Morgunblaðið - 02.07.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.07.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLI 1975 19 Viljum leggja þá alúö íræktunina sem fróö- irmenn hafa bezt vit á ÞENNAN dag, I. sunnudag sól- mánaðar, fyrir 25 árum fór fram vígsla Heiðmerkur að við- stöddu fjölmenni, við flöt þá, sem eftir það hlaut nafnið Vígsluflöt hér töluvert neðar á Heiðmörk. Og vissulega var vfgsla Heið- merkur stórviðburður. Þetta vfðáttumikla óbyggða svæði með sitt fjölbreytilega landslag, í aðeins um 15 km fjarlægð frá Reykjavík, var langflestum Reykvfkingum lokaður heimur. Með vígslu Heiðmerkur eign- uðust bæjarbúar sitt eigið úti- vistarsvæði í öbyggð í aðeins hálfrar klukkustundar aksturs- leið frá Reykjavík. Og Reyk- vfkingar hafa sannarlega kunnað að meta það og færa sér það í nyt. Á góðviðrisdögum um helgar að sumrinu hafast við fjölskyld- ur, fullorðnir og börn, í lautum og hraunbollum og á grasflöt- um, víðs vegar.um Mörkina og njóta sólskins og fjallalofts. Enn skortir á, að fólk geti hreiðrað um sig í skógarrjóðr- um. Þó er nú svo komið á ýms- um stöðum, að hægt er að velja sér áningarstað í góðu skjóli við skógargróður, víði- og birki- kjarr og upprennandi sfgræn tré. Ekki veit ég hvort á að kalla það tilviljun, að áhugamenn um skógrækt skyldu verða til þess að beita sér fyrir þvf, að áhuga- menn um skógrækt skyldu verða til þess að beita sér fyrir því, að þessi dýrðlega óbyggða víðátta skyldi gerð að útivistar- svæði fyrir borgarbúa, á þann hátt sem gert hefur verið. Að sjálfsögðu vakti það jafnframt fyrir skógræktaráhugamönnum að endurreisa skóga sem hér uxu fyrrum, en voru að mestu eyddir, og rækta nýjan skóg. Það er ástæða til þess að nefna að þegar stjórn Skóg- ræktarfélags íslands haustið 1938 sendi bæjarráði tillögu sfna um hina glæsilegu fyrir- ætlun, eins og komizt var að orði, voru forráðamenn bæjar- ins einhuga i stuðningi sínum við hugmyndina. Töluverður aráttur varð á framkvæmdum, og átti heims- styrjöldin, sem háð var á árun- um 1939—1945 sinn þátt í því. En í marzmánuði 1947 bar þáverandi borgarstjóri Gunnar Thoroddsen, fram tillögu á bæjarstjörnarfundi um, að bæjarráði og borgarstjóra skyldi falið að leita samninga við landeigendur um kaup á þvf landi, sem fyrirhugað væri að yrði útivistarsvæði Reyk- víkinga, Heiðmörk, og þegar bærinn hefði fengið umráð þessara landa, skyldi svæðið girt, og áætlun gerð um fram- kvæmdir á Heiðmörk og afnot hennar, í samráði við Skóg- ræktarfélag Reykjavíkur, sem stofnað var hálfu ári áður. Var tillaga þessi samþykkt með samhljóða atkvæðum. Svæðið var girt síðari hluta árs 1948, og var stærð hins af- girta svæðis 1350 ha. Árið 1958 bættist við Heið- mörk hluti úr Vífilsstaðalandi og afréttarlandi Garðatorfu, og stækkaði Heiðmörk við það um 950 ha. Og árið 1963 var Heið- mörk onn stækkuð, þegar Skóg- ræktarfélaginu var falin varð- veizla býlisins Elliðavatns, og er hið friðaða svæði innan Heiðmerkurgirðingarinnar nú um 2500 ha. I tilefni þessa aldar- fjórðungsafmælis Heiðmerkur hefur verið gefið út rit með ýmsum fróðleik