Morgunblaðið - 30.07.1975, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. JULI 1975
23
— Vilja hraða
Framhald af bls. 1
alltaf álitiö styrki bráðabirgða-
ráðstöfun. Stjórnin ætti nú að
hefjast handa um útfærslu fisk-
veiðilandhelginnar.“ Hann sagði
að ef sjá mætti fram á í árslok að
landhelgin yrði færð út yrði
þungu fargi létt af brezkum sjó-
mönnum.
f>ó taldi Dean, að brezkur
sjávarútvegur næði sér ekki á
strik fyrr en eftir eitt til tvö ár,
þótt landhelgin yrði stækkuð og
afli mundi aukast.
— Apollo
Framhald af bls. 1
verið í mikilli hættu sfðustu
mínúturnar fyrir lendinguna.
„Ef eiturefnin voru svo mikil,
að Brand missti meðvitund, þá
hafa þeir allir þrfr verið í mik-
illi lífshættu," sagði hann.
Geimfararnir fengu brjóst-
sviða og verða að dveljast 2
daga í viðbót á Hawaii til að ná
sér. Starfsmenn NASA hafa
lítið viljað segja um það sem
gerðist en hafa staðfest, að
Brand átti að kveikja á rofan-
um og að það hafi ekki verið
gert.
— Cunhal
Framhald af bls. 1
Veiga de Oliveira, sem er félagi í
flokki kommúnista, verður þó lík-
lega samgönguráðherra.
Jafnframt hefur stjórnin gefið í
skyn að settar verði nýjar reglur
um fréttaflutning í fjölmiðlum
vegna villandi frétta portúgalskra
blaða frá Azor-eyjum. Aður hafði
stjórnin tilkynnt að fréttir frá
Angólu yrðu ritskoðaðar, en kvað
það eðlilega ráðstöfun þar sem
þar rikti stríðsástand.
— Ráðstefna
Framhald af bls. 1
ekki ráðstefnuna i Helsinki er
Albanía. Fulltrúar landsins I
Helsinki gáfu i dag út yfirlýsingu
þar sem þeir kölluðu ráðstefnuna
loddaraleik stórveldanna, sem
þeir sökuðu um að fylgja árásar-
stefnu, er ógnaði sjálfstæði
Evrópulanda.
Ráðstefnan hefur verið kölluð
fjölmennasta ráðstefna heimsleið-
toga síðan Vínarkongressinn var
haldinn i lok Napoleonstyrjald-
anna.
— Gowon
Framhald af bls. 1
dæmt byltinguna og kallaði hana
innanrfkismál.
Útgöngubann hefur verið fyrir-
skipað frá sólsetri til dögunar í
Lagos og þeir sem rjúfa það eiga á
hættu að verða skotnir.
Fjarskiptasamband við útlönd
hefur verið rofið og flugvellir lok-
aðir. Einkabílar hafa verið bann-
aðir, en fólk fær að fara til vinnu
sinnar.
Gowon hafði lofað að mynda
borgaralega stjórn fyrir 1976, en
skipti um skoðun í október f fyrra
og það olli óánægju í hernum. Það
olli einnig óánægju, að hann
frestaði skipun nýrra herforingja
i stöður fylkisstjóra fyrr á þessu
ári.
Gífurlegar olíutekjur hafa vald-
ið vfðtækri spillingu í hernum og
stjórninni, en Gowon var hafinn
yfir hana og barst litið á. Hann
var talinn hófsamur stjórnmála-
maður og hlynntur vestrænum
ríkjum, en herskár gagnvart
Portúgal og Suður-Afriku.
Auk ólgu I hernum hefur rikt
ólga vegna ættflokkarígs, vinnu-
deilna og glundroða i opinberri
þjónustu. Stjórnin hefur verið
gagnrýnd á síðustu mánuðum fyr-
ir að geta ekki afstýrt bensín-
skorti og vinnudeilum og fyrir að
gera of lítið til að bæta hag fá-
tækra bænda þrátt fyrir 24 millj-
ón dollara tekjur Nígeríu á dag af
olíu. Herinn er skipaður 240.000
mönnum og fær í sinn hlut 500
milljón dollara á ári.
I Kampala ^kom byltingin á
óvart. „Hann virtist hógvær mað-
ur, var vingjarnlegur, tilheyrði
litlum ættflokki og reyndi að bera
klæði á vopnin,“ sagði einn full-
trúa þar um Gowon.
KKÍ KKÍ
íslandsmót
í körfuknattleik
1976
Þátttökutilkynningar verða að hafa borist Körfu-
knattleikssambandinu í póstbox 864, Rvk.
