Morgunblaðið - 30.07.1975, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.07.1975, Blaðsíða 1
24 SÍÐUR 170. tbl. 62. árg. MIÐVIKUDAGUR 30. JULl 1975 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Vinir bola Gowon frá Kampala, 29. júlí. AP. Reuter. YAKUBU Gowon hershöfðingja, valdamesta manni Nfgeríu, hefur verid steypt af stóli í byltingu sem var gerð án þess að til blóðs- úthellinga kæmi. Vinir hans úr herforingjastétt stóðu fyrir bylt- ingunni og skipuðu Muritala Ruf- ai Mohammed hershöfðingja þjóðhöfðingja og yfirhershöfð- ingja f hans stað. Byltingin var gerð á níu ára afmæli byltingarinnar, sem kom Gowon til valda, og Mohammed hershöfðingi, eftirmaður hans, var einn þeirra sem skipulögðu þá byltingu. Yfirmenn landhers, sjó- hers, flughers og lögreglu héldu fund í kvöld með Mohammed hershöfðingja i aðalstöðvum hers- ins og þar voru nýir menn skipað- ir í æðstu stöðvar heraflans. Namwan Garba ofursti, náinn vinur Gowons og yfirmaður varð- sveita f aðalstöðvum hans í Lagos, sagði frá byltingunni í Lagos- útvarpinu. Hann sagði að hann og aðrir yfirmenn í hernum hefðu gert byltinguna „með hliðsjón af því sem hefur gerzt á undanförn- um mánuðum“.AIlt er með kyrr- um kjörum i Lagos þar sem fólk er rólegt og götulíf er með eðlileg- um hætti, og sömu fréttir berast frá öðrum landshlutum. Gowon hershöfðingja var sagt frá byltingunni, í Kampala þar sem hann situr fund æðstu manna Afríku, og hún virtist ekki koma honum á óvart. „Ég hef hreina samvizku. Það er óþarfi að hafa áhyggjur,“ sagði hann. Hann mun hafa haft veður af fyrirhugaðri byltingu áður en hann fór frá Lagos, en samt ákveðið að fara og á að hafa sagt byltingarmönnum að þeir yrðu að bera ábyrgð á blóðsúthellingum sem bylting gæti haft í för með sér. Gowon hafði ávarpað ráðstefnu Einingarsamtaka Afríku og var enn í ráðstefnusalnum þegar að- stoðarmaður hans sagði honum frá byltingunni. Gowon gekk þá til Idi Amin Ugandaforseta, sem virtist hissa á því sem Gowon sagði honum og tók í hönd hans. Gowon var rólegur og brosleitur og fór siðan til hótels síns, þar sem hann var í dag og ræddi við Amin, Mobutu Zaireforseta og samstarfsmenn sína. Sagt er að ekkert bendi til þess að Gowon hafi gefizt upp og hann vilji kanna hvað fylgi nýju vald- hafanna standi sterkum fótum. Hugsanlegt er talið að hann fari til einhvers nágrannaríkis Níger- iu til dæmisKamerún en biðji um hæli I Bretlandi ef hann telji ástandið vonlaust. Amin forseti kvaðst vita ná- kvæmlega hvað Gowon mundi gera, en útskýrði það ekki. Hins vegar kvaðst Amin ekki geta for- Framhald á bls. 23 Simamynd AP. GEIR FAGNAÐ — Geir Hallgrímsson forsætisráðherra ræðir við Urho Kekkonen forseta skömmu eftir að hann kom til Helsinki í gær til að sitja öryggismálaráð- stefnu Evrópu, sem hefst i dag. Ráðstefna leiðtoga frá 35 þjóðum hefst í dag Helsinki, 29. júlí. Reuter. AP. LEONID Brezhnev, aðalleiðtogi sovézka Kommúnistaflokksins, og Gerald Ford, forseti Bandarfkj- Cunhal víkur úr stjórninni Lissabon, 29. júlí. AP. Reuter. ALVARO Cunhal, foringi port- úgalskra kommúista, fær senni- iega ekki sæti f hinni nýju stjórn Vasco Goncalves forsætisráð- herra samkvæmt áreiðanlegum heimildum. Þó verður félagi úr kommúnistaflokknum sennilega í stjórninni og búizt er við að Cun- hal hafi eftir sem áður mikil áhrif á Goncalves og stjórnina. Ernesto Melo Antunes utan- ríkisráðherra fær sennilega ekki heldur sæti í hinni nýju stjórn og vafasamt er talið að hófsamir her- foringjar fái öllu lengur að vera í hreyfingu heraflans, MFA. Ef Antunes verður vikið úr embætti er talið að hann og aðrir hófsamir herforingjar verði einnig að víkja úr byltingarráðinu. Stjórnarmynduninni hefur verið frestað þangað til á morgun því að þá er yfirmaður öryggis- þjónustunnar, Otelo Saraiva de Carvalho hershöfðingi, væntan- legur frá Kúbu úr opinberri heimsókn. Hann á sæti i þriggja mann herforingjastjórn, sem hefur verið skipuð, ásamt Franc- isco da Costa Gomes forseta og Goncalves Carvalho verður auk þess vara- forsætisráðherra ásamt Jose Joaquim Teixeira Ribeiro, próf- essor i hagfræði við Coimbrahá- skóla, að sögn blaða i Lissabon. Costa Gomes hefur frestað för sinni til Helsinki, þar sem hann mun sitja öryggisráðstefnu Evr- ópu, til að vera viðstaddur valda- töku nýju stjórnarinnar og fer ekki þangað fyrr en á fimmtudag. Við því hafði verið