Morgunblaðið - 31.08.1975, Side 12

Morgunblaðið - 31.08.1975, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1975 Hitabylgjan, sem gengið hef- ur yfir Evrópu í sumar, hefur eðlilega vakið miklar umræður um veðurfarið í heiminum al- mennt og evrópsk blöð keppzt við að birta greinar og viðtöl við sérfræðinga á veðurfræði- sviðinu. Greinilegt er að mjög skiptar skoðanir eru meðal veð- urfræðinga um það sem fram- undan er og má í grófum drátt- um segja að um þrjá hópa sé að ræða, og skal þá fyrst nefna þann hóp sem háværastur hef- ur verið undanfarið og heldur því fram að við séum á leið inn í nýtt kuldaskeið eða minnihátt- ar ísöld, þá er hópurinn, sem heldur fram því gagnstæða, að við séum á leið inn í nýtt hita- beltisloftslag og svo í þriðja lagi þeir sem fara bil beggja og vilja meiri og skýrari rök fyrir kenn- ingum um ísöld eða hitabeltis- loftslag. 1 grein, sem Kaupmanna- hafnarblaðið Aktuelt birti í síð- ustu viku um veðurfar, segir, ... eða hitabeltisloftslag? Er ísöld eða hitabeltis- loftslag á næsta leiti? að hitinn í Danmörku hafi í sumar á stundum orðið meiri en hann hefur verið í 115 ár og þegar heitast varð, 36,3 stig á celcíus, var það mesti hiti 11000 ár að sögn blaðsins. Þá er á það bent, að janúarmánuður í ár hafi verið sá heitasti um árabil og þurrkurinn í landinu hinn lengsti í 200 ár. Hins vegar bendir blaðið á það, að hitastig N—Atlantshafsins hafi á sl. 20 árum lækkað um H gráðu á celsíus og ísjakar hafi 1972—73 sézt á sömu lengdargráðu og Lissabon. Auk þess hafi á þeim tíma mælzt mestu kuldar á pól- arsvæðunum í 200 ár. Þá segir blaðið einnig að á undanförn- um árum hafi náttúruhamfarir gerzt æ algengara og ægilegri . Gífurlegir þurrkar hafa geisað í V-Afríku og á Indlandi og svo á móti hrein syndaflóð í Bangla- desh. Saharaeyðimörkin teygi sig til suðurs og Humbolt- straumurinn hafi breytt sér svo við strendur Perú að ansjósu- veiðum landsmanna hafa stafað stórhætta af. Samfara þessu megi svo taka með í reikning- inn mengunina í heiminum, miklar kjarnorkutilraunir og tilraunir sérfræðinga til að hafa áhrif á veðrið með ýmsum ráðum. Það sé því ekki undan þótt ýmsir veðurfræðingar hafi áhyggjur. Nýiega var haldin f Norwich í Bretlandi ráðstefna veður- fræðinga frá 23 löndum, þar sem þeir fjölluðu um þær lofts- lagssveiflur, sem þeir telja að hafi gerzt og eigi eftir að gerast á þessum áratug. Sá hópur, sem heldur fram kenningunni um skeiðið segir að sú hitabylgja, sem gengið hefur yfir í ár sé aðeins ein- angruð hliðarverkum kuldaþró- unarinnar í heiminum. Þeir segja, að á sl. 10 árum hafi hitastigið nálgazt um 1/6 það Mjög skiptar skoðanir meðal veður- fræðinga úti í heimi hitastig, sem fyrir 18 þúsund árum hafi gert það að verkum, að norðurhvel jarðar hafi verið hulið íshjúp. Eins og fyrr segir hefur hitastig N-Atlantshafsins lækkað um 1/2 gráðu, en á svæði fyrir vestan Nýfundna- land hafi hitastigið hrapað um 2,12 stig í febrúar og 2,10 stig i ágúst. Segja þeir, að aðeins nokkurra stiga lækkun hafi I för með sér stóraukna hættu á ísöld. Þessir menn segja að mengun andrúmsloftsins skapi mesta hættu. Þegar séu um 15 millj- ónir lesta af rykögnum úti í geimnum, útblástur frá iðnað- arverksmiðjum heimsins, olíu- kyndingum og bifreiðum. Þetta sé ástæðan fyrir hinu lækkaða hitastigi. Verði ekki komið í veg fyrir þessa mengun og hún t.d. þre- eða fjórfaldist, muni það hafa í för með sér 3—4 stiga lækkun hitastigs til við- bótar sem myndi nægja til að koma af stað nýrri ísöld. Þeir segja að rykagnirnar virki sem hlíf í andrúmsloftinu, sem end- ursendi sólargeislana áður en þeir nái til jarðar. Á öndverðum meiði eru þeir, sem halda því fram að við séum á leið inn í nýtt hlýindaskeið. Þeir segja að kolsýringurinn, sem verksmiðjur og bílar spýta úr sér án afláts myndi himnu umhverfs jörðina, sem hindri útfjólubláu sólargeislana i að komast aftur út úr andrúms- loftinu. Þannig myndist eins- konar hjúpur umhverfis jörð- ina, sem hafi í för með sér stöðugt hækkandi hitastig. Ástandið líkist því einna helzt gróðurhúsi. Þetta geti m.a haft í för með sér að allur heim- skautaísinn bráðni og meiri- hluti flatlendis i heiminum fari undir vatn. Hér höfum við hevrt sjónarmið hinna tveggja andstæðu hópa meðal veður- fræðinga, en meirihluti veður- fræðinga eru þó á milli þessara hópa og vilja fá að sjá haldföst rök fyrir þessum kenningum áður en þeir trúa þeim og telja að þessi rök skorti. Engu að