Morgunblaðið - 24.06.1975, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 24.06.1975, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JUNI 1975 5 Jakob Jónsson: Kýrusarsteinninn Fyrir nokkrum dögum færði Svíakonungur Islendingum fal- lega og mikilsverða gjöf. Blað úr merkilegri bók. Hafi Svíar þökk fyrir. En frjettin um gjöf kon- ungsins minnti mig á smáatvik, sem bar við í hitt-ið-fyrra í bóka- safni háskólans i Uppsölum. Jeg var þar staddur ásamt allmörgum guðfræðingum frá ýmsum lönd- um. Okkur hafði verið boðið í safnið til að skoða blöð úr frægu Biblíuhandriti. Eins og vænta mátti, horfðum við með andagt á þetta ómetanlega djásn, „silfur- handritið.“ En allt i einu var ýtt við mjer, og einn gestanna benti mjer að lita á næsta sýningar- skáp. „Þetta ættuð þjer að sjá.“ Og þar var Eddan, eins og vað- málsklæddur sveitamaður við hliðina á skrautbúnum hefðar- manni. Og það var næstum þvi farið fyrir mjer eins og norska skólastjóranum, sem þreif þykkan doðrAit á konunglega bókasafninu i Kaupmannahöfn, og lagði af stað með hann undir hendinni, þangað til verðirnir stöðvuðu hann. Það er sjálfsagt viða um heim- inn, sem þannig er litið á hvers kyns muni, sem hafa menningar- legt gildi fyrir þjóðir og riki. Haustið 1971 var jeg staddur á sýningu, sem haldin var i Teheran i sambandi við Kyrusar- hátíðina miklu. Hefi jeg varla sjeð meiri fegurð á einum stað, og þó að okkur Norðurlandabúum þyki stundum nóg um hinn austurlenzka iburð, þá er stíllinn jafnan slíkur og listfengið og smekkurinn svo næmur, að ofrausnin annaðhvort gleymist eða þykir eðlileg. Þar gat einnig að líta stórkostlega hluti, þar á meðal forn handrit. A miðju gólfi var glerskápur og inni í honum fremur lítill egglaga sívalningur úr leir með fornu fleygletri. Jeg er ekki læs á það letur, en ein- hverra hluta vegna átti jeg erfitt með að slíta augun af þessum hlut þangað til það rann upp yfir mjer ljós, að þarna var kominn Kýrusarsívalningurinn sjálfur, eitthvert merkilegasta skjal, sem menningarsaga fornaldarinnar styðst við. — Hugur minn fylltist hrifningu yfir því að fá að horfa á þennan leirhnullung dálitla stund. — En svo kom mjer allt I einu til hugar að spyrja nánar út í það, hvernig á því stæði, að hann væri þarna á þessum stað. Venju- lega ér hann staðsettur f British Museum í London, og er eign þess merka safns. Og forystumenn safnsins eða brezka rfkisstjórnin hafði sýnt þá vinsemd og rausn að senda sjerstaka flugvjel með steininn austur til Teheran, og gott ef forstöðumaður deildarinn- ar kom ekki sjálfur með hann. En jeg gat ekki að því gert, að eitt- hvað fannst mjer á vanta. Kýrus- arsteinninn er ekki neinn venju- legur forngripur, heldur eins- konar tákn þess, að Persaveldi varð til, og til þess á núverandi Iran ætt sina og uppruna að rekja. Áletrunin sýnir, að sá maður, sem íran nútímans virðir sem sinn brautryðjanda, hafði að ýmSu leyti mannúðlegri og frjáls- legri hugsunarhátt heldur en for- tíð hans og samtið. Mjer leið illa af þeirri tilhugsun, að eftir hátíðahöldin ætti Kýrusarsteinn- inn aftur að fara til London. Og þó að Englendingar væru búnir að gera vel, fannst mjer, að nú ættu þeir að gera enn þá betur. Jeg spurði embættismann, sem stóð þar skammt frá, hvort það væri nauðsynlegt, að steinninn Framhald á bls. 25. Þe i f Þjá . 'llev i >s. bf ú;'-. g á iýi I í r.;-; í ýjVett ur>n‘i. F rá rri j lé i.ðsLaf; þé i rráfV. erV'Vii ðti rk e. o n d;' gaeðaya ra sé rti ékki.' b’ráöisf :; L^yíVé;'-;galla búxu’r.: eru :f ráýníé iddar úr þy.kku- Ðértirri'efriifö;;. f.-v/. ■ - .ý ;Ei n;ká umböð.'v;óg.:■ jaf ri’f ramt>é.i n.i. útsölbsta,ðu f é I án.d inii ;‘é r í :Eá gp véfsi u n u n.u hfi..: Nytt s híðy J, LAUGAVEG 37-89 Nautahakk 1. kg Leyfilegt verð kr. 841 Tilboðsverð kr. |||| ORAgrænar baunir 1/1 dós Leyfilegt verð kr. 145 Tilboðsverð kr. |J9 Krakus, niðursoðnar agúrkur 1/1 Leyfilegt verð kr. 197 j pbh| Tilboðsverð kr. f ||f Sanitas appelsínu safi,2 Itr. Leyfilegt verð kr. 613 Tilboðs- verð kr. Drengjasett, denim 116-122-128 kr. 2180 134-140-146 kr. 2380 152-158-164 kr. 2580 Peysa ___ m/rennilás |D|| Vióskiptakortaveró fyrir alla! IfoHÉW ISK SKEIFUNN115

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.