Morgunblaðið - 30.05.1975, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAl 1975
3
Gerald Ford á leiðtoaafundinum í Brussel:
USA eru skilyrðislaust trú
skuldbindingunum við NATO
BrUssel 29. maí Reuter—AP.
% „BANDARÍKI Norður-
Ameríku eru skilyrðislaust
og ótvírætt trú þeim skuld-
bindingum sem þau tók-
ust á herðar við und-
irritun Norður-Atlants-
hafssáttmálans, þar á
meðal þá skuldbindingu í
5. grein hans um að veita
sérhverju því aðildarlandi
aðstoð sem verður fyrir
vopnaðri árás utan frá...
Bandarískur herstyrkur
mun halda áfram að verða í
fremstu röð. Á því leikur
enginn vafi.“ Þetta sagði
Gerald Ford, Bandaríkja-
forseti, er hann í dag
ávarpaði leiðtogafund 15
aðildarríkja Atlantshafs-
bandalagsins í Brussel,
sem markar jafnframt
fyrstu heimsókn Fords sem
forseta til Evrópu. 1 meiri
háttar stefnuræðu sinni á
fundinum lagði Ford
höfuðáherzlu á að fullvissa
hina evrópsku bandamenn
sína um að Bandaríkin
stæðu fullt og fast með
þeim og rétti þeirra. En
þrátt fyrir daglangar við-
ræður við ýmsa æðstu
menn bandalagslandanna
fyrir sjálfan leiðtogafund-
inn síðdegis, sem fór fram
fyrir luktum dyrum, virtist
forsetanum ekki hafa tek-
izt að koma sambandi
þeirra á þann grundvöll
sem leyst gæti hin alvar-
legu ágreiningsefni innan
bandalagsins.
% Ford ræddi bæði við
Konstantín Karamanlis
forsætisráðherra Grikk-
lands, og Suleyman Demir-
el, forsætisráðherra Tyrk-
lands, um Kýpurdeiluna og
hvatti ríkin til að hefja
ekki neinar aðgerðir „sem
leitt gætu til hernaðar-
átaka“ á meðan verið væri
að reyna samningaleiðina.
Heimildir hermdu hins
vegar að Karamanlis hefði
veitt þau svör, að Grikkir
hefðu þegar hvað eftir
annað veitt Tyrkjum til-
slakanir án þess að fá
Geirræddi
200 mílnrn-
arviðLuns
Briissel 29. maí-AP.
Geir Hallgrímsson, forsætis-
ráðherra Islands, ræddi í
morgun í aðalstöðvuni
Atlandshafsbandalagsins við
framkvæmdastjóra þess,
Joseph Luns, um einhliða út-
færslu íslenzku landhelgi-
innar i 200 mílur, og herma
heimildir I Briissel, að handa-
lagið hafi miklar áhyggjur af
því að útfærslan muni leiða til
nýrra átaka Islendinga og
Breta. Engar fregnir hafa
borizt um einstök atriði við-
ræðna Geirs og Luns.
Atlantshafsrikjanna f Briissel í gær. (AP)
nokkuð í staðinn, og
Demirel hefði sagt að
innrásin á Kýpur hefði
verið réttlætanleg til að
vernda hagsmuni Kýpur-
Tyrkja. Engin tillaga um
lausn í deilunni kom fram í
viðræðunum.
0 Þá varaði Ford Vasco
Goncalves, forsætisráð-
herra Portúgals, við því að
kommúnísk stjórn í
Portúgal væri i ósamræmi
við tilgang Atlantshafs-
bandalagsins, og munu við-
ræður þeirra hafa verið
mjög „opinskáar", sem er
kurteislegt orðalag fyrir
verulegan ágreining. Hins
vegar fullvissaði Goncalves
Ford um að Portúgalar
hygðust áfram vera í
NATO, og að landinu væri
ekki stjórnað af kommún-
istum. I ræðu sinni fór
Ford berum orðum fram á
það að NATO hæfi athug-
un á tengslum Spánar við
bandalágið, þar eð Spánn
legði fram „þýðingarmik-
inn skerf“ til öryggis
Vesturlanda með tvíhliða
samkomulaginu við Banda-
ríkin. Ljóst er talið að þetta
atriði muni valda miklum
umræðum á leiðtoga-
fundinum á morgun er
fjallað verður um ræðu
Bandaríkjaforseta. And-
staða hefur verið mikil við
viðurkenningu á gildi
framlags Spánar, og
Helmut Schmidt kanzlari
Vestur-Þýzkalands er
sagður hafa varað Ford við,
á hádegisverðarfundi
þeirra í dag,að þrýsta mjög
á þetta mál í ræðu sinni. Á
laugardag ræðir Ford við
spánska ráðamenn um
framtíð bandarískra her-
stöðva á Spáni.
