Morgunblaðið - 30.05.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.05.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAl 1975 Ásgeir Magnús- son framkv.stj. Isl. járnblendi- verksmiðjunnar Á fundi stjórnar Islenzka járn- blendifélagsins hf. sem haldinn var f gær var Ásgeir Magnússon ráðinn framkvæmdastjóri félags- ins. Ásgeir hefur nú um nokkurt skeið gegnt stöðu framkvæmda- stjóra hjá Bæjarútgerð Reykja- víkur en áður var hann um árabil framkvæmdastjóri Samvinnu- trygginga. Samkvæmt þeim upp- lýsingum sem Mbl. aflaði sér í gær hafa engar ákvarðanir verið teknar um það hver tekur við starfi Ásgeirs hjá Bæjarútgerð- Mesta mildi að ekki varð stórslys Björn Jónsson um lausn togaraverkfallsins 1973: Skurðgrafan felldi brúna Smekksatriði hvort menn vilja gerðardóm eða lög FYRRI hlula vetrar 1973 stóð yfir langvinnt togaraverkfall, fyrst vegna kjaradeilu undir- manna, en síðar tegna kjara- deilu yfirmanna. Vinstri stjórnin beitti sér fyrir lausn á deilu yfirmanna með löggjöf, sem samþykkt var á Álþingi 22. marz 1973. Björn Jónsson for- seli Alþýðusambandsins var þá forseti efri dcildar og stjórnaði fundi dcildarinnar, þegar samþykkt var með 11 sam- hljóða atkvæðum þingmanna þáverandi stjórnarflokka að leysa kjaradeiluna með lögum. Við umræður um málið í efri deild flutti forseti Alþýðusam- bandsins ræðu, þar sem hann sagði m.a.: „Iláskalegar afleiðingar“ „Það, sem hér er um að ræða, eru' afskipti löggjafarvaldsins, ríkisvaldsins, og rök löggjafar- valdsins til þess að setja niður deilu, sem hefur staðið í tvo mánuði og hefur haft í för með sér margs konar háskalegar af- leiðingar í þjóðfélaginu, þá deilu, sem valdið hefur því, að allur togarafloti landsmanna, þ.e.a.s. þeir togarar sem eru yfir 500 brúttólestir að stærð, hefur stöðvazt í svo langan tíma.“ Síðar í ræðu sinni sagði Björn Jónsson: Neyðarástand sem binda verður enda á. „Það er sjálfsagt af þessum ástæðum öllum, og það er ekki umdeilt hér á hv. Alþ., að þess- ar deilur verði að setja niður, og það er ekki heldur umdeilt, að það verði að gerast með því, að löggjafarvaidið komi til skjalanna með einhverjum hætti. Hitt er aftur umdeilt nokkuð, hvort sá háttur, sem hér er á hafður, sé sá réttí eða hvort aðrir hefðu frekar komið til greina. En þetta mikilsverða atriði málsins vil ég leggja sér- staka áherzlu á, að allir eru sammála um það, að við svo búið má ekki standa. Hér er komið neyðarástand, óvenjú- legt neyðarástand undir óvenjulegum kringumstæðum, sem ekki verður komizt hjá að binda enda á. Það breytir engu um þá fyrri og núv. afstöðu manna, ég vil vona flestra, ef ekki allra, sem í hv. d. sitja, að afskipti löggjafarvaldsins af slíkum málum séu algert neyðarúrræði, sem ekki eigi að grípa til, nema einskis annars sé kostur. Og ég held einmitt, að hér standi svo á, enda er nú hæstv. ríkisstj. frekar gagn- rýnd fyrir það hve seint hún hafi komið til skjalanna og hún hafi ekki tekið málin nógu sterkum tökum i upphafi, heldur en að hún sé nú of snemma á ferðinni með þær aðgerðir, sem eru fyrirhugaðar með setningu þeirra laga, sem hér er flutt frv. að. Það hefur oft fallið i minn hlut hér i hv. þd. á undanförnum árum og jafnvel rúmum áratug að and- mæla slíkum afskiptum lög- gjafarvaldsins, og það má vel vera, að einhverjum þyki þess vegna að ég og aðrir mínir félagar liggi vel við höggi, að öðruvísi hafi viðbrögð okkar verið hér áður fyrr. En ég vil benda á, að ég held, að alveg samsvarandi dæmi og þetta verði naumast fundið á síðustu árum og jafnvel síðustu áratug- um, sem geri það jafnsjálfsagt Framhald á bls. 18 ÞAÐ OHAPP varð í Kópavogs- gjánni klukkan 17.25 í gærdag að armur skurðgröfu rakst á undir- stöður brúar sem verið er að byggja yfir gjána og urðu afleið- ingarnar þær, að brúin hrundi nær alveg. Engin slys urðu á fólki og má telja það mestu mildi því þelta gerðist á mesta umferðar- tímanum og nær látlaus straumur bíla um gjána. Töluverð verð- Bráðabirgðalög skv. stjómarskrá