Morgunblaðið - 02.07.1975, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. JULÍ 1975
27
Bugner
átti ekki
möguleika
gegn Ali
Meðan það er einhver sem
heldur að hann geti unnið mig f
hringnum þá get ég ekki hætt,
sagði Muhamed Ali eftir að hann
hafði unnið Evrópumeistarann
Joe Bugner f keppni um heims-
meistaratitilinn í hnefaleikum I
Kuala Lumpur í fyrrakvöld. —
Mér er sama hvort maðurinn heit-
ir Ken Norton, Joe Frazier eða
George Foreman, ég skal leggja
þá alla til að sýna að ég er beztur.
Joe Bugner átti aldrei mögu-
leika gegn heimsmeistaranum og
vann aðeins eina lotu af 15, fjórar
enduðu jafnar, en hinar 10 vann
Ali. Mikill hiti var meðan keppni
þeirra stóð yfir og kvartaði Bugn-
er yfir honum að keppninni lok-
inni, en Aíi sagði aðeins að hitinn
hefði komið jafnt niður á þeim
báðum. Átti Bugner aldrei mögu-
leika I keppninni og var í varnar-
stöðu nær allan tímann.
Ali sem orðinn er 33 ára sagði
eftir leikinn að hann hefði enn þá
trú að hinn 25 ára gamli Joe
Bugner ætti eftir að verða heims-
meistari, en það yrði þó ekki fyrr
en hann væri sjálfur hættur.
Einn handknattleiksmaðurinn
KSÍ setur á stofn
knattspyrnuskóla
fyrir lengra komna
enn til V-Þvzkalands:
Olafur Einarsson til
þgzks 2. deildarliðs
un hafa ekki sótt neitt námskeið,
og fjöldinn fylgist lítið með á
sviði unglingaþjálfunar.
Það er Tækninefnd KSl, sem
haft hefur veg og vanda af undir-
búningi skólans, en í nefndinni
eiga sæti Reynir Karlsson, Karl
Guðmundsson og Sölvi Öskarsson.
Ólafur Einarsson handknatt-
leiksmaður úr FH mun hafa
gert samning við v-þýzka hand-
knattleiksliðið Dohnsdorf um
siðust helgi og hyggst leika
með félaginu næsta vetur.
Leikur Dohnsdorf í 2. deild
suðurhluta V-Þýzkalands og
varð félagið í þriðja sæti í
deildinni sfðastliðinn vetur.
Dohnsdorf er frá útborg
Göppingen og hefur ætíð staðið
í skugganum af félaginu sem
Geir Hallsteinsson lék með á
sínum tíma og Gunnar Einars-
son bróðir Ölafs hóf að æfa með
fyrir skömmu og ætlar að leika
með i vetur. Upp á síðkastið
hefur Göppingen þó mátt vara
sig á nágrönnum sínum, sem
hafa sýnt miklar framfarir.
Ólafur lék æfingaleik með
Dohnsdorf um síðustu helgi og
skoraði þá fimm mörk í leik við
1. deildarlið og þótti standa
sig mjög vel. Fari svo að Ólafur
haldi til Þýzkalands verður
hann fimmti íslenzki landsliðs-
maðurinn i handknattleik sem
IBK — IA
í kvöld
KEFLVlKINGAR og Skagamenn
mætast I 1. deildarkeppninni í
knattspyrnu i Keflavík i kvöld og
hefst leikurinn klukkan 20. Eru
Skagamenn i efsta sæti deildar-
innar ásamt Fram, en Keflvíking-
ar eru með 6 stig eftir 6 leiki.
Bæði liðin unnu leiki sína um
siðustu helgi, ÍA vann Val 2:1 og
IBK vann IBV í Eyjum 1:0. Þeir
Einar Gunnarsson og Karl Her-
mannsson, sem ekki gátu leikið
með Keflavikurliðinu um síðustu
helgi verða sennilega báðir með í
dag. Sætaferðir verða frá Akra-
nesi vegna þessa leiks og verður
farið frá Akranesi klukkan 17.15.
Ur leik Þróttar og Breiðabliks.
Þróttarar urðu fyrstir
til að leggia Blikana
— og 2. deild er galopin
Hið unga lið Þróttar vann
óvæntan sigur yfir Blikunum úr
Kópavogi á Þróttarvellinum við
Sæviðarsund á mánudagskvöldið:
Með þessum sigri eykst spenn-
an f 2. deild, því að nú eru
Blikarnir efstir með 10 stig, en
Þróttar fylgja fast á eftir með 9
stig. Þá koma Ármann og Selfoss
með 8 stig.