um Heiðmörk, jurtagróður, fluglalíf, jarð- myndanir, og um skógræktar- störfin og önnur störf, sem unnin hafa verið á Heiðmörk á undanförnum 25 árum. Þetta rit er prentað sem hluti af Árs- riti Skógræktarfélags Islands, en einnig gefið út sérprentað í nokkru upplagi ásamt vönd- uðum uppdrætti af Heiðmörk. Ég mun því ekki í þessari ræðu rekja öllu nánar það sem hér hefur verið aðhafzt á liðn- um árum. En af því að skóg- rækt er meginuppistaðan í því, og af því að skógrækt er að sjálfsögðu aðalviðfangsefni Skógræktarfélagsins, vildi ég gjarnan, góðir tilheyrendur, við þetta tækifæri fara nokkru lengra aftur í tfmann, og segja ykkur sögu, kannski mætti kalla það ævintýri eða sam- bland af draumsýnum og veru- leika. Ég mun aðeins stikla á stóru. Við höldum upp á aldarfjórð- ungsafmæli Heiðmerkur i dag. En það eru aðeins þrír aldar- fjórðungar síðan fyrsti vísir að skógrækt spratt upp hér á landi. Síðastliðið ár, sem var 11 alda afmælisár Islandsbyggðar, var jafnframt 75 ára afmælisár skógræktar á Islandi. En skóg- rækt á Islandi var jafnvel löngu fyrir þann tíma fögur draum- sýn íslenzkra skálda og annarra hugsjónamanna. Ég segi fögur draumsýn. Skáldin tengja myndina um framtíðarskóga mynd um fegurra og göfugra mannlif. „Fagur er dalur og fyllist skógi, og frjálsir menn þegar aldir renna“, kvað Jónas Hallgrímsspn fyrir næstum hálfri annarri öld, og „Menningin vex í lundi nýrra skóga", kvað Hannes Hafstein um síðustu aldamót um svipað leyti og fyrsta viðleitni til íslenzkrar skógræktar hefst. Vitanlega hefur eyðing skóg- anna á Islandi á liðnum öldum verið ýmsum glöggskyggnum og framsýnum mönnum áhyggjuefni, þótt ekkert yrði að gert til þess að ráða bót á þvi. Eins konar fyrirboði fyrstu skógræktarathafna á Islandi má það teljast að sumarið 1892 tókst íslenzkur maður ferð á hendur til Danmerkur og Noregs til þess að kynna sér skógrækt, sem í rauninni var þá tiltölulega ný grein jarðræktar í þeim löndum og einnig annars staðar. Þessi maður var Sæmundur Eyjólfsson frá Sveinatungu i Norðurárdal. Hann nam bú- fræði í Ólafsdal rétt eftir 1880, en þar stofnaði og stjórnaði skóla hinn stórmerki búnaðar- frömuður Torfi Bjarnason. Síðan hóf Sæmundur nám við Latínuskólann í Reýkjavík og tók stúdentspróf árið 1889, og guðfræðiprófi frá Prestaskól- anum f Reykjavík lauk hann árið 1891. Hann vígðist ekki til prests, en starfaði sem bú- fræðingur og búnaðarráðunaut- ur á meðan lif entist. Árið 1894 birtist í Búnaðar- ritinu frásögn hans af ferðalagi um Norður- og Austurland, þar sem lýst er rækilega skóglendi i þessum landshlutum. Sæmund- ur Eyjólfsson andaðist árið 1896, aðeins 35 ára að aldri. Það má Iíklega teljast ein- kennileg tilviljun, að það skyldi vera danskur sjómaður sem átti upptökin af þvi að hafizt var handa um skógrækt á Islandi, en það er eigi að siður stað- reynd. Þessi danski sjómaður hét Carl Ryder. Hann var sjó- liðsforingi að mennt, en var skipstjóri á skipi Sameinaða gufuskipafélagsins, sem sigldi milli Danmerkur og Islands fyr- ir og eftir sfðustu aldamót. Hann hefur því á ferðum sínum