Morgunblaðið - 24.06.1975, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 24.06.1975, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚNI 1975 75 ÞÚS. KR. LEIGA Á KLIJKKIISTUND — Við munum berjast fyrir afnátni á áeðlilega hárri húsaleigu og skattgjöidum sem HSl og önnur sérsambönd þurfa að greiða á landsleikjum, og skai það itrekað, að ailur tilkostnaður við heimsókn- ir eriendra handknattleiksliða hefur meira en tvöfaldazt á s.l. ári, og er nú orðið útilokað að taka heim lið, nema með stórum halla, sagði Sigurður Jónsson, formaður HSl, er hann flutti skýrslu sfna á ársþingi HSI um helgina. — Á það skal bent, sagði Sigurður, að fyrir þá 9 landsleiki sem karialandsliðið iék hér heima f vetur þurfti Handknattleikssamband- ið að greiða 2 milljónir króna f húsaleigu og skattgjöid fyrir samtals um 27 klukkustunda notkun á Iþróttahöliinni, eða að jafnaði um 75.000 krónur á hverja klukkustund. Ef ekki verður þarna staldrað við og sýnd meiri sanngirni, munu erlend samskipti stórminnka og væntanlega leggjast niður f náinni framtfð, og væri það óbætanlegt tjón fyrir íþróttir á Islandi, sagði Sigurður. Sveinn Björnsson, varaforseti ISl, sem sat þingið, svaraði þessum orðum Sigurðar og benti hann m.a. á að leiga af Iþróttahöllinni hefði verið verulega lækkuð af hálfu Reykjavíkurborgar á undan- förnum árum, jafnframt því, sem leigusali hefði tekið á sig ýmsan kostnað sem leigutaka hefði áður verið gert að greiða. Hitt væri auðvitað augljós staðreynd að allur tilkostnaður við að taka á móti erlendum liðum hefði stórhækkað á undanförnum árum, og kvað hann sjálfsagt að þessi mál yrðu nú tekin til endurskoðunar, — þá ekki einungis húsaleiga af Iþróttahöllinni f Laugardal, heldur og leiga af öðrum fþróttamannvirkjum Reykjavíkurborgar. Svo vikið sé aftur að húsaleigu sem HSl greiddi fyrir landsleiki þá nam hún samtalsl.450.653,00 kr. á árinu, og eru þá kvennaleikirnir meðtaldir, en á öllum þeim varð verulegt tap. Mest þurfti HSl að greiða vegna heimsóknar og landsleikja Júgóslava, eða kr. 373.303,00 fyrir tvo landsleiki. Skattgjald HSI til IBR nam svo hvorki meira né minna en 595.650,00 kr. af landsleikjum vetrarins. I ársskýrslu HSl og reikningum kemur svo fram að aðsókn að landsleikjum hefur verið gffurlea mismunandi á árinu. Að tveimur landsleikjum var ekki seldur inngangur en það voru leikir Islands og Bandarfkjanna ( kvennaflokki, sem fram fóru f Hafnarfirði. Aðeins 135 keyptu sig inn á tvo aðra leiki milli þessara liða, 395 komu til þess að sjá kvennalið Islands keppa við Holland, 739 áhorfendur keyptu sig inn á Norðurlandamót stúlkna, en leikir fslenzka karla- liðsins voru yfirleitt mjög sæmilega vel sóttir. 