Morgunblaðið - 30.07.1975, Page 5

Morgunblaðið - 30.07.1975, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JULl 1975 5 Nýtt lægra sykurverð Strásykur 1 kg. 185 kr. Molasykur 1 kg. 198 kr. Strásykur (25 kg. 4.400 þ.e. kílóverðið 1 kr. ) 176 kr. Vörumarkaður innhf.l I . Ármúla 1A. Húsgagna og heimilisd. S-86-11 2 | Matvorudeild S-86-1 11, Vefnaðarv.d. S-86-1 1 3 EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU skólanum Ósk, þar sem hún tekur á móti vinum og ættingjum, og er ábyggilegt að margir munu koma og taka i Jiönd þessa síunga öld- ungs. Einnig er hún félagi í Kvenna- deild Slysavarnafélagsins, og ótal- in eru sporin hennar til að hlúa að og fegra kirkjuna, okkar, sem og hún gerir enn þann dag i dag. Maria er enn létt á fæti og létt i lund og trygg vinum sinum og ættingjum og alltaf gott að koma á heimili hennar og manns hennar, Baldvins Þórðarsonar, fyrrverandi bæjargjaldkera, og er þar tiðum gestkvæmt mjög, og veit ég að margir hugsa til þeirra i dag. Mæja min, ég þakka þér alla þína tryggð við okkur hjónin og börnin okkar og árnum við þér allra heilla á þessum merkisdegi og biðjum Guð að blessa ævikvöld þitt. G.C. María Jónsdóttir, Kirkjubæ, áttrœð Hún er áttræð í dag, hún Mæja, eins og hún er alltaf kölluð, — það er ótrúlegt, svo ern sem hún er. Hún er fædd á Isafirði 30. júli 1895, dóttir hjónanna Guðbjargar Jónsdóttir og Jóns Bjarnasonar trésmiðs. Þau hjón eignuðust 8 dætur og er María næstelzt þeirra systra. Maria ólst upp í foreldrahúsum ásamt systrum sínum, fyrst á Isa- firði, en árið 1900 fluttust foreldr- ar hennar að Kirkjubæ í Skutuls- firði og bjuggu þar til ársins 1916, er þau fluttu aftur til Isafjarðar, og hefir María búið þar siðan. Maria byrjaði ung að vinna fyrir sér eins og þá tiðkaðist, enda ekki um annað að gera á þeim timum en bjarga sér til mann- dóms með vinnu sinni og atorku. Var það oft góður skóli fyrir ung- ar stúlkur að ráða sig á góð heimili til heimilisstarfa, en Maria var ein af þeim lánsömu stúlkum sem réð sig til vinnu á góð heimili og hefir það orðið henni góður og mikill skóli og gefið henni gott veganesti til á- framhaldandi göngu út í lífið. María hefir kynnt sig vel á þessum heimilum, þvi að niðjar þess fólks sem hún vann hjá Stuð á íslandi halda enn sambandi við hana og þakka henni störfin á löngu liðn- um árum. Einnig stundaði hún ýmsa aðra algenga vinnu, svo sem fiskbreiðslu, síldarvinnu o.fl. Maria lærði strauningu í Reykjavík árið 1925 og stundaði hún þau störf hér á ísafirði í áratugi, og eru mér ógleymdar sendiferðirnar fyrir hana Mæju með stífuðu skyrturnar og hörðu flibbana af fyrirmönnum og góð- um borgurum Isafjarðar. Maria fór á hússtjórnarnámskeið í gamla húsmæðraskólanum hér hjá frk. Gyðu Mariasdóttur, og seinna kenndi hún sjálf við sömu stofnun ungum verðandi hús- mæðrum strauningu. María hefir alltaf verið áhuga- söm um félagsstörf og má með sanni segja að hún hafi ekki verið neinn eftirbátur í þeim félögum sem hún hefir verið í. Má þar fyrst og fremst nefna starf henn- ar i Kvenfélaginu Ósk, en óhætt er að segja að það sé hennar óska- barn. Þar er hún nú heiðurs- félagi, og henni til heiðurs á 80 ára afmæli halda Óskarkonur henni veizlu í kvöld i Húsmæðra- Loksins er svo komið að mér finnst ástæðulaust lengur að bindast orða og þegja yfir þvi sem vel er gert. Tilefnið er eitt og aðeins eitt, Stuðmannaplatan Sumar á Sýrlandi. Og tilgangur- inn sömuleiðis aðeins einn, að færa þeim djúpar þakkir fyrir mína hönd og þjóðarinnar. Það er okkur báðum mikill léttir, að Ioks- ins hefur einhver tekið málin í sinar hendur og fengið það af sér að vera skemmtilegur. Og ekki bara skemmtilegur heldur líka flfnkur. Með þessu tvennu er hægt að gera margt alveg helvíti gott, og það hafa Stuðmenn nú gert. I framhaldi af því verður það að segjast eins og er, að ég veit ekki hvað það er sem Islendinga vant- ar, ef ekki Stuðmenn. Hér hefur aldrei verið nóg stuð. Það fann maður bezt þegar maður heyrði plötuna fyrst og langaði mest til að hreinlega dansa bara og það hefur fleiri langað, aldraða og alla vega. Til marks um það hve mikið ég dáist að Sumar á Sýrlandi, vil ég geta þess, að ég er mest að hugsa um að skira næstu ljóðabók mína Vetur á írlandi, og ekki að ástæðulausu. Að lokum leyfi ég mér að líta svo á, að Stuðmannaplatan sé sönnun þess, að Islendingar eru ekki dauðir úr öllum æðum, eins og ýmsir voru farnir að óttast. Steinunn Sigurðardóttir. Í.S.Í. Jóhannes Eðvaldsson fyrirliði íslenzka liðsins. LANDSLEIKURINN l'SLAND — RÚSSLAND fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld miðvikud. 30. júlí og hefst kl. 20.00 e.h. Dómari: Mr. J.R.P. Gordon frá Skotlandi Línuverðir: Mr. Burns & Toms frá Skotlandi Verð aðgöngumiða: Stúkusæti Kr. 800.00 Stæði Kr. 500.00 Barnamiðar Kr. 200.00 Aðgöngumiðar eru seldir við útvegsbankann til kl. 18.00 og í Laugardal frá kl. 1 3.00 e.h. Rússnesku knattspyrnumennirnir eru meðal beztu knatt- spyrnumanna heims. Fjölmennið á völlinn og hvetjið íslenska landsliðið til sigurs. Forðist þrengsli og kaupið miða tímanlega. Knattspyrnusamband íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.