síður verður fróðlegt að fylgj- ast með umræðum um þessi mál og vafalaust eiga margar kenningar eftir að koma fram á næstu árum, en hvað sem öllu líður, eru litlar likur á því að sú kynslóð, sem nú lifir, þurfi að óttast fsöld eða hitabeltislofts- lag. 99 Það skortir haldföst rök fyrir þessum spám um hitabreytingar” segir Hlynur Sigtryggsson veðurstofustjóri Með greinina hér á síðunni upp á arminn örkuðum við á fund Hlyns Sigtryggssonar veðurstofustjóra og spurðum hann hvort við ættum að kaupa okkur þykkari lopapeysur eða reyna að selja lopapeysurnar og ullarbrækurnar og fá okkur í staðinn stuttbuxur. „Það eru svo margar kenn- ingar um veðurfarið og þróun- ina, að það er alveg furðulegt. Ég held að þær skipti þúsund- um frá aldamótum. Áhugi manna á veðrinu gengur eins og það sjálft f nokkrum bylgj- um og ein slfk áhugabylgja virðist nú vera að ganga yfir. En það sem ég hef heyrt og lesið um kenningar veðurfræð- inga um hitabreytingar hefur einkennzt að mfnum dómi af þvf, að það skortir haldföst rök fyrir þeim breytingum, sem þeir eru að spá. Til þess að geta gert spár þurfa menn að kunna glögg skil á þvf sem fer fram og það finnst mér vanta. Mér finnst að menn dragi ályktanir af tilhneigingum f veðri, sem verið hafa nokkru áður, án þess að skýra út af hverju þær stafa. T.d. hafa danskir og fslenskir vfsindamenn framkvæmt bor- anir f Grænlandsjökul og fund- ið merki um hitabreytingar, bæði um síðustu fsöld og svo ýmsar sveiflur, sem orðið hafa síðan. Þeir hafa gert Fourier- greiningu á þessum merkjum (Fourier var frægur franskur stærðfræðingur) og svo fram- lengt þá greiningu fram f tím- ann og notað sem spá. Að mín- um dómi er ekki hægt að nota slíka aðferð til að spá nema því aðeins að menn hafi á reiðum höndum eðlisfræðilega skýr- ingar á hverjum einstökum þætti greiningarinnar og ég hef ekki enn séð slíkar skýringar. — Þú leggur þá ekki mikið upp úr fullyrðingum hinna andstæðu hópa? — Nei, það geri ég ekki, það vantar rök og til þess að fá þessi rök þarf að gera miklar rannsóknir. Hins vegar skal ég viðurkenna að þessum mönn- um er nokkur vorkunn að nota þessar aðferðir, því að fá rökin fram þarf gffurlega vinnu. — En hvað segir þú um um- mæli brezka prófessorsins Lamb fyrr í vikunni á blaða- mannafundi f Norwich við setn- ingu veðurfræðiráðstefnunnar, er hann sagði að hitastigið hefði á sl. 25 árum lækkað um fjórðung gráðu á celcíus og þetta sæist m.a. á þvf að vaxtar- =3= Lfnuritið sýnir þróun frá 1915 til 1970 um þann tfma sem Mý- vatn er fsi lagt. Þróun sfðustu ára bendir til kuldatilhneiging- Hlynur Sigtryggsson veður- stofustjóri tfmi korns hefði stytzt um 9 daga f Bretlandi? — Ég legg ekki sérstaklega mikið upp úr þeim. Ég býst við að þetta kunni að vera rétt hvað meðaltal snertir, en ég held að gróðurinn f Bretlandi sé breyti- legur ár frá ári eins og f öðrum Iöndum. Hins vegar er það rétt, að meðalhiti er alltaf að hreyf- ast. Hér á landi getum við t.d. tekið hið fræga hlýjindaskeið sem varð á árunum milli 1920—30. Á þeim tfma hækkaði meðalhitinn mjög. Hins vegar er það greinilegt að meðalhit- inn hefur lækkað aftur og þá einkum á árunum upp úr 1960, en ég held að lækkunin á sfð- ustu árum hafi ekki verið eins hröð og fyrst eftir 1960. En hvort kólnun heldur áfram eða aftur bregður til hlýinda treysti ég mér ekki að spá um. — Hvernig hefur sumarið f sumar verið miðað við sfðustu ár? — Sumarið sem nú er að Ifða Ifkist ákaflega mikiö óþurrka- sumrinu mikla sem kallað var 1955. Það hefur verið stöðug hæð yfir Norðurlöndum, sem veldur suðlægri átt hér á landi og það hefur yfirleitt í för með sér, að það er s.kýjað og rigning sunnanlands, en bjart norðan- lands. Hins vegar er munurinn á þessum tveimur sumrum sá, að 1955 var miklu hlýrra veður, eða fyrir ofan meðallag, en sumarið það sem af er nú hefur verið undir meðallagi, hvað sem því veldur, þótt að vfsu hafi verið hlýrra norðanlands. Veðurbreytingar ár frá ári eru eðlilegar og við skulum hafa það f huga, að þótt við tölum um meðalár, eru þau miklu fleiri árin, ofan eða neðan við meðalár. — Er þetta kuldaskeiðstal þá bara hjal? — Ef við skoðum okkar gögn nákvæmlega má sjá, að frá 1960 hefur verið kólnunartilhneig- ing f veðrinu, en ég hef ekkert í höndunum til að byggja á spá um hver þróunin verður, hvort það heldur áfram að kólna eða hvort nýtt hlýjindaskeið tekur við. — Ef við nú höldum okkur Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.