Morgunblaðið - 30.05.1975, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAl 1975
ef þig
Nantar bíl
Til að komast uppi sveit.út á land
eða í hinn enda
borgarinnar.þá hringdu i okkur
ál
a.\ ftátn
LOFTLEIDIR BILALEIGA
Stærsta bilaleiga landsins REN1TAL
«2*21190
BILALEIGAN
MIÐBORG HF.
sími 19492
Nýir Datsun-bílar.
FERÐABÍLAR h.f.
Bílaleiga, simi 81260.
Fólksbílar — stationbílar
— sendibílar — hópferðabílar.
Alyktanir listamanna:
Fagna samningi
borgar og Leik-
félags Reykjavíkur
MBL. HAFA borist eftirfarandi
ályktanir frá Bandalagi fsl. lista-
manna.
Ályktun B.I.L. vegna samninga
um byggingu Borgarleikhúss.
Stjórn Bandalags íslenskra
listamanna fagnar samningum
sem gerðir hafa verið milli
Reykjavíkurborgar og Leikfélags
Reykjavíkur um byggingu Borg-
arleikhúss, og telur að rétt stefna
ríki þar í samskiptum borgaryfir-
valda og listamanna, þar sem
hinu starfandi fólki á þessu iist-
sviði er treyst til að stýra best
sfnum eigin málefnum til al-
manna heilla. Telur stjórn Banda-
lags íslenskra listamanna að far-
sælt samstarf þessara aðila und-
anfarið á téðum grundvelli hafi
sannað að með þeim hætti er
vænst að starfa og hafi báðir
aðilar sóma af; og sendir árnaðar-
kveðjur til þessara aðila með ósk
um gifturíkt framhald, og býður
fram sinn stuðning við fyrirhug-
aða byggingu Borgarleikhúss.
Á'yktun B.I.L. vegna lögbanns.
Stjórn Bandalags íslenskra
listamanna fordæmir á fundi sín-
um 14. maí 1975 lögbann á skáld-
sögu Indriða G. Þorsteinssonar
„Þjófur í paradís,“ og varar við
hvers kyns takmörkunum á rit-
frelsi eða skoðanafrelsi; og telur
að atlögur gegn tjáningarfrelsi
hljóti að brjóta í bága við
stjórnarskrá hins íslenska ríkis.
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Útvarp Reykjavík
MORGUNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbi.), 9.00 og
10.00.
Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigríður Eyþórsdóttir
les framhald sögunnar um
„Kára litla í sveit“ eftir
Stefán Júlfusson (10).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Spjallað við bændur kl.
10.05.
Morgunpopp kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Enska kammersveitin leikur
„Indíánadrottninguna“ leik-
hústónlist eftir Henry
Purccll / Hans-Ulrich
Niggerman og kammer-
hljómsveit leika Flautu-
konsert f G-dúr eftir Johann
Joachim Quants / Alicia de
Larrocha leikur á pfanó
Konsert f F-dúr f ftölskum
stfl eftir Johann Sebastian
Bach.
Alaine Larde, Yves Coueffe
og Kammersveit Parísar
leika Sinfónfu nr. 2 í D-dúr
fyrir flautu, trompet og
strengjasveit eftir
Alessandro Scarlatti / Annia
Jodry og kammersveitin f
Fontainbleau leika Fiðlu-
konsert í F-dúr op. 7 nr. 4
eftir Jean-Marie Leclair.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
SlÐDEGIÐ
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „A vfga-
slóð“ eftir James Hilton.
Axel Thorsteinson les þýð-
ingu sfna (9).
15.00 Miðdegistónleikar
Terézia Csajbók syngur ung-
versk þjóðlög f útsetningu
Bartóks. Erzsébet Tusa
leikur á pfanó.
Guy Fallot og Karl Engel
leika Sónötu f A-dúr fyrir
selló og pfanó eftir César
Franck.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn
17.30 „Bréfið frá Peking" eft-
ir Pearl S. Buck
Málmfrfður Sigurðardóttir
les þýðingu sfna (4).
18.00 Síðdegissöngvar. Til-
kynningar.
FÖSTUDAGUR 21.05 Kastljós
30. maí Fréttaskýringaþáttur
20.00 Fréttir og veður Umsjónarmaður Ölafur
20.30 Dagskrá og auglýs- Ragnarsson.
ingar 22.00 Töframaðurinn
20.35 Undur Eþfúpíu Bandarfskur sakamála-
Breskur fræðsiumynda- myndaflokkur.
flokkur. 5. þáttur. Háslétt- Eiturörin
an. Þýðandí Kristmann Eiðs-
Þýðandi og þulur Öskar son.
Ingimarsson. 22.50 Dagskrárlok
-
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
I t'MI'll'———
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Húsnæðis- og byggingar-
mál
Ölafur Jensson sér um
þáttinn.
