Morgunblaðið - 30.07.1975, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JULI 1975
Forföll í landsliðinu
Jón og Öm „meiddir”
Þrátt fyrir ýmis vandamál ætla íslenzku
leikmennirnir að selja sig dýrt í kvöld
ÞAO kom heldur betur babb í bátinn
hjá islenzka landsliðinu i fyrrakvöld
þegar halda átti austur að Laugar-
vatni. Hvorki Jón Alfreðsson af
Akranesi né Örn Óskarsson frá Vest-
mannaeyjum létu sjá sig og
ástæðan, sem gefin var upp fyrir
fjarveru þeirra var meiðsli. Höfðu
þeir þó báðir sagt. er talað var við þá
og þeir boðaðir, að þeir myndu mæta
á ákveðnum tlma og ekki minnzt þá
á nein alvarleg meiðsli. Var þvi
kallað á Hörð Hilmarsson úr Val og
Janus Guðlaugsson úr FH og mættu
Töpuðu fyr-
ir Finnum
(SLENDINGAR töpuðu sínum fyrsta
leik i Norðurlandamóti unglinga (16
ára og yngri) I knattspyrnu, en leikið
var við Finna Mót þetta fer fram i
Finnlandi og taka þátt i þvi allar
Norðurlandaþjóðirnar og Vestur-
Þjóðverjar sem gestir.
Að sögn Helga Danielssonar farar-
stjóra íslenzku piltanna. var það ósann-
gjarnt, að íslenzka liðið skyldi tapa
1:3. Mörkin sem islenzka liðið fékk á
sig voru öll fremur ódýr, og þrátt fyrir
mikla sókn tókst ekki að skora, jafnvel
vítaspyrna sém dæmd var á Finna í
seinni hálfleik misheppnaðist.
Öll mörkin voru skoruð í fyrri hálf-
leik. Finnarnir gerðu sin á 5. min., 15
min. og 44 mín , en Magnús Jónsson
skoraði mark Islendinga á 30. minútu
Á 29. minútu seinni hálfleiks fengu
(slendingar dæmda vítaspyrnu, sem
Einar Ásbjörn Ólafsson tók, en hann
skaut i stöng og Finnum tókst siðan að
bjarga. I gær léku einnig Danir og
Norðmenn og lauk þeim leik með sigri
Dana 5—2.
þeir austur á Laugarvatn um hádeg-
isbilið i gær.
Undirbúningur landsliðsins fyrir
hinn mikilvæga leik við Sovétmenn i
kvöld hefur ekki gengið eins snuðru-
laust fyrir sig og landsliðsnefndar-
mennirnir Knapp, Jens og Árni
hefðu óskað eftir. Grétar Magnús-
son, Ólafur Sigurvinsson og Jón
Gunnlaugsson voru allir forfallaðir
vegna meiðsla. er 16-menningarnir
voru valdir úr þeim 22 manna hópi,
sem valinn var og samkvæmt settum
reglum tilkynntur Evrópuknatt-
spyrnusambandinu. Með Erni
og Jóni Alfreðssyni eru þvf
fimm leikmenn út úr dæminu
vegna „meiðsla" og 22. leik-
maðurinn f hópnum er þriðji
markvörðurinn, Sigurður Dagsson úr
Val. Þar með er ekki allt upptalið.
Guðgeir Leifsson og Elmar Geirsson
komu ekki til landsins fyrr en seint f
gærdag, og komu til Þingvalla f gær-
kvöldi og höfðu þvi misst af æfing-
unum f gær. Þá var Jóhannes Eð-
valdsson meiddur á enni er hann
kom til landsins frá Skotlandi, þar
sem hann er á góðri leið með að gera
góðan samning við Celtic. Loks var
svo haft samband við Einar Gunnars-
son en hann vildi ekki leika.
