Morgunblaðið - 31.08.1975, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.08.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 31. ÁGÚST 1975 19 — Sextugur Framhald af bls. 13 var hann í sérflokki hérlendis í sinni vigt, en oft reyndist erfitt að finna honum keppinaut, sem gat staðið honum á sporði. Jafnhliða hnefaleikunum hafði hann unun af laxveiði og fuglaveiðum, enda hin leiknasta skytta. í dag má sjá í bílnum hans riffil og veiðistöng, þegar hann fer úr bænum. Lúðvík átti því láni að fagna, að á hans vegi varð ágætiskona, Þórunn Ragnhildur Ólafsdóttir, skipstjóra Ólafssonar i Reykjavík. Henni kvæntist hann árið 1936 og eiga þau 40 ára hjúskaparafmæli þann 22. febrúar n.k. Það hefur löngum verið sagt, að bak við far- sæla dugnaðarmenn sé ávallt góð og traust kona. Hér á það sannar- lega við. Þórunn hefur búið manni sínum vistlegt og gott heimiii og staðið við hlið hans í blíðu og stríðu. Oft mæddi það á henni einni, uppeldi barnanna, meðan húsbóndinn dvaldist lang- tímum saman uppi á fjöllum við að leggja símalínur um þvert og endilangt landið. Þrátt fyrir það, að Lúðvík er aðeins sextugur, er hann einn af elstu núiifandi starfsmönnum Landssíma Islands. Hringinn i kring um landið á hann vini og kunningja gegn um sitt brautryðj- endastarf í þágu símans. Ég veit að það verða margir sem minnast þesp höfðingja í dag og taka undir afmælisóskir okkar hjón- anna til Lúðvíks, konu hans, barna og barnabarna. Megi ísland eignast fleiri slika hæfileikamenn og megi þjóðin fá að njóta starfs- krafta þinna sem allra lengst. Haraldur Gislason. 3 millj. kr. fyrir lóð á Arnarnesi 1 Morgunblaðinu í fyrradag er auglýst lóð á einum eftirsóttasta byggingarstað landsins, Arnar- nesi. M.bl. lék forvitni á að vita hvað lóðin ætti að kosta og hafði samband við Agnar Ólafsson í Fasteignasölunni i Norðurveri, sem hefur lóðina til sölu. Agnar sagði, að lóðin, sem væri 1270 fermetrar og væri við Þernu- nes, ætti að kosta liðlega 3 milljónir króna. Þegar hefðu margir hringt og spurt um þessa lóð og væntanlega væri þess ekki langt að bíða að lóðin seldist. Vefnaðar- vöru- verzlunin Grundarstíg 2 auglýsir Sængurverasett og gluggatjaldaefni í úr- vali á góðu verði. Ódýrt flauel — denim vatnshelt úlpu- efni, upplagt í skóla- fatnað. Ódýrar flauelsbuxur. Ennfremur bróderað- ir kínverskir dúkar og ítalskar gjafavörur o.m.fl. Hydrovane LOFTÞJÖPPUR AFKÖST 368/MÍN. TIL AFGREIÐSLU STRAX. G. Þorsteinsson og Johnson, Ármúla 1, sími 85533. 12" Atlas rennibekkir til afgreiðslu strax. G. Þorsteinsson og Johnson, Ármúla 1, sími 85533. HAUST — SKÓRNIR ’75 FYLGJA FATATÍSKUNNI ’75 Skómir ná upp á miðja fótleggi gerðir úr ekta anilín skinni — einnig mjúku leðri og hrágúmmísólum hlýfóðraðir og fótlaga. póstsendum SKÚVERZLUN 8. WAAGE Einnig nýkomið fótlaga hjúkrunarkvennaskór, barnakuldaskór, tréskór ofl. ofl. Anilin skinn Ijósbrúnt stær 30 kr 4 180 . ’\ ) < 31—33 kr. 4.690.- iJÉ I 34—37 kr 5 215. 38—42 kr. 5 880.- 43—46 kr 6.360 XCOnf. INN- OG CTTFLUTNINGUR VERKTAKAR 9 IÐNREKENDUR Vantl yöur tækjakost, þá getum við boöiö ótrúlegustu vélar og tæki á hagstæöu verði. Nýjar og nýuppgeröar vélar. Eitt símtal til okkar getur gert gæfumuninn. XCO HF SÍMI 27979

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.