Morgunblaðið - 24.06.1975, Side 30
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JUNI 1975
SÆNSKA FIMLEIKAHÓPNUM
FANNST DVÖIJN HÉR OF STUTT
— VIÐ erum búin að vera hér í
hálfan mánuð með hópinn okkar
og það vill enginn fara heim aft-
ur, sagði Solveig Gustavson þjálf-
ari sænska fimleikahópsins frá
Karlstadt, sem hér dvaldist á veg-
um Armenninga fram á sunnu-
dag. Auk hennar þjálfar eigin-
maður hennar, Gunnar Gustav-
son, hópinn og sem fararstjóri
með hópnum var Guðmundur
Wcnnerström. Sá sfðastnefndi er
íslenzkur f aðra ættina, móðir
hans var Lóa Wennerström frá
Nesi við Seltjörn.
I hópnum sem þau komu með
hingað til lands voru 13 stúlkur
og 8 piltar, og alls 21 þátttakandi
á aldrinum frá 11—21 árs. Er það
næsta fátitt að svo mikil aldurs-
skipting sé innan fimleikahóps og
þá er ekki heldur samkvæmt
venjunni að piltar og stúlkur æfi
saman f einum hópi. — Það hefur
engin vandamál í för með sér þótt
einstaklingarnir innan hópsins
séu á svo ólíkum aldri. Þeir eldri
hjálpa þeimyngriogfraun litur
hver á annan eins og systkini. Þá
er þess einnig krafizt víða að
strákar og stclpur æfi leikfimi
saman, en ég held að við séum
þau fyrstu sem reynum þetta í
Svíþjóð, sögðu þau Solveig og
Gunnar í viðtali við Morgunblað-
ið.
Hcr á landi héll hópurinn
nokkrar sýningar, þar á meðal á
Laugardalsvellinum á 17. júní, í
Laugardalshöllinni og í Vfk í Mýr-
dal. Æfingar þær sem hópurinn
sýndi hér voru af mörgum gerð-
um. Æfingar voru með áhöldum
og án þeirra og sá þáttur sýninga
hópsins, sem hvað mesta athygli
vakli, var „ærslaleikfimi“ pilt-
anna, þar sem þeir létu allar æf-
ingarnar mistakast á hinn
skemmtilegasta hátt.
Frá fimleikasýningunni f Laugardalshöllinni.
' Vi ?
-' tjr .
Gunnar og Solveig Gustavson ásamt Guðmundi Wennerström til hægri.
MH meistari í skóla-
móti í körfuknattleik
LIÐ Menntaskólans við Hamra-
hlfð bar sigur úr býtum f fyrsta
skólamótinu f körfuknattleik,
sem KKl gengst fyrir. Lið MH
vann lið frá MR f snarpri
úrslitaviðureign og skoraði
landsliðsmaðurinn Sfmon
Ölafsson bróðurpartinn af stig-
um MH f leiknum. A meðfylgj-
andi mynd er lið MH ásamt
rektor skólans.
Fremri röð frá vinstri: Jón
Baldursson, Clarence Glad,
Guðmundur Arnlaugsson
rektor, Arngfmur Thorlacius
og Tómas Þorsteinsson.
Aftari röð: Þórólfur
Armannsson formaður Iþrótta-
fél. MH, Omar Þráinsson,
Sfmon Olafsson, Pétur
Guðmundsson, Björn Magnús-
son, Helgi Gústafsson og Hilm-
ar Björnsson fþróttakennari.
V-Þjóðverjar,
Englendingar
og ítalir
með flest liðin
England, Italía og V-
Þýzkaland eiga sterkustu fé-
lagsliðum Evrópu á að skipa,
samkvæmt áliti Evrópuknatt-
spyrnusambandsins. Þessar
þjóðir eiga rétt á að senda
fjögur lið hvert í UEFA-
keppnina f knattspyrnu. Spán-
vjerjar og Svfar hafa heimild
til að senda þrjú lið til keppn-
innar, en Hollendingar hafa
hins vegar aðeins rétt á tveim-
ur liðum.
