Morgunblaðið - 24.06.1975, Síða 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 24. JUNI 1975
Fischer bíður átekta
Anthony Wedgwodd Benn, f einu sinna fyrstu embættisverka sem
orkumálaráðherra, skrúfar frá krananum og hleypir fyrstu olfunni,
sem Bretar hafa dælt upp undan botni Norðursjávar, f land 18. júnf sl.
Olfan var flutt frá borpöllum að olfuhreinsunarstöð nálægt Rochester f
Englandi með skipi skráðu f Lfberfu, en skipstjórinn og forstjóri
Argyll olfufélagsins eru með Benn á myndinni. Bretar álfta olfuna sem
er að finna úti fyrir ströndum Skotlands geta haft svipuð áhrif á
efnahag sinn og iðnbyltingin hafði á sfnum tfma, en skozkir þjóðernis-
sinnar og Englendingar hafa bitizt að undanförnu um eignarrétt á
henni. Alfta Skotar það einkennandi fyrir stefnu brezku stjórnarinnar
f þessu máli að fyrstu olfunni var landað í Englandi.
Ljubljana22. júní Heuter.
ANATOLY Karpov heims-
meistari f skák sigraði á
Widmarminningarmótinu f
Júgóslavíu, er hann gerði jafn-
tefli við Karnar frá Júgóslavfu f
15. og sfðustu umferð mótsins.
Fékk Karpov 11 vinninga, sigraði
f 7 skákum og gerði 8 jafntefli.
Fékk hann 2000 dollara f verðlaun
og mótorhjól. I öðru sæti varð
Gligoric með 10 vinninga og fékk
hann 1500 dollara f verðlaun. 1
3.—5. sæti urðu Hort frá
Tékkóslóvakíu, Ribli frá Ung-
verjalandi og þjálfari Karpovs,
Semyon Furman.
Karpov sagði að mótslokum að
hann væri ánægður með tafl-
mennsku sfna og auðvitað
árangurinn. Hann sagði um mót-
herja sína, að Gligoric hefði telft
hvað sterkast svo og Furman, en
hann hefði nokkrum sinnum
misst af vinningi í skákum sínum.
Karpov sagði að það hefði komið
sér mest á óvart hve neðarlega
Ljubojevic hefði orðið á mótinu,
en taldi að hann hefði einhvern
veginn ekki haft áhuga á mótinu.
Ljubojevic varð í 8. sæti, en fyrir
mótið hafði hann verið talinn
skæðasti keppinautur Karpovs.
Karpov mun nú ferðast um
Júgóslavfu næstu daga áður en
hann heldur heim á leið, 3. júlí. 1
ágúst tekur hann svo þátt í ein-
hverju sterkasta stórmeistara-
móti, sem sögur fara af, I Mílanó á
Italfu og verða 1. verðlaun þar 10
þúsund dollarar. 12 stórmeistarar
taka þátt f því móti, þar á meðal
heimsmeistararnir fyrrverandi,
Tal og Petrosjan, Portisch, Hort,
Kavelek og Mariotti.
Campamanos forseti skáksam-
bands Filipseyja og einn af vara-
forsetum FIDE sagði i Minila f
dag, að Bobby Fischer hefði tjáð
sér f símtali fyrr í vikunni, að
hann væri reiðubúinn til að tefla
við Karpov óopinbert einvfgi og
Karpov þyrfti ekki að gera annað
en hafa samband við sig. Karpov
sagði fyrir nokkrum dögum að
hann væri tilbúinn til að ræða við
Fischer persónulega um málið, en
ekki gegnum milligöngumann.
Sagði Campamanos að þetta væri
tómt orðagjálfur, hann hefði sent
sovézka skáksambandinu orð-
sendingu þar sem var telexnúmer
til að koma skilaboðum til
Fischers, en Karpov hefði ekkert
látið i sér heyra.
Antoly Karpov — ánægður
Bobby Fischer — reiðubúinn
Úrskurður
Gandhis
máli
w
1
dag?
Fyrsti fundur matvælaráðs
S.þ. mikilvægur prófsteinn
Róm23. júní Reuter.
MATVÆLARAÐ Sameinuðu
þjóðanna, sem settyvar á laggirn-
ar í nóvember $1., kom saman til
sfns fyrsta Jundar I dag og er
takmarkið með stofnun ráðsins að
binda endi á hungursneyð f
heiminum innan 10 ára. Ráðherr-
ar frá 36 Iöndum sitja ráðstefn-
una, sem talin er mikilvægur
prófsteinn á vilja þjóða heims til
að hjálpa þeim þjóðum, sem
hungursneyð herjar á.
