Morgunblaðið - 02.07.1975, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.07.1975, Qupperneq 28
iHLAÐNAR ,4+ELLESEI\IS/ ODICLI V RAFHT ÖnTTR Æ r ll FRYSTIKISTUR RflFTORG SÍMI: 26660 RflFIGJAN SÍMI: 19294 146. tbl. 62. árg. MIÐVIKUDAGUR 2. JULÍ 1975 Framdi 7 þjófnaði á hálfum mánuði eftir að hann kom úr fangelsi TVEIR piltar um tvftugt hafa við yfirheyrslur hjá rannsóknarlög- reglunni í Reykjavík játað að hafa á undanförnum vikum brot- izt inn í alls sjö íbúðarhús og stolið úr þeim alls um 200 þús. krónum. Annar piltanna var nýkominn af I.itla-Hrauni eftir að hafa setið þar sex mánuði í fang- elsi til að afplána dóm fyrir fjiil- marga þjófnaði úr íbúðarhúsum, og nú eru til meðferðar hjá dóms- málayfirvöldum milli 30 og 40 mál hans vegna sams konar þjófnaða, scm hann framdi áður en hann fór f dómsafplánun á Litla-Hrauni fyrir hálfu ári. Pilturinn var látinn laus af Litla-Hrauni 12. júni sl. Var hann sfðan handtekinn 27. júní og hafði þá verið frjáls ferða sinna í hálf- an mánuð. Við yfirheyrslur viður- kenndi hann þjófnað á meira eða minna af peningum úr sjö fbúðar- húsum og félagi hans, sem líka hefur komið oft við sögu hjá rannsóknarlögregiunni, játaði að hafa verið samstarfsmaður hans í fimm þessara innbrotsþjöfnaða. Auk þess viðurkenndu þeir að hafa gert margar tilraunir án árangurs til að komast inn í hús að stela og einnig að hafa komizt inn i fbúðarhús en ekki fundið þar neina peninga. Pilturinn, scm fleiri þjófnaöi hafði framið, hefur stundað þessa iðju nær óslitið í 3—4 ár og hefur rannsóknarlögreglan upplýst marga tugi þjófnaða hans. Var þannig t.d. frá því skýrt í Morgun- blaðinu sumarið 1972 að pilturinn hefði á einu og hálfu ári þar á undan stolið peningum úr íbúðum sem nam um einni milljón króna, að því er skjalfcst var, en grunur lék á að upphæðin hefði verið talsvert hærri. Pilturinn hefur síðan setið í varðhaldi og í fang- elsi oftar en einu sinni, en jafnan tekið upp fyrri iðju á ný, er hann var látinn laus. Samkvæmt upp- lýsingum rannsóknarlögreglu- mannsins, sem hefur haft rann- sókn síðustu þjófnaða hans með höndum, hefur pilturinn aldrei greitt^ neinar skaðabætur fyrir það tjön sem hann hefur valdið eða skilað neinum af þeim verð- mætum, sem hann hefur stolið, en það hafa nær eingöngu verið pen- ingar. Pilturinn hefur verið úr- skurðaður í 15 daga gæzluvarð- hald meðan á rannsókn mála hans stendur. Ljósm. Mbl.: Brynjólfur SKUTURNAR — eru margar hverjar fallegustu fley, sem sjást á sjó. Sú, sem við sjáum hér á myndinni, er í eigu Englendings, en hefur nokkra síðustu mánuði verið í viðgerð í Bátalóni í Hafnarfirði. Þessi skúta hefúr gert víðreist, því að henni hefur verið siglt a.m.k. tvisvar sinnum kringum hnöttinn. Mesti bjart- sýnismaður landsins? UM miðjan dag í gær var verið að flytja afbrotamann í Hegn- ingarhúsið við Skólavörðustíg og annaðist það verk ungur laganemi, sem starfar sem boð- unarmaður hjá rannsóknarlög- reglunni og Sakadómi Reykja- vikur í sumar. Er komið var að húsinu, notaði fanginn tæki- færið, er hann var að stíga út úr bi.freiðinni, og tók á rás upp Skólavörðustíginn og beygði fyrir næsta horn. En hann komst ekki langt í það skiptið, því að boðunarmaðurinn var enginn annar en sprettharð- asti maður Islands, Bjarni Stefánsson, sem hefur verið ó- sigrandi i spretthlaupum á frjálsiþróttamótum hér á landi undanfarin ár. — Var ekki nema von að rannsóknarlög- reglumenn hefðu á orði i sam- bandi við þessa flóttatilraun, að fanginn væri mesti bjart- sýnismaður landsins! Hægt að greiða 3,90 krónur fyrir kílóið af loðnunni Fituinnihaldið 18% á móti 4% í spærlingi 4% fitu NOKKUÐ hefur verið rætt um fyrirhugaða loðnuveiði fyrir Norðurlandi á þessu sumri og f framtfðinni, en margir af kunn- ustu skipstjórum landsins og færustu fiskifræðingar okkar telja fullvíst að ná megi einhverj- um árangri með þvf að veiða loðn- una þar f nót eða flotvörpu. Menn hafa hinsvegar verið hræddir við að leggja út f þessar veiðar f sum- ar vegna hins lága verðs, sem ákveðið var á spærlingi á dögun- um og hins lága mjöl- og lýsis- verðs á heimsmörkuðunum um þessar mundir. Morgunblaðið hefur nú aflað sér upplýsinga um það, að hægt verði að greiða a.m.k. 3.80—3,90 fyrir hvert kg. til skipta af Norðurlandsloðnu, þar sem hún er mjög feit yfir sumartfmann, um 18%, en verð- ákvarðanir á bræðslufiski hafa svo til eingöngu byggzt á lýsis- verðinu að