kynnzt þessu skóglausa landi, sem hann bersýnilega hefur borið hlýjan hug til. I ræðu, sem Hákon Bjarnason skógræktarstjóri flutti á 50 ára afmæli laga um skógrækt í nóvembermánuði 1957, kemst hann svo að orði um Carl Ryder og tvo aðra menn, sem mega teljast upphafsmenn skóg- ræktar á tslandi: „Carl Ryder var víðsýnn og mikilhæfur maður, og honum ægði svo skógleysi Islands, að hann hófst handa um tilraunir með skóg- rækt. Að vlsu gat hann ekki lagt fram fjármuni sjálfur, en hann aflaði mikils fjár á þeirra tíma mælikvarða meö samskot- um og styrkjum frá ýmsum aðilum auk Alþingis. Til liðs við sig fékk hann prófessor i skógrækt, Carl V. Prytz að nafni, og Christian Flensborg ungan skógfræðing, sem starfaði við Heiðaféíagið danska. En það kom í hlut Flensborgs að annast skóg- græðslustörfin hér á landi frá 1900 til 1906.“ I Ársriti Skógræktarfélags Is- lands 1974, þar sem skóg- ræktarstjóri rekur allrækilega sögu skógræktar á tslandi i 75 ár, er þess getið, að Carl Ryder hafi, jafnframt því sem hann leitaði eftir fjárframlögum til skógræktar, fengið leyfi lands- stjórnarinnar til þess að girða reit á eystra barmi Almanna- gjár til að planta í trjám. Fékk hann Einar Helgason síðar garð- yrkjustjóra til að setja upp girðingu og gróðursetja plöntur vorið 1899. Og telst það upphaf skógræktar á Islandi. Um þetta leyti, fyrir og eftir aldamótin, var mikil gróska og vorhugur með þjóðinni. Um það ber m.a. vitni aldamótaljóð Hannesar Hafsteins. Svo gerðist það skömmu eftir aldamótin, að skáldið og hug- sjónamaðurinn Hannes Haf- stein varð fyrsti íslenzki ráð- herrann. Hann reyndist einnig maður athafna, og hlúði eftir megni að hinum unga sprota, islenzkri skógrækt. Á þessum árum, upp, úr aldamótunum, var hafizt handa um skógrækt og verndun skóga norðanlands og austan-, fjórir ungir Islend- ingar voru styrktir til verklegs skógarvarðarnáms í Danmörku og árið 1907 voru samþykkt á Alþingi lög um skógrækt. Segja má, að boðskapur Carls Ryders og hinna tveggja dönsku félaga hans hafi fengið góðam hljómgrunn meðal Is- lenzku þjóðarinnar. Ung- mennafélagsskapurinn sem á fyrsta áratug tuttugustu aldar- innar hélt innreið sína og að margra dómi táknaði allsherjar þjóðarvakningu, tók skógrækt upp í stefnuskrá sína, þótt ýmis skilyrði skorti til þess að það Birgir Isl. Gunnarsson, borgar- stjóri, afhenti á Heiðmerkur- hátíð Guðmundi Marteinssyni, formanni Skógræktarfélags Reykjavikur, málverk eftir Jóhannes Geir úr Heiðmörk sem þakklætisvott frá Reykvík- ingum fyrir það mikla starf sem hann hefur unnið f Heið- mörk. Guðmundur ritaði sem formaður Skógræktarinnar undir samninginn, er borgin fól Skógræktarfélaginu alla umsjón í Heiðmörk fyrir 25 árum, og hefur hann verið f fararbroddi áhugamanna þar sfðan. gæti orðið öllu meira en ósk- hyggja- En Reykvfkingar létu ekki við óskhyggjuna eina sitja. Allmargir góðborgarar I Reykjavík tóku sig til og stofnuðu hlutafélag, sem hlaut nafnið Skógræktarfélag Reykjavíkur, og kostaði hvert hlutabréf 25 krónur, en þá var gildi krónunnar um þúsund sinnum hærra en nú. Ekki var þetta