Leikur Þróttar og Blikanna var
mikill baráttuleikur og sáust þar
oft skemmtileg tilþrif. Gaf hann
ekkert eftir mörgum leikjum í 1.
deild, sem fram hafa farið f vor
og sumar. Það fer ekki á milli
mála, að vegur 2. deildar fer vax-
andi og tel ég ástæðu til að vekja
athygli knattspyrnumanna á þvf,
svo að þeir gefi leikjum þar meiri
gaum en hingað til.
Blikarnir byrjuðu leikinn af
miklum krafti, og vart var liðin
nema mínúta, er söng í þverslá á
marki Þróttar.
Leikurinn jafnaðist nokkuð er á
leið og áttu Þróttarar nokkrar
sóknarlotur, sem sköpuðu hættu.
En á 14. mín. skoruðu þeir óvænt
mark. Engin hætta virtist sjáan-
leg, en allt i einu fékk Örn
Bragason knöttinn fyrir utan víta-
teig. Skaut hann óvæntu skoti að
marki Blikanna og hafnaði
knötturinn i netinu.
Þróttarar bættu við öðru marki
á 36. mín. og var það mjög ódýrt
og nokkuð umdeilt meðal áhorf-
enda, sem töldu að Stefán
Stefánsson hefði skorað það með
hendinni. Einar Hjartarson
dómari, svo og linuvörðurinn,
voru á öðru máli. — Knötturinn
datt ofan á öxl leikmannsins og
þaðan i markið, sagði Einar eftir
leikinn. Og bætti við: — Mér er til
efs að hann hafi vitað af knettin-
um fyrr en hann hrökk af honum
og í markið.
Sóknarleikur Þróttar var mun
beittari i fyrri hálfleik og flestar
sóknarlotur Blikanna strönduðu á
„gömlu mönnunum" hjá Þrótti,
þeim Halldóri Bragasyni og
Gunnari Ingvasyni, sem báðir
áttu góðan og yfirvegaðan leik. I
sókninni hjá Þrótti bar hinsvegar
mest á hinum unga og skemmti-
lega leikmanni Þorvaldi
Þorvaldssyni, sem gerði
margt skemmtilega, auk þess
sem hann sýndi mikla keppnis-
hörku. Fer ekki á milli mála, að
þar er mikið efni á ferðinni.
SlÐARI HÁLFLEIKUR
Síðari hálfleikur var að mestu
einstefna á mark Þróttar en þeir
svöruðu einstaka sinnum fyrir sig
með skyndisókn, og næst komust
þeir að skora á 63. mín. er Þor-
valdur skaut hörkuskoti í stöng,
en markvörður náði síðan að
bjarga.
En marktækifæri Blikanna
voru fleiri og hættulegri, enda
skall hurð oft nærri hælum við
mark Þróttara. A 57. mín. áttu
þeir t.d. hörkuskot undir þverslá,
en knötturinn hrökk niður á
marklinuna og síðan i hendur
Jóns markvarðar.
Undir lokin gerðist pressa Blik-
Framhald á bls. 26
Regkjavíkurleikarnir hefjast í kvöld:
65 keppendur skráðir í mótíð
Reykjavíkurleikarnir I frjáls-
um íþróttum fara fram á Laugar-
dalsvellinum I kvöld og annað
kvöld og hefst keppnin klukkan
20 I kvöld. Engir erlendir
keppendur verða með I mótinu að
þessu sinni og veldur þar um fjár-
skortur FRl og sömuleiðis að
flýta varð leikunum vegna lands-
leiks f knattspyrnu, en það er
Stigunum deilt á Selfossi:
Selfoss — Armann 1 d
ÁRMÁNN og Selfoss gerðu jafn-
tefli f 2. deild í fyrrakvöld, skor-
uðu bæði liðin eitt mark og hafa
bæði tapað fjórum stigum. Það
var mikil barátta I þessuni leik,
enda mikið í húfi fyrir bæði liðin
sem höfðu tapað þremur stigum
áður en þessi leikur hófst og voru
jöfn Þrótti og Haukum að stigum.
ástæðan fyrir þvf, að sovéskir
frjálsfþróttamenn komust ekki til
mótsins.
