Morgunblaðið - 09.08.1975, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. AGUST 1975
31
um V-Islendinga
Magnús Bjarnason
Minnisvarði
og Jóhann
LAUGARDAGINN 2. ágúst var
afhjúpaður minnisvarði um
Vestur-Islendinga og skáldið
Jóhann Magnús Bjarnason
í Meðaínesi, Fellum, í Norður-
Múlasýslu, en þar var Jóhann
Magnús Bjarnason fæddur.
Minnisvarðann hlóð Sveinn
Einarsson frá Hrjót úr ótilhöggnu
grjóti úr landi Meðalness, en
nokkrir steindrangar eru notaðir
í efri hluta varðans. Er
minnisvarðinn rétt við þjóðveg-
inn á bökkum Lagarins, mjög mið-
svæðis á Fljótsdalshéraði. Útsýni
er mjög fagurt á þeim stað, þar
sem varðinn stendur, og sést
þaðan vítt yfir Fljótsdalshérað og
til fjallanna í grennd.
Athöfnin við afhjúpun minnis-
varðans hófst kl. 14 í mjög fögru
veðri. Þangað streymdi fólk í
glampandi sólskini, en fánar
íslands, Kanada og Banda-
rikjanna blöktu í hægum and-
vara. Krikjukór Áskirkju i
Fellum söng undir stjórn Mar-
grétar Gisladóttur, en séra Þor-
leifur Kristmundsson á Kol-
FRÉTTIR herma að æ fleiri
bandarískir hagfræðingar hafi
þungar áhyggjur af því að Banda-
ríkjunum muni ekki takast að
losa sig úr viðjum verðbólgunnar
og er fyrirsjáanleg mikil hækkun
á matvælum og ýmsum nauð-
synjavörum í Bandarikjunum nú
á næstunni. Ef það verður,
minnka líkurnar á því að hægt
verði að vinna neinn verulegan
bug á því erfiða efnahagsástandi,
sem hefur ríkt í landinu. Hag-
fræðingar benda á að hækkanir á
matvælum og olíu séu oft nokkur
visbending um þróun verðbólg-
unnar. Hafa ýmsir hagfræðingar
komið með skuggalegar spár i
þessu efni og þá sérstaklega tekið
— Grjótaþorpið
Framhald af bls. 2
nefnd til að þeir hefðu svigrúm til
að lita á þær.
Ólafur B. Thors, formaður
skipulagsnefndar, sagði Mbl. i
gær að tillögurnar yrðu ekki
lagðar fram á næsta fundi, sem
verður á mánudag og væri ekkert
farið að fjalla um þessar fyrstu
hugmyndir arkitektanna neins
staðar, og þar af leiðandi engin
viðbrögð við þeim. Væru þessi
drög þvi ekki einu sinni komin á
umræðustig.
— Valur — FH
Framhald af bls_. 30
Liðin
Þa8 hefur sjálfsagt komiS FH-
ingum til gó8a I þessum leik a8
leikurinn for fram á Melavellinum,
en FH-ingar æfa og leika alla stna
leiki á malarvellinum I Kaplakrika.
Beztu menn FH í þessum leik voru
Ómar markvörður, Þórir Jónsson og
Gunnar Bjarnason. Af Valsmönnum
voru framllnuleikmennirnir mest í
sviðsljósinu og þó að þeir gerðu
margt laglega. tókst þeim ekki að
skora nema einu sinni, — og þvl fór
sem fór. Albert Guðmundsson stóð
sig vel t þessum leik og var hann
einna drýgstur Valsmanna I leiknum!
í STUTTU MÁLI:
islandsmótið 1. deild, Melavöllur 8.
ágúst Valur— FH 1:2 (1:1)
MARK VALS: Hermann Gunnarsson
á 38. mtnútu.
MÖRK FH: Leifur Helgason á 12.
mtnútu og Viðar Halldórsson á 72.
mtnútu.
