Morgunblaðið - 31.08.1975, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 31.08.1975, Blaðsíða 48
PLAST ÞAKRENNUR Sterkar og endingagóðar Hagstætt verð. Nýborgp Armúla 23 — Sími 8675S SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1975 Stefnt að bví að nið- urgreiða nautakiötið segir landbúnaðarráðherra NÚ ER í undirbúningi að taka upp niðurgreiðslur á nautakjöti og er stefnt að því að það komist til fram- kvæmda í haust. Ekki er þó hugmyndin að auka niður- greiðslurnar, heldur að jafna út greiðslur á dilka- og nautakjöti. „Það hefur líka komið í ljós, að miklu auðveldara er að selja dilkakjöt úr landi en nautakjöt,“ sagði Halldór E. Sigurðsson landbún- aðarráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. Landbúnaðarráðherra sagði, að máiið væri nú í höndum verðlags- nefndar og framleiðsluráðsins. Keppt væri að því, að niður- greiðsla nautakjöts kæmi til fram- kvæmda sem fyrst, en ekki væri hægt að slá neinu föstu um hvenær það yrði, þar sem ýmsir vankantar gætu komið upp. „Þessi aðgerð að lækka nauta- kjöt eftir helgina um 45% er ósk okkar um að hitt geti orðið fram- tíðin. Hinar fyrirhuguðu niður- greiðslur eru ekki miðaðar við það að auka fjármuni til niður- greiðslna, heldur dreifa þeim,“ sagði Halldór E. Sigurðsson. .Auðvitað er ég vonsvikinn vfir því að Bandaríkin, Kanada og Noregur hafa ákveðið að fresta aðgerðum. Sérstaklega veldur af- staða Kanadamanna mér von- brigðum, þar sem ég hafði sér- staklega vænzt frumkvæðis af þeirra hálfu." Um afstöðu Sovét- ríkjanna til landhelgismálsins segir Matthías: „Sovétríkin hafa mótmælt fyrirhugaðri útfærslu okkar í 200 mflur og í nýlegri heimsókn minni til Sovétrikjanna fann ég, að þar er mjög sterk andstaða gegn slikri afstöðu strandríkja. En ég þurfti ekki að fara til Moskvu til þess að komast að því. Þrátt fyrir þetta mættum við í Moskvu ákveðnum skilningi, því að Sovétmenn vita eins og allir aðrir að við íslendingar tök- um þessa einhliða ákvörðun af einskærri nauðsyn“, segir Matthías Bjarnason í viðtalinu við „News from Iceland". Ljósm. Mbl. Friðþjófur. Sjávarútvegsráðherra: Semjum ekki við EBE-lönd nema tollaíríðindin komi strax samninga Islendinga um tolla verði samstundis afnumdar." Þessi ummæli eru höfð eftir Matthfasi Bjarnasyni sjávarút- vegsráðherra f ritinu „News from Iteland", sem nýlega er komið út. Sjávarútvegsráðherra leggur i viðtalinu áherzlu á að Islendingar verði að koma í veg fyrir, að er- lendar þjóðir beiti þá efnahags- legum refsiaðgerðum vegna land- helgismálsins og segist ráðherr- ann hér eiga við framkomu Vest- ur-Þjóðverja, þrátt fyrir þá stað- reynd að íslendingar hafa samið við Belga og Breta. „ÞAÐ ER eindregin skoðun mfn, að við eigum ekki að semja við neitt land innan Efnahagsbanda- lagsins, nema með þvf skilyrði að þær takmarkanir á gildistöku sér- Matthías Bjarnason segir einnig í viðtalinu, þegar rætt er um afstöðu Kanada, Bandarfkj- anna og Noregs f útfærslumálum: Aðalfundur Stéttarsambands bænda: Hækkun framleiðslu- kostnaðar landbúnað- arvara 45% á einu ári LÁNAMÁL landbúnaðarins hafa mjög verið til umræðu á aðal- fundi Stéttarsambands bænda á Laugarvatni. Miklar hækkanir hafa orðið á framleiðslukostnaði landbúnaðarvara og hefur hækk- unin frá 1. september f fyrra orð- ið 45,4% og heildarhækkun verð- lagsgrundvallar