Framkvæmdastjóri ráðsins,
Bandaríkjamaðurinn John A.
Hannah, sagði i setningarræðu
sinni, að ef koma ætti á friði f
heiminum yrði að tryggja fæðu til
þess að aflétta hungursneyð, hvar
sem hana væri að finna. Hann
sagði að nokkur árangur hefði
orðið af störfum ráðsins, en enn'
væru eftir að leysa grundvallar-
vandamál. Skv. áætlunum ráðsins
eiga um 400 milljónir manna um
sárt að binda vegna matvæla-
skorts og að það sem efst væri á
lista ráðsins væri að útvega 1,6
milljarð dollara til að aðstoðaþær
33 þjóðir, einkum í Asiu, sem við
mesta hungursneyð búa, og slíkt
þyrfti að gerast innan 6 mánaða.
Mikilvægur áfangi hefði náðst
þegar samþykkt var að stofna
landbúnaðarsjóð með 1 millj'arði
dollara stofnfé til að aðstoða
þróunarlöndin til að auka fram-
leiðslu landbúnaðarafurða. Sagði
Hannah, að vonazt væri til að
sjóðurinn gæti hafið fjárveitingar
á næsta ári. Þá kom fram f ræð-
unni að útlit er fyrir mjög góða
kornuppskeru f Sovétrfkjunum
og Bandaríkjunum í ár, en að
útlitið sé dökkt f flestum öðrum
löndum.
Nýju Delhl 23. júnl AP-Reuter.
10 MANNA lögfræðingasveit
Indiru Gandhis forsætisráðherra
Indlands kom fyrir V.R. Krishna
Iyer hæstaréttardómara, einn af
þrettán dómurum hæstaréttar, en
réttarhlé stendur nú yfir til 15.
júlf, og fór fram á það að Gandhi
fengi að gegna áfram embætti
forsætisráðherra þar til hæsttrétt-
ur hefði kveðið upp úrskurð sinn
vegna áfrýjunar forsætisráðherr-
ans á úrskurði Allahabaddóm-
stólsins um að hún sé sek um
kosningasvik og megi þvf ekki
gegna opinberu embætti næstu
sex árin. Er gert ráð fyrir að Iyer
muni skýra frá ákvörðun sinni f
málinu á morgun.
Foringi lögfræðinganna, Nani
Palkhivala, einn þekktasti stjórn-
arskrárlögfræðingur Indlands,
sagði f málflutningi sínum, að
dómurinn í Allahabad hefði verið
kveðinn upp á ákaflega veikum
grundvelli og því væru miklar lfk-
ur á því að hæstiréttur ógilti dóm-
inn. Þess vegna væri það rangt að
neyða Gandhi til að láta af emb-
ætti áður en endanlegur úrskurð-
ur f málinu lægi fyrir. Indira
Gandhi réð Palkhivala sem sinn
persónulega lögfræðing, þrátt
fyrir að hann hafi verið harðsnú-
inn andstæðingur hennar í ýms-
um stefnumálum og tvisvar sigrað
stjórnina f málum fyrir hæstarétti
varðandi þjóðnýtingu banka og
afnám Maharajastéttarinnar.
Lögfræðingar Raj Narains,
sósíalistans, sem höfðað málið á
hendur Gandhi, héldu þvf fram
við Iyer í dag, að hæstiréttur
hefði ætíð á sl. 20 árum bannað
sákborningi að gegna embætti
meðan hæstiréttur fjallaði um
áfrýjun i málum sem þessu og þvi
væri siðferðilega rangt að leyfa
forsætisráðherranum að sitja
áfram, auk þess sem erfitt væri
fyrir Gandhi að gegna embættinu
með mál sem þetta yfir höfði sér.
Jayaprakash Narayan helzti
baráttumaður gegn spillingu f
Indlandi og skeleggur baráttu-
Framhald á bls. 35
Vildi McNamara
Kastro feigan?
llrskurði uni lögmæti dauða-
íar frestað í USA
refsingi
Washington 23. júní AP.
HÆSTIRÉTTUR Bandarfkjanna
frestaði f dag til næsta starfstíma-
bils, sem hefst 6. október nk., að
fella úrskurð f prófmáli um hvort
dauðarefsing sé brot á stjórnar-
skrá landsins. Engin skýring var
gefin á frestuninni. Mál þetta var
höfðað af Jesse Thurman Fowler,
sem dæmdur var til dauða 1973
fyrir morð á félaga sfnum eftir
deilur sem komu upp eftir fjár-
hættuspil. Fowler er einn af 283
karlmönnum og þremur konum,
sem bfða Iffláts f bandarískum
fangelsum. Hæstiréttur kvað árið
1972 upp þann úrskurð að
dauðarefsing bryti f bága við
stjórnarskrána vegna þess að lög-
in gæfu kviðdómum og dómurum
of mikið vald til að ákveða dauða-
refsingu.
