Morgunblaðið - 30.07.1975, Side 24
AUíílVSINííASÍMINN ER:
22480
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
2R«r0MtiI>labib
170. tbl. 62. árg.
MIÐVIKUDAGUR 30. JUlI 1975
á 14 km
ISLAND og Sovétrfkin leika
sinn fyrsta landsieik f knatt-
spyrnu á Laugardaisvellinum í
kvöld, og hefst leikurinn klukk-
an 20. Nokkrar breytingar hef-
ur þurft að gera á fslenzka
landsliðinu vegna forfalla á síð-
ustu stundu. Þannig voru þeir
Janus Guðlaugsson og Hörður
Hilmarsson, sem eru á mynd-
inni til hægri, kallaðir til liðs
við liðsmennina á síðustu
stundu.
Þeir Marteinn Geirsson og
Matthfas Hallgrfmsson eru
tveir reyndustu leikmenn
iandsliðsins og sjást þeir hér á
myndinni til vinstri. Matthías
sagðist vita að Sovétmennirnir
ættu einu sterkasta knatt-
spyrnulandsliði heimsins á að
skipa, en þrátt fyrir það væru
fslenzku leikmennirnir hvergi
smeykir og gætu jafnvel sigrað
í Ieiknum í kvöld.
Á myndinni hér fyrir neðan
eru svo 14 af ieikmönnum
landsliðsins, ásamt landsliðs-
þjálfara og landsliðsnefndar-
mönnum. Ljósm. Mbi. —áij.
Sjá íþróttir bls. 10.
Eldborg fékk 5501
af fallegri loðnu
Reyðarfjörður ákjósanleg-
asti miðstaður Austurlands
Tveir staðir skera sig úr sem
ákjósanlegustu miðstaðir á Aust-
uriandi. Egilsstaðir og Reyðar-
fjörður og hefur Reyðarfjörður
vinninginn. Þetta kemur m.a.
fram f nýútkominni Austurlands-
áætlun, þar sem leitað er eftir
staðarvali frá félagslegu sjónar-
miði. En miðstaður er samkvæmt
skilgreiningu þar sem setja ætti
niður þjónustustarfsemi (t.d.
sjúkrahús) vegna þess að minnst-
ur kostnaður er við það að hver
fbúi fari frá heimili sínu einu
sinni á ári til þessa miðkjarna.
Eða eins og það er orðað: Miðstað-
ur svæðisins hefur fæsta heildar-
íbúakflómetra.
Útreiknaður miðstaður Austur-
lands alls er Egilsstaðir með
1.174.843 íbúa-km og Reyðarfjörð-
ur fylgir fast á eftir með 1.196.285
íbúa-km. I þessu tilviki er reiknað
með veginum um Breiðdalsheiði,
þ.e. allir íbúar, sem stytt geta.sér
leið til Egilsstaða um Breiðdals-
heiði eru reiknaðir þá leiðina. En
nú er til þess að taka, að Breið-
daisheiði er lokuð eða illfær hluta
úr ári hverju. Séu ibúa-km Egils-
staða reiknaðir út án Breiðdals-
heiðar, þ.e. um firði, verða þeir
1.299.725 og skipa Egilsstöðum í
þriðja sæti á eftir Reyðarfirði og
Eskifirði. Fáskrúðsfjörður kemur
hér, sem í öðrum tilvikum, i síð-
asta sæti.
Nú má með réttu segja, að
óraunhæft sé að tala um Austur-
land sem eitt svæði með einni
Framhald á bls. 13.
Slglufirði, 29. júll.
LOÐNUVEIÐISKIPIÐ Eldborg
GK kom hingað til Siglufjarðar f
dag með 550 tonn af fallegri
loðnu. Loðnuna fékk skipið f nótt
í Reykjafjarðarál.