1.191 horfði á lands- leik við Færeyinga, 5.720 á landsleiki við Austurþjóðverja, 4.740 á landsleiki við Júgóslavi, 3.980 á landsleiki við Tékka og, 3,824 á landsleiki við Dani. Erna meistari 1 fímmtarþraut Hin bráðefnilega Erna Guðmunds- dóttir úr KR varð íslandsmeistari i fimmtarþraut kvenna og náði ágæt- um árangri, þrátt fyrir hin óhag- stæðu skilyrði á Laugardalsvellinum á sunnudaginn. Hlaut Erna 3403 stig, og er varla vafamál að hún mun f sumar gera harða atlogu að fslands- metinu I þessari grein. Aðeins með þvf að bæta sig nokkuð I sinni lök- ustu grein, kúluvarpinu, ætti hún að geta bætt við sig fjölda stiga. Keppnin I fimmtarþrautinni var annars hin skemmtilegasta milli Ernu og Ásu Halldórsdóttur úr Ár manni. Hafði Ása betur fyrir slðustu grein þrautarinnar, 200 metra hlaup ið, en þar hafði Erna hins vegar þá yfirburði sem þurfti til sigurs f þraut- inni. Árangur Ernu I einstökum greinum varð þessi: 100 metra grindahlaup 14,8 sek., kúlu- varp 7,94 metrar, hástökk 1,45 metrar, iang- stökk 5,32 metrar og 200 metra hlaup 25,9 sek. Samtals 3403 stig. Arangur Ásu I einstökum greinum: 100 metra grindahlaup 16.8 sek., kúluvarp 10,73 metr., hástökk 1,51 metr., langstökk 5,21 metr. og 200 metra hlaup 27,4 sek. S:mtals 3329 stig. Þriðja í fimmtarþrautinni varð Björk Ei- rlksdóttir, IR sem hlaut 2,488 stig. Afrek hennar I einstökum greinum: 100 metra grindahlaup 18,0 sek., kúluvarp 7,01 metr., hástökk 1,48 metr., langstökk 4,30 metrar og 200 metra hlaup 30,8 sek. 17 Yfirlitsmynd af fulltrúum á HSl-þinginu, það er Sveinn Ragnarsson sem er f ræðustól. Signrður Jónsson endjir- kjörinn íoraiaðnr HSI Tveir nýir menn í stjórnina SIGUROUR Jónsson var endurkjör- inn formaður HSf á ársþingi sam- bandsins sem haldið var f Félags- heimilinu á Seltjarnarnesi um helg- ina. Var Sigurður sjálfkjörinn. Hins vegar komu tveir nýir menn inn f stjórn HSf að þessu sinni f stað þeirra Jóns Erlendssonar og Stefáns Ágústssonar, sem ekki gáfu kost á sér til endurkjörs. Voru þeir Júlfus Hafstein og Birgir Björnsson einir f framboði og þvf sjálfkjörnir. Birgir Lúðvfksson átti að ganga úr stjórn- inni, en var endurkjörinn til tveggja ára. Er þvf stjórn HSf þannig skipuð: Sigurður Jónsson, formaður, Jóhann Einvarðsson, Bergur Guðnason, Jón Magnússon, Júlfus Hafstein, Birgir Björnsson. Kjörnir voru þrlr I varastjórn og komu þar fram fimm framboð: Hákon Bjarnason, Svana Jörgensdóttir, Her- mann Þórðarson, Ólafur A. Jónsson og Árni Júllusson. Hlaut Hákon 55 at- kvæði, Svana 51 atkvæði. Ólafur 38 atkvæði, Árni 22 atkvæði og Hermann 20 atkvæði. Mun þetta vera I fyrsta skiptið I sögu HSf sem kona er kjörin I varastjórn sambandsins og réyndar er fremur fátltt að konur gegni stjórnar- og trúnaðarstörfum innan Iþróttahreyf- ingarinnar. HSÍ-þingið um helgina var annars fremur átakalítið, og engin mál komu þar fram sem verulegur ágreiningur varð um. Segja má, að breyting á aldursflokkafyrirkomulagi og dómara- mál hafi verið aðalmál þingsins, en I báðum tilfellum var um allviðamikla málaflokka að ræða. Var samþykkt að aldursflokkaskipting yrði framvegis sem hér segir: KONUR: 1 aldursflokkur, 1 7 ára og eldri; 2. aldursflokkur 14—16 ára og þriðji aldursflokkur 1 3 ára og yngri. KARLAR: 1. aldursflokkur 1 9 ára og eldri, 2. aldursflokkur 1 7 og 1 8 ára, 3. aldursflokkur 1 5 og 16 ára, 4. aldurs- flokkur 1 3 og 14 ára og 5 aldursflokk- ur 1 2 ára og yngri. Viðamiklar breytingar voru ákveðnar á dómgæzlumálum, en lagðar voru fram itarlegar tillögur frá dómaranefnd HSÍ, sem Jón Erlendsson veitti for- stöðu, þar sem fjallað var um dómara- málin, og hvernig unnt yrði að koma þeim I betra horf. M.