Morgunblaðið - 24.06.1975, Blaðsíða 1
36 SIÐUR
139. tbl. 62. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 24. JUNÍ 1975
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Portúgal:
„Jafnaðarstefna já,
— einræði nei”
ÖTTANN má greinilega lesa flr svip kaþólikka, sem herinn hefur bjargað úr umsátri vinstrisinna i
Lissabon. Kaþólikkarnir héldu I sfðustu viku fund tii að mótmæla auknum áhrifum kommúnista f
Portúgal. Urðu þeir fyrir aðkasti f jölmenns hóps kommúnista og urðu að hörfa undan grjótkasti inn f
bústað erkibiskups. Þar létu þeir fyrir berast eina nótt. Um morguninn kom herinn á vettvang og
bjargaði fólkinu undan öskrum og ógnunum kommúnista, og ók þvf til sfns heima.
Geir Hallgrímsson rœddi við Wilson í gœr:
Itrekaði áform um út-
1AA Bretar óska
tærsiu 1 - íUU miiur eftir viörœðum
Lissabon 23. júní — Reuter.
UM ÞAÐ bii 30.000 jafnaðarmenn
gengu um götur Lissabon á mánu-
dagskvöld og fögnuðu afneitun
herstjórnar Portúgal á alræði ör-
eiganna. Jafnaðarmaðurinn
Francisco Salgado Zehna, sem er
dómsmálaráðherra, gekk í broddi
fylkingar og hrópaði „jafnaðar-
stefna — já, einræði — nei“. Að
baki hans hrópaði fjöldinn ýmis
slagorð, þar á meðal „upplausn-
inni er lokið, þjóðin hefur sigr-
að“, og steytti um leið hnefann.
Jafnaðarmenn voru að fagna
tilkynningu, sem herráð g^f út sl.
laugardag, þar sem hafnað var
hugmyndum um alræði öreiganna
og lýst stuðningi við fjölflokka
lýðræði. Gangan i kvijld var að
hluta herbragð til að reyna að
sýna að Jafnaðarmannaflokkur-
inn 'væri sá flokkur, sem næst
stæði hreyfingu hersins, sem er
áhrifamesta stjórnmálaaflið í
Portúgal. Átti gangan að enda við
höll Costa Gomes forseta, en þar
eru einnig til húsa aðalstöðvar
herráðsins. Á leiðinni fór gangan
fram hjá þinghúsinu, en þar á
Jafnaðarmannaflokkurinn flesta
fulltrúa.
I París hefur komið deilna á
milli jafnaðarmanna og komm-
únista vegna þess að ritstjórn
Republica, sem jafnaðarmenn
hafa gefið út í Portúgal og sem nú
hefur verið lagt undir stjórn
kommúniskra prentara, hefur
fengið inni í litlu vinstrisinnuðu
Parlsarblaði, Le Quotidien de
Paris. Fylgdi blaðinu I dag fjór-
blöðungur undir nafni Republica,
sem er það fyrsta, sem blaðamenn
þess blaðs hafa getað skrifað síð-
Ali vill hœtta
Kuala Lumpur 23. júní — AP.
MUHAMED AIi, núverandi
heimsmeistari i þungavigt f
hnefaleikum, sagði á mánudag
að hann ætlaði að hætta hnefa-
leikum eftir viðureign sfna við
Bretann Joe Bugner. Fer
keppni þeirra fram i Kuala
Lumpur 1. júlí. AIi segist vera
99% ákveðinn f að hætta, en að
lokaákvörðunin verði þó ekki
tekin fyrr en hann gengur f
hringinn á þriðjudag f næstu
viku. Segist Ali ætla að helga
sig málefnum Múhameðs-
trúarmanna og fjölskyldu
sinni, eftir að hafa varið
heimsmeistaratitil sinn. „Mér
hefur hlotnazt allur sá heiður,
sem ég get fengið,“ sagði Ali,
„nú ætla ég að snúa mér að
fjölskyldu minni, sem ég varla
sé.“
London 23. júnl — Reuter.
LEIÐTOGAR hinna valdamiklu
verkalýðssamtaka f Bretlandi og
Verkamannaflokksins, sem nú er
f stjórn, sameinuðust á mánudag f
að hvetja verkamenn til að
„draga verulega úr kaupkröfum“
sfnum. Kom hvatningin fram f
tilkynningu frá samstarfsnefnd
brezka alþýðusambandsins
an útgáfa þess var stöðvuð fyrir
mánuði síðan vegna deilu við
prentara.
Þessi útgáfa var gagnrýnd af
blaði kommúnista L’humanite, og
leiðtoga franskra kommúnista,
George Marhais. Var þvi haldið
fram, að sagt væri frá fölsuðum
skjölum, sem beint væri gegn
frönskum kommúnistum.
Blaðamenn Republica reyndu
enn að komast inn á ritstjórnar-
skrifstofur blaðsins, en kommún-
ískir prentarar voru þar fyrir
eins og áður og héldu blaðamönn-
um I fjarlægð með hjálp öryggis-
varða.
Carvalho herforingi fók í dag
við af Francisco da Costa Gomes
sem yfirmaður öryggissveitanna.