Gunnar Hermannsson skip-
Sólin gerði
stuttan stanz
— ÞVI MIÐUR, það er blika í
vestrinu og það sem verra er, að
loftvogin fer nú fallandi á Græn-
landshafi, sagði Páll Bergþórsson,
veðurfræðingur, næstum því af-
sakandi, þegar Mbl. hafði sam-
band við hann í gærkvöldi og
spurði hann, hvort hann teldi að
þessi sólarglenna, sem gladdi íbú-
ana á SV-horni landsins í gær,
héldist eitthvað áfram. Páll kvað
lægðardrag vera að myndast
þarna á Grænlandshafi, vindur að
ganga í suðvestan átt og þá stæði
bjartviðrið sunnanlands sjaldnast
íengi. Páll sagði þó, að á stórum
hluta landsins og þá einnig á Suð-
urlandi austanverðu mætti búast
við fegursta veðri i dag, en á
Suðvesturlandi yrði hann líklega
þungbúinn. Páll minnti í þessu
sambandi á þá gömlu trú, að góð-
viðrið yrði sjaldnast langvarandi,
þegar það kæmi svo snögglega
sem i gærdag.
stjóri á Eldborginni tjáði frétta-
ritara Morgunblaðsins að þeir
hefðu fengið loðnuna i þremur
köstum. Er þetta tæplega
fullfermi Eldborgar. Gunnar
sagði, að geysimikið virtist vera af
loðnu á þessum slóðum. Þrír
bátar hafa verið þarna og fékk
Sigurður Árni AK 40 tonn, en
varð þá að fara til hafnar vegna
bilunar. Skip sem hafa verið á
leiðinni hingað norður af Hala-
miðum, hafa fundið miklar lóðn-
ingar á þessu svæði. — mj.
Forsetinn til
Kanada í dag
FORSETI Islands, dr. Kristján
Eldjárn, og kona hans, frú Hall-
dóra Ingólfsdóttir, halda í dag
með flugvél vestur til Kanada til
að taka þátt í hátfðahöldum vegna
100 ára afmælis fyrstu byggðar
Islendinga þar um slóðir. I
fylgdarliði forsetans verða Einar
Ágústsson utanríkisráðherra,
Birgir Möller forsetaritari og eig-
inkonur þeirra, auk Haralds
Kröyer sendiherra íslands í
Bandarfkjunum og Kanada, en
hann er kominn á undan til Ott-
awa til að taka á móti forsetanum.
Forsetinn er væntanlegur heim
aftur laugardaginn 9. ágúst.
15 ÁRA PILTUR DÓ
ISLYSIÁ DALVÍK
FIMMTÁN ára piltur, Jónas
Björgvin Antonsson, Mímisvegi 7
á Dalvfk, beið bana á mánu-
daginn, er hann varð fyrir vöru-
bifreið á Sunnubraut þar f bæ.
Slysið varð á þriðja tímanum á
mánudag, er Jónas var ásamt
jafnaldra sínum að vinna við hol-
ræsisbrunn í götunni, en á sama
tíma voru vörubifreiðar að flytja
fyllingarefni i götuna. Ekki er
fyllilega Ijóst Aim tildrög slyssins,
þar sem ekki munu hafa orðið
sjónarvottar að því, en vörubif-
reiðin lenti á Jónasi, þar sem
hann var við vinnu sína og mun
hann hafa beðið bana samstundis.
Jónas Björgvin Antonsson var
sonur hjónanna Höllu Jónas-
dóttur og Antons Angantýssonar
afgreiðslumanns. Hann lauk sl.
vor landsprófi miðskóla frá Gagn-
fræðaskóla Dalvíkur.
Suðurlandsvegur:
Olíumöl lögð á 14 km kafla
austur að Skeiðavegamótum
NÚ I ár nemur fjárveiting til
hraðbrautaframkvæmda samtals
kr. 890 milljónum, en stærsti lið-
urinn f þeirri f járhæð er þó vegna
brúarsmfði yfir Borgarfjörð.
Einnig fer talsverð fjárhæð til
framkvæmdanna á Kðpavogshæð-
inni, sem yegagerðin annast, en
að öðru leyti er einkum unnið að
lagningu varanlegs slitlags á Suð-
urlandsvegi, milli Isafjarðar og
Hnffsdals, við Blönduós, í nánd
við Akureyri og á Garðskaga.
