Morgunblaðið - 08.04.1975, Side 36
}Hor0ttnb(abib P$r$tttt!ila^íb
RUClVSinGRR ljj|v>*22480 PorjjvmtiTntníi RUGIVSinCRR ^-«22480
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRlL 1975
Sænskt fyrirtæki
vill kaupa 40 lest-
ir af reyktum laxi
GOTT verð fæst nú fyrir reyktan
lax í Svíþjóð og Frakklandi og
hefur sænskt fyrirtæki óskað eft-
ir að kaupa i það minnsta 40 lestir
af reyktum laxi frá Islandi á
þessu ári.
Gmboðsmaður þessa fyrirtækis
á Islandi, Olafur Jónsson í L'nex,
sagði þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann i gær, að hann
væri nú búinn að auglýsa eftir
laxi til reykingar, en hann vissi
ekki hve mörg tonn hann gæti
fengið.
Ólafur sagði, að fram til þessa
hefðu málin staðið þannig, að ís-
lendingar hefðu ekki verið sam-
keppnisfærir á erlendum mörkuð-
um með þessa vöru. Málin hefðu
hins vegar breytzt mikið vegna
gengisfellinganna undanfarið og
kynningar á þessari góðu vöru
undanfarin ár. Sýnishorn hefðu
verið flutt út og likað einstaklega
vel.
Sænska fyrirtækið sem fengið
hefði þessi sýnishorn hefði nú
farið fram á að fá i það minnsta 40
tonn af reyktum laxi frá islandi
og verðið, sem það byði væri hag-
stætt.
Þessi lax mun að mestu fara á
markaó í Svíþjóð en sænska fyrir-
tækið mun selja eitthvaö af hon-
um til Frakklands.
Skipshöfnin varð
að yfirgefa Nökkva
Ljósmynd ÓI.K.M.
HLUSTLNARDLFL — Varðskipið Þór kom til Reykjavikur I gær með hlustunardufl það, sem fannst í
Úfeigsfirði á Ströndum um páskana. Þetta dufl er lang heillegast af þeim hlustunarduflum, sem
hingað til hafa fundist við landið, en á því eru fjórar hljóðnemaraðir, samtals 32 hljóðnemar.
Sérstakar varnarhlffar eru utan um þá. Myndin var tekin skömmu eftir að Þór kom til Reykjavíkur
með duflið og virðir skipherra skipsins, Helgi Hallvarðsson, duflið fyrir sér.
Hvammstangi, 7. april.
VÉLBATLRINN Týr frá
Hvammstanga kom með hinn
fræga rækjubát Nökkva i togi til
Hvammstanga siðdegis i dag, en
skipshöfn Nökkva hafði orðið að
yfirgefa bátinn er við lá að bátinn
ræki upp í f jöru við Heggstaðanes
f fyrradag. Nökkva rak þó aldrei
alveg upp f fjöru, heldur stöðv-
aðist hann við Brimgarðinn þar
sem akkerið sem skipverjar
höfðu sett útbyrðis hafði fengið
góða festu.
Rækjubátarnir við Húnaflóa
fóru til rækjuveiða á sunnudags-
morgun og voru að veiðum norður
af Hrútafirði. 1 gærmorgun milli
kl. 10 og 12 hvessti snögglega og
um svipað leyti drap vél Nökkve á
sér. Bátinn tók þegar að reka i átt
að nesinu/ þrátt fyrir það að
skipverjar bátsins settu út akkeri.
Rækjubáturinn Týr var þarna
nærstaddur og tókst að koma taug
á milli bálanna. Ekki leið á löngu
þar til dráttartaugin slitnaði og
rak nú Nökkva enn nær brim-
garðinum. Tóku skipverjar á Tý
það til bragðs, að renna bátnum
upp að hlið Nökkva og stukku
skipverjar Nökkva, þeir Jón Gest-
ur Sveinbjörnsson og Páll
Sigurðsson, yfir i Tý.
Þegar þetta átti sér stað var
veður mjög dimmt og vissu menn
ekki um afdrif Nökkva. Þó var
farið út á Heggstaðanes seinni
partinn og sást þá Nökkvi um 400
metra frá landi og hafði akkerið
þá fengið festu. 1 morgun fóru svo
menn frá björgunarsveitinni hér
á gúmmibát á staðinn og fóru um
borð i Nökkva. Skömmu siðar
kom Týr á staðinn og tók hann
Nökkva i tog og komu skipin
hingað um kl. 18 í dag. Talið er að
Nökkvi sé með öllu óskemmdur.
— Karl.
33% aukning á fram-
leiðslu frystihúsa SH
— fyrstu 3 mánuði ársins
ÞRATT FYRIR sölutregðu á
Bandaríkjamarkaði jókst heildar-
framleiðsla frystihúsa innan
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna um 33% fyrstu þrjá mánuði
þessa árs miðað við sama tfma f
fyrra. Nú varð framleiðslan 14000
lestir á móti 10.600 lestum fyrstu
þrjá mánuði ársins f fyrra.
Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson,
framkvæmdastjóri SH, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær,
Skellur sjómanna-
verkf all á í nótt?
kostar f áskrift kr. 700 á
mánuði frá 1. aprfl og f lausa-
sölu kr. 40 eintakið frá 8. aprfl.
TALSVERÐRAR svartsýni gætti
f gærkveldi á að samningar tækj-
ust f kjaradeilu útgerðarmanna
og sjómanna áður en til fram-
kvæmdar verkfalla kemur á mið-
nætti i nótt. Þó má segja að
heldur hafi verið bjartara yfir
bátakjarasamningunum en
togarasamningunum, en þó voru
báðar deilurnar f mikilli óvissu.