þ sem hinar nýju reglur kveða á um, er að félögin verði framvegis gerð ábyrgari fyrir dóm- gæzlumálunum, og að haldin verði dómaranámskeið með reglulegu milli- bili, og þess kappkostað að veita beztu dómurum landsins tækifæri til þess að fylgjast vel með þeim breytingum sem jafnan eru að verða á reglum og túlkun þeirra, m.a. með því að fylgjast með dómgæzlu I stórmótum. Þá var nokkuð komið inn á menntun handknattleiksþjálfara, og var það Hilmar Björnsson, fyrrum landsliðs- þjálfari, sem kom þeim umræðum af stað. Taldi hann mál þessi standa mjög illa, og nauðsyn róttækra aðgerða til þess að koma þeim I betra horf. Tók Sigurður Jónsson formaður HSÍ, I sama streng og kvað stjórn HSÍ hafa lagt mikla áherzlu á mál þessi og myndi gera. Á þinginu var svo sam- þykkt áskorun til stjórnar HSÍ að gang- ast fyrir leiðbeinendanámskeiðum úti á landi, eftir þvi sem mögulegt væri. Ráðning landsliðsþjálfara og stefnu- breyting stjórnar HSÍ I þeim málum kom litillega til umræðu. Fluttu þeir Bergur Guðnason og Sigurður Jóns- son ræður, þar sem þeir skýrðu sjónar- mið stjórnarinnar I máli þessu. Sagði Sigurður I ræðu sinni, að stjórn HSÍ hefði látið draga sig allt of lengi á „asnaeyrunum" i máli þessu, og um of trúað loforðum Tékka um að senda hingað færan landsliðsþjálfara. Ætti hann þarna sjálfur mikla sök, en hann hefði staðfastlega trúað þvl að það stæði sem sagt var. Þegar svo I Ijós kom endanlega að ekki var orð að marka það sem Tékkar sögðu, hefðu stjórnarmenn verið sammála um að ráðning innlends þjálfara væri bezta lausnin, og kváðust þeir Bergur og Sigurður binda miklar vonir við störf hins nýja landsliðsþjálfara, Viðars Sím- onarsonar. Stórkostlegur árangur stjórnar HSÍ í fjáröflun Rekstrarafgangur sambandsíns um 4,5 millj. króna Stakkaskiptin sem orðiS hafa á fjármálum Handknattleikssambands fstands á s.l. ári, eru næstum ævin- týri Ifkust. Rekstrarafgangur sam- bandsins nam hvorki meira né minna en 4.385.267,50 kr., I stað þess að venjulega hefur veriS um verulegan rekstarhalla aS ræSa hjá samband- inu og skuldir þess fyrir ári námu um þremur milljónum króna. Er þaS þvl sannkallaS þrekvirki sem gert hefur veriS I fjármálum sambandsins á s.l. ári, og voru niSurstöSutölur á rekstrarreikningi sambandsins tæp- lega 10,5 milljónir króna. — Þegar ég tók viS formennsku I HSÍ I fyrra, lýsti ég þvl yfir, aS þaS fyrsta sem gera þyrfti væri aS koma fjármálum sambandsins I betra horf, án þess væri allt starf drepiS I dróma, sagSi SigurSur Jónsson, for- maSur HSf I ræSu sem hann