ÁMINNING: Logi Ólafsson FH fyrir
grófan leik
ÁHORFENDUR: 336.
freyjustað flutti hátíðarræðu, þar
sem hann minntist Vestur-
Islendinga og þess trega og sakn-
aðar sem brottflutningur þessa
fjölda hefði valdið Islendingum
öllum. Ræddi hann þau sterku
tengsl sem Vestur-íslendingar
hefðu viðhaldið til Islands og hið
margvíslega sem þeir hefðu lagt
af mörkum til stuðnings Islandi
og íslenzkri menningu. Þá minnt-
ist séra Þorleifur skáldsins
Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar
og ræddi um ritstörf hans.
Sólveig Jónsdóttir á Ekkjufelli
gekk því næst að minnisvarðan-
um og afhjúpaði hann, en kórinn
söng „Þótt þú langförull legðir",
kvæði Stephans G. Stephanssonar
við lag eftir Sigvalda Kaldalóns.
Á minnisvarðanum eru tvær
plötur. Á annarri stendur „Til
minningar um skáldið Jóhann
Magnús Bjarnason. Fæddur 24.
maí 1866 að Meðalnesi í Fellum,
dáinn 8. sept. 1945 i Elfros,
Saskatchewan, Kanada.“
Á hinni minningarplötunni
stendur textinn „Frá því um 1875
og á fyrstu árum þessarar aldar
til hækkun á oliuverði. Verð á
kjötvörum hefur hækkað mjög
mikið i Bandaríkjunum og réð
það úrslitum að verðbólgan þar
var i júnimánuði 1,9 prósent
meiri en í maí og er hækkun á
þessu ári að meðaltali um 22%.
— Gjafir
Framhald af bls. 3
sem kostur er, skrá yfir nöfn
þeirra Islendinga, sem fluttust til
Vesturheims á 19. öld og í byrjun
20. aldar ásamt heildarrannsókn
Helga Skúla Kjartanssonar BA á
vesturferóunum og ritgerð
Júníusar Kristinssonar cand.
mag. um Vesturheimsferðir
Vopnfirðinga á tímabilinu 1874 til
1920.
2. Að Landsbókasafni Islands
verði tryggt fjármagn á fjárlögum
til að annast áfram bókasend-
íngar til bókasafns Manitoba-
háskóla í Winnipeg eftir breyt-
ingu á lögunum um skylduskil til
safna.
3. Að hækka fjárstyrk rikissjóðs
til Lögberg-Heimskringlu úr 4000
dölum i 8000 dali á ári.
— Karl prins
Framhald af bls. 3
safnið og skoðaði það undir
leiðsögn Þórs Magnússonar
þjóðminjavarðar.
Var þessu næst ekið um
borgina, m.a. fram hjá Reykja-
víkurhöfn og inn i Laugardal,
og síðan ekið að Árbæjarsafn-
inu, Karl prins skoðaði gömlu
kirkjuna og Arbæ sjálfan undir
leiðsögn Nönnu Hermannsson
minjavarðar og tveggja stúlkna
í íslenzkum búningum, þeirra
Hrafnhildar Schram og Ingu
Dóru Björnsdóttur.
Frá Árbæjarsafni var siðan
ekið beint að Ráðherrabústaðn-
um við Tjarnargötu. Sérstakur
fylgdar- og leiðsögumaður
prinsins í ferðinni um Reykja-
vík var Þórður Einarsson blaða-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins,
en auk þess voru með í förinni
sendiherra Breta á tslandi og
fleiri Bretar. Ekki gafst blaða-
mönnum færi á að eiga viðtal
við prinsinn, enda hafði hann
sérstaklega óskað eftir að vera
laus við blaðamenn í ferðinni.
I gærkvöldi sat Karl Breta-
prins kvöldverðarboð forsætis-
ráðherra f Ráðherrabústaðnum.
Prinsinn gisti í Ráðherra-
bústaðnum í nótt.
