Morgunblaðið - 30.05.1975, Blaðsíða 32
auglVsinkasíminn ek:
22480
ovoau\íiTaÍJií>
AUULVsINGASÍMÍNN ER:
22480
JR orgunb laöib
FÖSTUDAGUR 30. MAl 1975
V erkalýðsfory stan vir ðir
lögin að vettugi
FUNDUR starfsfólks í Aburðar-
verksmiðju rfkisins og Sements-
verksmiðju ríkisins við Artúns-
höfða, sem haldinn var í Lindar-
bæ I gærkvcldi samþykkti, að
starfsfólk vcrksmiðjanna mætti
ekki til vinnu „á mcðan
samningar hafa ekki tekizt með
eðlilegum hætti“, eins og það var
orðað í fundarsamþykkt. Fyrr
hafði miðstjórn ASt,
samningancfnd ASt ogsamninga-
nefnd starfsfólks ríkisverksmiðj-
anna þriggja fordæmt „það ein-
slaka ofbeldi, sem ríkisstjórnin
Afgreiða
bændur
sjálfir
áburðinn?
reynir að beita verkalýðshreyf-
inguna með útgáfu bráðabirgða-
laga“. Jafnframt samþykkti mið-
stjórn ASl, að lögin ættu enga
stoð í rétlarvitund fólks f verka-
lýðshreyfingunni og að þau væru
„svívirðileg árás gegn baráttuað-
ferðum alþýðusamtakanna og ber
því að ma'ta þeirri árás í sam-
ræmi við það“.
Á fundinum í Lindarbæ þar
sem mættur var 71 starfsmaður
verksmiðjanna, var ályktun mið-
stjórnar ASÍ samninganefndar
þess og samninganefndar starfs-
fólks ríkisverksmiðjanna lögð
fyrir og var samþykkt fundarins
gerð i beinu framhaldi hennar.
Stjórnendur fundarins lögðu
áherzlu á að „maður stæði með 1
manni“ og að nú reyndi á sam-
stöðu verkalýðsins. Fundinn sátu
forseti og framkvæmdastjóri
A.S.I. I gærkveldi var boðaður
fundur i Röst á Akranesi, þar sem
Verkalýðsfélag Akraness lagði
fram sams konar tillögu og lögð
var fram á Lindarbæjarfundin-
um. Skúli Þórðarson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, sem
sat fundinn í Reykjavík. sagði í
Framhald á bls. 16
Aburður afgreiddur — en aðeins í stutta stund.
„OKKUR finnst þetta afskap-
lega harðleikið og óvinsamlcgt
af hálfu launþegasamtakanna,
að slíkir hlutir séu gerðir,“
sagði Gunnar Guðbjartsson,
formaður Stéttarsambands
bænda, er Mbl. spurði hann í
gaír, hvaða augum ba;ndasam-
tökin litu á aðgerðir starfs-
manna ríkisverksmiðjanna og
þá sérstaklega Aburðarverk-
smiðjunnar. Gunnar sagði að
Stéltarsambandsstjórnin hefði
ekki sérstaklega fjallað um
þetta mál enn og því gæti
hann ekkí talað fyrir hana, en
þetta væri sín tilfinning. „Það
er harðleikið að stöðva verk-
smiðjuna á þessum tíma og
mér finnst það sérstaklega
vera gerl til þess að níðast á
okkur, þar sem vitað er, að
Framhald á bls. 16
1
Austur-þýzkur togari
með ólögleg veiðarfæri
Togarinn rannsakaður í Reykjavíkurhöfn
LANDHELGISGÆZLAN lét í
gær kanna veiðarfæri austur-'
þýzka skuttogarans Peter
Göring, sem kom til hafnar í
Reykjavík s.l. þriðjudag með
bilað spil. Reyndust veiðarfær-
in vera algjörlega ólögleg, troll-
pokinn tvöfaldur og bundinn
saman og möskvastærðin 95
millimetrar en ekki 120 milli-
metrar eins og vera á.
Togari þessi tilheyrir flota
austur-þýzkra veiðiskipa sem
hafa verið á grálúðuveiðum
undan Vestfjörðum í allt vor.
Austur-Þjóðverjar eru ekki
aðilar að Norðaustur-
Atlatnshafsfiskveiðinefndinni
og telja sig því ekki bundna af
samþykktum nefndarinnar um
veiðiútbúnað. Búnaður eins og
notaður er í togaranum Peter
Göring hleypur engum fiski í
gegn, jafnvel ekki þeim
smæsta.
Það voru starfsmenn Land-
helgisgæzlunnar og lögreglu-
menn sem rannsökuðu veiðar-
færi togarans. Munu yfirvöld fá
skýrslu um málið. Togarinn var
enn i höfn þegar Mbl. spurðist
fyrir um það í gærkvöldi.
45 starfsmenn komu til starfa
í Áburðarverksmiðju
— Aburður aðeins afgreiddur stutta stund
ENGIN verksmiðjanna þriggja,
Aburðarvcrksmiðju ríkisins,
Sementsverksmiðju ríkisins og
Kísiliðjunnar h.f„ fór í gang í
gær, þótt hráðabirgðalög um bann
við vcrkföllum í þeim hefðu verið
sett. Þó mun hluti Aburðarverk-
smiðjunnar hafa vcrið i gangi til
þess að framleiða súrefni fyrir
sjúkrahúsin, en sú starfsemi fór
fram samkvæmt undanþágu
verkalýðsfélaganna. Er þetta í
annað sinn, sem verksmiðjan er
sett f gang af þessu tilcfni síðan
verkfall hófst 12. maí síðast-
liðinn.
Áburðarverksmiðja ríkisins
auglýsti í hádegisútvarpi í gær að
óskað væri eftir því, að starfsfólk
hennar kæmi þegar til vinnu og
að bílar verksmiðjunnar myndu
aka um borgina eftir eðlilegum
leiðum á ákveðnum tíma. Um 45
starfsmenn brugðust við þessu
kalli og komu til vinnu. Var
áburður afgreiddur stuttan tíma.
Upp úr hádeginu komu einnig
nokkrir starfsmenn Sementsverk-
smiðjunnar á Akranesi til vinnu,
en trúnaðarmenn Verkalýðs-
félags Akraness voru þá fyrir á
staðnum og báðu mennina um að
hefja ekki vinnu. Þó mun kísil-
náma Sementsverksmiðjunnar í
Hvalfirði hafa farið í gang, en
aðeins um-skamma stund. Þegar
þetta gerðist hafði fundurinn í
Lindarbæ ekki farið fram, en
hann hófst klukkan 17 og stóð til
klukkan 19.
Verksmiðja Kisiliðjunnar h.f.
við Mývatn komst ekki í gang þar
gær
eð aðeins einn starfsmaður mun
hafa mætt til vinnu i gær.
Allt að 70%
hækkun húf-
trygginga
IIEILBRIGÐIS — og tryggingar-
ráðuneytið hefur samþykkt allt
að 40% hækkun á grunniðgjaldi
húftrygginga bifreiðatrygginga-
félaganna. Jafnframt hefur ráðu-
neytið ákveðið að afsláttur frá
Framhald á bls. 18