flutti I þinglok HSf-þingsins á laugardaginn. Og þetta ætiunarverk Sigurðar hefur tekizt meS óllkindum vel. Allir stjórnarmenn sambandsins lögSu fram gífurlega vinnu við fjáröflunina á slðasta ári og þá ekki slzt formaS- urinn. Má á rekstrarreikningnum sjá, aS mörg spjót hafa verið höf 8 úti viS fjáröflunina, en IbúSahappdrætti sambandsins var þó þyngst á metun- um, en þaS gaf I hreinar tekjur rösk- lega 3,5 milljónir króna. Tekjur af feikjum voru 2,5 milijónir króna, sem ekki telst há upphæS ef tekið er tillit til þess hversu marga leiki var um aS ræSa, og greinilegt aS heim- sóknir erlendra liSa hingað og lands- leikir gefa nú tiltölulega langt um minna af sér en áSur var. Kemur þar fyrst og fremst til sú gffurlega aukn- ing sem orSiS hefur á ferðakostnaði leikmanna. Er t.d. athyglisvert aS tveir landsleikir við júgóslavnesku Olympíumeistarana gáfu HSf aSeins 335 þúsund krónur f tekjur meðan tekjur sambandsins af tveimur pressuleikjum voru 325 þúsund krónur. Þá varð verulegur halli á heimsóknum þeirra kvennaliSa sem hingaS komu til keppni I fyrra, sam- tals um 230 þúsund krónur af leikj- um við bandarlsku stúlkurnar og um 320 þúsund króna halli varð á NorSurlandameistaramóti stúlkna sem fram fór hérlendis. Þær heimsóknir til HSf sem gáfu mest af sér var heimsókn a-þýzka landsliSsins sem skilaði 1.065,928,00 kr. f tekjur, en seldir aSgöngumiSar að þeim leikjum voru samtals 5720 og heimsókn danska landsliðsins sem gaf af sér 757.651,00 kr., en áhorfendur voru þá 3.824. Ýmsar tekjur HSf á árinu voru 2.974.808,00 kr., og eru þar tveir liSir langstærstir, auglýsingasöfnun 1.646.456,00 og tekjur af sjón- varpssendingum 600.000,00. Styrk- ir til HSf námu samtals 1.253.890,00 kr. Langstærsti liðurinn útgjaldameg- in á rekstrarreikningi HSf voru utan- ferSir landsliða, eSa samtals 2.884.713,00. KostnaSarsamasta utanferSin var ferð fslenzka ungl- ingalandsliSsins á NorðurlandamótiS f Finnlandi, en hún kostaSi HSf rösk- lega 1,1 milljón króna. Almennur rekstur sambandsins kostaði 1,7 milljónir króna, og eru þar stærstu liðirnir laun starfsmanns og þátttaka f þingum erlendis. KostnaSur við rekstur landsliðanna nam svo einnig 1,1 milljón króna, og þar eru stærstu liSirnir laun þjálfara og hóf sem haldin voru fyrir lands- liSsmenn. Staðan á efnahagsreikningi sam- bandsins er þannig að f fyrsta skiptiS f óralangan tfma er höfuðstóll réttur, og það um tæpar tvær milljónir króna. Á þeim tölum sem hér hafa verið nefndar má marka hversu gffurlegt átak hefur veriS gert f fjármálum sambandsins á liðnu starfstfmabili, og kom fram mikil ánægja hjá þing- fulltrúum á HSf þinginu meS hvernig til hefSi tekizt hjá stjórninni f málum þessum. Á þinginu var einnig lögð fram fjárhagsáætlun fyrir næsta starfsár og þar er gert ráð fyrir aS tekjur sambandsins á því ári nemi um 11 milljónum króna. og er þá gert ráð fyrir 1.450.000,00 f rekstrarafgang.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.