Morgunblaðið - 08.04.1975, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1975
7
Julian Huxley látinn:
Gerði vísindin að-
gengileg almenningi
SIR Julian Huxley, líffræding-
urinn, rithöfundurinn, útvarps-
maðurinn og m.a. fyrsti fram-
kvæmdastjóri UNESCO, lézt
nýlega f London, 87 ára að
aldri. Hann var án efa einn
þekktasti vfsindamaður heims.
Áhugasvið hans var ákaflega
vítt, segir f grein um hann
látinn f stórblaðinu Times. Dr.
Finnur Guðmundsson, fugla-
fræðingur, sem kynntist
honum f tsiandsferð hans
sumarið 1949, segir að Julian
Huxley hafi verið forvitnasti
maður, sem hann hafi kynnzt.
Hann hafði áhuga á öllu milli
himins og jarðar og var sfspyrj-
andi. t rútubíl á leið norður f
land spurði hann svo viðstöðu-
laust um allt, sem fyrir augu
bar, að Finnur kvaðst hafa
verið orðinn hás þegar komið
var að Mývatni. Segir Finnur
það hafa verið ákaflega
skemmtilegt að kynnast honum
þá og sfðar, er hann hitti hann
á ráðstefnu.
Svo stóð á ferð Julians
Huxleys hingað, að hann slóst f
för með fuglafræðingnum
James Fisher, sem stundaði
athugun á sjófuglum og hafði
m.a. hafið skipulegar athuganir
á varpstöðvum súlunnar á
Norður-Atlantshafi, á lslandi,
Bretlandi og Kanada. Þvf fóru
Þorsteinn Einarsson og Finnur
Guðmundsson með þeim til
Vestmannaeyja og að Eldey, en
þar var ekki hægt að lenda
vegna brims. Julian Iluxey var
þá nýbúinn að láta af stjórn hjá
UNESCO og ganga frá þessari
menningarstofnun Sameinuðu
þjóðanna f hendurnar á næsta
framkvæmdastjóra og var
þreyttur. tslandsferðin var því
ætluð til hvíldar og hressingar.
Háskólalektor var þá Alexander
Jóhannesson, sem náði f Julian
Huxley, þegar hann kom að
norðan, og fékk hann til að
flytja hér fyrirlestur við
Háskóla Islands. Fjallaði fyrir-
lesturinn um þróun jarðlffsins.
Kveðst Finnur muna, að
Huxley hafi ekki verið mjög
óánægður með að flytja fyrir-
lestur svona óundirbúinn og án
þess að hafa gögn til þess.
Julian Huxley var eldri bróð-
ir rithöfundarins fræga Aldous
Huxleys, sem m.a. skrifaði bók-
ina Markmið og leiðir, er þýdd
var á íslenzku, og sonarsonur
Thomasar Huxleys, samstarfs-
manns Darwins. Þegar Julian
Huxley var veittur heiðurstitill
einhvern tfma, var sagt um
hann: Hann er bróðir hug-
myndarfks rithöfundar, sem
varð næstum vísindamaður, en
er sjáifur vísindamaður, sem
hefði eins vel getað orðið stór-
skáid.
Julian Huxley fæddist 22.
júní 1887. Faðir hans, Leonard
Huxley, ritstjóri Cornhill
Magazine, stóð uppi á strætis-
vagni með hestum spenntum
fyrir og var að fylgjast með
hátíðahöldunum við krýningu
Victorfu drottningar, þegar
sveinninn kom í heiminn.
Julian fór til náms f Eton f
hinn fína Kingsskóla og vann
sér þar skólastyrk til dýra-
fræðináms og ársdvöl hjá dr.
Dohrn f hinni frægu líffræði-
rannsóknastöð í Napoii á Italíu.
