Morgunblaðið - 02.07.1975, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.07.1975, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JULI 1975 Fjölbreytt dagskrá héraðsmóta Sjálfsteðisflokksins ísnmar Héraðsmót Sjálfstæðis- flokksins á þessu sumri hefjast um næstu helgi. Alls verður efnt til 18 héraðsmóta og verða þau á tímabilinu 4. júlí til 17. ágúst. Dagskrá héraðsmót- anna verður með þeim hætti að forustumenn flokksins og fulltrúi ungra sjálfstæðismanna flytja ávörp og ráðherrar flokks- ins munu koma á flest Dagskrá héraðsmótanna verður fjölbreytt að vanda en það er Hljómsveit Ólafs Gauks ásamt þeim Magnúsi Jónssyni, óperusöngvara, Jörundi og Hrafni Pálssyni, sem annast skemmtiatriðin. Og þegar við litum inn á æfingu hjá þeim einn dag- inn, var verið að leggja síðustu hönd á undirbúning dagskrárinnar. Þegar okkur bar að stóð yfir æfing á óper- Hart er að vera faðir, þegar barizt er um dótturina og má glöggt sjá það á svip Þorláks þreytta, Benedikt Páls- syni. er hún sérstaklega kunn fyrir að leika fjöruga tónlist fyrir alla aldurshópa. Þetta er þriðja sumarið i röð, sem hljómsveitin leikur á héraðs- mótum Sjálfstæðisflokksins en hljómsveitina skipa: Ólaf^r. Gaukur, Svanhildur Jaköbsdóttir, Ágúst Atlason, Benedikt Pálsson og Carl Möller. Það nýmæli hefur verið tekið upp, aðá héraðsmótun- um i sumar verður efnt til happadrættis. Er fram- kvæmd þess með þeim hætti að hverjum aðgöngumiða fylgir happdrættismiði og er því hér um að ræða ókeypis happdrætti. Vinningar í happdrættinu eru hinir glæsi- legustu, þvi boðið er upp á tvær sólarferðir til Kanaríeyja og verður dregið um þessa vinninga að loknum öllum Héraðsmótunum, þann 20. ágúst. En á hverju héraðs- móti verður dregið um fjölda smærri vinninga. Annað nýmæli er einnig tekið upp i framkvæmd héraðsmótanna 1975 en það er að gerð hefur verið dagskrá fyrir öll mótin og hefur hún að geyma kynningu á flytjend- um skemmtiatriða. Eins og fyrr sagði hefjast héraðsmótin á föstudaginn á Ólafsfirði og þá um helgina verða þau á Húsavik og Þórs- höfn. Þá verður farið um Austurland, siðan Vestfirði og Vesturland. Fyrstu helg- ina í ágúst verða héraðsmót- in á Suðurlandi en síðast verða þau á Norð- Vesturlandi. Fleiri skemmtiþættir voru í æfingu og er i þeim komið víða við. Meðal þess, sem þeir fjalla um má nefna sam- yrkjubúfræðing frá ísrael, sem hyggst kippa öllu i lag hjá bjargálnabónda við sjávarsíðuna. í öðrum þætti er sagt frá söngkonunni Sópraniu, sem bregður sér heim til átthaganna og verð- ur þar fyrir sterkum áhrifum af umhverfi þeirra. í hlutverki Sópraniu er Carl Möller. Ekki hefur sjómönnum verið gleymt, því Sjóólfur Snæ- björnsson, hinn reyndi og gamalkunni sjómaður, segir frá ýmsu, sem á dagz? hans hefur drifið. Það er Jörundur Guðmundsson, sem bregður sér í gervi Sjóólfs. Þó að Jörundur sé ekki sjómaður að atvinnu tókst okkur að fá hann til að játa að stanga- veiði stundar hann af mikilli ástriðu. Jörundur hefur á siðustu árum aflað sér sívax- andi vinsælda sem skemmti- kraftur með sínum