Morgunblaðið - 09.08.1975, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. ÁGUST 1975
Þessar hryssur skipuðu þrjú efstu sæti f flokki hryssa 6 vetra og eldri á Fjórðungsmótinu f Faxaborg.
Talið frá vinstri: Prinsessa frá Ferjukoti, sem varð þriðja. Harpa frá Svignaskarði, sem varð önnur, og
sigurvegarinn, Folda frá Múlakoti. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Ragnar
Tómasson:
Dómar kynbótahrossa hafa
nokkrum sinnum komið til um-
ræðu í þáttum þessum. Meðal
þess sem gagnrýnt hefur verið
er að einkunn fyrir byggingu
og hæfileika skuli lögð að jöfnu
í aðaleinkunn, þegar samanlagt
margfeldi byggingar er aðeins
40 en hæfileikanna 60. Er nauð-
synlegt að upplýst verði um að-
draganda þess máls ef með þvf
mætti verða ljóst hvort rétt sé
að útreikningi einkunna staðið.
En athyglisvert er einnig að
kanna hvernig í framkvæmd
eru búin til „ný“ margfeldi ein-
stakra þátta með því að halda
einkunnum misjafnlega hreyf-
anlegum. Nú hefur vilji marg-
feldið 12 en skeið 10. I fram-
kvæmd hefur skeið þó tvöfalt
meiri áhrif á aðaleinkunn en
vilji. Staðreyndin er nefnilega
sú að með því að nota einkunn-
arskalann aðeins á takmörkuðu
bili í einum þætti en meira í
öðrum, fá þættirnir í raun ný
margfeldi. Þetta skýrist betur
með því að líta á á töflu I, sem
samin er eftir dómum allra
kynbótahrossa á síðasta lands-
móti.
Til gamans má stilla upp til-
búnu dæmi af 2 hrossum og
Gluggað í dóma
gefa þeim einkunnir innan þess
ramma, sem síðasta landsmót
markar þvílakastaogbezta sem
á mótinu mátti finna, fyrir
hvern þátt einkunnar. Sjá töflu
II. Hestur A fengi 1. verðlaun
eða 8,06. Hestur B. fengi 2.
verðlaun eða 7,98. Engan vafa
tel ég leika á því hvorn hestinn
menn teldu eigulegri, en svona
TAFLA I.
í heild lítitr dæmið þannig út:
(irein Hæsta og lægsta í'inkunn gefin Mismunur hæstu og lægstu einkunnar f meðaleinkunn Margfeldi hvers þáttar f raun, miðað við 100:
1 Skeið 5.0—9.5 0.38 20
2—3 Yfirsvipur 7.5—9.0 0.30 15
2—3 Fætur 7.0—8.5 0.30 15
4 Tölt 7.0—8.5 0.21 11
5 Vilji 7.5—9.5 0.20 10
6 Geðslag 7.0—9.5 0.17 9
7 Brokk 7.0—9.0 0.13 7
8 Samræmi 7.5—8.5 0.10 5
9—10 Stökk 7.5—9.0 0.08 4
9—10 Fegurð f reið 7.5—9.0 0.08 4
100
getur rangt mótaður og/eða
notaður einkunnaskali haft al-
varlegar afleiðingar fyrir rækt-
unina, því að enginn þarf að
fára í grafgötur með það að
einkunnagjöf og röðun hrossa á
mótum hefur gífurlegt áróðurs-
gildi fyrir viðkomandi kynbóta-
hross og getur með þeim hætti
mótað stefnuna I ræktunarmál
umsjón: TRYGGVI
GUNNARSSON
Hörð keppni á
Vindheimamelum
Hér heldur Marinó Jakobsson á Skáney í hryssu slna, Skvettu frá
Gufunesi, sem stóð efst 1 flokki hryssa með afkvæmum á Fjórðungs-
mótinu í Faxaborg.
UM SlÐUSTU helgi héldu
hestamannafélögin 1 Skagafirði
hestamannamót að Vindheima-
melum. Mótið hófst með undan-
rásum kappreiða á Iaugardags-
kvöidið. Að sögn forráðamanna
mótsins komu um 2000 manns
til að fylgjast með því. Veður
var gott meðan mótið stóð yfir.
Fjöldi hrossa tók þátt í
kappreiðunum, m.a. flestir
mestu hlaupagammar landsins.