ásamt þátttökugjaldi fyrir 10. ágúst n.k.
Wfl
SUMARLEYFISFERÐIR
f ÁGÚST
i. Miðlandsöræfi 6,—17. ágúst
Ekið frá Reykjavík norður Sprengisand,
Gæsavatnaleið til Herðubreiðalinda. Það-
an um Norðurland og Kjalveg til Reykja-
víkur. Skoðaðir margir af þekktustu og
fegurstu stöðum á hálendi íslands, s.s.
Veiðivötn, Eyvindarver, Nýidalur, Vonar-
skarð, Gæsavötn, Askja, Herðubreiðar-
lindir, Hveravellir, Kerlingarfjöll, Hvítár-
vatn, o.m.fl.
GIST í SKÁLUM OG TJÖLDUM. VERÐ
KR. 19.000 —
ii. Kverkfjöll—Snæfell 6,—17. ágúst
Ekið norður Sprengisand og um Gæsa-
vatnaleið til Herðubreiðalinda og þaðan til
Kverkfjalla. Dvalið þar næstu daga og
skoðaðir m.a. íshellarnir, Hveradalurinn
og fleira. Þaðan haldið um Hvannalindir,
Álftadal, Hafrahvammagljúfur, Laugar-
valladal og Hrafnkelsdal að Snæfelli
Gengið á Snæfell og hugað að hreindýr-
um, sem oft eru á þessum slóðum. Heim
verður haldið um þjóðveginn sunnan
jökla.
GIST f SKÁLUM OG TJÖLDUM. VERÐ
KR. 19.000,—
iii Hrafntinnusker — Eldgjá —
Breiðbakur 12.—17. ágúst
Öku- og gönguferð um svæðin vestan og
austan Landmannalauga. Síðan ekið að
Langasjó og um Breiðbak til Veiðivatna.
GISTING í SKÁLUM. VERÐ KR.
9.900 —
iv. Gæsavötn — Vatnajökull
14.—17. ágúst
Ekið til Gæsavatna og gist þar í tjöldum
eða skála. Farið á Vatnajökul með Snió-
kettinum á föstudag eða laugardag, en
ekið eða gengið um nágrennið hinn dag-
inn. Jöklaferðin og skálagisting í Gæsa-
vötnum ekki innifalin í verðinu.
VERÐ KR. 6.700,—
v. Norður fyrir Hofsjökul 21.—24. ágúst
Ekið fyrsta daginn til Hveravalla. Þaðan
austur yfir Blöndu og austur með Hofs-
jökli, um Ásbjarnarvötn, og Laugafell til
Nýjadals. Þaðan farið í Vonarskarð eða á
Tungnafellsjökul. Heima á fjóðra degi um
Sprengisand.
GIST í SKÁLUM. VERÐ KR. 6.700,—
vi. Aðalbláberjaferð í Vatnsfjörð
28.—31. ágúst
GIST í fjÖLDUM VIÐ FLÓKALUND.
Tímanum varið til berjatínslu eða skoðun-
arferða um nágrennið.
VERÐ KR. 6.700 —
LEITIÐ NÁNARI UPPLÝSINGA.
GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA.
Ferðafélag íslands,
Öldugötu 3,
símar: 19533 og 11798.
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
BÆNDUR
HEYBINDIG ARN
Fyrsta flokks HAMPIÐJU-heybindigarn
er framleitt í tveim sverleikum
blátt (grannt)
og gult (svert)
Fæst hjá Kaupfélögum,
Sambandinu Ármúla 3,
Kristjáni Ó. Skagfjörð h.f.
og Glóbus h.f.
GOTT HEYBINDIGARN EYKUR
REKSTRARÖRYGGI VÉLANNA.
STAKKHOLTI 4 Reykjavik
Hvers
vegna
fótlaga
skó?
Því að aðeins í fót-
lagaskóm fá stóru-
tærnar að njóta sín,
nauðsynlegt rúm til
að vöðvarnir fái að
starfa hindrunar-
laust.
NYKOMID AFTUR FRÁ PILflR - ásaml
mðrgum öðrum nýlum og lallegum
gerðum -
Teg. 2029
Ljósbrúnt skinn
með ekta
hrágúmmísólu’
í no. 24—3
Teg. 2066
Ljósbrúnt skinn
með ekta
hrágúmmísólum
no 24—39.
Allirskórfrá PILAR eru með ekta leðurbindisólum.
Verð
24—27 kr. 1950
28 — 30 kr. 2175
31—33 kr. 2420
34—39 kr. 2845
Eigilsgötu 3,
pósthólf 5050. Sími 18519.
Póstsendum samdægurs