Morgunblaðið - 30.07.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JULI1975
13
Orðið við óskum Breta, Belga og
V-Þjóðverja um lan dhelgisviðræður
„Jú, það er rétt að brezk stjórn
völd, svo og vestur-þýzkir og belg-
ískir ráðamenn hafa sent okkur
beiðni um viðræður um veiði-
heimiidir vegna útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar f 200 mflur,“
sagði Einar Ágústsson utanrfkis-
ráðherra, í samtali við Morgun-
blaðið f gær. Utanríkisráðherra
sagði ennfremur, að ákveðið
hefði verið að ræða við fulltrúa
stjórna þessara rfkja en ekki væri
afráðið hvenær af þeim viðræðum
yrði.
Einar Ágústsson upplýsti enn-
fremur, að frá fyrri tíð lægi hjá
utanríkisráðuneytinu beiðni frá
A-Þjóðverjum, Pólverjum og sov-
ézkum stjórnvöldum um viðræður
við Islendinga um aðstöðu fiski-
skipa þessara ríkja við útfærslu
fiskveiðilögsögunnar en hann
kvað þessar óskir um viðræður
ekki hafa verið ftrekaðar eftir að
tilkynnt hefði verið um útfærsiu-
dag fiskveiðilögsögunnar og ekk-
ert frekar ákveðið um framvindu
þeirra.
Lauk doktorsprófi í
eðlisfræði í Zurich
UNGUR Akureyringur, Jó-
hannes Vigfússon, lauk ný-
lega doktorsprófi frá raun-
vísindadeild háskólans í
Zíirich i Sviss. Ritgerð
hans er á sviði fræðilegrar
eðlisfræði, og lýtur efni
hennar að grundvallar-
rannsóknum í statistískri
eðlisfræði. Aðeins er rúmt
ár liðið frá því að Jóhannes
lauk diplómprófi í fræði-
legri eðlisfræði, þannig að
hann hefur öðlast doktors-
gráðuna á óvenjuskömm-
um tíma.
Jafnframt eðlisfræðináminu
hefur Jóhannes lagt stund á
píanóleik við einleikaradeild tón-
listarskólans i Zúrich. Kom hann
m.a. fram á hljómleikum Pro
Musica i Zúrich I febrúar, þar sem
flutt var tónlist eftir núlifandi
höfunda. Jóhannes hyggst fyrst
um sinn starfa áfram við eðlis-
fræðideildina i Zúrich og mun
hann leggja doktorsritgerð sina
fram á qjþjóðlegri ráðstefnu í
Ungverjalandi i næsta mánuði.
Jóhannes er sonur frú Huldu
Jóhannesdóttur og Vigfúsar Þ.
Jónssonar forstjóra á Akureyri.
Hann er stúdent frá Menntaskól-
anum á Akureyri, en lauk brott-
fararprófi frá Tónlistarskóla
Akureyrar 1964.
Færeyska lögþingið sett í gær:
Vtetútflutni ngsár í
Færeyjum í fyrra
Frá blaðamanni Mbl. f Þórshöfn
Sverri Þórðarsyni, 29. júlí.
Færeyska lögþingið kom saman
I dag til fyrsta reglulegs fundar
eftir stjórnarskiptin f byrjun
þessa árs. Setningarathöfnin
hófst með þvf að lögþingsmenn
komu saman árdegis f hinu gamla
lögþingshúsi Færeyinga f hjarta
bæjarins. Veður var ekki
skemmtilegt, dimmt yfir og rign-
ingarsuddi.
Frá lögþingshúsinu var gengið f
fylkingu um göturnar að hinni
gömlu Hafnarkirkju, sem byggð
var 1788. Fremstir í göngunni
fóru Atli Dam lögmaður og hinn
danski rfkisumboðsmaður í Fær-
eyjum, þá biskup Færeyinga, Ei-
vind Wilhelm, prestar og sfðan
lögþingsmenn, 26 talsins. 1 hópi
þingmanna er ein kona, Jóna
Henriksen, dóttir Henriksens
fyrrum lögþingsmanns, og borg-
arstjóra f Þórshöfn. Hún er fyrsta
konan sem tekur sæti á lögþing-
inu sem aðalfulltrúi.
A fyrsta fundi lögþingsins fór
fram kjör formanns og var kjör-
inn hinn kunni færeyski stjórn-
málamaður Jakob Frederik öre-
gaard, en hann hefur átt sæti á
lögþinginu frá árinu 1940. Vara-
formaður var kjörinn einn hinna
eldri stjórnmálamanna Færey-
inga, Hakon Djurhuus, fyrrum
lögmaður.