Sigurvegari í 250 m skeiði varð
Fannar, bleikálóttur, 8 v., eign
Harðar G. Albertssonar á 24,2
sek. I 250 m unghrossahlaupi
sigraði Sleipnir. leirljós, eign
Harðar G. Albertssonar og Sig-
urbjörns Bárðarsonar, Reykja-
vík, á 19,3 sek. Fyrstur í 300 m
stökki varð Jerímías, grár, 5 v.,
eign Björns Baldurssonar,
Reykjavík, á 25,6 sek. og önnur
Fluga, jörp, 7 v., eign Kristinar
Ólafsdóttur, Keldudal, á sama
tíma. Rosti, brúnn, 9 v., eign
Baldurs Oddssonar, Reykjavík,
sigraði I 800 m stökki á 62,0
sek., en í öðru sæti varð Loka,
rauð, 7 v., eign Þórdfsar H.
Albertsson, Reykjavík, á sama
tíma. Loka hefur getið sér gott
orð sem hlaupahross á styttri
vegalengdum. Þá var keppt í
800 m brokki og varð Náttfari,
brúnn, eign Vatnsleysubúsins,
sigurvegari, á 1 mín. 56,3 sek.
A mótinu fór fram gæðinga-
keppni, sem i tóku þátt félagar
Kappreiðar
Harðar næsta
laugardag
HESTAMANNAFÉLAGIÐ
Hörður i Kjósasýslu heldur
sínar árlegu kappreiðar á velli
félagsins að Arnarhamri n.k.
laugardag 16. ágúst og hefjast
þær kl. 14.00. Fram fer gæð-
ingakeppni í tveimur flokkum
og keppt verður í eftirtöldum
hlaupum 250 m skeiði, 250 m
unghrossahlaupi, 300 m stökki
og 400 m stökki. Þá fer fram
sérstök keppni unghrossa. Þátt-
töku þarf að tilkynna tyrir
þriðjudagskvöld 12. ágúst n.k.
úr Léttfeta og Stfganda. I A-
flokki urðu úrslit sem hér
segir: Fyrst varð Perla, rauð, 7
v., eign Steinþórs Árnasonar
frá Sauðárkróki með 8,30,
annar varð Vinur, rauðskjóttur,
15 v., eign Markúsar Sigurjóns-
sonar á Reykjahóli með 8,30 og
þriðji varð Kolskeggur, bleikál-
óttur, 9 v., eign Sigurðar Ingi-
marssonar, Flugumýri, með
8,10 í einkunn.
Urslit i B-flokki urðu með
þeim hætti að fyrstur varð
Sokki, brúnsokkóttur, 9 v., eign
Jóns Garðarssonar, Neðra-Ási,
með einkunnina 8,60. Annar
varð Faxi, rauður, 16 v., eign
Jónu Sigurjónsdóttur, Sauðár-
króki, eink. 8,07 og þriðji
Skjóni, brúnskjóttur, 5 v.,
Sverris Svavarssonar, Sauðár-
króki, eink. 8,00.
Stórmót
á Hellu
UM HELGINA halda sunn-
lenzkir hestamenn Stórmót 75 á
Rangárbökkum. Það eru hesta-
mannafélögin á Suðurlandi,
sem standa fyrir þessu móti.
Fram fer gæðingakeppni, sem
tveir beztu gæðingar hvers
félags í hvorum flokki taka þátt
f, sýnd verða ung kynbótahross
og fram fara kappreiðar.
Á kappreiðunum verður
keppt í 5 greinum. I skeiðinu
verða meðal keppenda Ljúfur,
Hvinur, Öðinn frá Gufunesi,
Vafi og Fannar. I 350 m stökk-
inu verða m.a. Muggur, Öðinn,
Bliki úr Keflavík, Jerímías. Þá
keppa á þessari vegalengd tvö
hross, sem verið hafa sigursæl í
250 m unghrossahlaupi, þ.e.
Blesa og Sigurkarl. í 800 m
stökkinu keppa harðir hlaupa-
hestar og eru f þeirra hópi
Stormur Baldurs Oddssonar,
Geysir, Frúarjarpur, Vinur
Hrafns Hákonarsonar, Rosti og
Ástvaldur. Þá verður keppt f
1500 m stökki og 1500 m brokki.
Kappreiðar hjá Loga um síðustu helgi
TAFLA II.
