Morgunblaðið - 30.07.1975, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JULl 1975
Siguringi E. Hjörleifsson,
tónskáld — Minningarorð
Kveðja frá Tónskáldafélagi
íslands.
í dag verður Siguringi E. Hjör-
Ieifsson tónskáld til moldar bor-
inn. A fáum árum hafa fallið frá
þau tónskáld sem hófu íslenska
tónlist til vegs og virðingar, Jón
Leifs, Sigurður Þórðarson, Karl
O. Runólfsson, Þórarinn Jónsson,
Helgi Pálsson, Áskell Snorrason,
Páll Isólfsson og nú seinast Sigur-
ingi. Þessir menn voru um margt
ólíkir persónuleikar, en þessi
kynslóö átti það sameiginlegt að
vera metnaðarfyllri fyrir hönd ís-
lenskrar menningar en nú tíðkast
hjá mörgum.
Siguringi fæddist í Grindavík 3.
april 1902. Hann lauk kennara-
prófi 1923 og stundaði kennslu
siðan. Hann stundaði tónlistar-
nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík og lauk prófi þaðan
árið 1936.
Siguringi var mjög látlaus
maður og hlédrægur. Hann hélt
ekki tónverkum sínum á loft sem
skyldi. Þó gaf hann út nokkur
tónverk sín, sönglögin Voróma, Á
ferð og flugi og píanóverkið 16
konsertvalsa. Einnig gaf hann út
tónfræði bók eftir sig um fúgulist-
ina. En Siguringi átti fjölda verka
i handriti, þar á meðal sínfóníu,
strokkvartett, fiðlusónötu og
mörg sönglög. Siguringi vann
sífellt að tónsmíðum og samdi sitt
síðasta lag fáum dögum áður en
hann lést. Verkum hans, sem
óþekkt eru, þarf að koma á fram-
færi.
Siguringi starfaði mikið að
félagsmálum tónskálda. Hann átti
sæti í stjórn STEFs 1949—57.
Hann var ritari Tónskáldafélags-
ins 1948—72, og endurskoðandi
þessara beggja félaga um árabil.
Öllum þessum störfum gegndi
hann af einstakri samvisku-
semi og trúmennsku. Hann
var kjörinn heiðursfélagi
Tónskáldafélagsins árið
1963. I öllu samstarfi var Sig-
uringi einstakt prúðmenni með
aristókratísku yfirbragði. Á
fundum var hann jafnan rólegur,
þegar skapið hljóp í menn, ávallt
tillögugóður og stórhuga ef þvi
var að skipta.
Listrænn áhugi Siguringa
beindist í ýmsar áttir enda list-
+
Hjartkær eiginmaður minn og
faðir
KRISTJÁN RÓSBERG
GUÐMUNDSSON,
BólstaðarhllS 66
andaðist I Landspítalanum 26.
júlí.
Súsanne Guðmundsson,
Guðmundur Þór Kristjánsson.
rænir hæfileikar hans fjölþættir.
Hann hafði yndi af myndlist og
fékkst töluvert við að mála með
góðum árangri. Einnig gaf hann
út ljóðabók sem hann nefndi
Hljómblik. I þeim fáu verkum
sem ég þekki eftir Siguringa
endurspeglast rík fegurðarkennd
og þroskuð smekkvísi. Hann var
mikið náttúrubarn og náttúru-
unnandi. Þannig varð hann
snemma mikill áhugamaður um
skógrækt og starfaði mikið á því
sviði alla tíð.
t
Faðir okkar og tengdafaðir
KRISTJÁN
BENJAM fNSSON,
bifreiðastjóri
verður jarðsunginn fimmtu-
daginn 31. júlí kl. 15 frá Foss-
vogskirkju.
Islensk tónskáld minnast hans
sem góðs drengs og félaga. Fyrir
þeirra hönd vildi ég votta eftirlif-
andi konu Siguringa, frú Lilju
Kristjánsdóttur, samúð okkar.
Atli Heimir Sveinsson.
Kveðja frá STEFI
Við lát Siguringa E. Hjörleifs-
sonar tónskálds á STEF Samband
tónskálda og'eigenda flutnings-
réttar, að baki að sjá einum
dyggasta og bezta stuðningsmanni
sinum.
Siguringi átti sæti í stjórn
STEFs á árunum 1949 — 1957 og
endurskoðandi sambandsins var
hann um langt árabil.
Öll störf sín í þágu STEFs innti
hann af hendi með stakri kost-
gæfni, þannig að á betra varð ekki
kosið. Hann var mjög áhuga-
samur um vöxt og viðgang félags-
ins og varð fyrstur manna til að
flytja tillögu þess efnis, að STEF
keypti sér eigið húsnæði. Hann
var góður fundarmaður, ræðu-
maður ágætur og tillögugóður í
bezta lagi. Drengskap hans,
heiðarleik og háttvísi var við
brugðið.
Störfum hans að tónlistar-
málum þ. á m. störfum hans í
þágu Tónskáldafélags Islands
mun verða gerð skii af öðrum.
Þessum mæta manni eru hér
fluttar hinztu kveðjur og þakkir
fyrir vel unnin störf í þágu
STEFs og rétthafa þess, og eigin-
konu tónskáldsins, frú Lilju
Kristjansdóttur, eru fluttar hjart-
anlegar samúðarkveðjur.