Hann heldur utan til London
með áætlunarvél Flugleiða frá
Keflavikurflugvelli kl. 09:15
árdegis í dag.
fluttist fjöldi fólks búferlum vest-
ur um haf til Kanada og Banda-
ríkjanna. Þessir Vestur-
Islendingar lögðu ætíð mikla
rækt við íslenzka tungu og forna
menningu ættlands sins.
Þessa fólks og afkomenda
þeirra minnumst við hér með sér-
stakri virðingu.“
Að afhjúpun lokinni flutti aðal-
ræðismaður Kanada á Islandi,
Jón H. Bergs, stutt ávarp. Þá tók
til máls frú Birna Ólafsdóttir á
Birnufelli, en hún er frændkona
skáldsins Jóhanns Magnúsar
Bjarnasonar og stóð í bréfa-
sambandi við hann um skeið.
Pétur Jónsson bóndi á Egiis-
stöðum flutti einnig stutt ávarp
og rifjaði upp minningar ættingja
sinna um brottför Jóhanns
Magnúsar, þegar hann stóð á
Norðurbrún á leið til skips á
Seyðisfirði og leit yfir Fljótsdals-
hérað í siðasta sinn.
Að lokum söng kórinn „Vor-
menn Islands“ við lag Vestur-
Islendingsins Jóns Friðfinns-
sonar.
— Búinn að fá
Framhald af bls. 32
tunnum af mjög fallegri síld, sem
öll hefur farið í frystingu. I fyrstu
feiðiferðinni landaði báturinn
ém kunnugt er 60 tunnum, i
þeirri næstu 36 tunnum og í gær-
morgun fékk báturinn 10 tunnur,
en veður var þá frekar leiðinlegt.
Að sögn annars eigenda bátsins
hefur öll síldin verið fryst i Kefla-
vik. Ekkert verð er enn komið á
síldina og kemur það sér mjög illa
fyrir seljendur jafnt sem kaup-
endur.
— Loftur
Framhald af bls. 32
um. Þá var örn KE einnig
grunaður um að vera kominn yfir
markið, en við nánari eftir-
grennslan kom i ljós, að svo var
ekki (reyndar seldi skipið i gær).
Þórður Ásgeirsson skrifstofu-
stjóri sjávarútvegsráðuneytisins
sagði f samtali við Morgunblaðið i
gær, að um Ieið og starfsmenn
ráðuneytisins hefðu lokið við að
kanna allar síldarsölur Lofts
Baldvinssonar undanfarið hefði
skiþstjórinn fengið boð um að
hætta veiðum í Norðursjó og til-
kynnt að síldveiðileyfi skipsins
væri afturkallað. Eftir þvi sem
bezt væri vitað, væri skipið nú
þegar hætt veiðum. Ekkert hefði
þó verið ákveðið enn með frekari
aðgerðir í málinu.
Um önnur sildveiðiskip sagði
Þórður að vel væri fylgzt með
veiðum þeirra.
— Gíslar
Framhald af bls. 1
ekki mótmæla ef skæruliðunum
yrði sleppt.
Flugstjóri DC-8 þotu japanska
flugfélagsins sem flutti gíslana og
skæruliðana til Tripoli, Tomio
Masuko, segir að einn skærulið-
anna hafi tekið þátt í árás hryðju-
verkamanna, sem fylgja Aröbum
að málum, á olíumannvirki Shell í
Singapore í janúar 1974. Masuko
kveðst hafa verið einn af áhöfn
japanskrar flugvélar sem flutti
árásarmennina til Kuwait.
Strangar öryggisráðstafanir
voru gerðar á flugvellinum í
Tripoli þegar japanska flugvélin
kom þangað i morgun með skæru-
liðana fimm, sem lögðu undir sig
bandariska sendiráðið í Kuala
Lumpur fyrir fjórum dögum og
tóku 52 gisla . Skæruliðarnir voru
ásamt félögum sínum fimm, sem
þeir fengu leysta úr japönskum
fangelsum, og gíslunum fjórum
sem gengu skæruliðum á vald,
gegn því að skæruliðarnir slepptu
gíslunum úr sendiráðinu.
