Morgunblaðið - 02.07.1975, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JÚLI 1975
21
félk í
fréttum
' ■ : -V:
o
+ Ég cr sjálfstæð manngerð,
kæri niig ekki um að neinn eigi
mig og trúi ekki á hjónabandið.
Það hlýtur að vera erfitt fyrir,
menn að elska mig. Að búa með
mér. Ég er kröfuhörð við karl-
mennina í lffi mfnu. „Þetta
sagði franska leikkonan
Catherine Deneuve f viðtali við
„Sunday Express“. Hún hefur
aldrei háft neina fordóma og
það var litið á hana sem svarta
sauðinn í fjölskyldunni. „Fólk
les um mig og myndar sér skoð-
un um mig. Oft er það rétt. En
innst inni er ég feimin, hrein
og bein og heiðarleg." Enski
Ijósmyndarinn David Bailey
giftist henni og hann segir um
hana að hún hafi skap eins og
Ferrari. Roger Vadim, sá sem
kom henni í kynni við kvik-
myndahciminn og var faðir
barns hennar, Christians, scm
nú er orðinn 11 ára segir í
ævisögu sinni (sem er að vfsu
ekki komin út) að mjög auðvelt
hafi verið að reita Catherine til
reiði. Leikarinn Marcello
Mastroianni, sá sem hún bjó
með f þrjú ár, segir að hún sé
viljasterk og fái yfirleitt vilja
sínum framgent. Samband
þeirra hékk oft á bláþræði
nema um það leyti sem dóttir
þeirra Chiara. sem nú er
tveggja ára, fæddist. „Ég
spurði hana hvort hún vildi
eignast barn. Já sagði hún. Og
þar sem við vorum sama sinnis,
eignuðumst við Chiöru," sagði
Mastroianni.
+ Birgit Nilsson, sænska
óperusöngkonan, er sú
launahæsta á lista óperu-
söngvaranna. Hún krefst
þess að fá 37.000 sænskar kr.
fyrir að koma fram, Joan
Sutherland fylgir henni fast
eftir með 33.500 kr.
+ Justin De Villeneuve, sá
sem uppgötvaði Twiggy,
gifti sig nýlega f London. Sú
lukkulega er Ijósmynda-
fyrirsæta Jan Ward. Hann
hélt upp á daginn með að
bjóða litlu símanúmerbók-
ina sína — sem hefur að
innihalda númer vinsælustu
stúlkna borgarinnar — til
sölu.
+ Birgitta Bardot, baðar sig
topplaus við St. Tropez.
Vinur hennar Jean Blaise,
er þar nærstaddur til þess
að þurrka hana og reka nær-
göngula Ijósmyndara í
burtu.
+ Muhammad Ali, meistari
allra meistara, hefur nú
sýnt það og sannað svo að
ekki verður um villst með
sigrinum yfir Bugner að
hann er enn f toppformi. A
blaðamanna-fundi sem hald-
inn var nýlega á Malaysiu
talaði hann Oxford-ensku til
þess eins að strfða keppi-
naut sínum, Bugner.
+ Charles prins virðist ætla
að verða eitthvert stórstirni
f sjónvarpinu. Núna undir-
býr hann af kappi þátttöku
sína í fimm sjónvarpsþátt-
um, þar af er 26 mínútna
þáttur um hann sjálfan.
+ Heyrzt hefur að til greina
komi Jimmy Page, núver-
andi gítarleikari hljóm-
sveitarinnar Led Zeppelin,
hafi á döfinni að gerast
gftarleikari f Rolling Stones.
+ Þegar Pia Dagermark kemur
aftur til Svfþjóðar f sumar til
þess að leika f mynd sem sá
stjórnar, er gerði hana fræga í
myndinni Elvira Madigan, eða
leikstjórinn Bo Widerberg,
kemur eiginmaður hennar Pier
Camminneci, með henni. Hann
er einmitt annar framleiðandi
myndarinnar.
„Eg hlakka mikið til að starfa
með Bo aftur, en ánægðust er
ég samt með að Pier hefur sam-
þykkt að ég leiki f „Victoriu"
Knut Hamsuns, sagði Pia. Hún
og ciginmaður hennar ákváðu
fyrir ári sfðan að fara sitt f
hvora áttina f smá tíma. Þá
höfðu þau verið gift í tvö ár og
eiga þau einn son, Caesar, sem
nú er þriggja ára. „Ég hafði
alltaf verið of ósjálfstæð, svo að
þegar ég byrjaði á því að hafa
mfnar eigin skoðanir á hlutun-
um, skyldi Pier mig alls ekki.
Hann hélt að ég mótmælti hon-
um bara til þess að vera á
annarri skoðun. Áður en Pier
Caminneci giftist Piu, var hann
þckktur „playboy". Hann hafði
þénað stórfé á að flytja út
bandarfskar myndir. En eftir
að hann gekk í hjónband hcfur
hann snúið sér að því að leigja
út myndir f Italíu. Þegar hann
las handritið að Victoriu, leizt
honum svo vel á það og var
strax viss um að það væri örugg
fjárfesting, og jafnframt fékk
hann því komið fram að hann
var ráðinn til að „hjálpa við
leikstjórnina".
Afmæliskveðj a til
Maríu Markan
26. júní 1975
Frá Hugrúnu
Heill sé þér María Markan
á merkisskeiði.
Hann sem öHu er æðri
þig áfram leiði.
Hann hefur gáfu þér gefið
sem gleði vekur.
Fjársjóð er andann fær auðgað
og ánauð hrekur.
Ómældur gleðinnar gjafi
gullhörpusláttur.
Töfrandi tónanna flóðið
tign og máttur.
Meðan þú ung varst að árum
ættjörð þína
kynntir, og Ijós þinnar listar
/éstu skína.
Sveifstu á vorsins vængjum
um vegu langa.
Buðu þér bjartar verur
um borð að ganga
í farkost, er frægðin stýrir
fögur drottning.
Barst þú að barmi hennar
í bljúgri lotning.
Sönglist, gæfunnar gyðja
gleður og kætir.
Hrekur burt skugga og skúrir
skaphöfn bætir.
Þökk sé þér María Markan,
merkið berðu
hátt, fyrir þjóðina þína
þörfina sérðu.
Röddin þín hátt mun hljóma
í heiðu veldi.
Þótt minnki um afrek og orku
á ævikveldi.
Um Ijósvakans öldur hún líður
sem Ijúfur draumur.
Þótt geysi fram ókomnu árin
sem ólgustraumur.