undanförnu, þar sem mjölframleiðslan hefur ekkert gefið af sér. Hið lága verð á spær- lingi á t.d. rætur sfnar að rekja til þess, að fiskurinn er nú mjög magur eða með rétt um innihald. Morgunblaðið var upplýst um það í gær, að almennt mætti draga 3—4% frá af fituinnihaldi fisks þegar verðákvörðun væri tekin. Um þessar mundir seldist lýsis- tonnið á 300 dollara. Það þýddi að hvert lýsisnýtingarprósent úr kílói gæti gefið 30 aura i hráefnis- verð og ef hægt væri að reikna með 15% lýsisnýtingu úr norð- lenzku loðnunni, þá gætu verk- smiðjurnar borgað samtals 4,50 kr. fyrir kilóið, sem teljast yrði sæmilegt. Af þessum 4,50 krónum færi svo 15% í stofnfjársjóð, þannig að skiptaverðið yrði um kr. 3,90 pr. kg. Þvi miður væri mjölverðið nú þannig, að það gæfi ekkert af sér, og því ekki hægt að taka neina verðviðmiðun af því. Ekki mætti heldur gleyma því, að verð á makríl, sem færi i bræðslu á íslandi, væri nú ákveðið kr. 4,60 fyrir hvert kg en hann væri um 17% feitur og gæfi auk þess mun meira mjöl af sér en loðnan. Björn Dagbjartsson forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðar- ins tjáði Morgunblaðinu, að fitu- mæling, sem gerð hefði verið á loðnu norðanlands árið 1972, hefði sýnt að hún var þá með 18% fituinnihald og mæling frá þvi 12. september það ár sýndi hana 17% feita. Hér hafi verið um ókyn- þroska loðnu að ræða. Yfir vetrar- tímann væri ekki hægt að segja það sama um fituinnihald loðn- unnar. Oftast nær væri hún 12—13% feit þegar hún kæmi upp að landinu og síðan dytti fitu- innihaldið niður í 4—5% eftir þvi sem hún gengi vestar með land- inu og í lok veiðitímans er fitu- innihaldið sáralítið og þar af leið- Framhald á bls. 26 Lögbannsatriðin 1 Sverris þætti NOKKUR umræða hefur verió manna á meöal um viðtalsþáttinn „Maður er nefndur Sverrir Krist- jánsson" og hvaða hluta hans hafi verið reynt að fá niðurfellda með dómi. 1 dómi Hæs'taréttar i mál- inu, sem höfðað var til staðfest- ingar á lögbanni við sýningu þátt- arins, er svo greint frá dómkröf- um dætra Arna heitins Pálssonar, sem stóðu fyrir lögbanninu: Stórfelld landgræðsla hefst á Hólmsheiði í þessari viku Veitir 60—70 manns atvinnu „REYKJAVlKURBORG hefur tekið upp samvinnu við landbún- aðarráðherra, landgræðslu ríkis- ins og skógræktina um að 400 ha lands á Hólmsheiði verði girtir nú á þessu sumri, rofabörð stung- in niður og í þau sáð, og að öðru leyti verði reynt að snúa hinni uggvænlegu þróun við. 4 þvi starfi, eins og reyndar i Heið- mörk, verður unnt að sameina tvennt, ungt fólk f borginni fær atvinnu við holl ræktunarstörf og landið grætt upp. Þetta starf byrj- ar nú f þessari viku.“ Þessi um- mæli hafði borgarstjóri Birgir Isl. Gunnarsson á afmælishátfð Heiðmerkur sl. sunnudag, þar sem hann sagði að hin góða reynsla f Hciðmörk ætti að verða okkur hvatning til að huga á sama hátt að flciri svæðum í nágrenni Reykjavíkur. Undanfarið hefur verið unnið að því að koma þessu mikla verk- efni í gang. Umhverfismálaráð borgarinnar lét Ingva Þorsteins- son, magister, gera gróðurúttekt á landi Reykjavíkur og jörðum í eigu borgarinnar. Kom þá í ljós að viðtæk gróðureyðing á sér stað og Hólmsheiði er svo illa farin að þar stefnir að gróðurauðn, ef ekki verður gripið í taumana. Borgar- verkfræðingur hefur að undan- förnu unnið að áætlun um að girða um 400 ha. lands á Hólms- Framhald á bls. 5. „Dómkröfur aðaláfrýjenda eru þessar: Aðallega, að dæmt verði óheim- ilt að sýna í sjónvarpi þann hluta viðtalsþáttar Péturs Péturssonar við Sverri Kristjánsson, er sýna átti 2. nóvember 1973, þar sem fjallað er um föður þeirra, Árna Pálsson prófessor. Til vara, að dæmt verði óheim- ilt að sýna í sjónvarpi þann hluta nefnds viðtals, sem hefst áorðun- um „Jú, hann kom sumarið eða vorið 1937...“ og lýkur með orð- unum „. .. þegar við förum að keppa um prófessoratið eftir Arna Pálsson.“ Til þrautavara, að dæmt verði óheimilt að sýna í sjónvarpi þann hluta nefnds viðtals, sem hefst á oröunum: „Og þeir höfðu víst vandrað...“ og lýkur með orðun- um „... þegar við förum að keppa um prófessoratið eftir Árna Páls- son.“ Enn til vara, að dæmt verði óheimilt að sýna i þættinum mynd af Arna heitnum Pálssyni prófessor eftir Örlyg Sigurðsson Iistmálara.“ Hæstiréttur staðfesti i málinu niðurstöðu héraðsdóms um að ekki yrði talið að rök lægju til þess að banna sýningu á þættin- um. ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.