Morgunblaðið - 31.08.1975, Blaðsíða 14
X4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGUST 1975
Svart einræði í
svörtu álfunni
LÝÐRÆÐI hefur átt erfitt uppdráttar í hinum
nýfrjálsu ríkjum Afríku. Varla líður sá mánuð-
ur að ekki fréttist af byltingu í einhverju
þeirra — nú sfðast í Nígeríu sem er fjölmenn-
aáta og lfklega auðugasta blökkumannaríkið í
Afríku.
Nú er svo komið að herforingjar fara með
völdin í sautján Afríkuríkjum. Þar við bætist
að öll völd eru í höndum aðeins eins stjórn-
málaflokks í nítján öðrum Afríkuríkjum.
Þar með eru flest ríki Afríku upptalin. Að-
eins undantekningarnar eru eftir: þrjú kon-
ungdæmi, tvö lönd þar sem minnihluti hvítra
manna fer með völdin, þrjár evrópskar nýlend-
ur, eitt land, Rhódesía, sem er að nafninu til
brezk nýlenda, en hefur lýst einhliða yfir sjálf-
stæði — og þrjú lönd þar sem mörgum stjórn-
málaflokkum er leyft að starfa.
Eins og meðfylgjandi kort sýnir ráða herfor-
ingjar í eftirtöldum Afríkulöndum: Alsír,
Lfbýu, Súdan, Eþíópíu, Sómalfu, Malí, Níger,
Chad, Efri-Voltu, Ghana, Togo, Dahomey,
Nígeríu, Mið-Afríku lýðveldinu, Uganda,
Rwanda og Malagasy.
Kerfi sem byggist á völdum aðeins eins
stjórnmálaflokks ríkir í eftirtöldum löndum:
Túnis, Egyptalandi, Máritaníu, Senegal,
Guineu, Guineu-Bissau, Sierra Leone, Fíla-
beinsströndinni, Mið-Afríku Guineu,
Kamerún, Gabon, Kongo (Brazzaville), Zaire,
Burundi, Kenya, Tanzaníu, Malawi, Zambíu og
Mozambique.
Marokkó, Swaziland og Lesotho eru konungs-
ríki, Angola fær sjálfstæði frá Portúgölum í
nóvember. Spánverjar ráða enn hluta Sahara
og Frakkar Djibouti sem nú kallast Afar og
Issas. Minnihlutastjórn hvítra manna ræður í
Suður-Afríku, Suðvestur-Afríku eða Namibíu
og í Rhódesíu sem er formlega séð brezk
nýlenda.
Hættuástand á sjö svæðum
Löndin þrjú
Löndin þrjú þar sem fleiri
en einn stjórnmálaflokkur fá aó
starfa eru Gambía, Libería og
Botswana. Jafnvfel ekki í þessum
löndum ríkir fullkomiö lýðræði.
Að vísu má segja að í sumum
Iöndum þar sem einn flokkur fer
með völdin sé vísir að lýðræði og
að sum þeirra eigi að baki nokkra
Iýðræðishefð. En það að fleiri en
einum stjórnmálaflokki er leyft
að starfa er að heita má einsdæmi
i Afríku og því er ekki úr vegi að
hnga að þessum ríkjum:
# Líbería: Lengi var
Líbería eitt af aðeins þremur
sjálfstæðum ríkjum Afríku, auk
Eþíópíu og Suður-Afríku.
Leysingjar frá Bandaríkjunum
stofnuðu þetta riki i Vestur-
Afríku 1847 og það er því elzta
sjálfstæða lýðveldið i Afríku. Af-
komendur þeirra hafa ráðið lög-
um og lofum í landinu fram á
siðustu ár þótt þeir séu taldir
aðeins þrír af hundraði íbúanna.
Undir forystu William Tubmans
forseta, sem er nýlátinn og var
fyrst kjörinn 1943, voru þó áhrif
,,innfæddra“ aukin jafnt og þétt.
í heimsstyrjöldinni fengu Banda-
menn að heita má allt gúmmi sitt
frá Líberíu. Um svipað leyti fund-
ust miklar málmauðlegðir i land-
inu og þar með hófst mikill upp-
gangstími. Siðustu ár hafa verið
mikið velsældarskeið þótt á ýmsu
hafi gengið í efnahagsmálum
landsins vegna verðsveiflna. Lýð-
ræði i Líberíu hefur ekki verið
fullkomnara en það að starfsemi
stjórnmálaflokka var bönnuð
fyrir tuttugu árum og Tubman og
flokkur hans réðu að heita má
öllu á stjórnarárum hans.
# Gambía: Áhrif Breta
eru ennþá mikil í Gambíu sem er í
Vestur-Afríku eins og Líbería og
hefur orðið vinsælt ferðamanna-
land á siðari árum. Bretar keyptu
Gambíu af Portúgölum 1588 og
þar með varð Gambía fyrsta
nýlenda Breta I Afriku. Landið
fékk sjálfstæði 1965 og stofnun
lýðveldis var samþykkt í þjóðarat-
kvæðagreiðslu fyrir fimm árum.