Frá þeim tíma hafa 26 fylki
endurvakið dauðarefsingu og þá
með þeim hætti að hjá henni
verði ekki komizt fyrir ýmiskonar
alvarfeg afbrot. Síðasta aftaka í
Bandaríkjunum fór fram 1967, er
maður, sekur fundinn um að hafa
myrt vanfæra konú sína og þrjú'
börn af 10, var tekinn af lifi f
Colorado.
Washington 23. júní Reuter
VIKURITIÐ Time skýrir frá þvf f
nýjasta tölublaði sfnu að árið
1962 hafi Robert McNamara, á
meðan hann var varnarmálaráð-
herra f stjórn Kennedys, bent á
möguleikana á þvf að taka Fiedel
Kastro forsætisráðherra Kúbu af
Iffi, en að John McCone, sem þá
var yfirmaður CIAj leyniþjónustu
Bandarfkjann^hafi neitað.
McCone sagði eftir að hafa bor-
ið vitni fyrir nefnd öldunga-
deildarinnar, sem fjallar um
starfsemi CIA, að nokkuð hefði
verið rætt um morðsamsæri i lok
6. og byrjun 7. áratugarins, áður
en hann varð yfirmaður CIA.
Hann taldi sig þó ekki vita á
hversu háum stöðum þetta hefði
verið rætt.
Barry Goldwater öldunga-
deildarþingmaður sem á sæti í
CIA-nefndinni, sagði á mánudag
að sambúð Bandaríkjanna við
leyniþjónustur vinveittra rfkja
hefði stórversnað eftir að farið
var að fletta ofan af ýmsu vafa-
sömu i starfsemi CIA. Hann
nefndi ekki nein lönd f þessu
sambandi, en fréttir eru um að
CIA hafi unnið náið með leyni-
þjónustu Bretlands, Astralfu,
Kanada og Israet aðallega að upp-
lýsingaskiptum.
Nýjar aðgerðir
Norður-írlandi
Allt í bezta gengi
um borð 1 Salyut 4
Moskvu 23. júnf AP
SOVÉZKU geimfararnir tveir um
borð f geimstöðinni Salyut4 slógu
í dag fyrra dvalarmet Sovét-
manna úti i geimnum, er þeir
höfðu verið alls 30 daga á
lofti. I tilkynningu Tass-frétta-
stofunnar sagði að geimfararn-
ir, Klimuk og Sevastyanov
væru við beztu heilsu og
að öll tæki geimstöðvarinnar
. störfuðu með eðlilegum hætti.
í tilkynningunni var ekk-
ert á það minnzt hvenær geim-
fararnir mundu snúa til jarðar,
en talið er að það verði ekki á
næstunni. Sovézku geimfararnir
mundu þurfa að vera 54 daga úti f
geimnum til viðbótar til að slá
met bandarísku geimfaranna
þriggja, sem voru f Skylab 3. 20.
júlí verður svo sovézku geimfari
með tveimur mönnum og banda-
rísku geimfari með þremur
mönnum skotið á loft, og verða
geimför tengd saman úti f geimn-
um í fyrsta sameiginlega geim-
leiðangri landanna
Robert McNamara
— benti á möguleika.
t
a
Belfast 23 júnl — Reuter
NÝJAR aðgerðir til að binda endi
á morðin á Norður-lrlandi voru
til umræðu i dag á fundi, sem
Merlyn Rees N-Irlands-
málaráðherra hélt með hern-
um og yfirmöqnuni lögregl-
unnar. Fimm manns, þrfr
kaþólikkar og tveir mótmælend-
ur voru myrtir um helgina, aug-
Ijóslega f hefndarskyni fyrir
önnur morð, og fjöldi manna var
særður. Samtals hafa 19 verið
myrtir f þessum mánuði sem
hleypir heildarfjölda myrtra það
sem af er árinu upp f 104, þrátt
fyrir vopnahlé lýðveldishersins
IRA.
Lögreglustjórinn, Jamie Flana-
gan, sagði eftir fundinn að gripið
yrði til nýrra aðgerðatil að koma f
veg fyrir morð, en hann vildi ekki
segja neitt nánar hvað fælist í
þessum aðgerðum. Búizt er við að
herinn og Iögreglan setji upp
fleiri vegatálmanir til að stöðva
morðingja sem skjóta úr bílum á
mikilli ferð.
Karpov sigraði