Útvarpið 1 Líbýu sagði að tekið
hefði verið við gíslunum „af
mannúðarástæðum og til að
Þyrma mannslifum". Embættis-
menn f Líbýu segja að skæru-
liðarnir hafi engra loforða krafizt
þegar þeir gáfust upp fyrir líbýsk-
um yfirvöldum og stjórnin í
Tripoli hafi engin loforð gefið. En
aðrir embættismenn segja að
■stjórn Libýu muni ekki bregðast
loforðum sem hún hafi gefið
skæruliðunum þótt þeir útskýri
þetta ekki nánar.
— Grænland
Framhald af bls. 1
inga. Hún hefur t.d. sótt um
styrk frá byggðasjóði banda-
lagsins til handa Grænlending-
um og samið um sérstaka skil-
mála fyrir þá innan heildar-
stefnu EBE í fiskveiðimálum.
Að ósk Dana hefur Evrópski
fjárfestingarbankinn veitt lán
með lágum vöxtum til endur-
bóta á samgöngukerfi Græn-
lands, byggingu flugbrauta
með ströndum fram og til að
styrkja innviði hins veika efna-
hagslífs landsins.
En af þessu hefur orðið
heldur litill pólitískur árangur,
og Nörgaard telur að þegar
sjálfstjórn kemst á muni aðild
að EBE verða felld i þjóðarat-
kvæðagreiðslu eins og síðast.
Talið er, segir greinarhöfund-
ur i International Herald
Tribune, að aðeins eitt geti
haldið Grænlendingum innan
Efnahagsbandalags Evrópu, og
það sé að EBE fylgi i kjölfar
Islendinga og lýsi yfir 200
mílna efnahagslögsögu. Það
myndi leiða til þess, að fyrir
tilstilli EBE i Briissel fengju
Grænlendingar risastóran
hluta Norður-Atlantshafs fyrir
sinn eigin fiskiðnað. En ólík-
legt er að slík ákvörðun verði
tekin áður en Grænlendingar
ganga til atkvæða um EBE.
— Portúgal
Framhald af bls. 1
Stjórnin er skipuð liðsforingj-
um sem eru handgengnir Gon-
calves og sérfræðingum sem að-
hyllast marxisma en eru óflokks-
bundnir að einum undanskildum,
varaforsætisráðherranum Joa-
quim Teiseira Ribeira prófessor í
hagfræði, sem er kommúnisti.
Auk hans er Antonio Arnao
Metele undirofursti varaforsætis-
ráðherra.
Nýja stjórnin verður háð vilja
þriggja herforingja sem stjórn-
málahreyfing heraflans hefur
veitt æðstu völd: Goncalves, Costa
Gomes og yfirmanns öryggisþjón-
ustunnar, Otelo Saraiva de Car-
valho hershöfðingja.
Dregið er í efa að stjórnin verði
langlíf þar sem ráðherrar hennar
styðjast við aðeins 18% kjósenda
samkvæmt úrslitum kosninganna
i april. Jafnframt hörðnuðu
deilur róttækra og hófsamra leið-
toga stjórnmálahreyfingar her-
aflans i dag, því að liðsforingjar
hafa birt yfirlýsingu þar sem þeir
gagnrýna harðlega þá róttæku
stefnu sem hefur verið fylgt.
Þar er þvi lýst yfir að stjórnin
njóti ekki trausts og sé ófær um
að stjórna landinu, að það lýsi
„fasistiskum anda“ að tilraunir
séu gerðar af hálfu róttækra að
koma á laggirnar „skrifstofuein-
ræði, sem beinist gegn valda-
lausum landslýðnum" gegn vilja
hans, hvatt til þess að stjórnmála-
hreyfing heraflans hverfi aftur til
þeirrar ópólitísku stefnu sem hún
hafi fylgt upphaflega og lagt til að
þjóðfélaginu verði breytt í sósial-
istískt horf en hægt og rólega,
friðsamlega og án umróta.