Ljóst þykir þvi, að innbyrðis
ágreiningur bandalagslandanna
hefur ekki jafnazt eftir þennan
fyrri dag leiðtogafundarins,
heldur þvert á móti hefur hann
komið enn berlegar i ljós. Auk
áðurnefndra funda með Kara-
manlis, Demirel, Goncalves og
Schmidt, ræddi Ford við Gaston
Thorn, forsætisráðherra Luxem-
borgar, og Anker Jörgensen, for-
sætisráðherra Danmerkur. Siðan
hófst hinn eiginlegi leiðtogafund-
ur með formlegum setningar-
ávörpum Konstantín Karaman-
lísar, Leo Tindemans, forsætis-
ráðherra Belgíu, og Joseph Luns,
framkvæmdastjóra NATO. Siðan
flutti Ford ræðu sína, og í kvöld
átti hann að Ijúka deginum með
einkafundi með Valery Giscard
d’Estaing, Frakklandsforseta,
sem ekki sá ástæðu til að sækja
leiðtogafundinn sjálfan.
I ræðu sinni skírskotaði Ford
einmitt til þess að Frakkar, ásamt
Framhald á bls. 18
Goncalves í Briissel:
Portúgal
áfram
íNATO
Briissel 29. mai — Reuter.
VASCO Goncalves, forsætis-
ráðherra Portúgals, sagði við
blaðamenn á leiðtogafundi
NATO í Briissel í dag, að
Portúgal væri ekki „Tróju-
hestur" bandalagsins og yrði
áfram aðili að því. Goncalves
sagði þetta eftir fund með for-
sætisráðherrum Noregs og
Danmerkur, Trygve Bratteli
og Anker Jörgensen. Hann
sagði að það sem væri að
gerast i Portúgal væri innan-
ríkismál, sem ekki kæmi aðild
landsins að NATO við.
Goncalves hitti einnig Ford,
Bandarikjaforseta, og Henry
Kissinger, utanrikisráðherra,
rétt áður en sjálfur leiðtoga-
fundurinn hófst, og ræddust
þeir við i tæpan klukkutima.
JosefLuns við setninau leiðtoaafundarins:
Þolinmæði og ákveðni þarf, ef
NATO á að ná takmarki sínu
Briissel 29. maí
frá Matthíasi Johannessen ritstjóra.
ISLAND kom við sögu þegar leið-
togafundur Atiantshafsbanda-
lagsríkjanna hófst hér I Briissel í
dag. Astæðan var sú, að Is-
lendingar höfðu gefið Atlants-
hafsbandalaginu fundarhamar,
en hann brotnaði vegna óstjórn-
legra átaka á fundi, eins og Luns
framkvæmdastjóri bandalagsins,
sagði glettnislega í lok ávarps
síns. „En nú hafa tslendingar gef-
ið NATO annan fundahamar,"
hélt Luns áfram „og er sá
sterkari." Var þá brosað I fundar-
salnum og mátti sjá, að bæði
Ford, Bandaríkjaforseti, og
Kissinger, utanrfkisráðherra
hans, höfðu gaman að þessu lilla
innskoti á annars alvarlegum
Iciðtogafundi. Meðan Luns
þakkaði fyrir hamarinn var sjón-
varpsmyndavélum beint að sendi-
nefnd tslands og varð hún með
þessum óvænta hætti helzta að-
dráttarafl sjónvarpsmanna og
fundarins í heild. Mátti heyra á
fréttamönnum, að þeir höfóu
gaman að þcssu litla atviki. Eng-
inn þurfti a.m.k. á meðan að
hugsa um átök Grikkja og Tyrkja
eða ástandið i Portúgal.
Sendinefnd Islands kom á fund-
inn klukkan 4.05 undir leiðsögn
lögreglumanna á mótorhjólum
eins og aðrar sendinefndir.
Fyrstur steig út úr bílnum Geir
Hallgrímsson, forsætisráðherra.
Jósef Luns gekk að honum og
bauð hann velkominn. Þá kom
Einar Agústsson, utanríkisráð-
herra, Hörður Helgason, skrif-
stofustjóri utanríkisráðuneytis-
ins, og Björn Bjarnason, deildar-
stjóri í forsætisráðuneytinu.
Sendiherra íslands hjá NATO
er Tómas Tómasson og Hannes
Hafstein sendifulltrúi og sátu
þeir báðir fundinn í dag. Bill
íslenzku sendinefndarinnar var
með íslenzka fánann eins og bilar
annarra sendinefnda voru með
þjóðfánum viðkomandi landa.
Veðrið var gott, heiðskirt og hæg-
ur andvari. Fjöldi starfsmanna
Atlantshafsbandalagsins var
saman kominn i anddyri aðal-
stöðva bandalagsins, auk mikils
Framhald á bls. 18
Fundur leiðtoga Atlantshafsrfkjanna hófst f gær f aðalstöðvum NATO f Briissel. Myndin var tekin við
setningu fundarins. AP.