Morgunblaðið - 30.07.1975, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JULl 1975
17
fclk í
fréttum
+ Jacqueline Kennedy virðist
nú hafa fundið sér nýjan „vin“.
Hinn 45 ára gamla piparsvein,
Karl Katz. Jacqueline hitti
hann fyrst fyrir nokkrum mán-
uðum, þegar hún ætlaði að
skrifa grein um Ijósmyndun f
New Yorker Magazine. Karl
Katz er einn af stofnendum
International Center of Photo-
graphy, og er framkvæmdar-
stjóri Metropolitan Museum of
Art. Þau Jacqueline og Karl
Katz eiga mörg sameiginleg
áhugamál þar á meðal Ijós-
myndun; Jacqueline er útlærð-
ur Ijósmyndari..., og það
leikur enginn vafi á þvf að það
eru áhrif frá Karli sem hafa
fengið Jacqueline til þess að
snúa sér aftur að Ijósmyndun
og biaðamennsku. Hún hefur
til dæmis skrifað og tekið Ijós-
myndir fyrir mörg af stærstu
dagblöðum og tímaritum í
Bandaríkjunum. — Karl Katz
er fæddur f Brooklyn, og sagt
er að hann sé sérlega heillandi
og skemmtilegur maður. Hann
ku Ifkjast Henry Kissinger f
útliti og er gyðingur eins og
Kissinger. Hann hefur einnig
bæði búið og starfað í Israel og
var um tfma forstjóri
Listasafns Jerusalem-borgar-
sem hann byggði frá grunni.
Seinna varð hann forstjóri
gyðinga-safnsins í New York og
höf svo störf hjá Metropolitan
safninu árið 1971. Nýlega
dvaldist hann ásamt
Jacqueline og syni hennar
John Kennedy f grfska eyja-
hafinu.
+ Norðmenn eru áhugasamir
knattspyrnuiðkendur og þar er
leikin knattspvrna i 7 deildum
og í ótalmörgum riðlum í
norsku meistarakeppninni.
Auk þess fara svo fram ýmis
önnur héraðs-, svæða- og fylkja-
möt í öllum aldursflokkum, að
ógleymdum öllum fyrirtækja-
mótunum, sem ekki eru fá.
Sjálfsagt á landinn fulltrúa í
nokkrunt þessara Iiða og fyrir
skömmu rákumst við á með-
fylgja'ndi mynd úr norska blað-
inu Akershus Amstidende. Þar
er greint frá toppliðinu í einum
af riðlunum i 6. deildinni, liði
Norska landbúnaðarháskólans.
Þar er tveimur íslenzkum leik-
mönnum mikið hrósað og þeim
ekki minnst þakkað það að
Land búnaðarháskólinn er nú
á toppnum í riðlinum. Islenzku
leikmennirnir I liðinu er
kallaðir klettar i vörninni, en
þeir eru Guðmundur Stefáns-
son markvörður, sem heldur á
knettinum og Þórarinn Egill
Sveinsson sem stendur að baki
honum.
+ Myndin af Apollo-
geimförunum er tekin um borð
í New Orleans skömmu eftir að
þeir lentu í Kyrrahafinu 270
mílur vestur af Hondulu. Að
baki geimfaranna sjáum við
NASA-lækninn, Donald E.
Stulken ræða f sfma við Ford
forseta um heilsufar geimfar-
anna.
+ Amin, Ugandaforseti
afhjúpaði fyrir nokkrum
dögum styttu af sjálfum sér í
Nairobi — Þar trjónir styttan
og hefur útsýni yfir Victoríu-
vatnið. — Á myndinni sézt vel
að allir eru afskaplega hrifnir
af styttunni — og ekki sfzt
sjálfur forsetinn.
Litir: Svart og Brúnt/
Beige
Verð: 4.955
Litur: Hvitt og Millibrúnt
Verð 4.955
Litur: Rauðbrúnt
Verð 4.955.
Litir: Gult, hvítt og dökk
brúnt
Verð 4.640.
Litur: Millibrúnt
Verð: 4.640
Litir: Hvítt og millibrúnt
Verð 4.640
Litir: Beige og millibrúnt
Verð 4.640
Litir: Hvítt og rautt
Verð 4.955
Allir skórnir eru úr mjúku leðri, leðurfóðraðir og
leðursólaðir. Fáanlegir i stærðum 36—41.
Miðbæjarmarkaði — simi 19494.