snjöllu eftirhermum og gamanþátt- um. Hann kom fyrst fram árið 1 968 og þá einmitt und- ir stjórn Ólafs Gauks, sem að þessu sinni ber einnig hitann og þungann af undirbúningi og stjórn skemmtiatriðanna. í tilefni af Kvennaári kveð- ur sér hljóðs Straumlína nokkur og hefur hún ýmis- legt að segja á þessu merka ári. Hrafn Pálsson er í hlut- verki Straumlínu, en hann er einn þessara sjaldgæfu manna, sem er það eðlilegt að sjá hið skoplega í tilver- unni. Hann hefur á undan- förnum árum leikið með þekktum hljómsveitum og tekið þátt í gerð fjölda skemmtiþátta en hann á einkar auðvelt með að koma slíkum þáttum saman. Margt fleira forvitnilegt er að finna á dagskránni og er þar t.d. þáttur um barnaljós- myndarann og barnlausu konuna, en frá efni þess þátt- ar er ekki hægt að skýra að svo stöddu. Þá er spurninga- þáttur með verðlaunum, sem nefnist Ugla sat á kvisti. Magnús Jónsson, óperu- söngvari, syngur nokkur vin- sæl lög á héraðsmótunum auk þess sem hann tekur þátt í skemmtiatriðunum. Magnús hóf söngnám hjá Pétri Jónssyni, óperu- söngvara, og sigldi til ítalíu og nam þar söng frá 1951 til 1953 og þangað kom hann aftur árið 1956. Árið 1957 hóf hann að starfa við Litið inn Hér hljómar lokasöngur óperunnar „Lln- harður óféti*', sem flutt verður á héraðs- mótum Sjálfstæðisflokksins f sumar. Leikendur eru talið frá vinstri: Benedikt Pálsson Ágúst Atlason, Magnús Jónsson og Svanhildur Jakobsdóttir. á æfingu Það dylst vfst engum að Ágúst Atlason er fæddur til að fara með hlutverk Grjótharðs fávita. héraðsmótin og ávarpa mótsgesti. Fjölbreytt skemmtiatriði verða flutt af félögum Hljómsvertar Ólafs Gauks og nokkrum skemmtikröftum. Héraðs- mótin munu hefjast á Noðurlandi og hið fyrsta verður í Ólafsfi/ði föstudag- inn 4. júlí Þeir eru tveir elskhugar Guðnýjar, Svanhildar Jakobs- dóttur, og valið erfitt. Straumlfna, Hrafn Pálsson, heitir kona á Kvennaári. Þó Linharður óféti, Magnús Jónsson, sé ekkert sérstakt hreystimenni, býr hann yfir kröftugri rödd. unni „Linharður óféti" en í henni berjast þeir Linharður óféti, leikinn af Magnúsi Jónssyni, óperusöngvara, og Grjótharður fáviti, leikinn af Ágústi Atlasyni, um ástir og vín. Með hlutverk Guðnýjar fer Svanhildur Jakobsdóttir. Annað veigamikíð hlutverk í óperunni er leikið af Benedikt Pálssyni en hann leikur föður Guðnýjar, Þorlák þreytta. Umfjöllunarefni óperunnarer ástir og afbrýðisemi og gætir þar mikils ástríðuþunga. Lffsbaráftan hefur sett merki sfn á Sjóólf Snæbjörnsson, hinn aldna vestfirzka sjómann. Það er Jörundur, sem leikur hann. Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn og starfaði þar í tíu ár. Með söng sínum í ýmsum þekktum hlutverk- um hefur Magnús öðlazt vin sældir en um þessar mundir er hann að æfa eitt aðalhlut- verkið í Carmen, sem færð verður upp í Þjóðleikhúsinu í haust. Að loknum flutningi skemmtiatriða- leikur Hljóm- sveit Ólafs Gauks fyrir dansi en hljómsveitin hefur um ára- bil verið í hópi þekktustu danshíjómsveita landsins og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.