A Suðurlandsvegi er verið að
vinna á 14 kílómetra kafla í Fló-
anum eða frá malbikaða kaflan-
um á Selfossi austur um að vega-
mótum Skeiðavegar. Þarna er slit-
lag þegar komið á 4—5 km kafla
en ráðgert að lokið verði við að
leggja slitlag alla leiðina í sept-
ember Auk lagfæringa og undir-
byggingar við gamla veginn þarna
eru smíðaðar þrjár smærri brýr,
en samtals er unnið fyrir um 170
milljónir króna í þessum vegi nú í
ár, að því er Sigfús örn, deildar-
verkfræðingur hjá Vegagerð rík-
isins tjáði Mbl.
1 Kópavogsgjánni er áformað að
opna vesturbrautina sem svo er
kölluð nú i næsta mánuði en þar
verður unnið fyrir 115 milljónir
samkvæmt áætlun. Sáralítið hef-
ur verið unnið við Vesturlands-
veg fram til þessa, að sögn Sigfús-1
ar, en þó hefur verið gerður nýr 1
vegur inn í Brynjudal og við
Múlafjall í Hvalfirði á um 5 km
kafla í mjög erfiðu landi. Þá er
verið að malbika milli Isafjarðar
og Hnifsdals hraðbraut, en á
Norðurlandi er verið að vinna í
nágrenni við Blönduós, þar sem
unnið er fyrir um 75 milljónir
króna að lagfæringum og undir-
byggingu vegarins, en olfumalar-
lögn á að hefjast næsta sumar.
Sömuleiðis er verið að vinna fyrir
um 80 milljónir króna að hrað-
brautarframkvæmdum á 3,5 km
kafla frá Glerárhverfinu og norð-
ur eftir Kræklingahlíð.
Um þessar mundir er verið að
byrja á Garðskagaveginum, en
þar á að leggja varanlegt slitlag á
um 6 km kafla frá endimörkum
Keflavíkurkaupstaðar að Garðin-
um. Er ráðgert að leggja olíumöl á
um helming vegarins núna i
haust.
Að sögn Sigfúsar hefur oliumöl-
in yfirleitt gefizt mjög vel hér á
vegum, eða eins og reiknað hafði
verið með. Þó er nú svo komið, að
sumsstaðar á Suðurlandsvegi er
hún orðin of veik fyrir þá miklu
umferð, sem þar fer um daglega,
en þess eru dæmi að á sumum
köflum séu það yfir 2 þúsund
bflar. Oliumölin þolir hins vegar
ekki meira en 1000 bíla, en Sigfús
sagði raunar, að frá byrjun hefði
ekki verið reiknað með olíumöl-
inni á þessum vegarköflum nema
til bráðabirgða, enda væri nú þeg-
ar byrjað að leggja malbik ofan á
þá kafla Suðurlandsvegar, þar
sem umferðarþunginn væri mest-
ur og næði malbikið nú að Blá-
fjallaafleggjaranum fyrir ofan
Lækjarbotna.
Stórþjófnaður
í vöruskemmu
I GÆR uppgötvuðu starfsmenn f
vöruskemmu Hafskips hf. við
Eiðsgranda f Reykjavík, að brot-
izt hafði verið inn f skemmuna,
líklega um síðustu helgi. Við at-
hugun kom í Ijós, að búið var að
stela fjórum stereomögnurum,
fimm plötuspilurum og þremur
bílaútvarpstækjum. Lauslega
áætlað mun verðmæti þessa varn-
ings vera nálægt hálfri milljón
króna.
Magnararnir og plötuspilarnir
eru japanskir, af Yamaha gerð.,
Höfðu tækin verið flutt til lands-
ins fyrir nokkru. Bilaútvörpin eru
af Blaupunkt gerð. Þjófnaðurinn
uppgötvaðist ekki fyrr en í gær,
en talið er að hann hafi verið
framinn einhverntíma um síðustu
helgi.
Rannsóknarlögreglan hefur
rannsókn málsins með höndum.
Eru það tilmæli hennar, að allir
þeir sem einhverjar upplýsingar
geta gefið, hafi strax samband við
hana t.d. ef einhver hefur orðið
var við grunsamlegar mannaferð-
ir við skemmuna um s.l. helgi.