Landsliðsnefndarmennirnir báru sig
þó furðulega vel er blaðamaður
Morgunblaðsins ræddi við þá á
Laugarvatni i gær. Þeir sögðu að
vfsu, að þeir hefðu ekki kynnzt
öðrum eins vandamálum ! sambandi
við undirbúning landsliðsins, en
strákarnir virtust vera f miklum ham,
andinn innan hópsins væri eins og
bezt yrði á kosið. Allir ætluðu að
gera sitt bezta i leiknum gegn Sovét-
mönnum og vonandi myndi liðið fá
stuðning frá áhorfendum eins og f
fyrri leikjum sumarsins. —áij
Marteinn Geirsson leikur sinn 25. landsleik í kvöld;
Cryuff og Edström
erfiðastir af öllum
MARTEINN Geirsson leikur i kvöld
25. landsleik sinn og fær að launum
gullúr frá Knattspyrnusambandi fs-
lands. Þeir eru ekki margir islenzku
knattspyrnumennirnir sem náð hafa
þessum áfanga og er Marteinn
ásamt Guðgeiri Leifssyni yngsti
maðurinn sem til þessarar viður-
kenningar vinnur, báðir eru þeir 24
ára gamlir. Marteinn lék fyrsta
landsleik sinn gegn Norðmönnum i
Bergen 1971. var ekki með f tveim
þeim næstu en hefur síðan verið
fastur maður f landsliðinu.
— Ég er stoltur af þvi að fá að
leika fyrir fslands hönd sagði Mart-
einn, er við ræddum við hann f gær
austur á Laugarvatni. — Ég vona
sannarlega, að mér verði treyst til að
leika fleiri landsleiki. því þó að mikill
tími fari í æfingar og leiki með félagi
mfnu og svo með landsliðinu að
auki, þá sé ég ekki eftir þeim tima.
Er við spurðum Martein, hvaða
landsleikir væru honum eftirminnileg-
astir, sagði hann að leikir fslands og
A-Þýzkalands væru efstir á blaði og
árangurinn i þeim hefði verið stórkost-
Svanhvít sá um FH sigur
í kvennaknattspyrnumótinu
FH-sf ulkurnar báru sigur úr
býtum í Islandsmótinu í knatt-
spyrnu kvenna, en úrslitaleikur-
inn fór fram á nýja grasvellinum
í Kópavogi á sunnudag.
Það voru lið FH og Fram, sem
léku til úrslita, en leikinn dæmdi
Baldur Þórðarson.
FH-stúlkurnar, sem hafa unnið
þetta mót tvívegis áður, voru
sterkari aðilinn og á 10. min. skor-
aði Svanhvit Magnúsdóttir fyrsta
mark leiksins, eftir að hafa leikið
upp völlinn og á nokkrar stúlkur
úr liði andstæðinganna.
Litlu siðar jafnaði Oddný Sig-
steinsdóttir fyrir Fram eftir horn-
spyrnu og var staðan 1—1 i hálf-
leik.
Fram-stúlkurnar voru nokkru
sprækari í byrjun síðari hálfleiks
og áttu þá sinn besta kafla í leikn-
um. Um miðjan hálfleikinn bætti
Svanhvít þó öðru marki við fyrir
FH og litlu síðar skoraði hún svo
3ja markið, þannig að lokatölur
leiksins urðu 3—1 sigur fyrir FH.
Að loknum leiknum afhenti
Helgi Danielsson, formaður móta-
nefndar KSl, FH-stúlkunum sig-
urlaunin, sem er fagur silfurbik-
ar, gefinn af verzl. Gull og silfur
árið 1972, og verðlaunapeningar.
Þá hlutu Fram-stúlkurnar silfur-
peninga.
Þetta er i fjórða skipti, sem
Islandsmót kvenna i knattspyrnu
utanhúss fer fram og hafa FH-
stúlkurnar unnið þrisvar, árið
1972, 1974 og nú 1975, en Ármann
vann árið 1973.
FH-stúlkurnar voru vel að sigr-
inum komnar og fögnuðu þær
þjálfara sínum, Helga Ragnars-
syni, í leiks lok, enda er auðséð að
hann hefur staðið vel í þvi hlut-
verki sinu.
Jóhannes Eðvaldsson fékk slæman skurð á enni f leik með Celtic og á
myndinni hugar Tony Knapp landsliðsþjálfari að meiðslum hans.