hlutafélag stofnað i ábataskyni, heldur var það stofnað til þess að kaupa land og hefja þar skógrækt. Vorið 1903 var keypt spilda, 35 dagsláttur að stærð, við Rauða- Ræða Guðmundar Marteinsson- ar á Heið- merkurhátíð vatn, úr landi jarðarinnar Grafar í Mosfellssveit, og girt mjög vandaðri girðingu, en eig- endur Grafar voru erfingjar Benedikts Sveinssonar yfir- dómara, sem um skeið bjó á Elliðavatni. Aðalhvatamaður meðal Is- lendinga að stofnun félagsins var séra Þórhallur Bjarnason. Hann var forustumaður á sviði búnaðar- og ræktunarmála, stofnað nýbýli utan við Reykja- vík, er hann skírði Laufás eftir fæðingarstað sínum við Eyja- fjörð, og var forseti Búnaðar- félags Islands um árabil. Svo sem kunnugt er, var Þórhallur Bjarnason einnig forustumaður á sviði kirkjumála, f mörg ár forstöðumaður prestaskólans í Reykjavík og sfðar biskup. Það kann að hafa borið vott um hugsjónablæ Skógræktar- félags Reykjavíkur hins eldra, að fyrsti formaður félagsins var þjóðskáldið Steingrimur Thor- steinsson. Meðal stofnenda voru fleiri andans menn, svo sem séra Haraldur Níelsson og Ágúst H. Bjarnason, sem báðir urðu sfðar prófessorar við Háskóla Islands, hvor á sinu sviði. En einnig voru meðal stofnendanna menn úr praktfska lifinu, sem svo er kallað svo sem Knud Zimsen verkfræðingur, sfðar borgar- stjóri, og bróðir hans, Jes Zimsen kaupmaður, og Ellert Schram skipstjóri, svo að aðeins örfá nöfn séu nefnd. Félagsmenn fóru ríðandi upp að Elliðavatni í frístundum sín- um til gróðursetningarstarfa á vorin. Ýmsir örðugleikar ollu þvi, að smám saman dró úr skóg- ræktarstörfunum í Rauðavatns- stöðinni og Skógræktarfélag Reykjavíkur hið eldra leið undir lok. Skal það ekki rakið nánar, en Rauðavatnsstöðin er nú i eigu og umsjá Skógræktar- félags Reykjavikur og biður þess, að henni verði aukinn sómi sýndur, þótt hún hafi að vísu ekki verið með öllu van- rækt undanfarin ár. Með setningu skógræktarlag- anna 1907 má segja, að skóg- rækt hafi fengið opinberlega viðurkenningu sem liður i is- lenzkri jarðrækt. Skipaður var skógræktarstjóri og fjórir skógarverðir, einn fyrir hvern landsfjórðung. Eftir því sem takmarkaðar fjárveitingar leyfðu var unnið að friðun skóga og skógarleifa f ýmsum landshlutum og gerðar tilraun- ir með ræktun birkis á skóg- lausu landi. En áhugi meðal almennings fyrir trjárækt og skógrækt fór smám saman vax- andi á ný. Æ fleiri framfarasinnaðir ræktunarmenn eygðu aukna landkosti skógi vaxinna heiða og hlíða umfram skóglaust og meira og minna gróðursnautt land og höfðu trú á þvf að spá- dómar og fyrirheit góðskáld- anna ættu fyrir sér að rætast. Arið 1930 markaði tímamót. Þá, á Alþingishátiðinni á Þing- völlum, var Skógræktarfélag Is- lands stofnað. Attu margir mætir menn hlut að máli með Sigurð Sigurðsson búnaðar- málastjóra í broddi fylkingar og varð hann fyrsti formaður félagsins. Skal nú farið fljótt yfir sögu, en sögulok verða ósögð að sinni. A'ðstæður til skógræktar eru gjörbreyttar frá því um siðustu aldamót. Nú er aflað trjáfræs Framhald á bls. 26

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.