Ernesto Melo Amtunes majór,
einn helzti leiðtogi hófsamra, sem
nýlega sagði af sér embætti utan-
ríkisráðherra, samdi áskorunina
samkvæmt góðum heimildum og
hana undirrituðu flestir þeir
menn sem upphaflega voru for-
ingjar stjórnmálahreyfingar her-
aflans. Áskoruninni hefur verið
dreift meðal hersveita og hvatt er
til þess að sem flestir undirriti
hana.
Þríeykisstjórn Goncalves, Costa
Gomes og Saraiva de Carvalho
setti opinberlega ofan i við hóf-
sama liðsforingja í dag fyrir að
birta áskorunina og sögðu að hún
væri til þess eins fallin að koma
af stað sundrungu og draga ríkj-
andi ófremdarástand á langinn.
Þeir sögðu að birting áskor-
unarinnar væri agabrot og brot á
hermannlegu velsæmi. Upplýs-
ingaráðherrann, Jorge Correira
Jesuino, hótaði að refsa þeim sem
stæðu á bak við áskorunina,
annaðhvort með því að kalla út
alþýðuna eins og hann orðaði það
eðameð „hernaðarlegum ráðum“.
Þeir tíu menn sem stóðu að
áskoruninni mættu ekki við inn-
setningu nýju stjórnarinnar i
dag. Yfirmaður landhersins, Carl-
os Fibiao, sem er hófsamur, en
undirritaði ekki áskorunina,
mætti heldur ekki við athöfnina.
Sósíalistaforinginn dr. Mario
Soares hefur einnig birt mót-
mælayfirlýsingu og þar sakar
hann Goncalves hershöfðingja um
að righalda i völdin eins og
Antonio Oliveira de Salazar fyrr-
verandi einræðisherra. Hann
sagði að nýja stjórnin væri full-
trúi „minnihluta öfgamanna" —
kommúnista eða hálfkommúnista
— sem gætu aðeins haldið
völdum með kúgunarráðstöfun-
um.
Bæði Soares og hófsamir liðs-
foringjar hafa gert sér vonir um
stuðning Costa Gomes forseta.
Ræða sem hann hélt við innsetn-
ingu nýju stjórnarinnar sýndi að
samúð hans er með hófsömum
þótt hann setti ofan i við þá, —
því hann talaði um bráðabirgða-
lausn“.
— Viðbúnir
Framhald af bls. 1
áherzlu á, að það sem fyrir
okkur vakir með útfærslunni í
200 míiur er aðeins það að
stækka fiskveiðilandhelgina,
ekki að lýsa yfir yfirráðum
yfir þessu svæði eða efnahags-
lögsögu."
Utanríkisráðherra sagði að
það væri von íslendinga að við-
ræður gætu farið fram við
aðrar fiskveiðiþjóðir áður en
útfærslan tæki gildi 15. októ-
ber svo að komast mætti að
viðunandi samkomulagi um út-
færsluna.
Hann viðurkenndi að Islend-
ingar gætu lítið gert ef land-
helgin yrði ekki höfð i heiðri.
„Það er mjög lítið sem við
getum gert. Við vonumst eftir
samvinnu við önnur lönd til að
binda endi á þá hættu sem
fiskstofnum okkar stafar frá
rányrkju."
Utanrikisráðherra er i
Brezku-Kolumbíu ásamt
Kristjáni Eldjárn forseta í
þriggja daga óformlegri heim-
sókn sem er liður í 12 daga
ferð þeirra til Norður-
Ameríku.
JdZZBaLLOtCSkÓLÍ Bónu
I NI
Iflram/icckl
Dömur athugiö
3ja vikna námskcið
Byrjum aftur eftir sumarfrí
11. ágúst.
Likamsrækt og megrun fyr-
ir dömur á öllum aldri.
Morgun- dag- og kvöld-
tímar. Tímar 2 og 4 sinnum
i viku.
Sturtur — Sauna — Tæki.
Upplýsingar og innritun i
sima 83730 frá 1—6.
jazzBQLLeCCskóU Bóru
Enn dregur ekki úr
verðbólgu í USA