Matthías Hallgrímsson:
Aldrei að vita
nema við vinnum
— ÞaS er aldrei að vita nema við
vinnum þennan leik, sagði Matthfas
Hallgrfmsson, sem leikið hefur fleiri
landsleiki en nokkur annar islenzkur
knattspyrnumaður, og klæðist lands-
liðspeysunni f 36. skipti á morgun.
— Við vonum að minnsta kosti það
bezta og vfst er að allir munum við
legur. — Annars eru það svo margir
leikir sem koma fram í hugann þegar
litið er til baka, að hægt væri að hafa
um það langt mál, sagði Marteinn
Snjallasti knattspyrnumaðurinn, sem
ég hef leikið gegn er tvímælalaust sá
frægi Johan Cryuff, og hann er um leið
sá erfiðasti sem ég hef mætt En þó
Cryuff hafi verið góður, var Svíinn Ralf
Edström jafnvel enn þá skemmtilegri
og það var sríilldarblær yfir öllu sem
hann gerði. Mér gekk þó furðu vel i
leiknum gegn honum og ég man að
eitt sænsku blaðanna skrifaði að við
hefðum verið álika góðir og stál hefði
mætt stáli, sagði Marteinn og hló við
Er við spurðum Martein að því I
lokin, hvort hann hefði aldrei velt því
fyrir sér að gerast atvinnumaður i
knattspyrnu, sagði hann að vissulega
langaði sig til að reyna fyrir sér með
erlendum liðum. — Hver veit nema ég
slái til næsta sumar og reyni að komast
eitthvað út, lagði landsliðsmiðvörður-
inn að lokum.
leggja okkur fram til að sigra sov-
ézka landsliðið, sem við vitum að er
eitt af sterkustu liðum heims.
Matthías hefur verið furðulega róleg-
ur við að skora mörk f landsleikjunum
sfnum 35, en þau eru þó orðin 10
talsins. Eitt þeirra hefur gefið sigur,
það var fyrsta mark hans með lands-
liði, gegn Bermundamönnum. Þá
hefur hann þrisvar sinnum séð um að
tryggja islenzka liðinu jafntefli með
mörkum sínum, gegn áhugamanna-
landsliði Englands, gegn A-Þjóðverjum
f fyrra og gegn Frökkum.
Matthías er rafvirki að mennt og
starfar við þá iðn á Akranesi, en ! haust
hefur hann hug á að komast til Noregs
til að mennta sig meira f sambandi við
starf sitt. Starfið og hugsunin um meiri
menntun verður þó ekki á dagskránni
hjá Matthíasi ! kvöld, heldur það eitt að
reyna að koma knettinum I netið að
baki sovézka markvarðarins.
Þróttur
AÐALFUNDUR handknattleiks-
deildar Þróttar verður haldinn
fimmtudaginn 31. júlf 1 Fáks-
heimilinu við Elliðaár og hefst
stundvfslega kl. 20.30.
Islenzku piltarnir í 16. sæti
ÞAÐ er ekki hægt annað en vera
ánægður með frammistöSu piltanna
f þessari ferS, við enduSum f 16.
sæti f keppninni en þáttökuliS voru
alls 23. Leikirnir voru alls 9 á 10
dögum en annar frfdagurinn sem
liSiS fékk var notaSur til þess aS
sigra Engtand f æfingaleik sem þó
var fullkomlega löglegur landsleikur.
Af þessu má sjá aS piltarnir hafa
staSiS frammi fyrir erfiSasta verkefni
sem fslenzkt landslið hefur glfmt viS,
en þeir stóSu sig meS mikilli prýði
Vinabæjamót
í Kópavogi
A MORGUN, fimmtudag, kl. IX.00, hefst á
nýja Iþróttavellinum f Kópavogi fvrsta opin-
bera frjilsfþróttamótið sem fram fer ð hon-
um. Mót þetta er liður f árlegum samskiptum
vinabæja Kópavogs á Norðurlöndum og eru
mótin haldin til skiptis f vinabæjunum, sem
eru, auk Kópavogs, Odense f Danmörku,
Þrándheimur f Noregi, Norrköping í Svfþjóð
og Tampere f Finnlandi.