20.00 Sfðustu aðaltónleikar
Sinfónfuhljómsveitar ts-
lands á þessu starfsári,
haldnir f Háskólabfói kvöldið
áður.
Stjórnandi: Karsten
Andersen.
Einleikari á fiðlu: Aaron
Rosand frá Bandarfkjunum.
a. „Harðangurskviða" eftir
Geirr Tveitt.
b. Sinfónfa nr. 5 eftir Carl
Nielsen.
c. Fiðlukonsert í D-dúr op. 77
eftir Johannes Brahms.
21.30 (Jtvarpssagan: „Móðir-
in“ eftir Maxfm Gorki
Sigurður Skúlason leikari les
(5).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Iþróttir
Umsjón: Jón Asgeirsson.
22.40 Afangar
Tónlistarþáttur f umsjá As-
mundar Jónssonar og Guðna
Rúnars Agnarssonar.
23.30 Fréttir f stuttu máli.
Dagskrárlok.
Síðasti Kaslljðs-þálturinn á
vetrinum verður i sjónvarpinu í
kvöld kl. 21.05. Hinn fréttaskýr-
ingaþátturinn, Heimshorn, er
þegar hættur. I vetur hafa
fréttamennirnir Svala Thorlac-
ius og Ólafur Ragnarsson haft
umsjón með öörum Kastljós-
þættinum og með þeim verið
Einar Karl Haraldsson, Helgi
Jónsson, Aslaug Ragnars og
Elías Snæland Jönsson, ýmist
öll eða á víxl.
Hinu liöinu stjórnuöu frétta-
mennirnir Eiður Guönason og
Guðjón Einarsson og með þeim
hafa verið Vilmundur Gylfa-
son, Valdimar Jóhannesson og
Þórunn Klemenzdóttir. Hvað
verður næsta vetur er ekki vit-
að, en æöi tafsamt hefur þaö
víst reynst í vinnubrögðum að
vinna fréttaþætti með svo
mörgum.
I kvöld stýrir Ölafur Ragnars-
son þætlinum og tekur sjálfur
fyrir mál, sem er eiginlega
tvíþætt. Annars vegar spinnst
Ólafur Ragnarsson stýrir Kastljósi í kvöld.
ER RB 5IR rP
Einn af kastljóssþáttunum ( vetur undirbúinn
það út af ummælum Kristjáns
Péturssonar i siðasta þætti, um
að við rannsókn hafi komið
fram að menn hafi selt fíkni- og
ávanalyf, sem þeir fengu út á
lyfseðla tveggja lækna og lækn-
arnir hafi vitað um það. Hins
vegar er gamalt mál af svipuð-
um toga, sem kom fram vegna
ummæla Kristjáns í þátíma
Kastljósi um að læknar létu
sjúklinga fá óspart slfk lyf.
Læknafélagið krafði þá land-
lækni um rannsókn, sem fór
fram, en ekki þótti ástæða til að
gera meira i málinu, og um
þetta spyr Ólafur nú. En inn í
þetta blandast það, að ekki virð-
ist auðveldlegt að fá plögg sem
nauðsynleg eru vegna slíkra
rannsókna, vegna trúnaðar-
skyldu lækna við sjúklinga. Nú
er málið semsagt aftur komið á
dagskrá vegna ummæla í sið-
asta þætti um læknana tvo.
Ræðir Ólafur Ragnarsson við
William Möller, fulltrúa lög-
reglustjóra, Ásgeir Friðjóns-
son, dómara í ávana- og fíkni-
efnamálum, Almar Grímsson,
deildarstjóra hjá lyfjaeftir-
liti heilbrigðisráðuneytis-
ins, Snorra Pál Snorrason,
formann Læknafélags Islands
og væntanlega Kristján Péturs-
son, sem m.a. verður þá spurð-
ur um hvort hann sé ánægður
með niðurstöðu rannsóknarinn-
ar á gamla málinu.
Þá hefur Áslaug Ragnars
fengið Jónas Haralz hagfræð-
ing til að koma í þáttinn og
ræða ástandið i efnahagsmál-
um, blikur þær sem eru á lofti
o.fl. Þeir hagfræðingar, sem
eru að fást við þessi mál, hafa
sent mikið af skýrslum frá sér,
sem almenningur kannski áttar
sig ekki á, en Jónas Haralz, sem
ekki á þar beinan hlut að máli,
mun væntanlega geta skýrt
þetta meira við hæfi almenn-
ings.
I gærmorgun voru svo sett
bráðabirgðalög vegna verkfalls-
ins i ríkisverksmiðjunum, og
Kastljósmenn brugðu skjótt við
og ætla Ólafur Ragnarsson og
Einar Karl Haraldsson að taka
þau mál fyrir. Við hvern þeir
mundu ræða var ekki ljóst, og
færi eftir því hvernig mál þró-
uðust fram eftir degi í dag.