1975 Gísli Narfason — Minningarorð Minning: Gísli Narfason var fæddur að Hverakoti i Grímsnesi hinn 17. júlí 1894. Foreldrar hans voru hjónin Narfi Gíslason frá Vífils- stöðum og Guðriður Þorkelsdóttir frá Ormsstöðum í Grímsnesi. Hann missti móður sina ungur eða 12 ára gamall og dvaldist með föður sinum að Hverakoti tii 14 ára aldurs. Fram til ársins 1924 var hann við vinnumennsku i Grimsnesinu, lengst af á Efri-Brú. Jafnframt þvi reri hann á vetrum frá Grindavík og þar kynntist hann konu sinni Kristínu Hafliða- dóttur, en faðir hennar var Haf- líði Magnússon bóndi á Hrauni í Grindavík. Eftir þaö lá leiðin til Reykjavíkur og stofnuðu þau hjónin heimili þar. Arið 1929 fluttust þau að Barónsstig 24 og bjuggu þar þaðan í frá, fyrstu árin i sambýli viö Engilbertínu, systur Kristínar og Guðjón Guömundsson, mann hennar, eða allt þar til er þau Engilbertína og Guðjón létust. Þriðja fjöiskyldan, sem þarna bjó, voru þau Sigriður Guðjónsdóttir, systurdóttir Kristinar og Sigurkarl Stefáns- son, maður hennar, og hélst sam- býli þessara fjölskyldna þar til er Kristín lést, árið 1963, en Gísli dvaldist þarna allt fram til ársins 1968, er hann íluttist að Hrafn- istu. Eftir að Gisli kom til Reykja- víkur, vann hann fyrir sér sem verkamaður meðan honum entust kraftar og heilsa. Þeir hlutir, sem skapa þann ævintýraljóma, er leikur um fyrstu æskuárin, verða seint séðir öðruvísi en með augum bernskunnar og jafnörðugt aö fara um þá orðum og bláma fjar- lægra fjalla. Fjaliið yfir bænum hlýtur ætíð þann sess, sem vaknandi barnsvitund skipar því, hvað sem öllum rökum liður. Þótt ég reyni nú að kveðja + Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma okkar GUÐFINNA ÞORLEIFSDÓTTIR, Asvallagötu 24, Rvk., andaðist að heimili sínu sunnudaginn 6. apríl. Friðrik Jónsson, Þorgerður Friðriksdóttir, Steinn Steinsson og barnabörnin. + Eiginmaður minn, JENS BENJAMÍN ÞÓRÐARSON, Hafnargötu 48, Keflavík lézt á Sjúkrahúsi Keftavikur 6 april Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna. Þuriður Halldórsdóttir. + Maðurinn minn, faðir og tengdafaðir MAGNÚSJÓNASSON Norðurbrún 1. andaðist i Borgarspítalanum sunnudaginn 6 þ m Kristin Viglundsdóttir, Vilbogi Magnússon, Rósa Viggósdóttir. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi JÖRGEN C. C. NIELSEN, bakarameistari, Bergstaðastræti 29 andaðist i Landakostsspitala aðfararnótt 6 april s I Guðrún Nielsen, börn, tengdabörn og barnabörn. + Útför móður okkar, RANNVEIGAR BJARNADÓTTUR, Stórholti 26, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 10. april kl. 13.30. Jón R. Ásmundsson, Björn R. Ásmundsson, Reynir R. Ásmundsson, Hilmar Sv, Ásmundsson, Sigurður S. Ásmundsson. Ölafur Eiríksson kaupmaður nafna minn, Gisla Narfason, fáeinum fátæklegum orðum, verður hann aldrei annað fyrir mér en það, sem ég í æsku taldi til þess, sem var gott og öruggt, hluti þess veruleika, sem ég i æsku vaknaði til. Hann lést að Hrafn- istu hinn 27. marz s.l. eftir mörg og erfið sjúkdómsár. Þótt mér sé um mengn að lýsa verðleikum hans eins og ég sagði áður, þá get ég þó fullyrt, að aldrei bar skugga á þá mynd af honum, sem greyptist í hug mér i æsku. Sam- ofin þessari mynd er kona hans Kristín Hafliðadóttir sem látin er fyrir allmörgum árum. — Honum mun heimkoman ljúf. — Gísli Kristinn Sigurkarlsson. útfaraskreytingar blómciuol Groðurhusið v/Sigtun simi 36770 Prentum á þakkarkort, H4H4S1 «.