Skúli Halldórsson
Sýnum
þroska
frjáls-
borins
fólks
FRAMUNDAN er mesta ferða-
helgi ársins. Þjóðvegirnir þétt-
skipaðir bifreiðum, sem flytja
menn og konur, unga og
gamla, þúsundum saman burt
frá borginni og hinu daglega
striti í faðm sveitanna og
óbyggðanna, til hvíldar og
hressingar. I slikri umferð sem
þeirri, er senn hefst gildir
öðrum fremur fyllsta gætni og
að vikið sé því til hliðar, sem
deyfir og dregur úr öryggi.
Afengisvarnanefnd Reykja-
víkur skorar á alla þá, sem nú
hyggja á ferðalög og dvöl í
óbyggðum, t.d. Þórsmörk eóa
annarsstaðar, að sýna sannan
þroska og þá umgengnismenn-
ingu sem frjálsbornu fólki á að
vera í blóð borin.
En því aðeins verður það, að
menn almennt hafi þann
manndóm til að bera að hafna
allri áfengisneyzlu í skemmti-
ferðalögum.
Áfengisvarnanefnd
Reykjavíkur.
Afmælis- og
minningar-
greinar
ATHYGLI skal vakin á þvi, ad
afmælis- og minningargreinar
veröa aö berast blaöinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á í
miðvikudagsblaði, að berast í
síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera i sendibréfs-
formi eða bundnu máli. Þær
þurfa að vera vélritaðar og
með góðu linubili.
+
Maðurinn minn
ÞÓRÐUR EYJÓLFSSON
fyrrverandi hæstaréttardómari
andaðist að heimili sínu sunnudaginn 27. júlí.
Halidóra Magnúsdóttir.
+
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
fyrrum bóndi
I Saurbæ, Vatnsnesi
andaðist að heimili sinu Ásgarði, Hvammstanga 27. júlí Minningar-
athöfn fer fram I Hvammstangakirkju föstudaginn 1. ágúst kl,. 2
síðdegis. Jarðsett verður frá Fossvogskirkju laugardaginn 2. ágúst kl
10.30.
Aostandendur.
+
BALDVIN JÓHANNSSON,
Bólstaðahllð 54, Reykjavík
fyrrv. útibústjóri á Dalvlk
verður jarðsettur frá Dalvlkurkirkju föstudaginn 1. ágúst kl 14.00
Stefanla Jónsdóttir,
Órn Baldvinsson.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
ÁSGEIR ÓLAFSSON
frð Stóra-Skógi, Dölum
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 30. júli kl. 1 5.
Þeim sem vildu minnast hans, er bent á liknarstofnanir.
Börn, tengdabörn og harnabörn.
+
Móðir okkar
HELGA GUÐRÚN HELGADÓTTIR,
Brekkustlg 3
andaðist í Borgarspítalanum 28 júli.
Kjartan Einarsson,
Sigriður Einarsdóttir,
Baldvin Einarsson.
+
Þökkum innilega, auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og
útfarar konunnar minnar
INGIBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR
Reynimel 45.
Guðm. Guðjónsson
og aðrir aðstandendur.
+
Alúðarþakkir til allra þeirra mörgu er veittu hjálp og sýndu okkur
vinarhug I veikindum og við fráfall mannsins míns, föður okkar og afa
FINNS BENEDIKTSSONAR
Háafelli, Dölum.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarliðs sjúkrahússins Akranesi fyrir
góða umönnun. Vinum hans á Akranesi og viðar sendum við þakkir og
kveðjur. Guð blessi ykkur öll.
Málfrfður Benediktsdóttir,
Anna Finnsdóttir, Benedikt Finnsson,
Finnur Þór Haraldsson, Sigurður Ágúst Haraldsson,
Rósa Hrönn Haraldsdóttir,
Sigríður B. Kristjánsdóttir.
Unnar Mikaelsson,
Glgja Karelsdóttir,
Theódór Kristjánsson.
+
Útför
KRISTÍNAR JACOBSEN,
Laugaveg 67,
fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 31. júli kl. 1 3.30.
Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er vinsamlega bent á liknarstofn-
anir.
Synir og tengdadætur.
+
Systir min
ÓLAFÍA VIGDfS JÓHANNSDÓTTIR
Tjarnargötu 2, Sandgerði
sem lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur þann 22. júll verður jarðsungin frá
Hvalsneskirkju fimmtudaginn 31. júlí kl. 2 e.h.
Fyrir hönd vandamanna
Jón Jóhannsson.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
ÞÓRDÍSAR SVEINSDÓTTUR
frá Eskiholti.
Sérstakar þakkir færum við læknum og hjúkrunarliði á Grensásdeild
Borgarspitalans fyrir frábæra aðstoð og hjúkrun i veikindum hennar.
Anna Sveinsdóttir,
systkini og vandamenn.
+
Þökkum samúð við andlát föður okkar
ÞORBJÖRNSJÓNSSONAR,
Mlmisvegi 2. Reykjavlk.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey, samkvæmt ósk hins látna.
Ásta Þorbjörnsdóttir
Sigurður Þorbjörnsson
Sigurjón Þorbjörnsson.
+
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför
ERLINGS ÞORKELSSONAR
vélstjóra
Hringbraut 79, Reykjavlk,
Kristln Kristvarðsdóttir
Agnar Erlingsson Elin Erlingsson
Þorkell Erlingsson Margrét Sæmundsdóttir
Ólafur Erlingsson Anna Arnbjarnardóttir
Kristinn Á. Erlingsson Sölvi Aasgaard
barnabörn
og systkini hins látna.