Fyrsta mótið var haldið árið 1966 f Þránd-
heimi. Árið 1970 sá Kópavogur um fram-
kvæmd mótsins, sem þá fór fram að Laugar-
vatni og er nú komin röðin aftur að Kópa-
vogi, 10. áriðsem mótið er haldið.
Hver þjóð sendir 6 keppendur á mótið, 4
pilta og 2 stúlkur, sem öll eru undir 20 ðra
aldri. Svfar senda ekki lið tll mótsins að
þessu sinni, svo keppendur verða 24 talsins,
en auk þess verður nokkrum af efnilegustu
frjálsfþróttamönnum landsins boðin þátt-
taka f mótinu, sem gestum.
Keppt verður f eftirtöldum greinum: Karl-
ar: 100 metra hlaup, 400 metra hlaup, 1500
metra hlaup, 3000 metra hlaup, hástökk,
langstökk, kúluvarp og spjótkast. Konur: 100
metra hlaup, 200 metra hlaup, 800 metra
hlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp og
kringlukast.
Sú þjóð sem hlýtur flest stig samkvæmt
alþjóðastigatöflu hlýtur farandgrip sem
Norræna fólagið gaf til keppninnar s.l. ár og
keppt skal um f 5 ár.
Tómstundaráð Kópavogs og frjálsfþrðtta-
deild Breiðabliks hafa annast undirbúning
og framkvæmd mótsins.
Keppendur Kópavogs i móti þessu verða:
Einar Óskarsson, Markús Einarsson, Guð-
mundur Geirdai og Ágúst Gunnarsson f
karlaflokki og Hafdfs Ingimarsdóttir og
Thelma Björnsdóttir I kvennaflokki.
jafnt utan vallar sem innan og vöktu
mikla athygli. —
Þetta sögðu þeir Gunnar Gunnars-
son, þjálfari liðsins og Páll Júlfusson
fararstjóri þegar við hittum þá við
heimkomuna.
— Við vorum óheppnir að ná ekki
a.m.k. 15. sætinu, við áttum að sigra
frakka. Við höfðum forustuna i þeim
leik lengst af t.d. 10 stig um miðjan
sfðari hálfleik en þegar Pétur Guð-
mundsson fór út með 5 villur hrundi
allt, og frakkarnir náðu að sigra með 4
stigum
Fyrsti leikurinn I ferðinni var gegn
tékkum, og honum töpuðum við stórt
enda vorum við þá varla búnir að átta
okkur á ýmsum breytingum, t.d
matnum og hitanum sem var um 40
gráður lengst af. Síðan kom leikurinn
gegn Austurrfki og þá spiluðum við
okkar bezta leik f ferðinni, mjög góður
leikur sem við unnum með 4 stigum.
Eftir þann leik komu margir til okkar og
lýstu hrifningu sinni, og töldu það
ekkert vafamál að Island væri með það
lið sem mest kæmi á óvart f þessu
móti. Þetta kom einnig fram f lokahófi
eftir mótið, þar lýsti dr. Hepp, stjórn-
andi mótsins því yfir að við hefðum
komið sér mjög á óvart og fsl. liðið
hefði verið mjög skemmtilegt og undir
þetta tóku margir fulltrúaf hinna lið-
anna.
— En því er ekki að leyna að viss
atriði eru ekki f nærri nógu góðu lagi
Að sjálfsögðu skortir fyrst og fremst
meiri reynslu en annað sem var ekki
nógu gott var hittnin — bæði úr
langskotum og vltaskotum. Boltameð-
ferðin var mjög góð svo og baráttan
Lið frá „Austurblokkinni" skáru sig
afar mikið úr á mótinu að gæðum, en
við erum alveg sambærilegir við flest
önnur Evrópu lið
Árangur liðsins I ferðinni var þvf 3
sigrar, gegn skotum 74: 40, gej.n
Englandi 65: 54, og gegn Austurrfki
51:47. Fjögur stór töp, gegn rússum,
tékkum, og pólverjum tvívegis. Og svo
töpuðum við tvlvegis naumlega fyrir
frökkum og fsrael.