Lm 60 til 70% flotans munu
stöðvast á miðnætti f nótt, ef ekki
Verkalýðsfélag Vopnafjarðar hafnar samkomulaginu:
Breidd samkomulagsins of
mikil — uppbótin of lág
VERKALVÐSFÉLAG Vopna-
fjarðar felldi samkomulagið, sem
gert var milli ASl og vinnuveit-
enda um láglaunabætur. Er það
þvf annað verkalýðsfélagið á
landinu, sem fellir samkomulag-
ið, þótt forsendur Vopnfirðing-
anna fyrir höfnun þess séu nokk-
uð aðrar en Vestmannaeying-
anna. Gfsli Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Verkalýðsfélagsins
á Vopnafirði, sagði í samtali við
Mbl. f gær, að helztu meinbugir ,
sem félagið teldi vera á sam-
komulaginu væru að í því væri of
mikil breidd og uppbót á láglaun
væri of Iftil.
„Okkur finnst vera of skammt
gengið með samkomulaginu,"
sagði Gisli, „og fá lægstu fiokk-
arnir allt of litla hækkun. A fundi
stjórnar og trúnaðarráðs félagsins
var samþykkt að reyna að fá meiri
hækkun á laun þeirra lægst laun-
uðu og jafnvel þó að láglaunabæt-
urnar næðu ekki eins hátt upp
tekjustigann og i samkomulaginu
Við álitum að fólk með tekjur á
bilinu 43 þúsund krónur til 56
þúsund krónur þurfi meir á þessu
að halda en þeir, sem hafa allt að
70 þúsund krónur í laun.“ Gísli
sagði að Vopnfirðingarnir vildu
ekki þessa breidd i samkomulag-
ið, en i stað þess ætluðu þeir að fá
uppbótina á lægstu laun hækk-
aða. Munu viðræður milli félags-
ins og vinnuveitenda á Vopnafirði
hefjast í dag um þetta atriði.
Gísli Jónsson sagði að hann
byggist ekki við því að þetta mál
yrði auðsótt eða að félaginu tæk-
ist að koma þessari stefnu sinni
fram að einhverju gagni. „En við
Framhald á bls. 22
semst og eru þar með taldir allir
skuttogarar yfir 500 rúmlestir.
Sjómenn á Snæfellsnesi, sem
höfðu boðað verkfall frá og með
mánudeginum, frestuðu fram-
kvæmd þess til 9. apríl til sam-
ræmis við önnur sjómannafélög.
Félögin í Vestmannaeyjum og I
Þorlákshöfn hafa boðað verkfall
frá og með 15. apríl.
Verkföllin, sem hefjast á mið-
nætti i nótt, ná til flotans við
Eyjafjörð, Siglufjörð og við Faxa-
flóa, svo og á Snæfellsnesi. 1 gær
var haldinn fundur i deilunni við
togarasjómenn og hófst hann
klukkan 14. Var hann stuttur og
gerðist ekkert markvert á
fundinum. Annar fundur hefur
verið boðaður í dag klukkan 17 og
að sögn Torfa Hjartarsonar er
hann boðaður meir vegna þess að
verkfall er yfirvofandi en að von
sé um að samkomulag takist á
honum. Sagði Torfi að hann vildi
hafa þennan fund, ef hið óliklega
gerðist að eitthvað rofaði til.
Fundur vegna bátakjarasamn-
inga hófst hjá sáttasemjara í gær
klukkan 16 og stóð sá fundur enn,
er Mbl. fór i prentun i gærkveldi.
Heldur var léttara hljóð i mönn-
um vegna bátakjarasamninganna
— a.m.k. var ræðzt við.
að menn hefðu vart átt von á
þessari aukningu nú, og hann
myndi ekki eftir svona mikilli
aukningu yfir þriggja mánaða
timabil þann tima sem hann hefði
verið hjá Sölumiðstöðinni.
Þegar á heildina er litið, sagði
Eyjólfur, þá kemur í ljós, að fram-
leiðslan fyrstu 3 mánuði þessa árs
er um 33% meiri en á sama tima i
fyrra. Mest hefur aukningin orðið
i frystingu á ufsa og ýsu, en fryst-
ing á þorski hefur einnig aukist
til mikilla muna eða um 23%.
Þá sagði hann, að í flest öllum
frystihúsum innan SH væri unn-
inn fullur vinnudagur. Hinir nýju
togarar, sem væru dreifðir víðs
vegar út um land, ættu eflaust
stóran þátt í þessari miklu aukn-
ingu, þvi segja mætti, að aldrei
félli niður vinnudagur. Þeir
kæmu með hráefnið jafnt og þétt.
Að lokum lét Eyjólfur þess
getið, að enn væri allt við sama á
Bandarikjamarkaði, og litil sem
engin von væri um, að úr raknaði
á næstunni.
Flaug í gegn-
um framrúðuna
MJÖG hörð aftanákeyrsla varð i
Nóatúni s.l. laugardagskvöld er
fólksbifreið var ekið aftan á kyrr-
stæða mannlausa bifreið. Við
áreksturinn flaug farþegi i fram-
sæti i gegnum framrúðuna og
hafnaði úti á götu. Skarst hann
mjög mikið á andliti og höfði. Þá
skarst farþegi i aftursæti einnig á
höfði en bílstjórinn slapp nær
ómeiddur. Bilarnir eru stór-
skemmdir. Hætt er við að ekki
hefðu hlotizt af svona mikil
meiðsli ef farþeginn hefði notað
öryggisbelti.