Alls eru 65 keppendur skráðir
til mótsins og er þar á meðal
bezta frjálsíþróttafólk landsins,
að undanskildum þeim, sem
dveljast erlendis við æfingar og
keppni um þessar mundir.
Tfmaseðill:
2. júlf: 3. júlf:
Kl. 20.00 Kl. 19.30
400 in grindahlaup karla ''ian^arstökk
kúluvarp karla
(Jrslitin, 1:1, voru nokkuð sann-
gjörn miðað við gang leiksins.en
liðin skiptu hálfleikunum bróður-
lega á milli sfn. Ármenningar
voru hættulegri í fyrri hálfleik á
móti vindi, en Selfyssingar áttu
opnari færi í sfðari hálfleik.
Ármannsliðið skoraði eina
mark fyrri hálfleiksins og var
Eiður Guðjohnsen þar að verki.
Leið svo og beið, og ekkert gekk
Selfossliðinu að skora. Það var
ekki fyrr en nokkrar mínútur
voru til leiksloka að liðið tók
virkilega við sér og var eins og
það hefði fengið kröftuga víta-
mínsprautu. Tókst þá Guðjóni
Arngrímssyni að skora eina mark
heimamanna með fallegu skoti
frá vítateig.
hástökk karla
Kl. 20.10
200 m lilaup kvenna
langslökk karla
Kl. 20.20
200 ni hlaup karla
Kl. 20.30
800 ni hlaup kvenna
spjútkast karla.
Kl. 20.40
800 ni hlaup karla
hástökk kvenna
Kl. 20.50
3000 ni hlaup karla
Kl. 21.05
kúluvarp k\ enna
100 m grindahlaup kvenna 100 m h,ai,Ȓ kar,a
Kl.21.20
Kl. 21.20 4\ 100 m bm)hlaup
4\100 m boúhlaup karla kvenna.
Kl. 20.00
110 ni Krindahlaup
karla
krinj>lukast karla
laiiM-stökk kvenna
spjótkast kvenna
Kl. 20.10
400 m hlaup kvenna
Kl. 20.15
400 m lilaup karla
Kl. 20.25
1500 iii lilaup karla
Kl. 20.35
100 ni hlaup kvenna
kriiij>hikast kvenna
Kl. 20.45
5000 m hlaup karla
1 þrfstökk
sleggjukast
Kl. 21.10
Olafur Einarsson.
þar dvelur næsta vetur. Hinir
eru Axel Axelsson og Ölafur H.
Jónsson hjá Grunweis Danker-
seen, Einar Magnússon hjá
Hamburger SV og Gunnar
Einarsson hjá Göppingen.
Knattspyrnusamband ís-
lands hyggst fara af stað
með knattspyrnuskóla f
haust þar sem 15—20
manna hópi yrði gefinn
kostur á aukinni menntun
í fræðum knattspyrnunn-
ar. Er ætlun KSl með þess-
um skóla, að þar verði
menntaðir þjálfarar sem
síðan geti tekið að sér
þjálfun meistaraflokka og
annazt fræðslu fyrir aðra.
Er lfklegt að knattspyrnu-
skólinn verði starfræktur í
sambandi við Kennarahá-
skólann og innan húsa-
kynna þeirrar stofnunar.
Þeir hafa rétt til að setjast
í skólann, sem hafa íþrótta-
kennarapróf eða hafa lokið
minnst tveimur knatt-
spyrnunámskeiðum.
Hugmyndin um knattspyrnu-
skóla var kynnt á fundi með
fréttamönnum i gær og sagði Ell-
ert Schram formaður KSl að
meiningin væri að skólinn starf-
aði á timabilinu frá þvi i septemb-
er og fram að jólum og yrðu
kennslustundir alls um 200.
Ástæðan fyrir þvi að KSI réðist í
þetta mikla fyrirtæki væri sú að
menntun íslenzkra knattspyrnu-
þjálfara upp á síðkastið hefði ver-
ið ónóg og ljóst væri að knatt-
spyrnufélögin hefðu ekki efni á
að fá erlenda knattspyrnuþjálfara
til langframa.
I könnun sem Karl Guðmunds-
son gerði fyrir Knattspyrnusam-
bandið á siðastliðnum vetri kem-
ur m.a. i ljós að nálægt 60%
þeirra sem fást við unglingaþjálf-
iiiufliiia