«■'. Eikjuvogi 19 ■ fleykjavik • Snni 35749 Enginn veit sina ævi fyrr en öll er. Ekki grunaði okkur er við vorum saman að spila á mánu- dagskvöldi, skólabræður og vinir, að á miðvikudegi yrði hringt og okkur tilkynnt lát Óla. Hann hneig niður við störf i verzlun sinni og þrátt fyrir einkar skjóta og góða aðstoð komst hann ekki aftur til meðvitundar. Þegar ég frétti lát Ola vinar míns fann ég sáran söknuð, en hugurinn reikar ósjálfrátt til lið- inna ára og rifjast þá upp margar ánægjustundir, sem við félagarn- ir áttum saman. Olafur Eiríksson er fæddur 30. apríl 1921 i Gerðurn, Garði. Hann andaöist 26. marz 1975. Hann var einkasonur hjónanna Eiríks Þor- steinssonar kaupmanns og Ragn- hildar Davíðsdóttur. Er hann var 7 ára fluttust þau til Reykjavíkur, þar sem Eirikur rak matvöru- verzlun i mörg ár. Ég kynntist Ölafi, er við vorum bekkjabræður i Verzlunarskóla Islands. Þar sátum við saman síðasta veturinn. Er við lásum heima hjá honum vantaói ekki gestrisni Ragnhildar móður hans, sem gaf okkurkókómalt(sem ekki var algengt þá) og kökur. Oli var afburða námsmaður, sem mundi allt og skildi allt undir eins. Ég þurfti því oft að lesa aftur, er hann var búinn að læra. Arið 1939 útskrifuðumst við úr Verzlunarskóla islands og var Olafur „Dux". Hann fékk hæstu einkunn, sem þá hafði verið gefin við brottfararpróf og fékk margar viðurkenningar fyrir frábæran námsárangur. Sama ár Pór hann til Kaup- mannahafnar til að nema bókaút- gáfu og bóksölu hjá Munkgaard Forlag. Um haustið braust út síðari heimsstyrjöldin.og Ölafur ákvað að vera kyrr i Danmörku. Þar tók hann þátt i starfi andspyrnu- + Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma JÓSEFÍNA JÓSEFSDÓTTIR, Fellsmúla 15 sem lézt í Landspítalanum 28. marz verður jarðsungin miðvikudaginn 9. april kl. 1 3 30 frá Fossvogskirkju. Fyrir hönd aðstandenda. Eyjólfur Finnsson. + Útför sonar míns EINARS ÞORKELSSONAR, sem andaðist í New York 28. marz síðastliðinn, fer fram frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 10. apríl kl. 10 30 Fyrir mina hönd og annarra vandamanna Þorkell Bergsson. + Þökkum auðsýnda samúð við fráfall og útför föður okkar, tengdaföður og afa, PÁLS PÁLSSONAR útvegsbónda, Hnffsdal. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi + Sonur okkar og bróðir SIGURÐUR GUDJÓNSSON, SIGURJON MAGNÚSSON, kaupmaður Hátúni, Stokkseyri, Suðurgötu 37 sem lézt af slysförum 31 marz, verður jarðsunginn frá Stokkseyrar- verður jarðsunginp frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 9 apríl kl. 1 30 kirkju, miðvikudaginn 9 apríl kl 2 Camilla Sæmundsdóttir Viktoría Þorvaldsdóttir, Magnús Sigurjónsson, Margrét Magnúsdóttir, Þorvaldur Magnússon, Vilhjálmur Magnússon, Gunnar Magnússon, Guðjón Ingi Sigurðsson Svava Valgeirsdóttir Sigurdis Sigurðardóttir Kristján Þorkelsson og barnabörn Bjarni Magnússon, Signý Magnúsdóttir. hreyfingarinnar og sat i fangelsi um tíma. Eftir stríð kom Ólafur aftur heim og tók að starfa við bóka- verlun. Fyrst í Bókaverzlun K.R.O.N., en síðan gerðist hann verzlunarstjóri hjá bókaverzlun Máls og Menningar. Það var sama um hvaða bók maður spurði hann. Hann hafði lesið þær allar. Hinn 26. október 1946 kvæntist hann Lovisu Rögnvarldsdóttur og voru þau hjónin afar samhent bæði í starfi og sameginlegum áhugamálum. Margar ferðirnar fóru þau til útlanda og þá sérstak- lega til sólarlanda. Þau eignuðust tvö börn Ragn- hildi og Eirík. Dóttir Ragnhildar Anna Dóra Sæþórsdóttir var augasteinn afa og ömmu. Tóku þau hana með sér í flest allar utanlandsferðir. Eiríkur er kvæntur Margréti Hjörleifsdótt- ur, og eiga þau einn son alnafna afa síns Ólaf Eiríksson. Eftir að Öiafur hætti i bóka- verzlun setti hann á stofn mat- vöruverzlunina Vogur við Vig- hólastíg í Kópavogi ásamt vini síhum, en siöustu 15 árin rak hann hana einn. Gekkk verzlunin vel, enda skorti hann ekki atorku og dugnað. Við spilafélagarnir og konur okkar ásamt skólasystkinunum úr Verzlunarskóla íslands sendum Lovísu, börnum hennar og barna- börnum, svo og móður Ólafs, Ragnhildi, sem er orðin 85 ára og dvelur á Elliheimilinu Grund, innilegar samúðarkveðjur. Við biðjum Guð að styrkja þau öll og blessa. Pétur O. Nikulásson. S. Helgason hf. STE/NfOJ/ tlnholtl 4 Slmar UÍ7J og 14254 JHorcjimliliiÍiiíi margfoldar morkad vðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.