En jafnframt hlaut hann
Newdigate-verðlaunin fyrir
ljóðagerð. Eftir Napolidvölina
kenndi hann dýrafræði í
háskólanum í Balliol, en var að
tveimur árum liðnum boðin
staða við Hrísgrjónarannsókna-
stofnunina f Houston í Texas,
með fjórföldum launum
prófessors í Oxford. En þegar
fyrri heimsstyrjöldin brauzt út,
sagði hann upp starfi og hélt
heim til að ganga f leyniþjón-
ustu Breta. Eftir strfð hafði
hann á hendi ýmsar stöður f
Oxford og London, var m.a. 7 ár
framkvæmdastjóri Dýragarðs-
ins og var hjá Royal Instituti-
on, þegar hann hætti á árinu
1927 til þess að helga sig rit-
störfum.
Julian Huxley vann margvfs-
leg afrek sem vfsindamaður, en
er e.t.v. vfðfrægastur fyrir að
gera vísindin aðgengileg al-
menningi og vekja áhuga á
ýmsum greinum vísinda, en þá
list hafði H.G. Wells kennt
honum að meta, þegar hann
vann með honum og syni hans,
G.P. Wells, að bókinni frægu,
„Science of Life“. Huxley lenti
á þeirri hillu af tilviljun, þegar
æsifregnir höfðu verið skrif-
aðar f blöð um eitthvert
vfsindalegt verk, sem hann
hafði unnið, og hann hafði
sjálfur skrifað grein til að leið-
rétta það og útskýra.
1 vfsindum lagði Huxley mest
af mörkum f lfffræði. Mikil-
vægastar voru rannsóknir hans
á vexti og framlag hans til
þróunarkenningarinnar. Voru
bækur hans, „Problems of
Relative Growth“ og „The New
System“ taldar marka veruleg
spor í þróunina. 1 síðartöldu
bókinni og annarri, „Modern
Synthesis", setti Huxley fram
þá kenningu, að úr þvf að
maðurinn réði svo miklu orðið f
umhverfi sínu væri hann f
rauninni orðinn sá þátturinn,
sem ákvarðaði frekari þróun á
þessari plánetu okkar. Hann
einn hefði hæfileika til að ráða
því hver yrðu úrslitaáhrifin í
þróun og framförum. Hug-
myndir hans um þessi ríkjandi
áhrif mannsins til úrvals og þar
með þróunar í heiminum, urðu
til þess að áhugi hans beindist
sfðari árin að því sviði og sér í
lagi að hættunum, sem felast í
ótakmarkaðri mannfjölgun án
sambands við hagvöxtinn.
Þekkingu sfna á þróunarlönd-
um hafði hann úr ferðum til
Afrfkulanda sem ráðgjafi um
menntun innfæddra og æðri
menntun í Vestur-Afríku, en
hann átti m.a. sæti í nefnd Lord
Hailys, „African Survey"
Vegna hugmyndaauðgi hans og
vísindaþekkingar og hins mikla
áhuga hans á menntun og
fræðslu, var lagt hart að honum
um að verða fyrsti formaður
undirbúningsnefndar fyrir
Menningarstofnun Sameinuðu
þjóðanna og eftir að UNESCO
komst á stofn varð hann fyrsti
framkvæmdastjóri hennar f 2
ár.
Ef til vill náði Julian Huxley
til flestra fyrir útvarpsþættina
„Brains Trust", sem áttu gffur-
legum vinsældum að fagna í
brezka útvarpinu, BBC, á síðari
heimsstyrjaldarárunum. Mitt í
strfðinu hlustuðu allir á hann.
Einu sinni hafði flugherinn
spurt þáttinn hvernig í ósköp-
unum flugur færu að því að
lenda öfugar á veggjum. Hann
kvaðst ekki vita það en ætlaði
að svara því f næsta þætti. I
heila viku braut brezka þjóðin
heilann um þetta og ræddi um
það meðan sprengjurnar féllu.
Þá kom Huxley aftur f útvarpið
og útskýrði í smáatriðum
hvernig það mætti verða.
