Morgunblaðið - 30.05.1975, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. MAl 1975
23
glæddist með nýrri tækni 1960
þar til algerlega tók fyrir veiðina
norðanlands og austan 1968 og
síðan. Gekk þá á ýmsu fyrir þeim,
sem störfuðu við síldarútveg.
Fékk Gísli að reyna það að „úti
er um vinskapinn, þegar ölið er af
könnunni".
En það verður aldrei frá Gísla
tekið hið góða hlutskipti að vera
mikilvirkur þátttakandi í því að
færa sjávarútveg landsins í betra
horf og arðbærara með fullnýt-
ingu aflans, eftir því sem við varð
komið.
Tvö grísk fyrirtæki, Mamais &
Sons og Adamis & Sons, bæði í
Pireus við Aþenu, sem höfðu um
áratuga skeið keypt saltfisk af
SlF, fóru fram á það við Kristján
heitinn Einarsson árið 1957/58,
að hann benti þeim á umboðs-
mann hér á landi til þess að
annast verkun og kaup á hrogn-
um til Grikklands. Mælti Kristján
framkv.stj. með Gísla Vilhjálms-
syni til þessa starfa. Er það
skemmst af að segja að úr þessum
umboðsstörfum Gfsla varð mikii
og hagstæð sala á verkuðum
hrognum til Grikklands,. Áður
höfðu þessi fyrirtæki keypt rnikið
magn af fslenzkum hrognum, sem
tilreidd höfðu verið í Svíþjóð og
seld þaðan með uppsprengdu
verði til Grikklands. Þessu um-
boði hélt Gísli til dauðadags.
XXX
Gfsli Vilhjálmsson var kominn
af merkisfólki. I föðurætt sína var
hann fimmti maður frá Guðrúnu
Magnúsdóttur alsystur Skúla
Magnússonar Iandfógeta. Hún var
gift séra Katli Jónssyni í Húsavík.
1. Sonur hennar var Jón Ketils-
son umboðsmaður Skógastrandar-
jarða, bóndi að Rifgirðingum og
víðar, bróðir Magnúsar Ketilsson-
ar sýslumanns og fræðimanns, er
gaf út fyrsta tímarit, er út kom
hér á landi „Mánedstidende" árin
1773—1776. 2. Hans dóttir var
Oddný Jónsdóttir gift séra
Jóhanni Tómassyni, að Hesti í
Lundarreykjadal. 3. Ragnheiður
(eldri) Jóhannsdóttir d. 1889, 69
ára. Gift Jóni Runólfssyni hrepp-
stjóra að Vatnshömrum i Andakíl
d. 1914 84 ára. 4. Vilhjálmur Jóns-
son, Þinghól, Akranesi, kvæntur
Eyrúnu Guðmundsdóttur, f. 1876,
d. 1962. Foreldrar hennar voru
Guðmundur Ingimundarson og
Guðbjörg Guðmundsdóttir, er
lengi bjuggu að Ölvaldsstöðum í
Borgarhreppi á Mýrum. 5. Gfsli
Vilhjálmsson, Akranesi, umboðs-
maður, f. 26. janúar 1899, d. 10.
maí 1975.
Gísli heitinn var í nánum ættar-
tengslum og venzla við margt
þjóðkunnugt fólk. Séra Jóhann
Tómasson, langafi Gísla, var tví-
kvæntur og varð mjög kynsæll.
Meðal afkomenda hans voru Val-
gerður, kona Guðmundar bæjar-
fulltrúa og útgerðarmanns að
Hóli í Reykjavík, en margir
afkomendur þeirra eru þjóð-
kunnugt fólk, Jónas söðlasmiður
að Melaleiti og séra Jóhannes L.
Lynge Jóhannsson að Kvenna-
brekku í Dölum.
Meðal barna Jóhannesar L. L.
Jóhannssonar voru: Jakob Smári,
skáld, Yngvi, bókari, skáldmæltui;
kvæntur Helgu Jónsdóttur Berg-
manns skálds, Guðný, kona Gils
Guðmundssonar alþingismanns,
og Ragnheiður, kona Odds Ólafs-
sonar alþingismanns og yfirlækn-
is að Reykjalundi.
Þorsteinn Jónsson að Grund á
Akranesi var föðurbróðir Gísla.
Meðal barna hans var Emelía
heitin, kona Þórðar heitins út-
gerðarmanns á Akranesi, Ás-
mundssonar. Meðal barna þeirra
hjóna eru Ragnheiður, kona Jóns
alþingismanns Árnasonar og
Júlíus Þórðarson, útgerðarmaður.
