Morgunblaðið - 11.04.1975, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 11.04.1975, Qupperneq 36
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1975 |Ht>rsnní>Iatilí> nucivsincnR «g, ^-»22480 JHflrgunbTatiií* BUGlVSinGBR íg,^-«22480 AHir loðnubátar hættir veiðum Heildaraflinn 458 þúsund lestir LOÐNUVERTIÐINNI lauk form- lega i fyrradag, en þá komu 4 bátar til hafnar meó 425 lestir. Hættu þeir þar með veiðunum og eru þá allir bátar hættir. Loðnu- vertíðin nú er önnur bezta vertíð- in frá upphafi. Samtals veiddust tæplega 458 þúsund lestir, eða tæplega 4 þúsundum lesta minna cn á metvertíðinni í fyrra. Afla- skip vertíðarinnar er Sigurður RE. Andrés Kinnbogason hjá loðnu- nefnd tjáói Mbl. í gær, að siðustu bátarnir sem komu með aílahefðu verið Eldborg með 120 lestir, (iisli Arni með 200 lestir, Guðmundur með 85 lestir og Loftur- Baldvins- son með 120 lestir.. Þrír fyrr- nefndu bátarnir.lönduðu syðra en Loftur landaði á Siglufirði. Andrés sagði,- að vertíðin hefði að sinu mati gengið mjög vel og örugglega orðið metvertið ef ekki hefði komið langur ógæftakafli í marz/ Þá kvað Andrés starf loðnu- nefndar hafa gengið mjög vel og væri ekki annað að heyra en menn væri ánægðir. Nefndin væri nú að mestu hætt störfum og nú væri aðeins eftir að ganga frá ýmsum atriðum að vertíðinni lok- inni. Ætla að heimsækja „huldumanninn” 1 Loðmundarfirði VEGNA sögusagnanna um huldu- mann í Loðmundarfirði hefur verið ákveðið að nokkrir ungir menn úr Borgarfirði-eystra skreppi á vélsleðum í Loðmund- arfjörð og kanni hvort nokkuð sé hæft i þessu. Tekur slík ferð að- eins um klukkutima. Það mun að allega vera fyrir atbeina eigcnda jarða í Loðmundarfirði að ferð þessi er farin. Sagði Erlendur Björnsson sýslumaður á Seyðis- firði, að líklega yrði skroppið næsta hjarta dag, en í gær var ekki hægt að fara vegna dimm- viðris. fólkið aftur leið þarna um og stóð maðurinn þá talsvert frá vegin- um, alveg hreyfingarlaus. Þetta var karimaður úlpuklæddur, en ekki gat fólkið greint andlit hans þar eð nokkuð var farið að rökkva. Vegna háttalags manns- ins var kannað hvort þarna hefði verið einhver úr sveitínni á ferð en talið var útilokað að svo væri. Fleiri telja sig hafa mætt ókunnum manni og hefur hann í a.m.k. einu tilfelli falið andlit sitt, að sögn þeirra, sem telja sig hafa séð manninn. Þykir fólki eystra þetta mál hið dularfyllsta. Ljósm. Sigurgeir. VERTÍÐIN — Þeir hafa gert það ágætt Eyjabátarnir að undanförnu. Hér er verið að landa úr einum sem kom drekkhlaðinn úr róðri. Það voru fullar lestar og fullt dekk, fiskur um allan bát. Friðrik og Pomar gerðu jafntefli FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari gerði jafntefli við spænska stór- meistarann Arturo Pomar á skák- mótinu á Kanaríeyjum í gær- kvöldi. Eftir fjórar umferðir cr Friðrik I 6.—11. sæti með 2 vinn- inga. I kvöld teflir Friðrik við Debarnot og hefur hvftt. Friðrik og Pomar sömdu „stór- meistarajafntefli“ eftir 17 leiki. Önnur úrslit urðu þau, að Meck- ing vann Fernandez í 21 leik, Hort vann Cardoso í 29 leikjum, Larsen vann Debarnot í 28 leikj- um, Anderson og Bellon gerðu jafntefli, sömuleiðis Tal og Petrosjan, Tati og Visier. Einni skák var frestað. Framhald á bls. 20. Tveir menn viðurkenna skemmdarverk á skýli SVFÍ TVEIR menn af Héraði hafa við yfirheyrslur hjá lögreglunni á Egilsstöðum viðurkennt að vera valdir að skemmdunum, sem unn- ar voru nýlega á skýli SVFl I Vatnsskarði, milli Héraðs og Borgarfjarðar eystri. Frá máli þessu var skýrt I Mbl. á miðviku- daginn. Að sögn Björgvins Björgvins- sonar lögregluþjóns á Egilsstöð- um gátu mennirnir engar skýr- ingar gefið á þessu háttalagi sínu, nema hvað annar þeirra bar við ölvun. Málið verður sent sýslu- manni Suður-Múlasýslu til ákvörðunar. Mun hann annað- hvort bera fram ákæru á hendur mönnunum eða senda málið áfram til saksóknara. Nú er tæpur mánuður síðan sögusagnir um ljós í Loðmundar- firði og ferðir óþekkts manns i Hjaltastaða- og Eiðaþinghá kom- ust fyrst á kreik eystra. Morgun- blaðið ræddi í gær við Sævar Sig- urbjarnarson bónda á Rauðholti i Hjaltastaðaþinghá, en við veginn nálægt bæ hans á óþekkti maður- inn að hafa