Julian Huxley var alltaf
reiðubúinn til að trúa þvf bezta
um samborgara sína og tókst
líka jafnan að ná þvf bezta hjá
hverjum manni. „Fáir aðrir
vfsindamenn hafa hvatt,
hjálpað og gagnrýnt jafn
einarðlega líffræðina og Iff-
fræðingana,“ var skrifað í for-
mála að bók um hann 1953. Og
eitt síðasta verk hans sýndi að
aldurinn hafði ekki rænt hann
ábyrgðartilfinningu og siðgæð-
iskennd. 1 desember sl„ þegar
andstaðan gegn Israel hafði
verið þvinguð í gegn f UNESCO
með hópatkvæðagreiðslu, kom
hann fram á ritvöllinn og tók
fullan þátt f gagnrýni á stofn-
unina og starfsfólk hennar, því
til mikillar armæðu.
Julian Iluxley á báti úti á Mývatni með vini sínum, fuglafræðingnum James Fisher. Myndina tók
Finnur Guðmundsson f Islandsför Julians 1949.
Springdýnur Tökum að . okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. Opið til 7 alla daga. KM springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Simi 53044. Hestakynning — sveitadvöl fyrir börn 7 —12 ára 12 dagar i senn. Upplýsingar i sima 28306 eftir kl. 7 virka daga.
Urvals gróðurmold til sölu. Uppl. i síma 51468. Pianóbekkir Píanóbekkir 80 cm, 90 cm og 105 cm langir með og án geymslu. Nýja bólsturgerðin, Laugaveg 1 34, sími 16541.
Til Fermingagjafa fallegir saumakassar. Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabraut 44. Atvinna — Sérverzlun Stúlka vön afgreiðslustörfum ósk- ar eftir vinnu í sérverzlun. Vinsam- legast hringið i síma 31049 milli kl. 4 — 7 e.h.
Bólstrun Tek bólstruð húsgögn í klæðn- ingu. Fast verðtilboð ef óskað er. Bólstv. Bjarna Guðmundssonar, Laugarnesvegi 52, sími 32023 — 71538 Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN27 Simi 25891.
Peningar. Vil lána kr. 500 þús. i nokkra mánuði. Fasteignatrygging skil- yrði. Tilboð merkt: „Traust — 971 9" sendist Mbl. Húsráðendur— Keflavik Ungt par með eitt barn vantar að fá litla ibúð á leigu strax. Upplýs- ingar i síma 92-2195 eftir kl. 18.
Til sölu sælgætis- og tóbaksverzlun í mið- borginni. ÍBÚÐASALAN, simi 1 21 80. Til leigu. Litið hús i miðborginni er til leigu strax. Húsið er tvær hæðir og ris og leigist fýrir skrifstofur eða þ.u.l. Upplýsingar i sima 1 5545.
Rennilásar og hnappar i miklu úrvali. Haraldur Árnason Heildverzlun. Sími 1 5583. 3ja til 4ra herb. ibúð óskast á leigu 1.—14. mai. Uppl. i simum 27766 kl. 9 —17 og 1 8965 eftir kl. 1 7.
Til sölu Einbýlishús við Selbrekku, Kópa- vogi. 5—6 herb. Bílskúr, hita- veita, ræktuð lóð. Góður staður. Hagkvæm kaup. Gunnlaugur Þórðarson hrl. Bergstaðastræti 74a, sími 16410. Buxur Terylene dömubuxur úr góðu tery- lene. Einnig tækifærisbuxur. Framleiðsluverð. Saumastofan Barmahlíð 34, sími 1 461 6.
Sambyggð
trésmíðavél
til sölu.
Upplýsingar í síma 84377.
Ensk fataefni
fyrirliggjandi á gömlu og nýju verði. Einnig
kamgarn í kjólföt og smokinga. Ath. fyrir drengi
og unglinga er úrval af stökum buxum.
Sauma eftir máli, ef með þarf einnig á dömur.
Þorgils Þorgilsson klæðskeram.,
Lækjargötu 6A, sími 19276.