Á Akranesi bjó Gísli með Hildi
Jóhannesdóttur frá Norðfirði.
Var Gísli, vélamaður á m/b Svani
frá Hofsósi, elztur barna þeirra.
Báturinn fórst með allri áhöfn í
vonskuveðri hinn 9. nóv. 1959.
Var Gísli yngri efnismaður mikill,
fæddur á Norðfirði hinn 30. okt.
1928 og því tuttugu og eins árs er
hann fórst. Barn þeirra Hildar og
Gísla á lífi er Eyrún Gísladóttir, f.
16. jan. 1931, gift Árna presti á
Blönduósi, Sigurðssyni, sýslu-
manns heitins Sigurðssonar á
Sauðárkróki.
Gísli kvæntist árið 1943 norskri
konu, H. Karen Haug. Höfðu þau
áður átt barn, Erlu Elfsabetu
Gísladóttur, f. 12. júní 1933, er
giftist Stefáni lögfræðingi Sig-
urðssyni 6. júlí 1952, bróður Árna
prests á Blönduósi. Annað barn
þeirra Gfsla og Karenar er Anna
Jóna, f. 12. des. 1945, gift Jóni
Þorgrfmssyni, bifvélavirkja á
Akranesi. Lifir frú Karen mann
sinn. Hún hefir hin siðari ár rekið
verzlun á Akranesi.
Næst elzt barna Gfsla er Úlf-
Ijótur endurskoðandi f. 26. júní
1930. Þann dag hófst Al-
þingishátíðin. Var móðir
hans Hólmfriður Jóhannes-
dóttir, myndar- og dugnað-
arkona, d. 21. júní 1968. Ulfljót-
ur útskrifaðist úr Verzlunarskóla
Islands vorið 1953. Starfaði hann
síðan nokkur ár með föður sínum.
Hefur hann tekið við störfum
hans. Rekur hann jafnframt bók-
haldsskrifstofu í Reykjavík. Kona
Úlfljóts er Kristín Jörgensen,
dóttir Ottós Jörgensens, fyrrum
póst- og símstjóra á Siglufirði.
Gísli var um skeið búsettur á
Sauðárkrók. Rak hann þar í nokk-
ur ár sildarsöltunarstöð í félagi
við aðra og víðar.
XXX
Svo sem fyrr var sagt var Gísli
mikill íþróttamaður um tvítugs-
aldur, þrekinn og vel á sig
kominn. Hann var meðalmaður á
hæð. Á hann sótti offita með
aldrinum, en ekki lét hann aftra
sér frá erfiðum ferðalögum inn-
anlands sem utan. Laxveiðimaður
var hann með afbrigðum góður og
stundaði þá íþrótt á sl. sumri af
sama kappi eins og jafnan áður.
Hann var kátur í góðra vina hópi.
Ekki verður saga sjávarútvegs-
ins á Islandi rakin svo rétt sé, frá
árinu 1923 til æviloka Gísla, að
ekki sé getið hins mikilvæga
þáttar, sem Gísli Vilhjálmsson frá
Þinghóli hefur átt i þróun hans.
Blessuð sé minning hins mæta
manns.
Sveinn Benediktsson.
Kodak I Kodak £ Kodak I Kodak I Kodak
KODflK
Litmqndir
á(3^dögum
HANS PETERSEN H/f.
BANKASTR. 4 SÍMI 20 313
GLÆSIBÆ SÍMI 82590
BMH| ■■■■ ■■■■■■■
Kodak 1 Kodak I Kodak S Kodak 8 Kodak
NORÐURLAND
NÚ VERÐUR OFSA
STUÐ FYRIR NORÐAN
HLJÓMSVEITIN LAUFIÐ
SPILAR Á FULLU í
ALLANUM, AKUREYRI
FÖSTUDAGINN 30 MAÍ FRÁ 9—1 OG ENNÞÁ HÆRRA í
HÚNAVERI
LAUGARDAGINN 31. MAÍ KL. 9—2.
MÆTUM FULL AF FJÖRI LAUFIÐ EIKI RÓT
AKUREYRINGAR EYFIRÐINGAR-döc
Takiö í ykkur rögg, komiö og hlustið á
DÖGG
FREYVANGI
Laugardagskvöld
LONI
Föstudagskvöld
Tvímælalaust eltt
þaö bezta er
poppheimurinn
státar af
í dag.
Sætaferðir frá Ferðaskrifstofu
Akureyrar frá kl. 21.30 — 23.00.
Munið nafnskírteinin