Idi Amin forseti Uganda er nú opinber talsmaður Afríku þar sem
hann hefur verið kjörinn formaður Einingarsamtaka Afríkuríkja.
Hann segist undirbúa skæruhernað gegn Suður-Afríku og hefur hvatt
til styrjaldar gegn stjórn hvfta minnihlutans þar.
Erftrea er eitt af hættusvæðum Afri'ku. Þar berjast skæruliðar enn
fyrir algeru sjálfstæði og aðskilnaði frá Afríku með stuðningi Araba.
Landið hefur fengið talsverða
efnahagsaðstoð frá Bretum og
hefur nána samvinnu við Senegal.
Ibúar landanna eru skyldir og
Senegal umlykur Gambiu, sem er
við ósa samnefnds fljóts. Fljótið
er kallað eina auðlind Gambíu og
95% útflutningsins eru hnetur.
Þingkosningar hafa farið fram
með venjulegum hætti síðan á
dögum brezku nýlendustjórnar-
innar. Einn flokkur, flokkur Sir
Dauda Jawara forsætisráðherra,
hefur haft öruggan meirihluta.
# Botswana: Ems og
Gambía er Botswana fyrrverandi
brezk nýlenda og hét áður
Bechuanaland. Einhverjar mestu
demantsnámur heimsins fundust
fyrir nokkrum árum í norð-austur
hluta landsins, og síðan hafa
fundizt miklar kopar og nikkel-
námur. Landið fékk sjálfstæði
1966 og lauk þar með langri bar-
áttu foringja þjóðarinnar, Sir
Seretse Khama, núverandi for-
seta, sem er kvæntur hvitri konu.
Sú barátta var erfið vegna
nálægðar Suður-Afríku. Stjórn
Khama hefur orðið að sætta sig
við það, að landið er háð stjórn
hvita minnihlutans í Suður-
Afríku og þarf að eiga vinsamleg
samskipti við hana þrátt fyrir
kynþáttastefnu hennar. Forset-
inn er afkomandi höfðingja Bots-
wana-þjóðarinnar og Búa, sem
sóttu úr suðri. Kosningar hafa
farið fram með eðlilegum hætti í
landinu.
Það er ekki aðeins að lýðræði
eigi erfitt uppdráttar í Afríku.
Víða er hungur. Alvarlegir þurrk-
ar hafa geisað á mörgum stöðum á
svæðinu sunnan við Saharaeyði-
mörkina, í Eþíópiu og Sómalíu.
Efnahagsmál eru víðast hvar i
ólestri.
Æjttflokkarigur er alvarlegt
vandamál í flestum rikjum
Afríku. Þess vegnageisaði Biafra-
styrjöldin og ættflokkastyrjöld í
Mið-Afrikuríkinu Burundi, þegar
raunverulega var reynt að útrýma
heilli þjóð. Þvi er stöðug hætta á
innanlandsátökum í mörgum ríkj-
um. Þar við bætist hætta á átök-
um við stjórn hvíta minnihlutans
í Suður-Afríku.
m
Oróasvæði
Nú sem stendur má segja að
á sjö svæðum í Afriku séu átök
eða hætta á alvarlegum átökum:
# Angola: Þar geisar
borgarastyrjöld þriggja frelsis-
hreyfinga blökkumanna, en land-
ið á að fá sjálfstæði i nóvember.
# Namibía: Fréttir herma
að dregið hafi verið saman fjöl-
mennt lið skæruliða í Angola til
að binda enda á yfirráð Suður-
Afríkumanna í þessari fyrr-
verandi nýlendu Þjóðverja sem
þeir kalla Suðvestur Afríku og
neita að veita sjálfstæði.
# Rhódesía: Umsvif
skæruliða hafa aukizt á undan-
förnum mánuðum en stjórn hvíta
minnihlutans hefur nýlega sam-
þykkt að ræða við foringja
blökkumanna um nýja stjórnar-
skrá í járnbrautarvagni á brúnni
yfir Viktoríufossa.
# Uganda: Andstaða
magnast gegn stjórn Idi Amin for-
seta þótt enn sé hún heldur fyrir-
ferðarlítil og hann kyndir undir
ólgu í grannríkjunum, Kenya og
Tanzaníu.
# Eþíópfa: Múhameðskir
skæruliðar hafa gert uppreisn i
Eritreu og herforingjarnir sem
steyptu Haile Seiassie keisara af
stóli hafa ekki getað brotið hana á
bak aftur.
# Súdan: Þar rlkir ótrygg-
ur friður eftir vopnahlé sem
blökkumenn í suðurhéruðum
landsins og herforingjastjórn
Araba í norðri hafa samið og það
getur farið út um þúfur áður en
varir.
# Spænska Sahara:
Bardagar geisa á landamærum
vegna vaxandi þrýstings frá
grannríkjunum Marokkó, Alsír og
Máritaníu, sem girnast gifurleg
fosfatauðæfi landsins.