sézt 24. marz s.l. Sagði Sævar svo frá, að þrjár manneskj- ur í bíl hefðu ekið fram á manninn og stoppað til að bjóða honum far. Verkfræðingar Landsvirkjunar: Sigölduvirkjun tefst vegna van- kunnáttu og getuleysis verktaka Anzaði maðurinn engu og var hinn furðulegasti í allri fram- komu. Lét hann sig t.d. falla á jörðina og gróf andlitið i jörðu. Horfði fólkið steinhissa á aðíarir mannsins en ók síðan á brott. Sá það þá að maðurinn reis skyndi- lega upp og hljóp burtu eins og fætur toguðu. Rétt á eftir átti „NU ÞEGAR er ljóst, að f.vrsta vélasamstæða Sigölduvirkjunar kemst ekki í gang á tilsettum tfma, sem er næsta sumar, verkið er það mikið á eftir áætlun, þvf miður," sögðu verkfræðingar Landsvirkjunar, þeir Páll Sig- urðsson og Egill Skúli Ingibergs- son, þegar Morgunblaðið ræddi við þá inni í Sigöldu í vikunni. Þeir sögðu, að margar ástæður lægju að baki þessarar miklu seinkunar sem hefði orðið á öllum framkvæmdum þar efra. Þó bæri þar hæst getuleysi og vankunn- átta verktakafyrirtækisins Energoproject sem upp hefði komið þegar hinn íslenzki vetur Innflutningsg)al(l leigu- bíla lækkar um helimng SU BREYTING hefur verið Eerð Matthias Á. Mathiesen fiár- „ , . . . , , . , Bandalags tslenzkra leigubifreið- arstjóra og innti eftir áliti hans á þessari ákvörðun rikisstjórnar- SÚ BREYTING hefur verið gerð um aðflutningsgjöld af bifreið- um, að innflutningsgjald af bif- reiðum til leigubifreiðarstjóra hefur verið lækkað úr 50% f 25% eins og af öðrum atvinnubifreið- um. Tollur af leigubifreiðum verður áfram 40%, en af venju- legum fólksbifreiðum er greidd- ur 90% tollur. Lækkun innflutn- ingsgjaldsins þýðir 150—200 þús- und króna lækkun á bifreiðum til leigubifreiðarstjóra. Matthías Á. Mathiesen fjár- málaráðherra sagði i samtali við Morgunblaðið í gær, að ríkis- stjórnin hefði gert sér grein fyrir þvi,að hlutur leigubifreiðarstjóra hefði verið óhagstæður miðað við aðra atvinnubifreiðarstjóra hvað varðaði innflutningsgjaldið og því hefði henni þótt rétt að leiðrétta það. Var ákvörðunin tekin i s.l. viku. Þá hafði Mbl. ennfremur sam- band við Úlf Markússon formann innar. Úlfur sagði m.a.: „Við er- um að sjálfsögðu mjög ánægðir með þessa ákvörðun ríkisstjórnar- innar og teljum að hún hafi sýnt það i verki sem Geir Hallgrimsson forsætisráðherra boðaði á sinum tíma, að samráð yrði haft við stétt- ir og hagsmunahópa um hliðar- Framhald á bls. 20. hefði skollið á. Þetta væri reynd- ar atriði, sem margir erlendir verktakar virtust ekki taka með í dæmið þegar þeir byðu i fram- kvæmdir á íslandi. Það væri ekk- ert launungarmál, að erfitt væri að vinna að vetrarlagi við aðstæð- ur eins og væru i Sigöldu, en íslendingar hefðu unnið við svona skilyrði áður og skilað verki, aðeins ef stjórn væri á hlut- unum. Þeir Egill Skúli og Páll sögðu, að um leið og fyrstu snjóar hefðu fallið í nóvember s.l. hefði reynsluleysi verktakans kómið i ljós og hefði það nánast leitt til upplausnar á virkjunarsvæðinu. Af eigin reynslu væri þessi vetur ekkert frábrugðinn tiðarfari sið- astliðinna ára og sýndu veður- skýrslur það sama. Þá kom fram, að verktakinn er mjög illa undir það búinn að vinna að steypu yfir vetrartim- ann. T.d. vantar mikið af hiturum og hlifðarmottum, sem eru nauð- synleg, ef hægt á að vera að steypa á þessum árstíma. Af þess- um sökum hafa orðið einhverjar frostskemmdir, en ekki munu þær vera óbætanlegar. Eins og kunnugt er hafa Júgóslavarnir haft þá skýringu í frammi, að ein aðalorsökin fyrir öllum töfunum væri hinn mikli vatnselgur á öllu vinnusvæðinu. Að sögn þeirra Egils Skúla og Páls er það rétt að mjög mikill vatnselgur er á öllu svæðinu, og hefur komizt upp í 1400 sekúndu- litra. En þegar á útboðsstiginu var kunnugt um þetta vandamál og bjóðendum í verkið bar því að taka tillit til þess. Sjávarútvegsráðherra: r „Utgerðin getur ekki ein leyst vanda togaraima’ MORGÚNBLAÐIÐ ræddi í gærkvöldi við Matthías Bjarnason sjávarútvegsráð- herra og innti hann eftir þvf hvort ríkisstjórnin væri með f bfgerð einhverjar ráðstafanir vegna stóru togaranna. Ráð- herra sagði: „Það er enginn vafi á þvi að Framhald á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.