Atli Dam lögmaður Færeyinga
hélt ræðu á fundi þingsins og
ræddi mest um ástand og horfur í
færeyskum stjórnmálum og efna-
hagsmálum. Hann gat þess að árið
1974 hefði verið metár i færeysk-
um útflutningi, en þá nam verð-
mæti útflutnings tæplega 500
milljónum færeyskra króna (sem
næst 13,5 milljörðum íslenzkra),
Sagði lögmaður að ástandið væri
að vísu ekki eins bjart á þessu ári
og í fyrra vegna lækkandi fisk-
verðs, hækkandi innflutnings-
verðs og aukins tilkostnaðar við
framleiðslustörfin heima fyrir, en
þó væri ekki ástæða til svartsýni í
þessum efnum. Atli Dam kom lit-
illega inn á alþjóðieg hafréttar-
mál og sagði hann landsstjórnina
mundu fyigjast með þróun mála á
þeim vettvangi og tryggja hlut
Færeyinga. Ekki ræddi hann
neitt um stækkun íslenzku fisk-
veiðilögsögunnar eða samninga
við tslendinga um veiðar fær-
eyskra skipa innan 200 mílnanna.
Hann gat þess að Færeyingar
reiknuðu með að veiða um 25,000
tonn bolsiski á Norðursjávarmið-
um, við Rockall og Island, um
12—15.000 tonn við Nýfundna-
land og Grænland, en um 80.000
tonn á heimamiðum á þessu ári.
I færeysku iandsstjórninni eiga
sæti 6 ráðherrar, 2 frá sósialdemó-
krötum, tveir frá Þjóðveldis-
flokknum, þ.á m. sjávarútvegsráð-
herrann, — og tveir frá Fólka-
flokknum og er annar þeirra fjár-
málaráðherra.
Lögþingið í Færeyjum mun að
þessu sinni sitja í tvær vikur.
— Reyðarfjörður
Framhald af bls. 24
þjónustumiðstöð eða miðstað, seg-
ir í skýrslunni, en þar er svo gerð
grein fyrir útkomunni ef nyrztu
eða syðstu hrepparnir eru af
teknir og að lokum er Austur-
landi skipt í þrjú svæði. I fyrsta
lagi er miðsvæðið með Reyðar-
fjörð sem greinilegan miðstað. I
öðru lagi norðursvæðið með
Vopnafjörð sem miðstað, og jafn-
vel í nánara samhengi við Norður-
land eystra fremur en Austur-
land. Og i þriðja lagi er suður-
svæðið með Höfn í Hornafirði.
Bent er á að heildarkostnaður
kerfisins er ,mun minni með
þremui, miðstöðvum en einum en
um leið er ljóst að því fleiri sem
miðstaðirnir eru (eða þjónustu-
kjarnar), þeim mun hærri verður
rekstrarkostnaður þeirra.
Það skal tekið fram, segir í
skýrslunni, að hér eru reknir út
miðstaðir á Austurlandi eða hluta
af því, þar sem byggt er á ákveðn-
um forsendum og horft framhjá
öðrum áhrifavöldum staðarvals.
Þessi könnun bendir til að þjón-
ustu, sem ætluð er öllum fbúum á
miðsvæði Austurlands, ætti að
hafa á Reyðarfirði að því gefnu,
að velja eigi aðeins einn stað og
jafnframt hinu, að þjónustan sé
ekki þegar fyrir hendi á einhverj-
um stað á svæðinu. Þessi könnun
er einnig vísbending urr, hvaða
staður eða staðir séu eðlilegastir
sem miðkjarnar Austurlands.
Reyðarfjörður og Egilsstaðir
koma helzt til greina. Milli þeirra
er tiltölulega stutt og á öðrum
staðnum er miðstöð flugsam-
gangna, en góð hafnarskilyrði á
hinum.
Um höfnina segir i kaflanum
um samgöngusamhengi: Reyðar-
fjörður er eina höfn Austurlands,
sem liggur miðsvæðis gagnvart
töluverðu svæði og nokkrum íbúa-
fjölda. Hún er sú höfnin, sem best
liggur við Héraði. Heldur styttra
er milli Egilsstaða og Seyðis-
fjarðar, en vegurinn milli Reyðar-
fjarðar og Egilsstaða er mun
léttari í akstri auk þess sem leiðin
milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða
er oft lokuð vegna snjóa. Varn-
ingur til þess svæðis, sem þjónað
er á Egilsstöðum, hlýtur því að
fara um Reyðafjörð að svo miklu
leyti sem hann kemur sjóleiðis.
Þá er stutt frá Reyðarfirði til
Eskifjarðar, en þar búa yfir 900
manns og til Neskaupstaðar eru
40 km og firðirnir sunnan Reyðar-
fjarðar gætu einnig að ýmsu leyti
notið Reyðarfjarðarhafnar með
bættu vegakerfi, því einungis 100
km. eru til Breiðdalsvíkur. Til
Seyðisfjarðar eru 58 km.
Kynþáttaóeirðir í Detroit
Detroit, 29. júlí. AP.