Ungmennafélögin
undirbúa sig
fyrir landsmótið
SUNDIÐ STERKAST
HJA SKIPASKAGA
Ungmennafélagið Skipaskagi,
Akrancsi, undirbýr nú þátttöku
sína í 15. landsmóti UMFl f
sumar.
Þátttaka félagsins í landsmót-
inu verður að þessu sinni meiri en
nokkru sinni fyrr. Sundfólkið
hefur æft vel undanfarið, en
sundið er sterkasta grein félags-
ins. Þá eru æfingar í frjálsum
iþróttum að fara í gang.
Ungmennafélagið Skipaskagi
hefur ekki á fyrri landsmótum
tekið þátt i neinum hópíþróttum,
en er nú með í þremur greinum
hópíþrótta, — í handknattleik
kvenna, körfuknattleik karla og
blaki karla.
Þá hefur félagið tilkynnt þátt-
töku í skák, en undankeppni þar
er ólokið. I undirbúningi er þátt-
taka í starfsíþróttum og fl.
Eins og flestir vita er Ung-
mennafélagið Skipaskagi fram-
kvæmdaaðili mótsins ásamt Ung-
mennasambandi Borgarfjarðar.
Formaður Ungmennafélagsins
Skipaskaga er Garðar Öskarsson.
HREIÐAR UNDIRBVR HSÞ
FÓLK
62. Arsþing H.S.Þ. var haldið 3.
og 4. mai s.l. Þingið var fjölsótt og
mjög málefnalegt.
Starfsemin framundan ber svip
þess, að í ár fer fram Landsmót
UMFÍ. Mikill áhugi er hjá
aðildarfélögunum á aukinni
félagsstarfsemi einkum íþrótta-
starfsemi og munu fleiri félög
hafa þjálfara við störf en fyrr.
Hjá H.S.Þ. mun Hreiðar Jónsson
sjá um undirbúning frjálsíþrótta-
fólks hjá sambandinu.
Dagana 21. og 22. júní n.k.
verður haldin ráðstefna að Laug-
um í Reykjadal á vegum héraðs-
sambandanna vegna ráðstefn-
unnar.
Binda héraðssamböndin miklar
vonir við ráðstefnu þessa, að hún
muni leiða í ljós mikið aðstöðu-
leysi til félagsstarfa svo og
íþróttaiðkunar og móti raunhæfar
tillögur til úrbóta.
USVS RÆÐUR
FRAMKVÆMDARSTJÓRA
Sú nýbreytni hefur verið tekin
upp í starfsemi U.S.V.S. að ráðinn
hefur verið framkvæmdast-jóri
hjá sambandinu yfir sumar-
mánuðina. Þessu starfi gegnir i
sumar Finnur Ingólfsson.
I tilefni af 5 ára afmæli
U.S.V.S. hefur verið ákveðið að
vanda mjög til ársþings
sambandsins þann 22. júní. Við
þessi timamót verður gefið út
vandað og ýtarlegt ársrit.
Ákveðið hefur verið að U.S.V.S.
taki þátt i 15. Landsmóti UMFl á
Akranesi í júlí. Þangað mun
sfefnt öllum beztu iþrótta-
mönnum af sambandssvæðinu,
þrátt fyrir mikla erfiðleika með
ráðningu þjálfara, en það er von
okkar að hægt verði að færa þau
mál til betri vegar nú á næstunni
— enda ekki seinna vænna
Ungmennasamband Norður-
Þingeyinga (UNÞ) hefur nú
ráðið Gunnar Arnason fram-
kvæmdastjóra og þjálfara og mun
hann m.a. sjá um undirbúning
fyrir 15. Landsmót UMFI á
Akranesi 11.—13. júlí. Sambandið
vantar nú annan þjálfara þar sem
svæðið er of stórt fyrir einn.
Formaður UNÞ er Aðalbjörn
Gunnlaugsson, Lundi, Axarfirði.