Hann hafði áður sem næst æðsti
maður I raun haft alla stjórn
sveitanna I sínum höndum. Litið
Framhald á bls. 35
GEIR Hallgrímsson for-
sætisráðherra, átti í
gær fund með Harold
Wilson forsætisráðherra
Bretlands, Callaghan utan-
ríkisráðherra og Bishop
aðstoðarfiskimálaráðherra
f Downing Street 10. Niels
P. Sigurðsson sendiherra f
London sat fundinn með
forsætisráðherra. Geir
Hallgrfmsson hafði stutta
viðdvöl f London á heim-
leið frá fundi samstarfs-
ráðherra Norðurlanda f
Stokkhólmi. Forsætisráð-
herra kemur heim f dag.
1 viðtali við Morgunblaðið f
gær sagði Geir Hallgrímsson, að
hér hefði verið um kurteisis-
heimsókn að ræða, en auðvitað
hefðu verið rædd máfefni, sem
snertu bæði föndin. Við Itrekuð-
um enn á ný þá yfirlýsingu rfkis-
(TUC) og Verkamannaflokksins
eftir fund, þar sem meðal
annarra voru Harold Wilson for-
sætisráðherra og Jack Jones leið-
togi stærsta verkalýðsfélags f
Bretlandi, félags flutninga- og al-
mennra verkamanna (TGWU).
En þrátt fyrir þetta samkomu-
lag féllu verðbréf enn á brezka
verðbréfamarkaðnum, en álitið er
Geir Hallgrfmsson
stjórnarinnar að færa fiskveiði-
lögsöguna út f 200 mílur, sagði
forsætisráðherra, og skýrðum
ástæður okkar f þvf sambandi.
Bretar iögðu áherzlu á, að núgild-
andi samningur lslands og Bret-
lands rennur út 13. nóvember n.k.
að það stafi aðallega af ótta við
verðstöðvun.
Jack Jones sagði að það væri
nauðsynlegt að koma á verðstöðv-
un til að tryggja samvinnu verka-
lýðsfélaga. Væri það forsenda
þess að þau stilltu kaupkröfum
sfnum I hóf. Lagði Jones til að
kauphækkanir yrðu föst upphæð,
Framhald á bls. 35
Harold Wilson
og óskuðu eftir viðræðum við
íslenzk stjórnvöld þess vegna. Á
þessu stigi hef ég ekkert frekar
um málið að segja, áður en ég hef
skýrt ríkisstjórninni og land-
helgisnefnd frá viðræðunum, en
ég vil taka fram að þessi fundur
var vinsamlegur og hinn gagnleg-
asti, sagði Geir Hallgrfmsson.
Forsætisráðuneytið gaf siðdegis
I gær út svo hljóðandi fréttatil-
kynningu:
„Geir Hallgrímsson forsætisráð-
herra hafði stutta viðdvöl I Lond-
on á heimleið af fundi samstarfs-
ráðherra Norðurlanda I Stokk-
hólmi.
I dag mánudaginn 23. júni, átti
forsætisráðherra ásamt Niels P.
Sigurðssyni sendiherra viðræður
við Harold Wilson forsætisráð-
herra Bretlands, James Callaghan
utanrikisráðherra og Edward
Bishop aðstoðarsjávarútvegsráð-
herra að Downing Street 10.
Skipt var á skoðunum um
þróun hafréttarmála og samskipti
landanna almennt".
Þá fékk Morgunblaðið eftirfar-
andi fréttaskeyti frá AP frétta-
stofunni:
Forsætisráðherra Islands, Geir
Hallgrímsson, tilkynnti á mánu-
dag forystumönnum Bretlands
um fyrirætlanir íslendinga að
færa út fiskveiðilögsögu sína úr
50 milum I 200 á seinni hluta
þessa árs.
Geir skýrði frá þessum fyrirætl-
unum stjórnar sinnar á 45
minútna löngum fundi með for-
sætisráðherra Bretlands, Harold
Wilson, James Callaghan utan-
rikisráðherra og Edward Bishop
aðstoð ars j áv arútv egsr áð herra.
Fátt hefur frétzt um gang við-
ræðnanna, nema það að Bretarnir
undirstrikuðu, að ráðagerðir Is-
lendinga myndu mæta mun meiri
skilningi ef þær yrðu gerðar i
samhengi við samþykktir haf-
Framhald á bls. 35
Aftaka — nema
Callaghan komi
Nairobi 23. júni — Reuter
FORSETI Uganda, Idi Amin, hef-
ur virt að vettugi beiðni Elfsabet
ar Bretadrottningar og fyrirskip-
að að brezki kennarinn Denis
Hills verði tekinn af lffi 4. júlf,
nema James Caflaghan utanrfkis-
ráðherra Bretlands komi til
Uganda.
Þessi ákvörðun Amins, sem
kom mjög á óvart, var tilkynnt
tveim sendimönnum drottningar,
Chandos Blair, sem áður var yfir-
maður Amins i her Breta i
Uganda, og Iain Grahame majór.
Útvarpið i Uganda segir að þá
hafi Blair hótað Amin „notkun
brezkra herja i Kenya gegn
Framhald á bls. 35
Leiðtogar fallast á hóf-
semi í kaupkröfum