búizt að Cunhal yrði ekki í stjórninni þar sem hún á að vera skipuð óflokksbundnum mönnum. Jose Framhald á bls. 23 anna komu f dag til Helsinki þar sem þeir sitja öryggismálaráð- stefnu Evrópu, sem hefst á morg- un, miðvikudag. Ford kom frá Póllandi, þar sem hann var f opin- berri heimsókn, en Brezhnev kom frá Moskvu iheð sérstakri járn- brautarlest. Ford sagði við komuna að frið- samleg sambúð mundi enn eflast við ráðstefnuna, en hrinda yrði í framkvæmd ákvæðum yfirlýs- ingarinnar, sem verður undirrit- úð á föstudag, ef öryggi Evrópu ætti að geta orðið að veruleika. Brezhnev gaf enga yfirlýsingu við komuna, en sagt er að hann telji ráðstefnuna kórónuna á ferli sín- um. Meðal annarra þjóðarleiðtoga, sem komu til Helsinki í dag voru Tito Júgóslaviuforseti, Helmut Schmidt, kanslari Vestur- Þýzkalands, og Harold Wilson for- sætisráðherra Bretlands. Gisard d’Estaing Frakklandsforseti var væntanlegur seinna i kvöld. Ráðstefnuna sitja stjórnarleið- togar og flokksleiðtogar 33 Evrópulanda og auk þess leiðtog- ar Bandaríkjanna og Kanada. Ráðstefnan stendur í þrjá daga og leiðtogarnir munu skiptast á skoðunum um hvernig tryggja skuli framkvæmd loforða um samstarf þátttökurikjanna, sem koma fram í lokayfirlýsingunni. Strangar öryggisráðstafanir voru gerðar við komu Brezhnevs á járnbrautarstöðinni í Helsinki og þyrla sveimaði yfir stöðinni. Brezhnev setti sér það takmark á 24. þingi sovézka kommúnista- flokksins 1971, að þessi ráðstefna yrði haldin og á 25. flokksþinginu í febrúar á næsta ári mun hann tilkynna að þessu marki hafi ver- ið náð. Rússar vilja tryggja viðurkenn- ingu á þeim landamærum sem voru ákveðin eftir heimsstyrjöld- ina með formlegum skjölum und- irrituðum af öllum ríkjum Evr- ópu. 1 staðinn hafa þeir fallizt á ákvæði um aukin raannleg sam- skipti og gagnkvæma upplýsinga- miðlun. Þeir samþykktu einnig ákvæði, þar sem gert er ráð fyrir þeim möguleika að breytingar geti orðið á landamærum með friðsamlegum hætti og lofuðu að tilkynna fyrirfram um meirihátt- ár heræfingar nærri landamær- um sinum i Evrópu. Eina Evrópurikið sem sækir Framhald á bls. 23 Vilja hraða útfærslu brezku landhelginnar London, 29. júlí. AP. — Einkaskeyti til Mbl. FORYSTUMENN sjávarútvegs- ins í Bretlandi hvöttu til þess í dag að hraðað yrði fyrirætlunum um að færa út brezku fiskveiði- landhelgina. Áður hafði Fred Pearts landbúnaðarráðherra til- kynnt í Neðri málstofunni að styrkur sem sjávarútvegurinn hefur fengið frá ríkinu yrði fram- lengdur um sex mánuði og hann mundi nema 2.250.000 pundum. • „Þetta fé er nauðsynlegt til að gera sjávarútveginum kleift að laga sig eftir breyttum aðstæðum," sagði Peart. Tals- maður togarasambandsins sagði: „Þetta er annar skammtur af kvalastillandi lyfi sem á að duga meðan haldið er áfram að finna lækningu." „Brýn þörf er enn á pólitískum aðgerðum til að tryggja framtíð sjávarútvegsins,” bætti hann við, „og við munum halda áfram að leggja fast að stjórninni að finna skjóta lausn á vandamálunum, sem eru samfara stækkun fisk- veiðilandhelginnar og sameigin- legri stefnu Fiskveiðibandalags- ins f fiskveiðimálum." Charles Meek, formaður stjórn- skipaðrar sjávarútvegsnefndar, ítrekaði fyrri áskoranir um út- færslu landhelginnar: „Enginn veit betur en þeir sem við sjávar- útveg vinna, að styrkur er ekki lausnin og við viljum að næstu sex mánuðir verði notaðir til að leysa mál sem varða lífshagsmuni okkar.“ Dr. Lyon Dean, formaður síldarráðsins, sagði: „Við höfum Framhald ábls. 23 Áhöfnin í Apollo hætt komin fyrir lendingu Houston, 29. júlí. Reuter. GEIMl'ARARNIR i Apollo kveiktu ekki á réttum rofum á réttum tima skömmu fyrir lendinguna og minnstu mun- aði að það kostaði þá lifið, að því er skýrt var frá i dag. Hvað þvf olli er enn ekki ljóst, en áhöfnin getur hafa orðið fyrir truflun, ef til vill vegna há- vaða um borð, þegar farið var yfir lista um þau atriði, sem þeir áttu að gera við lending- una. Þar sem rofinn var ekki sett- ur i samband streymdi eitrað gas inn i stjórnklefann, en geimfararnir settu á sig súr- efnisgrímur. Samt leið yfir geimfarann Vance Brand, sem hneig aftur í sæti sínu, en fé- lagar hans löguðu á honum súrefnisgrímuna og hann rankaði við sér. Eitursérfræðingur geimvís- indastofnunarinnar NASA sagði, að geimfararnir hefðu Framhald ábls. 23

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.