frá þvf að hann var lagður haustið 1973 er þá orð- inn 109%. Illa hefur gengið að útvega nægilegt lánsfé til land- búnaðarins og hefur það samfara hækkuðum tilkostnaði skapað bændum nokkurn vanda. Rætt hefur verið um að vísitölu- tryggja lán til landbúnaðarins, en þeir, sem til máls tóku um þessi mál á aðalfundinum, voru þvi mótfallnir, að lánin yrðu gengis- eða vísitölutryggð og bentu á þann aðstöðumun, sem með því kæmist á. Ekki var útséð hvort tækist að Ijúka störfum fundarins í gær, því að fjöldi mála lá fyrir nefndum, sem þá störfuðu. Ef það tekst ekki verður fundi fram haldið í dag. Eins og áður sagði hefur orðið mikil hækkun á tilkostnaði við framleiðslu landbúnaðarvara á síðustu tveimur árum. I skýrslu formanns Stéttarsambandsins, Gunnars Guðbjartssonar, kom fram, að á þessum tveimur árum hefur kjarnfóður hækkað um 119%, áburður hefur hækkað um tæp 149%, viðhald og fyrning úti- húsa um tæpl. 99%, viðhald girð- inga um 298%, kostnaður við rekstur búvéla um 135%, flutningskostnaður um 127% og launakostnaður um 90%. Þess er að vænta að aðalfundur- inn geri samþykktir um Iánamál landbúnaðarins, en í skýrslu Gunnars kom fram, að heildar- rekstrarlán landbúnaðarins eru orðin 943 milljónir á þessu ári, skv. upplýsingum Seðlabankans. Þá kom fram, að með hliðsjón af verðmæti sauðfjárframleiðslunn- ar, sem var á síðasta hausti 4,4 milljarðar, og gera má ráð fyrir að verði 6,5 milljarðar i haust, eru lánin 14,5% af heildarverðmæt- inu. Annað mál, sem nokkuð hefur verið rætt á aðalfundinum, er framleiðsla á nautakjöti hér á landi. Á fundinum kom fram, að sala á kindakjöti hefur vaxið tvö siðustu ár, en þessi söluaukning hefur mestmegnis verið innan- lands. Þá hefur framleiðsla á kindakjöti aukizt samhliða auk- inni sölu. Framleiðsla á nauta- kjöti hefur einnig aukizt, en sala þess hér innanlands hefur ekki vaxið að sama skapi. Hefur þetta valdið því, að orðið hefur að flytja út nautakjöt á þessu og síðasta ári eðayfir 500 tonn. Fóðurbætisframleiðslan: T aka þarf mál- ið föstum tökum EINS OG skýrt var frá I Morgun- blaðinu I gær er hægt að fram- ieiða allan þann fóðurbæti, sem Islendingar nota, innanlands og með þvf sparast 2.000 millj. kr. f gjaldeyri á ári miðað við núver- andi verðlag. Vegna þessarar fréttar snéri Morgunblaðið sér tíl Gunnars Thoroddsen iðnaðarráð- herra og Halldórs E. Sigurðssonar landbúnaðarráðherra og spurði þá hvort þess væri að vænta að eitthvað yrði gert I þessu máli á næstunni. Gunnar Thoroddsen iðnaðar- ráðherra sagði: „Hér er um stór- merkilegt mál að ræða með fram- leiðslu á innlendum fóðurbæti f stórum stíl. Þetta er mál, sem snertir bæði landbúnaðarráðu- neytið og einnig orku- og iðnaðar- málaráðuneytið. Við athugun þess og undirbúning þarf samráð beggja ráðuneytanna. Landbún- aðarráðherra, Halldór E. Sigurðs- son, og ég munum hafa náið sam- starf við athugun þessa máls.“ Halldór E. Sigurðsson, landbún- aðarráðherra sagði, að þetta mál þyrfti að taka föstum tökum og fullt samstarf landbúnaðar- og iðnaðarráðuneytisins myndi von- andi hefjast fljótlega. Rann- sóknarstofnun landbúnaðarins hefði unnið ákaflega gott starf að undanförnu, enda hefðu menn verið heppnir að geta ráðið dr. Björn Sigurbjörnsson sem for- stjóra stofnunarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.