Héraðssamband Strandamanna,
H.S.S., hefur oft starfað af
dugnaði og i sumar hefur verið
ráðinn starfsmaður til að sinna
hinum ýmsu verkefnum
sambandsins. Það er Pétur
Pétursson, en hann er fæddur og
uppalinn á Hólmavík.
Frá golfkeppni norrænna íþróttafréttaritara á Nesvellinum á fimmtudaginn í sfðustu viku.
„ísland hefur fólk
sem vill og getur
Á þingi norrænna íþróttafréttarit-
ara, sem haldið var i Reykjavík í
síðustu viku, var Arne Rouen frá
Noregi meðal þátttakenda. Hann
hefur um árabil verið iþróttaritstjóri
Moss Avis og er i stjórn samtaka
norskra iþróttafréttaritara. I viðtali
við Morgunblaðið um hvernig iþrótt-
ir á íslandi hefðu komið honum fyrir
sjónir sagði hann meðal annars að
hið mikla iþróttastarf hér á landi
hefði farið langt fram úr þvi sem
hann hefði ímyndað sér.
— Ég hef hitt marga af forystu-
mönnum íslenzkra iþróttamála, ég
hef séð glæsileg iþróttamannvirki og
ég hef séð islenzkt íþróttafólk í bar-
áttu, sagði Arne Rouen — Mér
virðist sem skipulag iþróttamálanna
sé mjög gott og gefi almenningi
mörg tækifæri Um það hversu
islenzkir iþróttamenn eru sterkir hef
ég tæpast möguleika til að segja
nokkuð. Ég hef aðeins séð einn
knattspyrnuleik, leik Vals og ÍBV, og
til hans fannst mér ekki mikið koma
— Hins vegar hefur hinn góði
árangur knattspyrnulandsliðsins
ekki farið framhjá neinum og ég er
viss um að Norðmenn fá nóg að
gera þegar þeir leika við Island i
næsta mánuði
— Það mikilvægasta að minu
áliti er þó að gefa almenningi aukna
möguleika á iþróttaiðkunum og eftir
því að dæma sem ég hef séð þá vita
bæði riki og bæjarfélög um ábyrgð
sina. Fjöldi þokkalegra grasvalla svo
norðarlega i heiminum hefur komið
mér á óvart Mannvirkin i Laugar-
dalnum eru glæsileg og hinar miklu
fyrirætlanir við íþróttamannvirki i
Vestmannaeyjum eru næstum ótrú-
legar. (sland hefur greinilega fólk á
öllum sviðum, sem bæði vill og
getur.
— Gangi ykkur vel með íþrótta-
starfið og uppbygginguna og kærar
þakkir fyrir móttökurnar, sagði Arne
Rouen að lokum.
Orka íslenzkrar náttúru
kemur fram í íþróttum
— Við Svfar höfum úr fjarlægð
fylgzt með islenzku iþróttalífi en
eftir að hafa dvalizt hér f fjóra
daga, skiljum við betur góðan ár-
angur íslenzkra fþróttamanna á
ýmsum sviðum. Á íslandi finnst
nefnilega einn-g innan iþrótt-
anna sú mikla orka sem náttúra
landsins býr yfir. Þetta voru orð
Rune Karlssons, eins sænsku
fþróttafráttaritaranna á Norður-
landaþingi iþróttafráttamanna og
hann bætti við að án náttúruork-
unnar f fslenzkum fþróttum gæti
svo fámenn þjóð ekki sýnt svo
mikið og náð svo góðum árangri á
fþróttavöllunum.
I viðræðum við norrænu frétta-
ritarana var það ein spurning sem
hvað eftir annað var lögð fram. —
Hvernig fóruð þið að því að vinna
sigur á A-Þjóðverjum f knatt-
spyrnu um daginn? Reyndu fs-
lenzkir kollegar þeirra að svara
þessari spurningu og öðrum Ifk-
um. Þá var einnig oft minnst á
Gunnar Huseby, Clausen-bræður
og að sjálfsögðu Vilhjálm Einars-
son og greinilegt að afrek þessara
kappa eru ekki enn gleymd.