Hestur A Hestur B
Yfirsvipur Sérlega glæsilegur 9.0 Ekkert sérstakur 7.5
Samræmi Ekki gott 7.5 Gott 8.0
Fætur Afburða gððir 8.5 Hófar góðir en fætur ekki beinir 7.5
Tölt Sviplftið skeiðtölt 7.0 Sérstakiega glæsilegt 9.5
Brokk Fæsl varla á brokk 7.0 1 meðallagi 8.0
Skeið Flugvakur 9.5 Ekkitil 5.0
Stökk Afkáralegt 7.5 Þokkalegt 8.0
Vilji Viljadaufur 7.5 Fjörhestur 9.5
Geðslag Óþjált 7.5 Einstaklega geðgóður Ijúfur og þjáll 9.5
Fegurð f reið Lággengur, ganar og fer illa undir manni 7.5 Afburða fagur í reið 9.0
Kappreiðar hestamannafé-
lagsins Loga í Biskupstungum
fóru fram sl. sunnudag, 3.
ágúst. Fóru þær fram á velli
félagsins við Hrfsholt hjá
Tungufljótsbrú. Rúmlega 40
hross tóku þátt í kappreiðum,
þar af 30 f hlaupum. Auk kapp-
reiða og gæðingakeppni fór
fram sérstök keppni unglinga
og var valinn bezti knapinn úr
þeirra röðum. Sá, sem hlaut
þessa viðurkenningu var Gísli
Guðmundsson, Torfastöðum, en
hann er 12 ára.
1 A-flokki gæðinga sigraði
Sunna, rauðtvfstjörnótt, 6 v.,
eign Guðmundar Þ. Gíslasonar,
Torfastöðum, eink. 8.43. önnur
varð Gfgja, brúnstjörnótt, 5 v„
eign Guðmundar Þ. Gfslasonar,
eink. 8.17 og þriðji Feykii^ gló-
rauður, 6 v„ eign Guðmundar
Þ. Gíslasonar, Torfastöðum,
eink. 8.07.
Efstur í flokki klárhesta með
tölti varð Hrafnkell, svartur, 4
v„ eign Guðmundar Þ. Gísla-
sonar, Torfastöðum, eink. 8.03.
Hrafnkell er stóðhestur, sonur
stóðhestsins Sörla frá Sauðár-
króki. Annar varð Glókollur,
glófextur, 5 v„ eign Guðmundar
Þ. Gíslasonar, Torfastöðum og f
þriðja sæti varð Brana, rauð-
blesótt, 6 v„ eign Gfsla Guð-
mundssonar, Torfastöðum,
eink. 7.60.
1 250 m skeið sigraði And-
vaka, jörp, 6 v„ eign Eirfks Þ.
Giiímundssonar, knapi Guð-
mundur Þ. Gíslason, á 26,0 sek.
Annar varð Ýringur, brúnbles-
óttur, 5 v„ eign Guðmundar Þ.
Gíslasonar, knapi Gunnar
Árnason, á 28,7 sek. Aðrir
hestar hlupu upp. I 250 m ung-
hrossahlaupi sigraði Röst, jörp,
6 v„ eign Þorkels Bjarnasonar,
Laugarvatni, knapi Gylfi Þor-
kelsson.á 21 sek„ en annar varð
Toppur, bleikskjóttur, 5 v„ eign
Ilildar Sigurðardóttur, Hvftár-
holti, á sama tíma en sjónar-
mun á eftir. Þriðji varð Kaktus,
brúnn, 4 v„ eign Árna Arnar-
sonar, Torfastöðum, á 21,6 sek„
Blesa frá Hlemmiskeiði hafjSi
beztan tfma í undanúrslitum en
í úrslitahlaupinu fékk hún
mjög vont ,,start“ og hljóp i
öfuga átt.
Sigurvegari í 300 m stökki
varð Lappi, jarpskjóttur, 10 v„
eign Þorkels Bjarnasonar,
Laugarvatni, knapi Hreinn Þor-
kelsson, timi hans var 23,4 sek.
Annar varð Sörli, brúnn, 10 v„
eign Esterar Guðmundsdóttur,
Laugarvatni, knapi Gylfi Þor-
kelsson á 23,6 sek„ og þriðja
varð Brana, jörp, 8 v„ eign
Magnúsar Halldórssonar, Ása-
koti, á 24,1 sek. Þá fór fram 300
m brokk og sigraði þar Leiri,
vindóttur, 15 v„ eign Þorkels
Bjarnasonar, Laugarvatni,
knapi var Bjarni Þorkelsson.