Bráðahirgðalögin, sem ríkis- stjórnin gaf út í gær til þess að leysa kjaradeilu starfsfölks í ríkisverksmiðjunum, eru gefin út með stoð í 28. gr. stjörnarskrárinnar. Sam- kvæml því ákvæði stjórnar- skrárinnar getur rfkrsstjórn gefið út hvers kyns lög til bráðabirgða meðan Alþingi situr ekki. Skilyrði fyrir slíkri lagasetningu eru þau, að Al- þingi sitji ekki og að brýna nauðsyn beri til hennar. Mat á brýnni nauðsyn er í höndum rfkisstjórnarinnar. Bráða- birgðalög mega ekki fremur en almcnn lög brjóta í bága við stjórnarskrána og leggja verð- ur þau fyrir næsta Alþingi til slaðfestingar. mæti og mikil vinna sem lögð hafði verið í brúna fóru f súginn og er tjönið lauslega metið á tugi milljóna. Umferðaröngþveiti varð fyrst á cflir óhappið en fljöt- lega var hafizt handa við að laga það sem úrskeiðis fór og álti að halda því verki áfram í nótt. Að sögn Péturs Sveinssonar aðstoðarvarðstjóra í Kópavogslög- reglunni var skurðgrafan dregin á þann hátt að armur hennar var festur á þar til gerðan pinna á vörubílspalli. Var vörubíllinn á suðúrleiðog drógröfuna. Þarsem armurinn skall á brúnni er hæðin 4,30 metrar en við mælingu kom í Ijös, að armurinn hefur verið alit of hár eða 4,70 metrar. Var þó greinilega merkt að hæðin mætti ekki fara yfir 4 metra. Töluverð ferð viröist hafa verið á bílnum því grafan ruddi niður fjórum geysilega voldugum stálbitum sem lágu yfir gjána og halda áttu brúnni uppi á meðan bygging hennar fór fram og sá fimmti féll að hluta. Féllu bitarnir alveg niöur austanmegin og munaði aöeins hársbreidd að þeir féllu á bifreið sem var á norðurleið en í honum var ein kona. Brak úr brúnni braut rúöu i bifreiöinni. Þá féllu bitarnir á vörubílinn miðjan og er bíllinn stórskemmdur svo og Framhald á bls. 18 Ljösm- Mbl. Sv. Þorm. BRtJIN FALLIN — Myndin sýnir stálbitana liggja þvert yfir gjána. Þungi þeirra hvílir á vörubílnum og aftast sér á arm skurðgröfunnar. Pétur Sigurðsson: Þjóðhagsleg nauðsyn réttlætir lagasetningu A FUNDI miðstjórnar Alþýðu- sambandsins í gær sat Pct- Nýja höfnin í Þorlákshöfn getur tafizt um eitt ár — ef steypuvinna kemst ekki í gang og komi til verkfalla í júní OLL STEYPUVINNA við hafnar- gerðina í Þorlákshöfn hefur legið niðri um tveggja vikna skeið vegna verkfallsins f Sementsverk- smiðjunni. „Ef stcypuvinnan kemst ekki í gang hjá okkur á næstunni er alvara á ferðum og ég tala nú ekki um ef langt verk- fall* lekur við um miðjan júní. Það getur farið svo að við þurfum að breyta iillum áætlunum og gæti hafnargerðin tafizt af þeim sökum um heilt ár.“ Þetta sagði Páll Sigurjónsson framkvæmda- stjóri hjá Istaki hf. við Mbl. í gær en það fyrirtæki sér um hafnar- gerðina. Aðal steypuvinnan í sumar er gerö geysistörra steina, dolos, sem settir verða sjávarmegin við hafnargarðinn til að drepa ölduna. Búið er að steypa 1200 steina en ætlunin er að þeir verði 2800 í allt. Ef ekki tekst að Ijúka við gerð steinanna og koma þeim á sinn stað verður ekki hægt að byrja ofansjávarvinnu við hafnar- garðinn í vetur og verður þá að breyta öllum áætlunum og þar með tefst verkið stórlega. ur Sigurðsson hjá við atkvæða- greiðslu um þá yfirlýsingu, sem Alþýðusambandið hefur gefið vegna bráðabirgðalaga ríkis- stjórnarinnar. Af þessu tilefni bað Morgunblaðið Pétur Sigurðs- son að gera grein fyrir afstöðu sinni til þessa máls. 1 svari sínu sagði Pétur Sigurðs- son: „Það er ekhi venja að greina frá því, sem fram fer á fundum miðstjórnar Alþýðusambandsins, en vegna þess, að á fundinum voru utanaðkomandi menn, er ekki eiga sæti í miðstjórninni, sé ég enga ástæðu til þess að þegja yfir þvi, sem þarna fór fram. Björn Jónsson reifaði málið i upp- hafi fundarins og mælti fyrir til- lögu, sem síðar var samþykkt á fundinum. Hann taldi það mjög ámælisvert, að þverbrotnar hefðu verið leikreglur í slíkum sam- skiptum launþega og vinnuveit- enda. Hann taldi ennfremur, að um ólög væri að ræða, og verka- Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.