UNGUR blökkumaður, sem
hvftur barþjónn skaut f gær-
kvöldi f Detroit, með þeim af-
leiðin'gum að kynþáttaóeirðir
blossuðu upp f borginni, lézt í
dag í sjúkrahúsi. Hundruð
blökkumanna börðust með
grjót að vopni við lögreglu-
menn, sem beittu táragasi. Tug-
ir særðust.
Um 500 til 700 lögreglumenn,
sérstaklega búnir til að berja
niður óeirðir, og sumir þeirra
vopnaðir skammbyssum, voru
sendir til fátækrahverfis, þar
sem óeirðirnar geisuðu. Um 5
km frá því hverfi hófust óeirð-
inar miklu 1967, þegar 43 biðu
bana.
Blökkumaðurinn sem var
skotinn til bana, Obie Wynn, 18
ára, er góðkunningi lögreglunn-
ar, en ekki á sakaskrá. Bar-
þjónninn sem skaut hann
kvaðst hafa staðið hann að því
að fikta við bíl sinn.
Níxon vitni gegn
CIA?
Washington, 29. júli. AP.
JOHN. G. TOWER öldunga-
deildarmaður repúblikana frá
Texas og varaformaður þeirrar
nefndar öldungadeildarinnar,
sem rannsakar starfsemi leyni-
þjónustunnar, CIA, hefur talað
við Richard M. Nixon í sfma og
beðið hann að bera vitni f yfir-
heyrslum nefndarinnar um
starfsemi leyniþjónustunnar f
Chile, samkvæmt góðum heim-
ildum.
Nefndin mun einnig yfir-
heyra Robert A. Maheu fyrr-
verandi aðstoðarmann auðkýf-
ingsins Howard Hughes og
meintan tengilið CIA og Mafí-
unnar í tilraunum til að myrða
Fidel Castro forsætisráðherra
Kúbu, og Henry Dearborn full-
trúa bandarísku stjórnarinnar í
Dominíkanska lýðveldinu, þeg-
ar Rafael Trujillo einræðis-
herra var myrtur 1961.
ABC-sjónvarpið hermir að
republikanar i nefndinni segi
að demókratar vilji reyna að
nota starfsemi CIA í Chile til að
dreifa athyglinni frá meintum
tilraunum Kennedystjórnar-
innar til að myrða Castro.
NEITAR SAKARGIFTUM
I Los Angeles lýsti fyrrver-
andi skattalögfræðingur Nix-
ons, Frank Demarco, sig sak-
lausan af ákærum um að hafa
falsað fyrir Nixon 576.000 doll-
ara frádrátt frá sköttum, þegar
Nixon var forseti. Demarco á
yfir höfði sér allt að 23 ára
fangelsi og 40.000 dollara sekt.
A-Þjóðverjar fá Nato-póst
Brússel, 29. júlí. NTB.
TALSMAÐUR NATO í BrUssel
vill ekkert láta hafa eftir sér
um fréttir þess efnis, að póstur
til vestur-þýzka sendiráðsins í
Ósló hafi verið sendur sendi-
ráði Austur-Þýzkalands síðan i
nóvember í fyrra.
Hann sagði að allan póst til
vestur-þýzka sendiráðsins ætti
að senda um Iandvarnaráðu-
neytið í Ósló. Hann sagði að það
hlyti að vera skýringin á mis-
tökunum.
A tök íLíbanon
Beirút, 29. júli. AP.
tSRAELSKIR hermenn réðust
á þorpið Alita E1 Shaab I Suð-
ur-Lfbanon f morgun, en árás-
inni var hrundið af lfbönsku
stórskotaliði og landamæra-
sveitum, að sögn landvarna-
ráðuneytisins f Beirút. Ein fsra-
elsk herbifreið eyðilagðist og
nokkrar skemmdir urðu á sex
húsum f þorpinu, að sögn ráðu-
neytisins.
t Tel Aviv bar fsraelska her-
stjórnin fréttina til baka. Tals-
maður ráðuneytisins sagði að
enginn fsraelskur hermaður
hefði farið yfir Ifbönsku landa-
mærin. Einn fsraelskur her-
maður féll og sex særðust f
árás á meinta bækistöð pales
tfnskra skæruliða f Lfbanon f
sfðustu viku.
Málaliðar til bar-
áttu gegn Smith
Salisbury, 29. júlí. AP:
HVÍTIR málaliðar, sem reyna
aó hjálpa skæruliðum blökku-
manna, fá sömu meðferð og
aðrir hryðjuverkamenn, sagði
talsmaður landvarnaráðuneyt-
isins i Salisbury í dag. Hann
sagði þetta vegna fregna um að
málaliðar væru á leiðinni frá
London.
Samkvæmt fréttunum hefur
verið komið á fót sveit 300
málaliða i London til að berjast
við öryggissveitir í Rhódesíu.
Tólf fyrstu málaliðarnir eru
sagðir á förum til Nairobi og
þaðan eiga þeir að fara til
Tanzaníu og um „annað land“
til Rhódesíu.